Dagur - 14.12.1989, Page 15
Fimmtudagur 14. desember 1989 - DAGUR - 15
Kristinn sá eini
sem komst niður
Kristinn Björnsson frá Ólafs-
firði lenti í 22. sæti af 120
keppendum á svigmóti í Geilo
í Noregi á þriðjudaginn. Þetta
var góður árangur og fékk
hann um 80 punkta fyrir þenn-
an árangur. Þess má geta
aðstæður voru slæmar til
keppni og var Kristinn eini
íslendingurinn sem komst niður
brautina. Arnór Gunnarsson
frá ísafirði var sá eini sem
komst niður af íslenska lands-
liðshópnum í keppni á mánu-
daginn.
Islenska skíðalandsliðið hefur
lent í hinu mesta basli í æfinga-
búðum sínum í N-Svíþjóð. Ástæð-
an er sú að ekki hefur verið jafn
lítill snjór á þessu svæði undan-
farin 22 ár og hefur þurft að
fresta flestum mótum sem
íslendingarnir ætluðu að taka
þátt í af þeim orsökum. Þetta
hefur hins vegar ekki komið nið-
ur á æfingunum því hægt hefur
verið að æfa við þokkalegar
aðstæður.
Hópurinn tekur þátt í fleiri
mótum þessa dagana og munum
við skýra frá árangri keppenda
eftir helgina.
Handbolti:
KA keppir
á föstudagskvöldið
Samnorræn getraun fyrir HM á Ítalíu:
Potturinn í 100 milljónir
- íslendingar greiða einir út fyrir 11 og 12 rétta
Gísla Sigurðssyni markverði
Tindastóls í knattspyrnunni
hefur verið boðið til viðræðna
við Skagamenn um að ganga í
þeirra raðir fyrir næstkomandi
keppnistímabil.
Pessi mál eru þó enn á
umræðustigi og allsendis óvíst
hvort af verður. Akurnesingar
standa nú uppi markmannslausir
eftir að Ólafur Gottskálksson
gekk til liðs við þá röndóttu í
KR. Gísli hefur varið mark
Tindastóls af stakri snilld undan-
farin ár og var hann m.a. valinn
besti leikmaðurinn eftir síðasta
tímabil. En eins og áður sagði
eru þessi mál varla komin á við-
ræðustig og algerlega óvíst hvort
af verður en ljóst er að erfitt
verður að fylla upp í það skarð
sem Gísli mun skilja eftir sig ef
hann fer.
Leikur KA og Stjörnunnar í 1.
deildinni í handknattleik verð-
ur á föstudagskvöldið kl. 20.30
í íþróttahöllinni en ekki á laug-
ardag eins og sagt er í móta-
skrá og í auglýsingum í sjón-
varpi.
KA-menn báðu um færslu á
þessum leik vegna þess að búðir
eru opnar lengur á laugardaginn
og yrði því örugglega fátt um
manninn á leiknum. í fyrstu
höfnuðu Stjörnumenn þessari
bón en skiptu um skoðun og
leikurinn fer því fram annað
kvöld í íþróttahöllinn á Akur-
eyri.
Valdimar Valdiinarsson og félagar hans í íslenska skíðalandsliðinu hafa lent
í miklu basli í N-Svíþjóð. Mynd: TLV
KA hefur harma að hefna því
Stjörnumenn burstuðu þá í fyrrí
leik liðanna sem fram fór í
Garðabæ. Stjíirnan var talin hafa
eitt besta liðið á íslandi fyrir
íslandsmótið en liðið hefur
hikstað í síðustu leikjum og tap-
að dýrmætum stigum í baráttunni
um íslandsmeistaratitilinn. KA
er hins vegar óþægilega nálægt
botninum þa'nnig að það má
búast við hörkuviðureign.
Heimsmeistarakeppnina í
knattspyrnu á Ítalíu á næsta
ári. Sameiginlegur undirbún-
ingshópur hefur undanfarið ár
unnið að þessu máli. í HM-
getrauninni verður m.a. sam-
eiginlegur verðlaunapottur fyr-
ir 13 leiki.
