Dagur - 16.11.1989, Blaðsíða 9
bœkur
lí
LIZ BERRY
Ég get séð
um mig sjálf
Komin er út hjá Iðunni ný bók
eftir hinn vinsæla unglingabóka-
höfund Liz Berry. Nefnist hún
Ég get séð um mig sjálf. En fyrri
bækur höfundar sem þýddar hafa
verið á íslensku eru eftirtaldar:
Er þetta ást? og Frjáls eða fjötr-
uð.
Hér segir frá sautján ára stúlku
sem heitir Mel. Eins og marga á
þeim aldri dreymir hana um ýms-
ar breytingar á högum sínum.
Hún er þó ekki viðbúin þeirri
byltingu sem á sér stað í lífi henn-
ar þegar hún stendur skyndilega
uppi ein á heimilinu eftir að móð-
ir hennar er lögð inn á spítala.
Nú verður Mel að takast á við
vandamálin - og hún verður
margs vísari um hlutina og sjálfa
sig. Þegar hún svo af undarlegri
tilviljun kynnist Mitch fer nú
ýmislegt að gerast. Hún veit
nefnilega ekki að Mitch er gítar-
leikari í frægri hljómsveit og þeg-
ar hann einn góðan veðurdag til-
kynnir opinberlega að hann ætli
að giftast henni verður enginn
orðlausari en Mel sjálf . . .
Þrjár nýjar
Lúllabækur
- eftir Ulf Löfgren
Komnar eru út hjá Iðunni þrjár
nýjar bækur um litla kanínu-
strákinn Lúlla. Höfundur þeirra
er sænski listamaðurinn Ulf
Löfgren. Bækurnar heita LúIIi er
óheppinn, Lúlli og síminn og
LúIIi og villidýrin.
Sögurnar segja á kankvísan hátt
í máli og myndum frá ýmsu sem á
dagana drífur hjá Lúlla. Uppá-
tæki hans, leikir og ofur hvers-
dagslegir hlutir verða hverju
sinni að litlu ævintýri sem yngstu
börnin hrífast af og vilja fá að
heyra aftur og aftur.
Einn daginn hringir síminn
stanslaust hjá Lúlla. Alla langar
að heimsækja hann og fyrr en
varir fyllist hjá honum húsið af
óvæntum gestum! Öðru sinni er
reglulegur óhappadagur hjá
Lúlla. Allt sem hann tekur sér
fyrir hendur mistekst. En þegar
Lúlli, Hannes og Gunna ákveða
að leika villidýr og fara inn í
frumskóginn gerast óvænt ævin-
týri.
Oliver Twist
Út er komin á bók sagan, Oliver
Twist, eftir Charles Dickens.
Þetta er fjórða útgáfa Æskunnar
á hinni sígildu sögu hins enska
sagnameistara í úrvalsþýðingu
Hannesar J. Magnússonar fyrr-
um skólastjóra - en hún var fyrst
gefin út 1943. Kápumyndir eru úr
sýningu Þjóðleikhússins á söng-
leiknum Oliver!
Margir munu bíða í ofvæni eft-
ir að lesa um það sem á daga
Olivers dreif - eftir að hafa feng-
ið ávæning af því í ágætri sýningu
leikhússins.
Sagan um Oliver Twist er eitt
þeirra verka sem á að vera til á
hverju heimili enda lesa margir
hana hvað eftir annað.
Bókin er 367 blaðsíður.
Brúðan hans
Borgþórs
Út er komin bókin Brúðan hans
Borgþórs eftir hinn góðkunna út-
varpsmann Jónas Jónasson. Þetta
er barnabók sem höfðar til fólks
á öllum aldri og eflaust verður
hennar allra best notið þegar full-
orðnir lesa hana fyrir börn.
Hlýleg kímni og djúpur lífs-
skilningur höfundar einkennir
söguna. í henni er sagt frá íbúum
í Ljúfalandi, einkum Borgþóri
smið, Ólínu konu hans, borg-
arstjórahjónunum Jörundi og
Kolfinnu og Heiðu litlu - að
ógleymdri brúðunni hans Borg-
þórs, Hafþóri skipstjóra.
Sigrún Eldjárn teiknaði mynd-
ir sem falla einkar vel að efni og
hugblæ sögunnar.
