Dagur - 14.12.1989, Side 14
14 - DAGUR - Fimmtudagur 14. desember 1989
Hjá okkur er lágt vöruverð
og gott að versla
Nýtt greiðslukortatímabil er hafið.
Verslunin
ÞORFID
Móasíðu 1 • Sími 27755. E
Opiö alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30.
Heimsendingarþjónusta.
Afmæliskveðja:
Henning Kondrup
sjötugur
Höfum sængurgjafir og
jólagjafir í úrvali
T.d. útigalla - vöggugalla
skiptitöskur - vöggusett og m.fl.
Nýkomnir vöggugallar á fyrirbura,
einnig nærföt og náttföt í stærðum 0-152.
Frá leikfangaverksmiðjunni Öldu Þingeyri
Dúa-bílar, Dúdú-dúkkuvagnar,
kúluspil og einmenningur.
Vaggan Sunnuhlíð sími 27586.
Opið kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-12.
•k Góö bílastæði *
Það mun ekki vera neinum vafa
undirorpið að heiðursmaðurinn
Henning Kondrup sé sjötugur í
dag, eða a.m.k. tjáir þjóðskrá
okkur að svo sé. Hitt er annað
mál að það er enginn hægðarleik-
ur að ná til hans og taka í hend-
ina á honum í tilefni dagsins,
livað þá að lyfta glasi því að eng-
inn lifandi maður hefur hugmynd
um hvar hann hefur falið sig, þótt
símalínur hafi í allan dag verið
rauðglóandi milli okkar gömlu
mannanna, sem teljum okkur til
söngbræðra hans og fornvina, og
þess vegna höfum við tekið þann
kostinn að biðja hið ágæta blað
Dag, sem við vitum að berst vítt
um heimsbyggðina og kynni því
að bera fyrir augu afmælisbarns-
ins einhvern tíma í framtíðinni,
að flytja honum hjartanlegar
afmælisóskir og heillakveðjur
bæði til hans og Margrétar, sem
við vonum að sé enn í samfloti
með honum.
Við ætlum ekki hér að rekja
ættartölu Hennings eða hans
curriculum vitae, heldur fer dag-
urinn ekki svo framhjá okkur að
við minnumst ekki samveru hans
í okkar gamla, góða hópi, sem á
sínum tíma lifði dýrðardaga við
söng og gleði, þar sem hver mað-
ur var öðrum ágætari, en Henn-
ing þó með þeim ágætustu. Bar
þar margt til, ekki aðeins það að
hann var glaðlyndur og spaug-
samur, heldur miklu fremur
sönghæfileikar hans, sem voru
frábærir, og eru vonandi enn.
Rödd Hennings hefur víða verið
við brugðið. Hún er mjög sér-
staklega há og björt tenórrödd og
með einhverjum þeim blæ, að
hún hrífur áheyrendur auðveld-
lega og fer beint til hjartans.
Ekki skal oflofa afmælisbarnið,
en gaman væri að rifja upp ýmsar
gamlar minningar og átburði,
sem staðfesta myndu framan-
greind orð.
Þetta á nú ekki að verða lengra
í bili. En við vonum að blessuð-
um hjónunum iíði vel, hvar sem
þau eru í dag, og það skulu þau
vita að hugur okkar er hjá þeim
og við skálum öll í anda fyrir
þessum merkisdegi. Hver veit
nema það verði gert í alvöru
síðar.
Akureyri, 11. desember 1989.
Nokkrir gamlir, gráhærðir og
sköllóttir Geysisfélagar.
Orðabók Háskóla íslands:
Hefur geflð út íslenska orðsifjabók
Orðabók Háskóla íslands hefur
gefið út bókina íslensk orðsifja-
bók, eftir Ásgeir Blöndal Magn-
ússon. í þessari einstöku orða-
bók er greint frá uppruna og
ættum tugþúsunda íslenskra
orða. Rakinn er skyldleiki þeirra
við orð í öðrum málum, fjallað
um tökuorð sem borist hafa í
Húsavík!
Vantar tilbreytingu í jólainnkaupin?
Það er óþarfi að fara langt í leit að henni.
Hvernig væri aö bregöa sér
til Húsavíkur?
Á Húsavík finnur þú
verslanir sem bjóða
nytsamar jólagjafir,
gott vöruúrval og
matvöruverslun í sérflokki
Opið til kl. 22.00
laugardaginn 16. desember
og til kl. 23.00 á
Þorláksmessu
j^j^verslanir,
Kaupfélag Þingeyinga
málið og hvenær þeirra verður
fyrst vart.
Höfundur bókarinnar, Ásgeir
Blöndal Magnússon, orðabókar-
ritstjóri, var þjóðkunnur fyrir
þekkingu sína á sögu íslensks
orðaforða. í þessari bók miðlar
hann af áratuga rannsóknum sín-
um á Orðabók Háskólans á
alþýðlegan og fræðandi hátt.
Álls eru í bókinni um 25000
uppflettiorð. Borið er saman við
grannmálin, önnur germönsk mál
og við fjarskyldari mál þegar þörf
er á. Höfundur gerir sér einnig
far um að sína tengsl norræns
orðaforða við mál af indóevrópskri
málaætt. Hugmyndir annarra
fræðimanna um ýmis torskýrð
orð eru dregnar fram og leggur
höfundur á þær vel rökstutt mat.
Hann leggur áherslu á að skýra
bæði orð úr talmálssafni Orða-
bókar Háskólans og erlend töku-
orð í íslensku og gefur það bók-
inni mikið gildi þar sem um mörg
þeirra er nú fjallað í fyrsta sinn.
Prentsmiðjan Oddi hf. prent-
aði bókina en Mál og menning
annast dreifingu hennar.
I
hvoð er oð gerost
Listakonan Ruth Hansen.
MENOR og Alþýðubankinn:
Rut Hausen í Kstkynnmgu
Menningarsamtök Norðlendinga
og Alþýðubankinn á Akureyri
kynna um þessar mundir lista-
konuna Ruth Hansen. Á list-
kynningunni eru 9 málverk, unn-
in með olíu á striga og eru tvö
verkanna frá 1985 en önnur frá
árinu 1989.
Ruth Hansen er fædd á Akur-
eyri árið 1944. Á árunum 1974-
1981 sótti hún námskeið í Mynd-
listarskólanum á Akureyri. Ruth
er ein þeirra sem staðið hafa að
Myndhópnum og hefur tekið þátt
í samsýningum hópsins allt frá
1979. Hún hefur haldið tvær
einkasýningar, í Gamla Lundi á
Akureyri 1985 og á Selfossi sama
ár. Þá hefur hún tekið þátt í
fjölda samsýninga víða á
Norðurlandi.
Kynningin er í útibúi Alþýðu-
bankans hf. á Akureyri, Skipa-
götu 13, og er hún opin á
afgreiðslutíma bankans. Henni
lýkur 2. febrúar 1990. SS
Skákfélag Akureyrar:
Fjöltefli í kvöld
í kvöld, fimmtudaginn 14. des-
ember, heldur Kári Elíson fjöl-
tefli, en Kári er núverandi Akur-
eyrarmeistari í skák. Fjölteflið
verður í félagsheimili Skákfélags
Akureyrar og hefst það kl. 19.30.
Þetta er klukkufjöltefli og eru all-
ir skákunnendur velkomnir með-
an húsrúm leyfir og eflaust hafa
margir hug á því að spreyta sig
við skák- og lyftingakappann
knáa. SS