Dagur - 13.02.1990, Qupperneq 3
Þriðjudagur 13. febrúar 1990 - DAGUR - 3
Tvær lukkulegar lottófjölskyldur á Norðurlandi:
Nær 13 milljónir skiptast á milli Skagfirðinga og Húsvíkmga
- „Ætli við höldum ekki bara áfram að mjólka kýrnar,“ segir annar vinningshafmn
Stóri lottóvinningurinn brá sér
norður yfir heiðar á laugar-
dagskvöldið, skipti sér í tvennt
og hafnaöi annar hlutinn hjá
fjölskyldu á Húsavík en hinn
hjá fjölskyldu í Skagafiröi. Það
eru 6.485.342 kr. sem hvor íjöl-
skylda hlýtur, samkvæmt upp-
lýsingum frá íslenskri getspá,
og er hér um þriöja hæsta
vinning að ræða sem einstakl-
ingur hlýtur í lottóinu. í jan.
’89 hlaut einstaklingur 11,5
milljónir og í nóv. ’88 var
greiddur út næsthæsti vinning-
urinn, rúiniega 7 milljónir.
Hjónin Hafdís A. Harðardótt-
ir. nemi við Framhaldsskólann á
Húsavík, og Viðar Baldvinsson.
deildarstjóri Kjötiðju Kaupl'élags
Þingeyinga voru lukkuleg með
lottseðilinn sem Hafdís keypti í
Naustagili. söluskála KÞ. „Það
má segja að Hafdís mín hafi unn-
ið þetta, því hún hefur alltaf séð
um að kaupa miða. Ég hef aldrei
fylgst með eða keypt miðana,"
sagði Viðar í samtali við Dag og
virtist sæmilega ánægður með
frúna. Viðar sagði að þau spiluðu
alltaf nteð og kcyptir væru einn
til tveir miðar í viku. Vinnings-
miðinn var með sjálfvöldum töl-
um úr sölukassanum. „Maður
varð hálfskrýtinn og svaf lítiö
þessa nóttina," sagði Viðar,
aðspurður um hvernig þeim hefði
orðið við fréttirnar um vinning-
inn. en Hafdís hafði kallað á
dóttur sína til fara yt'ir tölurnar
meö sér, áður en hún trúði fylli-
lega hvað um vttr að vera. „Við
höfum ekkert rætt um hvað viö
gerum við peningana. Ég er samt
ákveðinn að bjóða syni okkar til
Mexíkó. en þangaö ætlaði hann í
vor. Ætli ég kaupi ekki bíl, en við
erum á einum níu ára gömlum.
Svo dyttar maður að húsinu og
græjar sig, þaö verður eitthvað
hægt að gera. Hafdís er í skóla og
við erum fimtn í heimili svo þetta
kemur í góðar þarfir," sagði
Viðar.
Soffía Sæmundsdóttir og Haf-
steinn Lúðvíksson. sem búa á
Ytra-Vallholti í Skagafirði, voru
svo hcppinn að hljóta hinn hluta
vinningsins á miða sem keyptur
vttr í Varmahlíð, útibúi Kaupfé-
lags Skagfiröinga. Þar segir
starfsfólk að sé happakassi. því
viku áður hlaut Helgi Sigurðsson
á Reynisstað rúmlega 300 þúsund
í bónusvinning, á miða sem
keyptur var í Varmahlíö. „Við
erum eiginlega ekki farin að álta
iokkur á þessu ennþá. Viðskiljum
varla að viö höfum verið svona
heppin," sagði Soffía í samlali
við Dag í gær. Þau hjónin voru á
þorrablóti á laugardagskvöld og
það var ekki fyrr en um miðjan
dag á sunnudag, þegar þau fóru
að horfa á videóupptöku af
söngvakeppninni. að lottötölurn-
ar leyndust þttr með og þau sáu
hvers kyns var. Fjölskyldan spilar
ákaflega sjaldan. en Hafsteinn
hefur líklega fengið einhverskon-
ar hugboð núna. Soffía og 14 ára
dóttir þcirra fóru á bókasafnið í
Varmahlíð en Hafsteinn var
heima í vélageymslu, hann
heytði auglýsingu frá lottóinu í
útvarpi og hringdi á eftir mæðg-
unum og bað þær aö kaupa miða.
Vinningstölurnar voru sjálfvaldar
úr kassanum. „Við erum ekki
komin svo langt að hugsa um
þttö." stigði Soffía aöspurð um
hvað gcrt yröi við peningana.
Fyrst munu þeir samt verða lagð-
ir í Innlánsdeild Kaupfélags
Skttgfirðinga, en þar liefur þeint
hjónum reynst ágætlega að
geyma fé þegar eitthvað er til
afgangs, aö sögn Soffíu. „Það er
nóg með þetta að gera. ætli við
byrjum ekki á aö klára aö borga
skuldir, cn svo er þetta óráöið.
Þetta raskar ekki ró okkar og ætli
við höldum ekki bartt áfram að
mjólka kýrnar eins og við höfum
gert. Þetta breytir ábyggilega
engu þannig lagað, að við förum
aö fara í utanlandsreisu," sagöi
Soffía. ÍM
Vaglaskógur:
Stórtjón er gróðurhús
hrundi undan snjóþunga
- 155 cm jafnfallinn snjór í skóginum í gærmorgun
Skógræktin að Vöglum í
Vaglaskógi varð fyrir stjór-
tjóni, er eitt af gróðurhúsum
fyrirtækisins hrundi undan
snjóþunga fyrir um viku síðan.