Jónas hlaut verðlaun Fræðslu-
ráðs Reykjavíkur fyrir barnabók-
ina, Polli, ég og allir hinir en hún
kom út 1973. Brúðan hans Borg-
þórs er 166 blaðsíður að stærð.
Útgefandi er Æskan.
Þrjú sígild
ævintýri
- Öskubuska,
Stígvélaði kötturinn,
Aladdín og töfralampinn
Bókaútgáfan Forlagið hefur sent
frá sér þrjár nýjar bækur í ritsafn-
inu Ævintýri barnanna. Þær eru
Öskubuska, Stígvélaði kötturinn
og Aladdín og töfralampinn. í
fyrra komu út sögurnar Pétur
Pan, Rauðhetta og Hans hug-
prúði. Þorsteinn skáld frá Hamri
hefur þýtt og endursagt öll ævin-
týrin.
Gömlu, góðu ævintýrin éru
alltaf í fullu gildi og hér eru sögð
sígild ævintýri sem börn hafa
skemmt sér við kynslóð fram af
kynslóð. í þessum bókaflokki eru
þau endursögð við hæfi yngstu
barnanna og myndskreytt af
frægum spænskum listamöpnum.
Hin ijögur
fræknu og
sjávargyðjan
Iðunn hefur gefið út nýja bók í
flokknum um „hin fjögur fræknu",
sem eru fyrir löngu orðin íslensk-
um unnendum teiknimyndasagna
að góðu kunn. Nefnist bókin Hin
fjögur fræknu og sjávargyðjan.
Félagarnir fjórir lenda sífellt í
nýjum og spennandi ævintýrum
og oft er tvísýnt hvernig leikurinn
fer. Hér taka þau þátt í spurn-
ingakeppni gegn óvinum sínum,
hinum fjórum frökku! Það verð-
ur jafntefli. Úrslitin eiga að ráð-
ast í Grikklandi og nú hefst æsi-
spennandi keppni, því að þau
frökku svífast einskis til að verða
á undan að markinu.
Bjarni Fr. Karlsson þýddi.
Fimmtudagur 16. nóvember 1989 - DAGUR - 9
Oskum eftir að ráða
matreiðslu- eða kjötiðnaðarmann
til starfa strax.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
HAGKAUP
Norðurgötu 62.
KRISTNESSPÍTALI_______________
Lausar eru til umsóknar
tvær stöður aðstoðar-
hjúkrunardeildarstjóra
Á Kristnesspítala fara nú fram miklar endurbætur og
uppbygging endurhæfingardeildar. Kristnesspítali er
aðeins í 10 km fjarlægð suður frá Akureyri í sérlega
fögru umhverfi.
Þeim starfsmönnum sem búsettir eru á Akureyri er
séð fyrir akstri í og úr vinnu.
íbúðarhúsnæði og barnaheimili til staðar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma: 96-
31100.
Kristnesspítali.
.t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
JÓNU GUÐRÚNAR ANTONSDÓTTUR,
Hornbrekku, Ólafsfirði.
Anton Sigurðsson, Anna Þóra Ólafsdóttir,
Aðalbjörg Árnadóttir, Júlíus Snorrason,
Una Árnadóttir, Friðrik Eggertsson,
Ólafur Árnason, Arnfríður Valdimarsdóttir,
María Árnadóttir, Vébjörn Eggertsson,
Anna Jóna Geirsdóttir, Jón Jósefsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför konu minnar, móður tengdamóður og ömmu
GUÐBJARGAR PÁLSDÓTTUR,
Einarsstöðum.
Guð blessi ykkur öll.
Jón Þór Buch,
Guðný J. Buch,
Friðrik Júlíus Jónsson, Kristín G. Sigurðardóttir,
Páll Heigi J. Buch, Guðrún Benediktsdóttir,
Hólmfriður Jónsdóttir Buch, Stefán Ingvar Baldvinsson,
Björn Ófeigur Jónsson, Þórunn Alíce Gestsdóttir,
Kristbjörg Jónsdóttir Buch,
Sigurveig Guðrún J. Buch,
Ingólfur Árni Jónsson
og barnabörn.
MARKAÐUR
FJÖLNISGÖTU 4b
áður Eyfirsk matvæli