Dagur - 14.12.1989, Qupperneq 1
Er unnt að flytja Tækniskóla íslands
til Akureyrar?
Erfiðar hmdranir
standa í vegi
- segir Bjarni Kristjánsson,
rektor Tækniskólans
Á Alþingi í fyrri viku vakti Jón
Bragi Bjarnason, þingmaður
Alþýðuflokks, máls á því að
hyggilegt væri að athuga þann
möguleika að flytja Tækni-
skóla íslands frá Reykjavík
norður á Akureyri. Jón Bragi
lét þessi orð falla í umræðu um
starfsemi Háskólans á Akur-
eyri.
Bjarni Kristjánsson, rektor
Tækniskóla íslands, sagði í sam-
tali við Dag að hugtnynd Jóns
Braga væri allrar athygli verð en
ef hann liti raunhæft á málin væru
margar erfiðar hindranir í vegi
fyrir flutningi skólans til Akur-
eyrar.
Bjarni sagði að þessi hugmynd
hefði verið til umræðu fyrir um
20 árum og þá hefðu einkum þrír
þættir staðið í vegi fyrir flutningi
skólans norður. í fyrsta lagi skort-
ur á tæknimenntuðum kennurum
á Akureyri, í öðru lagi erfiðleikar
við að „rífa upp“ nokkur hundr-
uð fjölskyldur af höfuðborgar-
svæðinu og flytja þær norður og í
þriðja lagi tenging skólans við
rannsóknarstofnanir á Keldna-
holti.
Bjarni segir að á þcssum tuttugu
árum hafi miklar breytingar orð-
ið til batnaðar með tæknimennt-
aða kennara á Akureyri. Hins
vegar séu hinar tvær röksemdirn-
ar enn í fullu gildi. Hann segir að
mönnum vaxi vissulega í augum
að flytja fjölda nemenda með
fjölskyldur norður yfir heiðar, sá
flutningur sé síöur en svo auð-
veldur. Þá segir hann að á undan-
förnum árum hafi aukist verulega
samvinna Tækniskólans og rann-
sóknarstofnana á Keldnaholti,
Rannsóknarstofnunar landbún-
aðarins, Rannsóknarstofnunar
byggingaiðnaðarins og lðntækni-
stofnunar.
Tækniskóli íslands er til húsa
að Höfðabakka 9 í Reykjavík,
þar sem hann leigir húsnæði í
eigu íslenskra aðalverktaka. Til
langs tíma hefur þrengt mjög að
skólanum en Bjarni segir að fyrir
skemmstu hafi ræst verulega úr
þegar skólinn fékk afnot af 1400
fermetra húsnæði undir sama
þaki. „Við þurftum lítið annað
að gera en að rífa einn vegg í hús-
inu. Þarna var atvinnufyrirtæki
sem flutti burtu. Ég veit ekki til
þess að við séum að missa þetta
húsnæði. Ætli við getum ekki
leigt þetta húsnæði eins lengi og
við viljum,“ segir Bjarni.
I Tækniskóla íslands eru nú
um 400 nemendur og um næstu
áramót fjölgar nemendum um
hátt í 100 manns. óþh
‘ ' ‘ , > ~t l - t
Skyldi hann vera að reyna aö kveikja á perunni.
Mynd: KL
Samstarfshópur kannar möguleika á sameiginlegu slökkviliði
við Akureyrarflugvöll:
Lfldega ljóst fyrir áramót hvort
slökkvilið bæjarins verða sameinuð
Að sögn Tómasar Búa Böðvars-
sonar, slökkviliðsstjóra á
Sala á Snæfellinu:
Eftir atvikum ánægðir
með þetta samkomulag
- segir Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri
„Við erum eftir atvikum
ánægðir með þetta samkomu-
lag,“ sagði Magnús Gauti
Gautason, kaupfélagsstjóri
KEA, þegar hann var inntur
eftir sölu skips Útgerðarfélags
KEA hf., Snæfells EA-740, til
Þorbjarnar hf. í Grindavík.
Gengið var frá samkomulagi
um kaupin sl. laugardag og segir
Magnús Gauti að kaupsamningur
liggi ekki endanlega fyrir, frá
honum verði gengið eins fljótt og
kostur er.
Samkomulag KEA og Þor-
bjarnar hf. gerir ráð fyrir afhend-
ingu Snæfollsins 2. janúar nk.
