Dagur - 13.01.1990, Blaðsíða 10

Dagur - 13.01.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 13. janúar 1990 Ásgeir Hannes Eiríksson alþingismaður og fulltrúi í fjárveitinganefnd og höfundur bókarinnar Þad er allt hægt vinur, verður í Súlnabergi frá kl. 12.00-14.00 í dag laugardag 13. janúar 1990. Lítið inn og spjallið við þingmanninn yfir kaffibolla. Allir velkomnir SÁÁ-N Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur alkaholista hefst mánudaginn 22. janúar. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni í síma 27611. SÁÁ-Norðurlandsdeild. Tll sölu lítið notað knattspyrnufélag - leikur í 3. deild. Helstu eignir félagsins: Leikskýrslubók, fánar og 12-15 leik- menn í mismunandi góðu ásigkomulagi. Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Upplýsingar gefa Andrés í síma 96- 24222, Egill í síma 96-26288 eða Hall- dór í síma 96-27377. Tilboð skilist í lokuðu umslagi á afgreiðslu Dags merkt: „PEX - 66“. »Menntamálaráðuneytið Laus staða Fyrirhugað er að stofna í menntamálaráðuneyt- inu sérstaka skrifstofu er nefnist almenn skrif- stofa og er ætlað að sinna verkefnum er varða rekstur ráðuneytisins og ýmsa sameiginlega þjónustu. Staða skrifstofustjóra almennrar skrifstofu menntamálaráðuneytisins er hér með auglýst laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir með upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, 150 Reykjavík, fyrir 2. febrúar n.k. Menntamálaráðuneytið, 8. janúar 1990. ^ . Menntamálaráðuneytið jijl| Styrkur til háskóla- Várjxatu asriTt: ^ náms í Hollandi Hollensk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Hollandi skólaárið 1990-91. Styrkurinn er einkum ætlaður stúdent sem kominn er nokkuð áleiðis í háskólanámi eða kandídat til framhaldsnáms. Nám við listahá- skóla eða tónlistarháskóla er styrkhæft til jafns við almennt háskólanám. Styrkfjárhæðin er 1.130 gyllini á mánuði í 10 mánuði. Umsóknum um styrkinn skal komið til mennta- málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykja- vík, fyrir 10. febrúar n.k. og fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt meðmælum. Sérstök eyðu- blöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 10. janúar 1990. Kvikmyndasíðan Kvikmyndir í burðarliönum Cher mun á árinu leika frjálslynda móður 15 ára stúlku. Ef ég man rétt þá var hún líka ansi frjálslynd í Nornunum frá Eastwick. Enn og aftur verða þau vinnufélagar Kathleen Turner og Michael Douglas, hún leikur, hann framleiðir. Bad Influence Loksins megum' við eiga von á því að sjá Rob Lowe aftur á hvíta tjaldinu en hann hefur haft frem- ur hljótt um sig síðan klámmynda- spólan fræga með honum varð vinsælasta myndbandið í Holly- wood. Mótleikari hans verður James Spader en helsti framleið- andi Trans World Entertain- ment. Mermaids Cher leikur frjálslynda móður 15 ára stúlkubarns, Winona Ryder. Þrátt fyrir að Frank Oz leikstýri, en hann var áður orðaður við Prúðu leikarana, er álitið að heiti myndarinnar (Hafgyðjurnar) sé táknrænt og beri ekki að taka bókstaflega. Hard Boiled Enn á ný tekur Kathleen Turner að sér hlutverk fyrir framleiðand- ann Michael Douglas. Turner er einkaspæjari sem neyðist vinnu sinnar vegna til að dulbúast sem karlmaður. Leikstjóri David Anspaugh. Stonebridge Entertainment/Columbia. Mr. and Mrs. Bridge Paul Newman og Joanne Woodward gera það sem þau eru vön að gera í raunveruleíkanum og bregða