Dagur - 14.12.1989, Síða 13
Fimmtudagur 14. desember 1989 - DAGUR - 13
í dag, 14. desember, verður til
moldar borinn vinur okkar Stein-
þór O. Sigurjónsson. Óvænt og
óvægilega var hann kallaður héð-
an og við sem eftir stöndum skilj-
um ekki í svip þau forlög sem
slíku ráða.
Við kynntumst vegna þess að
við áttum sameiginlegt áhugamál
þar sem voru bílar, en fljótlega
uppgötvuðum við til viðbótar
frændsemi, þar sem báðir áttum
við sömu forfeður í Ólafsfirði.
Ekki þurfti langar samvistir við
Steinþór til að uppgötva að þar
átti fjölskyldan vin í raun, enda
leituðum við óspart til hans ef
aðstoðar var þörf. Hann var ætíð
boðinn og búinn til að veita okk-
ur liðsinni sitt sein og öðrum sem
til hans leituðu. Hann var vinnu-
samur og féll tæpast verk úr
hendi, því utan langs vinnutíma
var hann ósjaldan að sinna verk-
um fyrir vini og kunningja. Stein-
þór var vinamargur, enda ein-
staklega notalegt að sækja hann
og fjölskylduna heim.
Við áttum saman ótaldar
ánægjustundir, ýmist tveir einir
við bílastúss, eða með fjöl-
skyldunum. Eftirminnilegar eru
stundir sem við dunduðunt sam-
aii við Chevyinn fyrir mörgum
árum svo og dagar sem fjölskyld-
urnar áttu saman í sumarbú-
staðnum í Ólafsfirði. Nýlega fór-
um við feðgar ásamt Steinþóri
tvívegis í stutt ferðalag til útlanda
til að skoða bíla. Það voru dagar
sem skilja eftir sterkaT minningar
um góðan félaga.
Þá sem endranær mátti treysta
því að Steinþór lífgaði upp á til-
veruna með nærveru sinni og
næmu skopskyni, og enda þótt
hann væri skapstór var ávallt
stutt í glettnina. Hann var mikill
maður í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu þeirra orða, nærvera
hans fór ekki framhjá neinunt og
traust og hlýtt handtak ltans boð-
aði vinsemd og velvilja.
Taklð eftir — : '
Sðfa
Al-Anon fjölskyldudeildirnar eru
félagsskapur ættingja og vina
alkoholista, sem samhæfa reynslu
sína, styrk og vonir svo að þau megi
leysa sameiginleg vandamál sín.
Við trúum að alkoholismi sé fjöl-
skyldusjúkdómur og að breytt við-
horf geti stuðlað að heilbrigði.
Við hittumst í Strandgötu 21:
Mánud. kl. 21.00, uppi.
Miðvikud. kl. 21.00, niðri.
Miðvikud. kl. 20.00, Alateen (ungl-
ingar).
Laugard. kl. 14.00, uppi.
Vertu velkomin(n)!
Borgarbíó
Fimmtud. 14. des.
Kl. 9.00
Lögregluskólinn
Kl. 11.00
Cohen og Tate
Kl. 9.00
The Fly II
Margir hala beöiö eftir framhaldi af flugunni
(The Fly) og hér er það komið.
Eins og flestir muna var konan i fyrri
myndinni ólétt eftir flugumanninn og hér
fær afkvæmiö aö speyta sig.
Prælmögnuö spennumynd sem gefur þeirri
fyrri ekkert eftir.
Kl. 11.00
Lean on me
Minjasafnið á Akureyri.
Opið á sunnudögum frá kl. 14.00-
16.00.___________________________
Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81.
Sýningarsalurinn er lokaður í des-
ember. Næst opið sunnudaginn 7.
janúar.
Minningarkort Sjálfsbjargar Akur-
eyri fást hjá eftirtöldum aðilum:
Bókabúð Jónasar, Bókval, Akri
Kaupangi, Blómahúsinu Glerárgötu
28 og Sjálfsbjörg Bugðusíðu 1.
Minningarspjold Styrktarsjóðs
Kristnesspítala fást í Bókvali og á
skrifstofu Kristnesspítala.
Minningarspjöld Hríseyjarkirkju
fást í Bókabúð Jónasar.
Minningarkort Akureyrarkirkju fást
í Bókvali og Blómabúðinni Akri í
Kaupangi.
Minningarkort Rauða krossins eru
til sölu í Bókvali.
Grýtubakkahreppur - Grenivík.
Munið eftir minningarspjöldum
Steinunnar Sigursteinsdóttur. Til
sölu hjá Eydísi í Litluhlíð 2g, sími
21194.
Minningarspjöld Minningarsjóðs
Guðmundar Dagssonar Kristnes-
hæli fást í Kristneshæli, Bókaversl-
uninni Eddu Akureyri og hjá Jór-
unni Ólafsdóttur Brekkugötu 21
Akureyri.
Minningarspjöld Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga fást hjá:
Pedromyndum, Hafnarstræti 98,
Sigríði Freysteinsdóttur Þingvalla-
stræti 28, Hönnu Stefánsdóttur
Víðilundi 24, og Guðrúnu Hörgdal
Skarðshlíð 17.
Munið minningarspjöld Kvenfélags-
ins „Fraintíðin".
