Dagur - 04.11.1989, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Laugardagur 4. nóvember 1989
Laugardagur 4. nóvember 1989 - DAGUR - 9
Gun«at
yorum staðráðnir í því að
láta ekki drepa þá hjá okkur*
- Gunnar J. Jóhannsson, rannsóknarlögreglumaður, segir frá starfsferli sínum
í Carmínu, hinni merku heimild Menntaskólans á Akureyri, stendur ritað: „Sögu-
séníið og frístundahurðapassarinn Gunnar J. Jóhannsson er fæddur og uppalinn í
þingeysku fjósi. Átján ára hóf hann flautunám hjá Dómarafélagi íslands og braut-
skráðist viku síðar með hæstu einkunn. Hann hefur síðan haldið mýmarga hljóm-
leika í Skemmunni við geypileg fagnaðarólæti áheyrenda. Mottó: Svefn er
heimskum fró! Algengur frasi: Það er eins og maður sé fæddur til þess að vera full-
ur í dag! Uppáhaldsblóm: Berserkjasveppur. Framtíðaráform: Að halda uppi lög-
um og reglu.“ Þetta er útdráttur úr kaflanum um GunnarJóhannsson rannsókn-
arlögreglumann úr Carmínu 79, en í gegnum gálgahúmor menntaskólaáranna
glittir þó í sannleikskorn og framsýni; Gunnar hefur gert sitt ítrasta til að halda
uppi lögum og reglum frá því hann brautskráðist sem stúdent.
Pað er ekki laust við að beygur
bernskuáranna læðist að blaða-
manni þegar hann arkar inn í
Lögreglustöðina á Akureyri.
Yfirbragð stofnunarinnar er
þrungið lotningu og virðingu fyrir
vörðum laganna en innanhúss er
andrúmsloftið þó ekkert öðruvísi
en á hinum ýmsu vinnustöðum.
Parna inna menn sitt starf af
hendi, spjalla og spauga eins og
gengur, en auðvitað fylgir mikil
ábyrgð lögreglustarfinu. Rann-
sóknarlögreglan hefur aðsetur á
efri hæð hússins og þar hitti ég
fyrir Gunnar Jóhannsson rann-
sóknarlögreglumann. Grallara-
ímynd Carmínuklausunnar virðist
fljótt á litið ekki eiga við þennan
rólega og alvörugefna mann, en
glettnin er þó aldrei langt undan.
Ég spurði Gunnar fyrst um
menntaskólaárin og hvort hann
hefði þá verið ákveðinn í því að
ganga til iiðs við lögregluna.
„Eg veit ekki hvort það hafi
verið markmiðið þá. Þetta hefur
sennilega verið sett í textann af
því ég vann hjá lögreglunni
sumarið áður, 1978, og félagarnir
voru alltaf að skjóta á mig út af
sumarstarfinu. Mig minrþr að
Einar Kristjánsson eigi heiðurinn
af þessum texta, ég kom lítið
nálægt honum. En menntaskóla-
árin voru auðvitað bestu árin og
mikið sprellað þá.“
Lagði flautuna á hilluna
- Lögreglustarfið hefur þá ekki
verið gamall draumur.
„Nei, ég fékk dálítinn áhuga á
starfinu sumarið ’77 þegar tveir
strákar sem ég kannaðist við úr
MA, Hjörtur Gíslason og Stefán
Matthíasson, byrjuðu í lögregl-
unni. Ég sótti síðan um starfið
næsta surnar."
- Þú varst líka farinn að blása
í flautu á þessum árum, varstu
ekki handboltadómari?
„Jú, maður hefur elt uppi mis-
jafnlega vinsæl störf. Ég var að
dútla í handboltanum í gamla
daga og tók dómarapróf á svip-
uðum tíma og Óli Haralds og
Stebbi Arnalds. Ætli ég hafi ekki
byrjað að dæma 1976 og dæmdi
til ársins 1982. Þá var ég farinn að
dæma í 1. deild en lagði flantuna
á hilluna þegar ég fór til Banda-
ríkjanna.“
- En áður en við förum þang-
að langar mig til að víkja aftur að
Carmínu. Ekki ertu fæddur í
þingeysku fjósi?
„Reyndar ekki. Ég fæddist á
Húsavík 7. nóvember 1957 og
ólst upp í Víðiholti í Reykja-
hverfi, Suður-Þingeyjarsýslu, þar
sem foreldrar mínir bjuggu. Hug-
ur minn hefur hins vegar aldrei
hneigst að búskap og það kom
aldrei til greina að gerast bóndi.
Mér finnst þó alltaf gaman í
sveitinni og fer oft í heimsókn í
Víðiholt. Bróðir minn tók við
búinu þar eftir að faðir minn lést.
Nú, ég gekk í barnaskóla þarna í
Reykjahverfinu, tók landspróf
frá Gagnfræðaskólanum á Húsa-
vík og þaðan lá leiðin í Mennta-
skólann á Akureyri. Ég hef
ílengst hér meira og minna
síðan.“
Skellinöðrustrákur og
mótorhjólalögga
Þegar Gunnar var pjakkur þeysti
hann um Reykjahverfið á skelli-
nöðru og var hann einn af braut-
ryðjendunum á því sviði eystra.
Hann hafði mikinn áhuga á slík-
um farartækjum en efnahagurinn
leyfði ekki kaup á stóru vélhjóli.
Sá draumur rættist þó að nokkru
leyti hjá lögreglunni á Akureyri
því Gunnar var mótorhjólalögga,
eins og það er kallað í daglegu
tali.
„Ég var ein fimm sumur á mót-
orhjólum lögreglunnar, fyrst eftir
að ég útskrifaðist úr MA 1979, en
vann á vöktum yfir vetrarmánuð-
ina, enda eru hjólin ekki hreyfð
þá. Þetta var mjög gaman og
gekk vel. Ég lenti aldrei í neinu
klandri eða óhappi þótt ég hafi
keyrt mörg þúsund kílómetra á
hjólunum."
- Hvað með töffaraímyndina?
„Jú, vissulega er hún til staðar.
Maður er á stóru mótorhjóli, leð-
urklæddur og vekur mikla eftir-
tekt, en ég var lítið að hugsa um
þá ímynd. Mér þótti þetta gaman
og góð tilbreyting.“
- Hvernig þróaðist síðan lög-
regluferill þinn?
„Árið 1980 fór ég í Lögreglu-
skólann og kláraði hann vorið
1982. Þá sótti ég um starf sem
öryggisvörður hjá Sameinuðu
þjóðunum, höfuðstöðvum þeirra
í New York. Ég fékk starfið um
haustið þetta ár og flutti til New
York um áramótin 1982-1983.“
„Yorum staðráönir í því
að láta ekki drepa
þá hjá okkur“
- í hverju var starfið hjá Samein-
uðu þjóðunum fólgið og hvernig
datt þér í hug að sækja um það?
„Þetta var bara ævintýra-
mennska í fyrstu, prófa eitthvað
nýtt. Ég byrjaði á því að fara á
námskeið þegar ég kom út og þar
var m.a. lögð áhersla á meðferð
skotvopna, enda er maður vopn-
aður í þessu starfi. Öryggisvarsla
í höfuðstöðvunum er umfangs-
mikil. Byggingin er mjög stór, 42
hæðir og bílskýli á þremur hæð-
um neðanjarðar, og þarna unnu
um 6000 manns. Þeir þurftu allir
að sýna sérstakan starfsmanna-
passa til að komast inn og þarna
óttuðust menn alltaf hryðjuverk.
Það bárust oft hótanir um slíkt,
það átti að drepa þennan eða
hinn eða sprengja allt í loft upp.
Kannski er það ekki óeðlilegt
miðað við að í höfuðstöðvarnar
komu þjóðhöfðingjar frá öllum
mögulegum og ómögulegum
löndum í heiminum, menn sem
fengu margar hótanir frá hryðju-
verkasamtökum. Við vorum hins
vegar staðráðnir í því að láta ekki
drepa þá hjá okkur. Út á það
gekk starfið. Við gættum bygg-
ingarinnar og þeirra sem þangað
komu.“
- Nú er New York þekkt
glæpaborg, eða hvernig kom hún
þér fyrir sjónir?
„Auðvitað vissi maður af glæp-
um allt í kring þótt ég hafi lítið
þurft að kljást við glæpamenn
sjálfur. Þessi alræmdu hverfi eins
og Harlem, Brooklyn og Bronx
eru svo til nákvæmlega eins og í
bíómyndunum, auðar götur og
óttaslegin andlit í gluggum. Ég
ferðaðist mikið um New York og
austurströndina í frítímum og var
jafnvel farinn að segja vinnu-
félögunum til vegar í New York.
Það var virkilega gaman að
vera í New York en ekki vildi ég
vera með fjölskyldu eða ala upp
börn þar, enda sér maður hvað
við höfum það í rauninni gott hér
heima að mörgu leyti.“
Hefði viljað fara í
friðargæslusveitir í
Mið-Austurlöndum
„Ég bjó í úthverfi New York og
var heppinn með húsnæði. Það er
mjög auðvelt að vera einmana í
mörgum hverfum borgarinnar.
