Dagur - 16.11.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 16. nóvember 1989 - DAGUR - 7
ég frá upphafi og þar til ég lauk
atvinnuflugmannsprófi. Ég byrj-
aði að kenna hjá Flugskóla Akur-
eyrar haustið 1984 og fljúga hjá
Flugfélagi Norðurlands 1985. Eg
var hjá FN 1985-86 og byrjaði
síðan 4. janúar 1987 á DC-8 vél
Flugleiða og flaug henni í eitt ár
þar til verulegur samdráttur varð
í Atlantshafsfluginu. Þá fór ég á
Fokker og flýg þeim vélum í dag.
Síðastliðið haust flaug ég líka um
tíma hjá dönsku flugfélagi.“
Baldvin er aðeins 26 ára en þó
með um 4200 flugtíma að baki.
Hann flýgur Fokker vélum Flug-
leiða auk þess að annast rekstur
Flugtaks ásamt Albert Baldurs-
syni. Þar grípur hann í flug-
kennslu en flýgur ekki í leigu-
flugi. Til þess þyrfti hann leyfi frá
Flugleiðum. Hann var ekki nema
23ja ára þegar hann settist í sæti
aðstoðarflugmanns á DC-8 þotu
og þykir það óvenjulegt en
Baldvin segist hafa verið
heppinn.
„Ég fékk að vita það 21. des-
ember 1986 að ég fengi vinnu hjá
Flugleiðum og átti að mæta á
námskeið 4. janúar kl. 9 á DC-8
og var síðan byrjaður að fljúga í
mars. En fram að því var öll mín
þjálfun á Akureyri. Ég hefði ekki
viljað missa af því að fljúga hjá
Flugfélagi Norðurlands. Petta
var mjög góður skóli og góður
tími, sérstaklega Grænlandsflug-
ið.“
Flughermirinn. Baldvin gefur Viktori fyrirmæli og fylgist með ferðum hans
á flugrita. Með aðstoð tölvunnar er hægt að framkalla hvers kyns veðurfar
og bilanir sem flugmaðurinn verður að kljást við.
Viktor flugkennari og nemandi hans skoða kennsluvél fyrir flugtak. í baksýn
er gamli flugtuminn þar sem Flugtak er til húsa.
Flughermirinn er að utanverðu eins
og flugvél sem söguð hefur verið í
sundur. Á innfelldu myndinni er
Baldvin Birgisson, framkvæmda-
stjóri Flugtaks, við eina af vélum
félagsins inni ■ flugskýli á Reykja-
víkurflugvelli.
Hálendisferðir
næsta sumar
- Hvað er framundan hjá Flug-
taki?
„Næsta sumar ætlum við að
fljúga á Twin Otternum til Vest-
mannaeyja og Stykkishólms í
leiguflugi. Einnig ætlum við frá
Reykjavík inn í Þórsmörk og
Twin Otter er nánast eina vélin
sem hægt er að nota þar. Við ætl-
um líka að bjóða upp á flug frá
Reykjavík yfir hálendið, fljúga
yfir Oskju og lenda í Herðu-
breiðarlindum. Þaðan förum við
til Mývatns þar sem farþegar fara
í hefðundnar skoðunarferðir í
rútum, borða, og fljúga síðan aft-
ur til Reykjavíkur.“
- Nú er flughermirinn nýr
þáttur í starfsemi ykkar. Hvernig
nýtist hann?
„Hann nýtist á þrennan hátt. í
fyrsta lagi í blindflugskennslu fyr-
ir þá sem eru að læra blindflug í
fyrsta skipti. í öðru lagi er um að
ræða endurþjálfun fyrir þá sem
eru með blindflugsréttindi og
þurfa að endurþjálfa sig á sex
mánaða fresti. Þeir geta notað
flugherminn í annað hvert skipti
sem er miklu ódýrara en á flug-
vélum. Síðan geta starfandi
atvinnuflugmenn hjá minni
flugfélögum fengið þjálfun í
herminum. Þar er hægt að líkja
eftir öllum hugsanlegum bilunum
án þess að tefla öryggi flug-
mannsins í hættu. Með einum
takka er hægt að frysta flugið og
skoða áður en eitthvað fer
úrskeiðis.“
Baldvin sagði að Flugmála-
stjórn hefði sýnt flugherminum
áhuga sem þjálfunarbúnaði fyrir
verðandi flugumferðarstjóra.
Einnig hefur verið samið við
Flugmálafélag íslands um kynn-
ingu fyrir einka- og atvinnuflug-
menn í flugherminum. Ásókn í
flugherminn hefur farið stöðugt
vaxandi þennan mánuð sem lið-
inn er frá komu hans og kvaðst
Baldvin vera ánægður með við-
tökurnar.
Heimsókninni hjá Akureyring-
unum sem hafa haslað sér völl á
athafnasvæðinu á Reykjavíkur-
flugvelli er þá lokið að sinni.
Flugtak hefur gamla flugturninn
á leigu, leigir flugskýli og á einnig
hlut í flugskýlum. Allar vélar
félagsins komast inn í hlýjuna
þegar veður eru válynd. Blaða-
maður Dags sneri aftur til Akur-
eyrar en Baldvin þurfti hins vegar
að fljúga Fokkervél Flugleiða til
Vestmannaeyja. Það er í mörg
horn að líta í heimi flugmála. SS
Þtö gertö betri
matarkau
Opið virka daga frá kl. 13.00-18.30
Opið á laugardögum frá kl. 10.00-14.00
Frón matarkex
106 pk.
Kelloggs kornflögur
160 500 g
Braga kaffi Columbia
102 250 g pk.
Lambalæri
662 D. 1B. kg
A-plús marmelaði
126 750 g
Vex uppþvottalögur
70 660 g
Milda þvottaduft
624 5 kg
Laukbuff
798 «,
Sveppabuff
706 kg
Nautahamborgarar
606 10stk.
Léttreyktir lambahryggir
575
Bökunarvörur á góðu verði
NETTÓ-verði
KEANETTÓ