Dagur - 03.11.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 3. nóvember 1989
Þtö gertö beiri
mtarkaup
iKEANETTO
Opið virka daga frá kl. 13.00-18.30
Opið á laugardögum frá kl. 10.00-14.00
Strásykur
2 kg
Kakó-Kvikk
500 g
Maggi súpur
bréfiö
Kjötbúðingur
kg
WC-pappír
smnBamr .jmmmur
„
UlHKT linr " 10 rullur
'
■;;:,....
-verði
KEANETTO
fréttir
Trésmiðjan Valsmíði sf. á
Akureyri varð 15 ára miðviku-
daginn 1. nóvember, og var
tímamótanna minnst með við-
eigandi hætti. Starfsmönnum
annarra fyrirtækja við Frosta-
götu var boðið í kaffi og rjóma-
tertu og voru veitingarnar að
sjálfsögðu þegnar með þökk-
um. En hver er saga fyrirtækis-
ins? Jónas Sigurjónsson, eig-
andi Valsmíði:
„Við byrjuðum í bakhúsi hjá
Skapta, keyptum þar af Torfa
Leóssyni það sem eftir var af
Valbjörk. í upphafi vorum við
þrír sem keyptum þetta og hafa
ýmsir verið eignaraðilar í gegn-
um árin en ég hef verið með frá
upphafi og reyndar einn núna.
Jónas Sigurjónsson, eigandi Valsmíði, og Jónas Steingrímsson, verkstjóri,
ráðast á á rjómatertuna. Mynd: kl
Rjómatertukaffi í Frostagötunni:
Valsmíði sf. 15 ára
,Höldum ótrauðir áfram,“ segir Jónas Sigurjónsson
Við byrjuðum í húsgagnasmíði
en fórum yfir í innréttingar,“
sagði Jónas.
Valsmíði framleiðir eldhúsinn-
réttingar, fataskápa og baðinn-
réttingar, en ýmis sérsmíði fylgir
oft með. Jónas sagði að Valsmíði
gerði stundum tilboð í heildar-
pakka í húsum sem eru tilbúin
undir tréverk og tæki þá upp
samstarf við önnur fyrirtæki.
Hann sagðist þó framleiða mest
fyrir einstaklinga.
Aðspurður sagði Jónas að
þetta hefði gengið misjafnlega í
gegnum árin fimmtán en innrétt-
ingaiðnaðurinn hefur oft átt í vök
að verjast. Hann sagðist hafa ver-
ið heppinn með starfsfólk og að
mestu sloppið við fjárfestinga-
fyllerí.
„Reyndar lentum við í þessu
þegar við fluttum í 600 fermetra
húsnæði hér í Frostagötunni
1980, en þá var verðtryggingin að
skella á og lægð í byggingariðn-
aðinum. Við höfðum það af og
höldum ótrauðir áfram í sam-
keppninni," sagði Jónas að
lokum. SS
Átak í undirbúningi:
Unglingar gegn ofbeldi
Um þessar mundir er verið að
vinna að undirbúningi átaks
sem ætlað er að vekja athygli á
sívaxandi ofbeldi í þjóðfélag-
inu og þá einkum og sér í lagi
Plasteinangrun, Sæplast og DNG
sýndu í Seattle:
Trúlega fara þrír gámar af
trollkúlum vestur fyrir jól
Á vegum Útflutningsráðs
kynntu þrjú norðlensk fyrir-
tæki framleiðslu sína á sjávar-
útvegssýningunni Fish Expo
’89 í Seattle á dögunum. Um er
að ræða Sæplast hf. á Dalvík
og akureyrsku fyrirtækin DNG
og Plasteinangrun.
Sigríður Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Plasteinangrunar,
segist hafa þær spurnir af sýning-
unni að viðbrögð aðila ytra hafi
verið nokkuð jákvæð. Plastein-
angrun kynnti trollkúlur og segist
Sigríður eiga von á að þrír gámar
af trollkúlum fari vestur um haf
fyrir jólin.
„Það komu engir nýir aðilar
inn á þessari sýningu en við selj-
um væntanlega trollkúlur til aðila
sem hafa áður skipt við okkur,“
sagði Sigríður.