Að sögn Sigurðar Skúlasonar
skógarvarðar, er hér um að
ræða hús sem byggt er úr járn-
rörabogum og klætt með
plastdúk. Taldi hann tjónið
nema um einni milljón króna
en húsið var ótryggt. Húsið var
tómt þegar óhappið varð en í
því voru geymd jólatré fyrir
jólin.
„Sperrurnar hreinlega gáfu sig
undan snjóum sem hefur verið
óvenju þungur að undanförnu og
miklu þyngri en venjulega, því
annað eins snjómagn hefur áður
fallið á húsin hér. Það eru hér tvö
önnur hús cins og það sem hrundi
en okkur tókst að koma í veg fyr-
ir að þau færu á söntu leið, með
því að moka af þeim sjónum og
eins hefur verið mokað frá þeim
með vélskóflu," sagði Sigurður.
I gærmorgun var 155 crn jafn-
fallinn snjór í Vaglaskógi, eða
aðeins 4 cm lægri en snjómagnið
fór hæst í skóginum, um páskana
í fyrra. Eitthvað bætti á seinni
partinn í gær og má því búast við
að hæðarmctinu frá því í fyrra
hafi þegar verið náð. Að sögn
Sigurðar er mjög fallegt um að
litast í skóginum en ófært var
þaðan og út á aðalveg í gær og
því komust börnin ekki í skólann
til Akureyrar. -KK
hingexjarsýsla:
Skíðapiltur fótbrotnar
- skemmtiferð í Fjörðu
IUskuveður og ófærð ollu ekki
neinun óhöppum svo vitað
væri til um helgina í Þingeyjar-
sýslum. En á laugadag fót-
brotnaði 13 ára strákur sem
var á skíðum í Húsavíkurfjalli.
Lögregla og sjúkraliðar gengu
á fjallið með börur til að ná í
piltinn, sem var síðan fluttur á
sjúkrahúsið.
Mikið snjóaði á Húsavík á
sunnudag og um kvöldið var
alveg orðið ófært í bænum og
nágrenni hans. Snjóbíll var hafð-
ur til taks ef sinna þyrfti neyðar-
tilvikum, og nóg var að gera hjá
lögreglu við að aðstoða starfsfólk
sjúkrahússins við að komast ntilli
heimila sinna og vinnustaðar. Að
sögn lögreglu var rólegt á Húsa-
vík á laugardagskvöld en talsvert
var að gera alla helgina við að
aðstoða fólk og losa bíla úr
sköflum.
Á Raufarhöfn snjóaði minna
en víðast hvar annars staðar. Þar
var haldið þorrablót á laugar-
dagskvöld og fór það rnjög vcl
fram, að sögn lögreglu.
Leiðindaveður var á Egilsstöð-
um um helgina og talsvert að
gera hjá lögreglu við að losa bíla
og aðstoða fólk úr snjósköflum.
Það voru þó ekki allir sem
breiddu upp fyrir haus vegna
veðurs og færðar um helgina.
Menn á fjórum risadekkjajepp-
unt frá Húsavík og tveim frá
Akureyri brugðu sér í skemmti-
ferð í Fjörðu, og komu þeir heilir
heim um hádegi á mánudag. IM
VerkfaJli Sleipnis aflýst
Verkfalli félaga í Bifreiða-
stjórafélaginu Sleipni var aflýst
Lögregluaðstoð
í snjónum
Veðrið sem gekk yfir Norður-
land á sunnudag gerði að verk-
um að lögreglumenn á Dalvík,
Ólafsfirði og Siglufirði þurftu
að aðstoða fólk við að komast
leiðar sinnar.
Á ofangreindum stöðum voru
lögreglumenn þó sammála um að
fólk hafi ekki verið á ferli að
óþörfu, en aðra sögu var að segja
úr höfuðstað Norðurlands. Þeir
sem voru á ferli á Siglufirði
brugðu t.d. undir sig betri fætin-
um og settu á sig gönguskíði.
VG
í gærmorgunn, en þá var
undirritaöur nýr kjarasamn-
ingur milli félagsins og við-
semjendá þeirra eftir nætur-
langan fund hjá Sáttasemjara
ríkisins.
Samningur Sleipnismanna er
að öllu leyti sambærilegur samn-
ingi ASÍ og vinnuveitenda sem
undirritaður var nýlega, en í gær-
kvöldi átti að halda félagfund í
Sleipni um samninginn.
í gærmorgun hófst því akstur
með eðlilegum hætti hjá félags-
mönnum í Sleipni ef svo má segja
þar sem færð var víðast hvar
mjög þung. Norðurleið hélt af
stað í sínar áætlunarferðir og von
var á hópum á vegum Sérleyfis-
bíla Akureyrar í gærkvöldi, sem
verið höfðu veðurtepptir í Reykja-
vík eina nótt. VG
Skil á staðgreiðslufé
EINDAGINN
ER 15.
HVERS MÁNAÐAR
Launagreiðendum ber að skila afdreg-
inni staðgreiðslu af launum og reikn-
uðu endurgjaldi mánaðarlega. Skilin
skulu gerð eigi síðar en 15. hvers mán-
aðar.
Með skilunum skal fylgja greinar-
gerð á sérstökum eyðublöðum, „skila-
greinum", blátt eyðublað fyrir greidd
laun og rautt fyrir reiknað endurgjald.
Skilagrein ber ávallt að skila einnig þó
svo að engin staðgreiðsla hafi verið
dregin af í mánuðinum.
Allar fjárhæðir skulu vera í heil-
um krónum.
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI