Dagur - 04.11.1989, Blaðsíða 11
Laugardagur 4. nóvember 1989 - DAGUR - 11
Á nœstu mánuðum kemur á markað skyr
með ýmsum bragðtegundum. Af því tilefni
efnir Mjólkursamlag KEA til samkeppni um
bragðbestu skyrhrœruna.
Reglur samkeppninnar eru eftirfarandi:
1. Allir mega taka þátt í keppninni.
2. Nota skai nýja, hrœrða skyrið og bragðbœta það með ávöxt-
um, berjum eða hverju því sem henta þykir.
3. Skýrt og skilmerkilega skal sagt frá innihaldi skyrhrœrunnar og
aðferðinni við að búa hana fil.
Allt skal vera vegið og mœlt. Nota skal vog, mœliskeiðar,
bollamál eða desilítramál.
4. Uppskriftum skal skila í merkta kassa í Kjörbúðum KEA Uppskrift
skal merkja með dulnefni, en nafn, heimilisfang og símanúmer
fylgi með í lokuðu umslagi, merktu dulnefni. Skilafrestur er-til 10.
nóvember 1989.
5. Mjólkursamlag KEA áskilur sér rétt til að nota þœr uppskriftir
sem berast í samkeppnina.
Nýja, hrœrða skyrið fœst nú einnig í 500 gr.
dósum. Hentugt fyrir fjölskyldur og stórhuga
skyrgáma.
\
,
MJOLKURSAMLAG
FTASAIMKEPPNI
Veitt verða ein aðalverðlaun og fimm aukaverðlaun. Aðalverðlaun eru
myndarlegur helgarpakki til Reykjavíkur
Aukaverðlaun eru vöruúttektir hjá Mjólkursamlagi KEA fyrír 10.000,- krónur.
íþróttir
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Sigurganga Þórsara stöðvuð
- 9 stiga sigur hjá Valsmönnum
Valsmenn stöðvuðu sigur-
göngu Þórs í Urvalsdeildinni í
körfuknattleik þegar liðin
mættust á Akureyri í fyrra-
kvöld. Þórsarar urðu að bíta í
það súra epli að tapa með 9
stiga mun en lokatölur Ieiksins
voru 89:98 Valsmönnum í hag.
Áhorfendur í fþróttahöllinni á
Akureyri voru mjög margir enda
hefur Þórsliðinu gengið mjög vel
að undanförnu. Á að giska 250-
300 manns fylgdust með leiknum
sem var ekki mikið fyrir augað,
a.m.k. ekki til að byrja með.
Liðin voru lengi að komast af
stað og var jafnræði með þeim í
fyrstu, en fljótiega kom í ljós að
Valsmenn væru sterkari aðilinn í
leiknum. Vörn Þórs brást hvað
eftir annað svo lengst af var um
10-15 stiga munur á liðunum.
Þegar um tvær mínútur voru
eftir af leiknum héldu margir að
Þórsarar ætluðu að taka sig á og
jafna leikinn. Staðan var 81:92 og
dæmt var víti á Valsmenn sem
Þórsurum tókst að skora úr. Því
næst misnotuðu Valsmenn víti,
Þór komst í skyndisókn og tókst
að skora og skyndilega var staðan
orðin 86:92. Oneitanlega fór um
áhorfendur þegar hér var komið
sögu og þegar 35 sekúndur voru
eftir skoruðu Valsmenn úr víti,
86:94, Þór komst í 87:94 en áður
•en tíminn rann út gerðu Vals-
menn endanlega út um leikinn,
89:98.
Dómarar leiksins, þeir Helgi
Bjarnason og Leifur Hallgríms-
son dæmdu ekki meira en þokka-
lega og fengu þeir oft að heyra
baul frá óánægðum áhorfendum.
Stigahæstur Þórsara var Dan
Kennard með 29 stig, næstur
kom Jón Örn Guðmundsson með
17, Guðmundur Björnsson með
15, Konráð Óskarsson 13, Jó-
hann Sigurðsson 11 og Eiríkur
Sigurðsson 4 en hann fór útaf um
miðjan leik með 5 villur.
Flest stig Valsmanna skoraði
Einar Ólafsson eða 19 stig, Chris
Behrends 18, Svali Björgvinsson
16, Arnar Guðmannsson 13,
Matthías Matthíasson 8, Ragnar
Jónsson 7, Guðni Hafsteinsson
7, Björn Zöega 6 og Ari Gunn-
arsson 4 stig. VG
Sauðárkrókskirkja
kl. 14 á morgun:
Messuheimsókn
frá Akureyri
Vegna fréttar í Degi í gær um
söng Kórs Akureyrarkirkju við
messu í Sauðárkrókskirkju vill
séra Þórhallur Höskuldsson taka
fram að um er að ræða messu-
heimsókn frá Akureyrarkirkju.
Séra Þórhallur mun pfedika og
þjóna fyrir altari í messunni,
sem hefst kl. 14 á morgun, og
Kór Akureyrarkirkju syngur.
„Með þessari heimsókn erum við
að endurgjalda heimsókn Sauð-
krækinga hingað í Akureyrar-
kirkju fyrir tveim árum,“ segir
séra Þórhallur.
Borgarbíó
Laugard. 4. nóv.
Kl. 9.00
Ævintýri Munchausens
Myndin sem allir hafa beöið eftir.
Fáar myndir hafa vakið jafnmikla athygli og
þessi stórkostlega ævintýramynd um hinn
ótrúlega lygabarón Karl Friðrik
Híerónímus Munchausen og vini hans.
Kl. 11.15
Vitni verjandans
Sunnud. 5. nóv.
Kl. 3, 8.30 og 11.00
Batman
Kl. 3.00
Heiða
Kl. 9.00
Æfintýri Munchausens
Kl. 11.15
Vitni verjandans
Mánud. 6. nóv.
Kl. 8.30
Batman
Kl. 9.00
Ævintýri Munchausens
Dæmi um vöruverð:
Egg 1. verðfiokkur .. 356 kr. kg.
Egg 2. verðflokkur ... 259 kr. kg.
Kók 2 lítrar ............99 kr.
Fanta appelsín .;....... 102 kr.
Hamborgarar 2 stk. ..... 111 kr.
Tilbod á kjötvörum í gangi
Verslunin
ÞDRPID
Móasíöu 1 • Sími 27755.
Opid alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30.
Heirrfsiendingar-
þjónusta.
VISA
Skautar
á börn og fullorðna
íshockey
vörur
Mesta úrval
landsins.
Afsláttur til
skóla og félaga
3stoö
III v/Leiruveg
Sími 96-21440 • 600 Akureyri • Fax 96-26476