Þarna er fólk að deyja og finnst
ekki fyrr en mörgum dögum
seinna. Enginn skiptir sér af
þessu fólki. En út á við er mann-
líf mjög fjölskrúðugt. í New
York er hægt að finna allar
manngerðir í heiminum og öll
þjóðarbrot sem fyrirfinnast.“
- Hvað vannstu lengi sém
öryggisvörður hjá Sameinuðu
þjóðunum?
„Rúmt ár, fram á vorið 1984.
Þá sagði ég starfi mínu lausu og
fór heim, en sá eftir því. Kannski
hef ég haldið að ég væri að missa
af einhverju hérna heima en ef ég
hefði haldið áfram sem örygg-
isvörður hefði ég ef til vill komist
í friðargæslusveitirnar í Mið-
Austurlöndum. Það hefði verið
ævintýramennska í lagi,“ sagði
Gunnar dreyminn á svip og
viðurkenndi fúslega að hann væri
dálítill ævintýramaður í sér.
Gunnar fór aftur í mótorhjóla-
lögregluna á Akureyri sumarið
1984 en um haustið dreif hann sig
til Reykjavíkur og vann hjá lög-
reglunni þar fram til vorsins
1985.
- Hvers vegna Reykjavík?
„Ég vildi enn prófa eitthvað
nýtt. Lögreglustarfið í Reykjavík
er gjörólíkt starfinu á Akureyri.
Það er stórborgarbragur á
Reykjavík, miklu meira um glæpi
og þarna safnast allur óþverrinn
saman. Akureyri er bara friðsælt
þorp í samanburði við höfuð-
borgina."
Sjálfsvíg tíð í Reykjavík
- Kom þér eitthvað sérstaklega á
óvart í Reykjavík?
„Ég get nefnt sjálfsvígin, þau
eru miklu algengari en maður
gerði sér grein fyrir. Ég þurfti oft
að hafa afskipti af slíkum málum
Graliaraímynd Carmínuklausunnar virðist fljótt á litið ekki eiga við þennan rólega og alvörugefna mann, en glettnin er
þó aldrei langt undan. Mvmi kl
Gunnar hefur úr mörgum höfuðfötum að velja. Þarna má t.d. sjá hjálm bresku
lögreglunnar. Mynd: kl
„Maður er á stóru mótorhjóli, leðurklæddur og vekur mikla eftirtekt, en ég var
lítið að hugsa um þá ímynd.“
og auðvitað kemur ekki nema
brot af þessum sjálfsvígum upp á
yfirborðið. Við höfum sem betur
fer sloppið vel hvað þetta snertir
hér á Ákureyri."
Ekki líkaði Gunnari vistin ýkja
vel í Reykjavík og hugurinn leit-
aði til Akureyrar á ný. Vorið
1985 hóf hann störf hjá Rann-
sóknarlögreglunni á Ákureyri,
varla af ævintýramennsku en
hann sagði að vaktavinna væri
þreytandi til lengdar og hann
vildi breyta til. Ég bað Gunnar
að Iýsa starfssviði rannsóknarlög-
reglumanns.
„Það er örugglega víðtækara
en flestir halda. Inn á borð til
okkar koma dauðsföll, umferð-
arslys, vinnuslys, innbrot,
skemmdarverk, þjófnaðir, ávís-
anamisferli, skjalafals, fíkni-
efnamál, líkamsárásir og allt
mögulegt, heimiliserjur og
hjónaerjur. Fólk hringir mikið til
okkar og það eru ótrúlegustu
hlutir sem við þurfum að fást við.
Þá tökum við ljósmyndir á
slysstað, leitum að fingraförum,
rannsökum smyglmál og margt
fleira. Við höfum verið þrír í
þessari deild en það var fjölgað í
fjóra í surnar."
- Þú ert með tölvu á borðinu
hjá þér. Hefur hún leyst stækk-
unarglerið af hólmi?
„Nei, nei. Ég þarf stundum að
nota stækkunarglerið. Þótt tölvu-
væðingin hafi náð til okkar þá eru
gömlu tækin í fullu gildi.“
Agaleysi mjög áberandi
- Hvernig hefur þér gengið að ná
markmiði þínu, að halda uppi
lögum og reglu?
„Það er nú allur gangur á því
og kannski ekki mitt að dæma
hvernig til hefur tekist, en maður
hefur burðast við þetta.“
- Er einhver munur á lög-
hlýðni borgaranna nú og fyrir 10
árum?
