Dagur - 13.02.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 13.02.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 13. febrúar 1990 fréttir Vélsmiðjan Akureyri hf. eins árs Fimm af sex eigendum Vélsmiðjunnar Akureyri hf. sem áður störfuðu hjá Atla hf. f.v. Jón G. Snorrason, Þórður Stefánsson, Hörður Guðmundsson, Jón Oskar Ferdinandsson og Halldór Brynjarsson. A myndina vantar Stefán Karlsson. Myrul: KK Um síðustu mánaðamót var liðið eitt ár frá því að Vél- smiðjan Akureyri hf. tók til starfa. VSA, eins og fyrirtækið er skammstafað, var stofnuð af sex fyrrverandi starfsmönnum Vöruhús KEA: Hljómdeild í nýtt húsnæði í gær var unnið baki hrotnu við að koma liljómdeiid KEA fyrir í nýju húsnæði og er stefnt að þvi að opna liana í dag að Hafnarstræti 91, þar sem áður var kjörbúð. Hljómdeiklin var til húsa aö Hafnarstræti 93, í Vöruhúsi KEA, en vegna skipulagsbreyt- inga var ákveöið að flytja hana um set. Aö sögn Páls Pórs Ármann. vöruhússtjóra, er flutningui hljómdcildar fyrsta skrefiö i endurskipulagningu Vöruhúss- ins og á næstu mánuöum verða frekari breytingar. Meðal ann- ars er ætlunin að opna á milli nýrrar hljómdeildar, járn- og gíervörudcildar og Vöruhúss- ins. Að si'ign Páls Pórs flyst vefn- aðarvörudeikl af annarri hæð Vöruhússins á þá fyrstu í það rými þar sem hljómdeild var áður. Vcfnaðarvörudeild verð- ur sameinuð skódeild og Halla Einarsdóttir deildarstjóri yfir henni. Þá verður leikfanga- og sportdeild sameinuö herradeikl og hin nýja deild á efri hæð Vöruhússins. Deiklarstjóri hennar veröur Páll Siguröarson. óþh Atla hf. og fimm öðrum hlut- höfum, en Vélsmiöjan Atli hf. hætti starfsemi á sama tíma. Þegar eftir stofnfund hins nýja hlutafélags voru vélar og tæki keypt af eigendum Atla hf. og húsnæðiö tekið á leigu. Mennirn- ir sex, sem stóðu fyrir stofnun- inni, eru Halldór Brynjarsson, Stefán Karlsson, Hörður Guð- mundsson, Jón Óskar Ferdinands- son, Jón Gunnar Snorrason og Þórður Stefánsson. í spjalli við Halldór Brynjars- son, framkvæmdastjóra VSA, kom fram að langflestir viöskipta- vinir Atla hf. héldu tryggð við nýja fyrirtækið. Fyrsta starfsárið hefur gengið vel og verkefnin hafa komið jafnt og þétt. Vinnan hefur verið jöfn og litlar sveiflur í verkefnaframboði. Tíu menn starfa hjá VSA um þessar mundir. Viðgerða- og bjónustuverkefni eru viðamest, og fastir viðskipta- vinir skapa traustan starfsgrund- völl. Halldór segir að samkeppn- in sé mikil milli ntálmiðnaðarfyr- irtækja bæjarins, en þeir hjá Vélsmiðjunni Akureyri hf. óttist hana ekki, því fyrirtækið sé vel samkeppnisfært. í samanburði við Atla hf. væri nýting starfs- manna betri og minni kostnaður vegna yfirstjórnar. „Samkeppnin birtist í tilboð- unum í stærri verkefni sent bjóðast. Atli hf. var framarlega í rennismíði og hafði sérstöðu á því sviði meðal samkeppnisaðila í bænum. Við reynum að auka og efla þennan þátt starfseminnar, keyptum m.a. nýjan rennibekk í því skyni. Uppgjörið vegna fyrsta starfs- ársins liggur fyrir og niðurstöðu- tölur sýna að við erum réttum ntegin við strikið. Því erum við bjartsýnir á framtíðina og sann- færðir um að VSA er komin til að vera,“ segir Halldór. Hjá VSA eru unnar margvís- legar viðgerðir, auk nýsmíða- vinnu. Hedd af bílvélum eru plönuð, drifsköft stytt eða lengd, gert við bílkrana, skipt urn fóðr- ingar og annað sem til fellur í sambandi við vörubíla. Þá má nefna viðgerðir á þungavinnuvél- um og hluta til þeirra, m.a. fyrir Akureyrarbæ, auk þess sem ýms- ir aðilar á Norðurlandi senda slíka hluti til VSA til viðgerða. Starfsmenn VSA hafa talsvert unnið að viðgerðum á dælubún- aði, m.a. fyrir Hitaveitu Akur- eyrar og fleiri hitaveitur á Norðurlandi, nokkur skip og bát- ar eru í viðgerðum af og til, gert er við spil o.fl. Síðast en ekki síst má nefna viðgerðir fyrir Kísiliðjuna í Mývatnssveit, u.