Eins og kom fram í Degi í gær
fær Kaupfélag Eyfirðinga Sigurð
Þorleifsson GK-256 upp í Snæ-
fellið. Magnús Gauti vildi ekki
upplýsa hversu hátt hann væri
metinn í kaupunum. Sigurður
Þorleifsson verður tekinn í slipp
og nákvæmlega yfirfarinn áður
en KEA tekur við rekstri hans.
Skipið er með 650 tonna þorsk-
ígilda botnfiskkvóta, um 40
tonna rækjukvóta og síldarkvóta.
Að sögn Magnúsar Gauta ligg-
ur ekkert fyrir hvenær Sigurður
Þorleifsson hefur veiðar í nafni
KEA eða hvar hann muni leggja
upp sinn afla. óþh
Akureyri, mun að líkindum
Ijóst fyrir áramót hvort af sam-
einingu slökkviliðs bæjarins
og slökkviliðsins á Akureyrar-
flugvelli verður. Starfshópur
var skipaður til að kanna þetta
inál og skipa hann tveir full-
trúar frá Ákureyrarbæ, tveir
fulltrúar frá Flugmálastjórn og
einn fulltrúi frá heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu. Tómas
Búi segir að ef ákveðið verði
að sameina muni líða nokkur
tími þar til þessi tvö slökkvilið
verða cndanlega sameinuð þar
sem byggja þurfi við flugvöll-
inn, eða í nágrenni hans, fyrir
Uppboð á hluta eigna þrotabús Pólarpels:-
Landsbankinn keyptl Ytra-Holt
og refaskála fyrir 16,5 milljónir
- skáli fimm á Böggvisstöðum sleginn Stofnlánadeild
fyrir 2 milljónir
Landsbanka íslands var í gær
slegin jörðin Ytra-Holt í Svarf-
aðardal, ásamt fasteignum á
jörðinni, fyrir 16,5 milljónir
króna. Ytra-Holt var í eigu
þrotabús Pólarpels, en þar er
staðsettur einn stór refaskáli
auk kartöflugeymslu sem Fisk-
verkun Jóhannesar og Helga á
Dalvík hafði áður fest kaup á.
Elías Elíason, sýslumaður í
Eyjafjarðarsýslu bauð eignir
þrotabúsins upp í refaskálanum í
Ytra-Holti í gær. Auk Lands-
bankans bauð Byggðastofnun 11
milljónir í jörðina og refaskálann
og Dalvíkurbær 5 milljónir
króna.
Þá var í gær einnig boðinn upp
svokallaður skáli fimm á Böggvis-
stöðum. Um er að ræða vestasta
skálann í skálaþyrpingunni á
Böggvisstöðum. Skálinn var sleg-
inn Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins fyrir 2 milljónir króna.
Lokið er við að slátra öllum
dýrum á Böggvisstöðum og
standa hús þar nú auð og yfirgef-
in. Gert er ráð fyrir að bjóða upp
húseignir þar eftir áramót. óþh
þessa starfsemi. Slík hygging
yrði ekki tilhúin fyrr en að
tveimur árum liðnum.
„Það er raunar rætt um þrjá
staöi sem kæmu til greina fyrir
slíka byggingu, li.e. við norður-
enda flugbrautar, við flugstöðina
eða við Ncsti vcstan flugvallar.
Þessi staðsetning við flugvöllinn
hefur sína kosti en galla sjá menn
einnig og það er spurning
hvort þcir eru ekki fleiri,“ segir
Tómas Búi.
Hann segir athugun starfshóps-
ins beinast aö því að kanna vilja
til samstarfs og hvernig rekstri
verði háttað. Með sameiningu
segir Tómas Búi Ijóst að fjölga
verði í slökkviliðunum. Nú eru 3
menn á hverri vakt hjá slökkvi-
liðinu á Akureyri og á flugvellin-
um er einn maður á vakt. Verði
liðin sameinuð segir Tómas að
a.m.k. 4-5 menn þurfi að vera á
vakt hverju sinni. „En ég sé ekki
að um samnýtingu verði að ræða
á mannskap fyrir flugvöllinn og
okkur, nema að óverulegu leyti.“
Tómas telur að í umræðum um
sameiningu þessara slökkviliða
spili stærst hlutverk fjarlægðin frá
flugvellinum og út í hverfi bæjar-
ins. „Að sjálfsögðu koma pening-
ar líka inn í myndina. Við erum
að kanna hve mikinn þátt hvor
aðili um sig er tilbúinn áð taka
í þessum rekstri. Hvort fyrir
sig verður síðan að meta hver
ávinningur er að sameiningu,“
segir Tómas.
JÓH