Spjöldin fást á Dvalarheimilunum
Hlíð og Skjaldarvík, hjá Margréti
Kröyer, Helgamagrastræti 9, Blóma-
búðinni Akri, Kaupangi og Bóka-
búð Jónasar.
Minningarspjöld Krabbaineinsfélags
Akureyrar og nágrcnnis fást á eftir-
töldum stöðum: Akureyri: Blóma-
búðinni Akur, Bókabúð Jónasar,
Bókvali, Möppudýrinu í Sunnuhlíð
og á skrifstofunni Hafnarstræti 95,
4. hæð; Dalvík: Heilsugæslustöðinni,
Elínu Sigurðardóttur Stórholtsvegi 7
oe Ásu Marinósdóttur Kálfsskinni;
Olafsfirði: Apótekinu; Grenivík:
Margréti S. Jóhannsdóttur Hagamel.
Síminn á skrifstofunni er 27077.
Við nutum öll ríkulega af verk-
lagni hans og verkhyggni, en enn
meira af vináttu og hlýju viðmóti.
Best af öllu var því vissan um að
eiga hann að þegar á reyntli og
einhverju þurfti að bjarga við,
mála, flytja, lagfæra, eða setja
snjódekk undir fjölskyldubílinn
þegar heimilisfaðirinn var
skyndilega tepptur í útlöndum.
Þá brást Steinþór aldrei.
Stórt ófyllt rými er nú í tilveru
okkar, eins og allra sem nutu vin-
áttu hans. Sigga, Unnur, Olgeir
og Andri hafa þó orðið fyrir áfalli
sem fáir skilja. Á þannig stund-
um er huggun í ótal minningum
unt traustan vin og góðan dreng.
Og þá viljum við trúa því að ein-
hvern tíma hittumst við öll á ný
og förum í ökuferðir í rauðum
eðalvögnum, þar sem umhverfið
er eins og heimilið í Álfabyggð-
inni, bjart, öruggt og hlýtt.
Úlfar, Hólmfríður,
Líney og Logi.
Svalur og Valur:
Með hjartað
í buxunum
Komin er út hjá Iðunni ný teikni-
myndasaga um félagana Sval og
Val eftir Tome og Janry, og er
þetta tuttugasta og sjötta bókin
sem út kemur á íslensku um
ævintýri þeirra félaga.
Hér segir frá ótrúlegum ævin-
týrum blaðamannanna snjöllu,
þegar þeir leggja af stað í stór-
hættulegan leiðangur upp í snæ-
þaktar auðnir Himalaya-fjall-
anna í leit að Dal útlaganna - og
hafa með sér nokkra furðufugla
sem þeir eiga að reyna að lækna
af ólæknandi hiksta! Aldrei hafa
þeir félagar, Svalur, Valur og
íkorninn Pési, lagt í meiri hættu-
för né komist í hann krappari.
Auðug og
ófrjáls
Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnar-
firði, hefur sent frá sér nýja
skáldsögu eftir Barböru Cart-
land, sem nefnist Auðug og
ófrjáls. Áður hefur Skuggsjá gef-
ið út nokkrar bækur eftir sama
höfund. Sigurður Steinsson þýddi
bókina.
„Til þess að bjarga föður sín-
um úr skuldafangelsi giftist Crisa
Silas P. Vanderhault. Nokkrum
mánuðum síðar er Crisa orðin
ekkja eftir einn af ríkustu mönn-
um í Ameríku. En hvað stoða öll
hennar auðæfi, þegar Vander-
hault-fjölskyldan heldur henni
bókstaflega eins og fanga í gylltu
búri? Hún flýr í burtu og á flótta
hennar gerast viðburðaríkir og
óvæntir atburðir á leið hennar
heim til Englands.“
Auðug og ófrjáls er 176 bls. að
stærð.
Tilboð óskast
í 2 fólksbifreiðar til lúkningar aðflutningsgjöldum,
samanber 111. gr. laga nr. 55/87.
Oldsmobile Cierra árg. 1983 og Buick Regal Limited
árg. 1981. Bifreiðarnar eru til sýnis í Almennu toll-
vörugeymslunni.
Tilboðum sé komið til tollafgreiðslunnar Hafnarstræti
107, 600 Akureyri fyrir 29. desember nk.
Tilboð munu opnuð þann dag kl. 14.00.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða boði sem er eða
hafna öllum.
Tollstjórinn á Akureyri.
5. desember 1989.
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
SIGRÚN JÓHANNESDÓTTIR,
Höfða, Grýtubakkahreppi,
andaðist í Hjúkrunarheimilinu Seli 7. desember s.l.
Jarðarförin fer fram frá Grenivíkurkirkju sunnudaginn 17. des-
ember kl. 2. e.h.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á að láta líknarstofn-
anir njóta þess.
Börn, tengdabörn,
barnabörn, barnabarnabörn,
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall og
útför hjartkærs eiginmanns, föðurs, tengdaföður og afa,
ARA ÞÓRÐARSONAR,
Norðurgötu 38, Akureyri.
Sérstakar þakkirtil allra á Kristnesspítala sem Aú hefur kynnst
í lengri eða skemmri tíma.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðilega jólahátíð.
Pálína Jónsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.