Hjá Plasteinangrun er nú ein-
göngu unnið við framleiðslu troll-
kúla. „Við eigum fiskkassa á
lager og það verður að segjast
eins og er að það hefur gengið
fremur erfiðlega að selja þá að
undanförnu. Segja má að sam-
dráttur í sölu á þeim hafi byrjað
um mitt síðasta ár og síðan hefur
markaðurinn verið heldur dauf-
ur.“ óþh
meðal unglinga. Það eru tóm-
stunda og æskulýðsráð Kópa-
vogs, Hafnafjarðar og Reykja-
víkur, Útideild unglinga í
Reykjavík og Rauði kross
Islands sem standa fyrir átak-
inu.
Tilgangurinn með þessu átaki
er að vekja unglinga til umhugs-
unar um þetta mál og fá þá til að
velta því fyrir sér, hvort það
aukna ofbeldi sem við verðum
vör við í samfélaginu sé eitthvað
sem hægt er að vinna gegn.
Petta verður gert með því að ná
til krakkanna gegnum félagslíf og
tómstundir auk skóla, sýningu á
leikinni heimildarkvikmynd um
ofbeldi meðal unglinga, umræðu-
og vinnuhópa í félagsmiðstöðv-
um, sérstökum hátíðum tengdum
málefninu og fleiru.
„Sópurinn og rekan bætast við“
- segir nýráðinn húsvörður við Dalvíkurskóla
„Maður verður að einhverju
leyti áfram með hamarinn á
lofti. Sópurinn og rekan bætast
við,“ sagði Bragi Jónsson,
húsasmíðameistari og einn
aðaleigenda Tréverks hf. á
Dalvík, en hann er þessa dag-
ana að taka við starfi húsvarð-
ar við Dalvíkurskóla. „Tré-
verk hefur séð um viðhald á
skólamannvirkjum hér þannig
að maður veit nokkuð um
ástand þeirra.“
Bragi segist þessa dagana vera
að setja sig inn í nýja starfið. Frá
Flugfélag Norðurlands:
30 ára afmæli
Miðvikudaginn 1. nóvember
varð Flugfélag Norðurlands 30
ára en það var hinn gamal-
kunni tlugmaður, Tryggvi
Helgason, sem stofnaði
Norðurflug þennan dag árið
1959. Staifsmenn Norðurflugs
keyptu félagið 1974 og nafni
þess var breytt í Flugfélag
Norðurlands árið 1975.
Flugfélag Norðurlands er í
eigu fimm einstaklinga á Akur-
eyri og Flugleiða, en eignarhlutur
Flugleiða er 35%. Starfsmenn
félagsins eru nú 25 talsins.
Flugfélag Norðurlands sinnir
áætlunar- og póstflugi, leiguflugi,
flugkennslu og viðhaldsþjónustu.
Félagið á 8 flugvélar og um 2 þús-
und fermetra flugskýli. Félaginu
hefur vaxið fiskur um hrygg á
þessum 30 árum og hefur gjarnan
verið bent á það sem gott dæmi
um vel rekið flugfélag. Fram-
kvæmdastjóri FN er Sigurður
Aðalsteinsson. SS
nokkrum lausum endum verður
að ganga hjá Tréverk áður en
húsvörðurinn yfirtekur húsa-
smiðinn. Ekki er þó ætlun Braga
að segja skilið við Tréverk, hann
segist eiga áfram hlut í fyrirtæk-
inu enda sé staða þess sterk. „Ég
hafði einfaldlega áhuga á að
breyta til, enda héf ég verið í
þessum trésmíðabransa í 30 ár og
fannst tími til kominn að reyna
eitthvað annað,“ segir Bragi.
Álafoss hf.:
Aðalfundur um
næstu mánaðamót
Álafoss hf. mun halda aðal-
fund um næstu mánaðamót.
Ýmis atriði í kjölfar samein-
ingar fyrirtækjanna hafa orðið
til þess að fundurinn er haldinn
svo sent sem raun ber vitni.
Ólafur Ólafsson, forstjóri Ála-
foss, segir að engar upplýsingar
um stöðu fyrirtækisins verði gefn-
ar fyrir aðalfundinn. Fyrir liggja
sex og átta mánaða uppgjör þessa
árs, en tölur verða ekki birtar úr
þeim fyrr en stjórn fyrirtækisins
hefur fjallað um þær á aðalfúnd-
inum. EHB
* 'iJ tMtStn* tf i