þ.b. tvisvar á ári, en það var eitt af fastaverk- efnum Atla hf. sem VSA hefur tekið í arf, a.m.k. bendir ekkert til annars en að svo sé. Framboðslistar Alþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og Alþýöu- bandalags vegna bæjarstjórn- arkosninganna á Akureyri í vor munu liggja fyrir um næstu mánaðamót, eftir því sem næst verður komist. Framsóknar- menn hafa þegar samþykkt sinn lista. Ekki er vitað með vissu hvenær Kvennalistinn leggur fram lista. Starfsmannafélag Húsavíkur- kaupstaðar hélt fund til kynn- ingar á kjarasamningunum sl. föstudagskvöld. Á fundinn mættu Ögmundur Jónasson frá BSRB, Einar Ólafsson, formaður SFR og Sigurður Jóhannsson, hagfræðingur BSRB. Um 25 félagar í starfs- mannafélaginu sátu fundinn. Sennilega verða greidd atkvæði um samningana um næstu helgi en því þarf að vera lokið fyrir 20. feb. Einar Jónasson, formaður Starfsmannafélags Húsavíkur- kaupstaðar sagði að fólk virtist tiltölulega ánægt með að reyna þessa leið, en það ylti alveg á ríkisvaldinu og atvinnurekendum að sjá um að ekki yrðu hækkanir, Stéttarsamband bænda ætlar í vikunni að efna til fundaher- ferðar um landið þar sem bændum verður kynnt nýgert samkomulag við launþega og vinnuveitendur í tengslum við kjarasamninga. Fyrstu fund- irnir verða á morgun og er ætl- unin að Ijúka fundaherferðinni um helgina. Að sögn Hauks Halldórssonar, formanns Stéttarsambandsins, verða fimm fulltrúar frá sam- bandinu með þessa fundi víðs En fleira er gert á verkstæði VSA en hér hefur verið nefnt. Þar hafa verið smíðaðir rafknúnir nuddbekkir, sem hafa líkað afar vel. Einn slíkur er í notkun í Hreinn Pálsson, formaður fimm manna undirbúningsnefnd- ar Alþýöuflokksins á Akureyri. og Hcrdís Ingvadóttir, stjórnar- formaður fulltrúaráðs flokksins, segja að prófkjör verði haldið næsta laugardag. Þátttaka er ekki bundin við félaga í Alþýðu- flokknum, en þeir sem eru flokksbundnir í öðrum flokkum mega ekki taka þátt. Prófkjörið hvorki á opinberri þjónustu né verðlagi eins og kvæði á í samn- ingum. „Menn virðast vera fljótir að grípa við sér því á íundinum koni fram fyrirspurn og ádeila á Hitaveitu Selfoss vegna hækkun- ar á gjaldskrá, og það er skrítið ef iðnaðarráðherra leyfir slíka hækkun. Ég tel þetta tímamóta- samninga að því leyti til að þarna er farin allt önnur leið heldur en hefur verið farin og það eru nán- ast engar prósentulegar hækkan- ir, með því skilyrði að verðbólg- an keyri sig niður. Það kemur kannski best þeim sem verst eru staddir. Aðalatriðið er að ríkis- valdið og atvinnurekendur standi við samningana og ég vona að launþegar fylgist vcl með að við þá sé staðið af allra hálfu," sagði Einar í samtali við Dag. IM vegar um land. Á Norðurlandi verður Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðingur Stéttarsambands- ins, og verður fyrsti fundur hans á Akureyri á fimmtudag en á föstudag