sér í gervi hjóna undir stjórn James Ivory. Þó ég hafi nú ekki kannað það svo óyggjandi megi teljast þá er heldur ósenni- legt að nokkurt par í Hollywood eigi að baki sér lengra samfellt hjónaband en einmitt þessi tvö. Þetta hlutverk ætti því varla að vefjast mikið fyrir þeim. Presumed Innocent Hér fáum við enn eina lögfræð- ingamyndina en þær eru orðn- ar ansi vinsælar hvernig sem nú á því stendur. Harrison Ford leikur ákæruvaldið sem er á bólakafi í rannsókn morðmáls. Vandamál- ið er aðeins það að hann er jafn- framt sá sem flestir gruna um morðið. Myndin byggir á skáld- sögu Scotts Turow. Silence Of The Lamb Leikstjórinn Jonathan Demme gerir hér svolitla lykkju á leið sína og tekst á við spennusöguna um FBI-manninn sem leitar í ákafa að skelfilegum morðingja sem hefur það fyrir vana sinn að húðfletta fórnarlömbin sem öll eru af hinu veikara kyni. Jodie Foster er FBI-löggan. Texasville Þessa mynd ætla ég að sjá; Cybill Shepherd er á meðal leikara og hana læt ég ekki fram hjá mér fara ótilneyddur. Það er leik- stjórinn Peter Bogdanovich sem safnað hefur saman öllu liðinu úr The Last Picture Show (1971), og ætlar að láta það takast á við vandamál í olíuríkinu Texas. Ein nafnlaus frá Baltimore Þessi kvikmynd er að vísu nafn- laus ennþá en ætli leikstjórinn og handritahöfundurinn Larry Levinson verði í nokkrum vand- ræðum með að finna nafn á þetta ■ nýjasta afkvæmi sitt. Kvikmynd- in byggir að einhverju leyti á ævi Levinsons sjálfs og segir frá rúss- neskri innflytjendafjölskyldu í Bandaríkjunum á árunum frá 1914 og fram á 7. áratuginn. Helstu hlutverk eru í höndum Elizabeth Perkins, Aidan Quinn og Joan Plowright. The Sheltering Sky Debra Winger og John Malk- ovich taka upp á heimskulegum athöfnum í afríkanskri eyði- mörk. Bernardo Bertolucci leik- stýrir en efniviðurinn er sóttur í skáldsögu eftir Paul nokkurn Bowles. Flatliners Kevin Bacon, Kiefer Sutherland og Julia Roberts leika aðalhlut- verk í þessari mynd er fjallar um læknastúdenta sem föndra við heldur óviðkunnanlegar tilraun- ir; hvernig er að vera næstum því dauður er viðfangsefnið. Það besta í bíó á 9. ára tuginum fór í Ég veit ósköp vel að maður á ekki að vera að rcmbast við að skrifa í blöð um jól; en eitthvað þarf að fara með auglýsingun- um ekki satt og það eru jú þær sem færa manni viðbótarsalt í grautinn. Svo ég hætti nú þess- um málalengingum - (ég er í raun og veru að reyna að sann- færa sjálfan mig um að einhver nenni að lesa kvikmyndasíð- una). - Nei nú cr nóg komið af kjaftavaðli, það sem ég vildi sagt hafa var að kvikmyndasíð- an, sem birtist daginn fyrir aðfangadag, varð fyrir ein- hverju slysi og ruglaðist svolítið í prentuninni. Þannig er ekki að marka kaflaskiptinguna í grein- inni þar sem málsgreinar eru handaskolum ekki alveg allar þar sem þeim var ætlaður staður í upphafi. Nú ætti ég auðvitað að skella sökinni á prentvillupúkann eða öllu heldur blaðsíðuruglarann - og ætli ég geri það ekki barasta. Til að vera hreinskilin (sem er ekki alltaf kostur) get ég játað að líklega hef ég bæði haft blað- síðurnar of margar, með öðrum orðum greinin hefur verið of löng (eins og þessi), og eins hef ég vanrækt að merkja síðurnar nógu vel með viðeigandi tölu- stöfum. Við ykkur, sem eruð komin þetta langt, segi ég af- sakið og bið ykkur að skila afsökunarbeiðni minni til hinna.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.