„Ekki held ég það. Margt hef-
ur breyst en ekki endilega til hins
verra. Mér finnst agaleysi á öllum
sviðum hafa verið einkennandi í
þessu þjóðfélagi og því er ekki
hægt að breyta í einu vetfangi.
Þjóðfélagið hefur mótast á þenn-
an hátt gegnum árin, íslendingar
eiga erfitt með að hlýða og haga
sér eftir reglum.“
Gunnar sagði að miklar sveifl-
ur væru í hinum ýmsu sakamál-
um og varla hægt að tala um
beina aukningu á neinum
sviðum. Ávísanafals kemur í
bylgjum og gengur yfirleitt vel að
leysa þau mál. En hvað með fíkni-
efnamál?
„Við vitum að fíkniefni eru
notuð hér en þetta fer hljótt. Þeir
sem nota þessi efni í einhverju
magni fara suður, það er stað-
reynd. Á Akureyri er ekki hægt
að nota eiturlyf að staðaldri,
bæði út af þrýstingi frá umhverf-
inu og einnig er erfitt að ná í efni
hér. I Reykjavík er markaðurinn
miklu stærri og þar er félags-
skapurinn. Auðvitað prófa menn
fíkniefni um allt land en neytend-
urnir virðast ekki þrífast nema á
suðvesturhorninu. Einnig má
geta þess að hér er lítið um far-
andverkafólk en eiturlyfjaneysla
fylgir oft fólki sem þvælist um
landið.“
Heimiliserjur erfíð mál
Við ræddum næst um ofbeldi,
innan veggja heimilis sem utan.
Gunnar sagði að meiriháttar lík-
amsárásir væru fátíðar á Akur-
eyri og yfirleitt tengdar áfengis-
neyslu um helgar, líkt og fleiri
glæpir. Meira væri hins vegar um
ryskingar og pústra, undantekn-
ingalítið samfara neyslu áfengis
eða annarra eiturlyfja.
- Hvernig gengur ykkur að
leysa heimiliserjur?
„Þetta eru oft hvað erfiðustu
málin sem við lendum í. Það get-
ur verið erfitt að skera úr um
hvort eigi að fjarlægja manninn
eða konuna þegar hjón deila og
svo blandast börnin inn í þetta.
Við reynum yfirleitt að miðla
málum, jafnvel með aðstoð ætt-
ingja eða vina. Reyndar er bless-
unarlega lítið um slík mál. Oftar
er kvartað yfir hávaða eða ónæði
sem rekja ntá til partýhalds og þá
biðjum við viðkomandi að bæta
úr því.
Þótt ég sé búinn að vera þetta
lengi í lögreglunni er alltaf eitt-
hvað nýtt að koma upp á. Maður
er alltaf að læra í þessu starf og
uppgötva nýjar hliðar á málun-
um. Þetta er stundum leiðinlegt
og stundum skemmtilegt. Auð-
vitað verður maður þreyttur í
þessu starfi eins og öðrum en
þetta venst.“
- Færðu frið í frítímanum, eða
ertu alltaf stimplaður sem Gunni
lögga?
„Einu sinni lögga alltaf lögga.
Sumir hafa kvartað yfir því að fá
ekki frið en mér hefur gengið
ágætlega í þeim efnum. Ég verð
ekki mikið fyrir ónæði en vissu-
lega er stundum hringt í rnann."
Við ræddum um skotvopn.
Gunnari fannst hann hálf tómleg-
ur eftir að hafa verið alvopnaður
öryggisvörður hjá Sameinuðu
þjóðunum, en hann er feginn að
þurfa ekki að bera skammbyssu í
starfinu og ekki síður feginn yfir
því að íslendingar skuli ekki sofa
með byssu undir koddanum eins
og Bandaríkjamenn. Þar eru
deilumál oft útkljáð með skot-
vopnum.
Það er farið að síga á seinni
hluta viðtalsins. Verkefnin bíða á
borði rannsóknarlögreglumanns-
ins og án efa er í ýmsu að snúast.
Gunnar dútlar enn í íþróttum í
frítímanum og hann hefur farið í
sund á hverjum morgni síðan
hann byrjaði í rannsóknarlög-
reglunni.
„Sundið er ómissandi þáttur
áður en ég fer í vinnuna á morgn-
ana. Dagurinn er ónýtur ef ég
kemst ekki í sund,“ sagði Gunnar
og blaut sundskýlan á ofninum í
skrifstofunni benti til þess að það
væri góður dagur framundan hjá
honum. SS