og laugardag fundar hann með bændum í Þingeyjar- sýslum. Haukur segir að almennt séu bændur sáttir við samkomulagið. „ Auðvitað eru sumir óánægðir en í heildina telja menn að þetta hafi verið nauðsynlegt í þessari stöðu,“ segir Haukur. JÓH Bugðusíðu 1, húsi Sjálfsbjargar á Akureyri, annar hjá Brynjólfi Snorrasyni nuddara og sá þriðji í nuddstofu í Reykjuvík. Fjórði bekkurinn er í smíðum hjá VSA. EHB er ekki bindandi, að sögn Hreins. Ellefu nöfn eru á hverjum kjör- seðli, en auk þess má skrifa fleiri nöfn á seðilinn. Ætlast er til að merkt verði við sex nöfn með tölustöfum. Nöfnin ellefu eru eftirfarandi: Bjarni Kristjánsson fram- kvæmdastjóri Svæðisstjórnar um málefni fatlaðra, Gísli Bragi Hjartarson bæjarfulltrúi, Hanna Björg Jóhannesdóttir starfsmað- ur á Sólborg, Hulda Eggertsdótt- ir skrifstofumaður, Jóhann Möller bankastarfsmaður, Pétur Bjarnason hjá ístess, Sigurður Ingólfsson bifvélavirki, Sigurður Oddsson tæknifræðingur, Þor- steinn Þorsteinsson sundlaugar- vörður, Þórey Eyþórsdóttir sér- kennari og Hermann Jónsson, bakari og fasteignasali. Unnið er aö samsetningu lista Sjálfstæðismanna, en að sögn Knúts Karlssonar, formanns stjórnar fulltrúaráðsins og upp- stillingarnefndarinnar, er ætlunin að ljúka verkinu fyrir lok þessa mánaðar. „Þetta er langt komið," segir Knútur. „Ég var að kanna þetta í bókum og venju- lega hefur listinn verið lagður fram og samþykktur í marsmán- uði eða lok hans. Við erum því með fyrra fallinu núna.“ Ármann Helgason á sæti í upp- stillingarnefnd Alþýðubandalags- ins á Akureyri. Hann segir að flokksfólk hafi fengið senda seðla þar sem átti að rita ellefu nöfn, óröðuð og án skuldbindingar fyr- ir nefndina. Markmið skoðana- könnunarinnar sé að gefa upp- stillingarnefnd hugmyndir um vilja flokksmanna. Þessa dagana eru svörin að berast nefndinni, og mun hún skila af sér verki fyrir næstu mánaðamót. Síðan verður tillaga uppstillingarnefndar borin undir almennan félagsfund Al- þýðubandalagsmanna á Akur- eyri. Hólmfríður Jónsdóttir hjá Kvennalistanum segir að hóp- starf sé hafið varðandi endur- skoðun stefnuskrár, en ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvenær framboðslitinn verði lagður frani. Henni fannst þó ekki ólíklegt að það yrði gert um eða fyrir miðjan marsmánuð. EHB AKUREYRARB/ÍR ÚTBOÐ Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í að innrétta 22 íbúða fjölbýlishús að Helga- magrastræti 53, Akureyri. Útboðsgögn verða afhent á Teiknistofu Hauks Haraldssonar, Kaupangi v/Mýrarveg gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á Byggingadeild Akureyrar- bæjar Kaupangi v/Mýrarveg mánud. 26. febrúar nk. kl. 11.00. Akureyrarbær — Byggingadeild. AKUREYRARB/CR HUSFRIÐUNARSJOÐUR AKUREYRAR Umsóknir um lán eða styrki úr Húsfriðunarsjóði Akureyrar á þessu ári þurfa að berast fyrir 1. mars nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu byggingafulltrúa, Geislagötu 9 og á skrifstofu menningarmála, Strandgötu 19b. Á þeim stöðum eru einnig veittar nánari upplýs- ingar um húsfriðunarsjóðinn. Menningarfulltrúi. Bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri: Styttist í að fleiri framboðs- listar líti dagsins ljós Starfsmannafélag Húsavíkurkaupstaðar: Kymiingarfundur um samningana Stéttarsamband bænda: Fundað um kjarasamninga

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.