Að sögn Hákonar Gunnarsson-
ar framkvæmdastjóra íslenskra
getrauna má búast við því að
fyrsti vinningur í þessum sameig-
inlega norræna getraunaleik
verði um 100 milljónir. Það verð-
ur greitt sameiginlega fyrir 13
leiki rétta en íslenskar getraunir
verða síðan með pott með
íslensku sölunni þar sem verður
greitt fyrir 11 og 12 rétta.
Norsku getraunirnar eru þær
einu á Norðurlöndununt sem
ekki munu verða með í þessari
norrænu tippkeppni. Ástæðuna
segir Hákon vera sérstæða lund
forráðamanna norsku getraun-
anna sem hafi skorið sig nokkuð
úr í þessu norræna samstarfi, sem
annars hefur þróast og dafnað ár
frá ári.
Seðlarnir verða tveir í keppn-
inni í HM en nánari útfærsla mun
koma frá getraununum þegar
leyfi frá yfirvöldum verða komin,
stimpluð og undirskrifuð. En all-
ar líkur benda til þess að leyfi
verði veitt fyrir þessari getrauna-
starfsemi í sumar.
Staðan
1. deild
Valur 9 7-1-1 223:190 15
FH 9 7-1-1 239:207 15
Stjarnan 9 5-2-2 211:182 12
KR 9 5-2-2 200:203 12
ÍR 9 3-2-4 203:205 8
ÍBV 9 2-3-4 211:217 7
KA 9 3-1-5 199:214 7
Víkingur 9 1-3-5 204:218 5
Grótta 9 2-1-6 186:206 5
HK 9 1-2-6 182:216 4
með Gísla
- ÍA vill fá hann
Nú nýlega fór fram Boccia-niót á
vegum Iþróttafélagsins Snerpu á
Siglufirði. Mót þetta var hugsað seni
kynning á íþróttinni meðal bæjar-
búa og tóku þeir vel við sér og fjöl-
nicnntu á mótið. Meðal keppenda
var bæjarstjórn Siglufjarðar og svo
harðsnúiö lið frá Snerpu. Mótsstjóri
var Markús Einarsson, fram-
kvæmdastjóri íþróttasambands fatl-
aðra og sést hann hér á niyndinni tii
hægri ávarpa keppendur eftir
mótið. Ásgrímur Sigurbjörnsson var
okkar maður á staðnum og tók þess-
ar myndir af mótinu.
Að því tilskyldu að viðeigandi
leyfi fáist hafa íslenskar,
finnskar, danskar og sænskar
getraunir ákveðið að vera með
sameiginlega HM-getraun fyrir
Karfa/Unglingaflokkur:
TindastóU tapaði
- Pétur Vopni stigahæstur
Unglingaflokkur Tindastóls í
körfuknattleik lék gegn
íslandsmeisturum Vals í þess-
um flokki á föstudaginn var
fyrir framan 300 áhorfendur.
Fyrri hálfleikur var frekar jafn
og í þeim síðari skiptust liðin á
góðum leikköflum og fór svo
að lokum að Valsarar sigruðu
75:76.
Það voru Stólarnir sem byrj-
uðu betur, komust í 15:9, en
gestirnir jöfnuðu og náðu for-
ystu 40:31. Þá kom góður kafli
hjá heimamönnum og staðan í
hálfleik var 38:40.
Seinni hálfleikur hófst með
Ekkert ákveðið
miklum látum hjá Valsmönnum
en síðan kom góður kafli hjá
Stólunum um miðbik hálfleiksins
og þeir jöfnuðu. En aftur kom
góður Vals-kafli og þeir náðu 13
stiga forystu þegar 5 mínútur
voru eftir, en með frábærum
endaspretti náðu Stólarnir að
minnka muninn allt niður í eitt
stig, en það var of seint og Vals-
arar hrósuðu sigri að lokum.
Dómarar voru Pálmi Sighvats-
son og Þórður Kárason og hefðu
þeir mátt taka betur á brotum
undir körfunni. kj
Stig Tindastóls: Pétur Vopni 24, Stefán
Péturs 13, Einar Karls 10, Sverrir og Karl
9 hvor, Stefán Hreins 6 og Hjalti Árna-
son 4.
Stig Vals: Ragnar Jóns 24, Ari Gunn-
ars 23, Hannes Haralds og Guðni Haf-
steins 13 hvor, Sveinn Zöega 2 og Aðal-
steinn 1.
Gísli Sigurðsson niarkvörður Tinda-
stóls.