Dagur - 13.02.1990, Page 7

Dagur - 13.02.1990, Page 7
Þriðjudagur 13. febrúar 1990 - DAGUR - 7 Punktamót KSÍ í innanhússknattspyrnu: KA sigurvegari - Fram, ÍA og KA jöfn að stigum Ormarr Örlygsson leiddi KA-liðið til sigurs á punktamóti KSÍ um helgina. Mynd: TLV KA gerði sér lítið fyrir og sigr- aði á síðara punktamóti KSI í innanhússknattspyrnu. Fyrir sigurinn fékk KA 80 þúsund krónur í sinn hlut en KA lagði íslandsmeistara Fram í æsi- spennandi og framlengdum leik. Þór komst ekki áfram úr riðlakeppninni. „Við rciknuðum ckki mcð sigri á mótinu svona fyrir fram. En þegar við komumst áfram úr riðl- inum sáum við að sigurinn gat alveg eins lent okkar megin. Það reyndist raunin þó svo að síðustu tveir leikirnir væru mjög erfiðir," sagði Ormarr Örlygs- son, liinn staðfasti varnarmaður KA-manna. KA vann Þrótt 7:4. ÍA 10:6 og geröi jafntefli við ÍR 5:5 í undan- keppninni. í 8-liða úrsljtum lagði KA Kcflvíkinga 4:1 og vann síð- an Stjörnuna 3:2 í undanúrslit- um. í úrslitaleiknum sigraði KA síðan Islandsmeistara Fram 8:6 í framlengdum leik. Þór tapaði fyrir Stjörnunni 6:3 og Fylki 7:3 en vann Gróttu 11:4 í riðlaképpninni. Það dugði ekki til að komast áfram og Þór var því úr leik. KA. ÍA, Stjarnan. Fylkir. Fram, ÍBK, KR og Breiðahlik komust áfram úr riölakeppninni. Fram vann ÍA 8:4. Stjarnan vann UBK 8:2 og KR vann Fylki 4: l. í undanúrsiitum sigraöi síðan Fram KR 6:4. Stjarnan vann síð- an KR 6:4 í leik um 3. sætið. KA og IA fengu 80 þúsund fyr- ir árangur sinn á þessum tveimur punktamótum, Fram fékk 30 þúsund og Fylkir 20 þúsund. ÍA sigraði á fyrra punktamótinu sem haldið var á Akranesi fyrir jól. Eftirtaldir leikmenn léku nteð KA-liðinu: Ormarr Örlygsson. Bjarni Jónsson, Haukur Braga- son. Kjartan Einarsson. Arnar Bjarnason, Árni Hermannsson. Gauti Laxdal, Þórður Guöjóns- son og Steingrímur Birgisson. Kemur Alexander ekki? Skagamenn neita að skriía undir skiptin Skagamenn neituðu að skrifa undir félagaskipti Alexanders Högnasonar frá ÍA yfir í KA og því gat liann ekki leikiö Fyrstu skíðamót vetrarins: Vilhelm og María hlutskörpust Fyrsta alpagreinamót vetrarins fór fram í Hlíðarfjalli á laugar- daginn. Það var stórsvigsmót Þórs en Akureyrarmóti í stór- svigi sem vera átti á sunnudag- inn varð að fresta vegna veðurs. Vilhelm Þorsteinsson varð hlutskarpastur í karla- erfitt skyggni gerði keppendum erfitt fyrir flokki en María Magnúsdóttir í kvennaflokki. Skilyrði í Hlíðarfjalli settu nokkurn svip á mótið og var María t.d. eini keppandinn í kvenna- flokki sem komst báðar umferð- irnar klakklaust. Gunnlaugur Magnússon sigr- aði í flokki 15-16 ára drengja og Eva Jónasdóttir varð hlutskörp- ust í flokki stúlkna 15-16 ára. Við munum fjalla nánar um mótið á morgun í blaðinu og birta þá heildarniðurstöðu kepp- enda á þessu fyrsta stórsvigsnióti vetrarins. ineð KA-liðinu í innanhúss- inótinu um helgina. Það sem vakir fyrir Skagamönnum er að tryggja sér rétt ef Alexand- er fer í atvinnumennsku í fram- tíöinni. Forráðamenn ÍA staðfestu að þeir hefðu neitað að skrifa undir þessi félagaskipti út af þessari ástæðu. Það var þó ekki á þeini aö skilja aö þeir ætluðu sér að standa í vegi fyrir því að Alexander myndi skipta yfir í KA heldur einungis að tryggja að IA héldi sínum rétti gagnvart leikmanninum upp á framtíöina að gera. Neitun Skagamanna gerði þaö að verkum að Alexander gat ekki leikið mcð KA á punktamóti KSÍ um helgina. Kristinn Svanbergssun keyrði út úr brautinni eins og fjölniargir aðrir kepp- endur á laugardaginn. Sölvi Sölvason frá Siglufirði var sigursæll á Isalirði. Knattspyrna: 0 / • • - í 3:2 sigri Stuttgart á argentínska landsliðinu U-21 árs í 3:2 sigri þýska liösins. Sauðkrækingurinn kom inn á sem varamaður og Iryggði Stuttgart sigur í leikn- um. Stuttgart hefur verið á keppn- isferðalagi um Mið- og Suður- Ameríku að undanförnu og eru þetta fyrstu fréttirnar sent ber- ast hingaö til lands af gengi liðs- ins. Stuttgart kemur aftur til Þýskalands t lok þcssarar viku en kcppnistímabilið hefst í byrj- un mars þar í landi. Rétt áður en Stuttgart fór í þess ferð var rætt við Eyjólf og sagðist hann þá búast við aö fá einhver tækifæri í þessari ferð. Þar reyndist liann sannspár en við inunum ræöa nánar við Eyjólf þegar hann kemur aftur úr fcrðinni og fá þá nánari fregnir af gangi mála. Eyjólfur Sverrisson skoraði tvö mörk með aðalliði Stutt- gart gegn landsliði Argentínu Eyjólfur Sverrisson hyrjar vel með Sluttgart. Bikarkeppni í göngu: Haukur og Sölvi sigursælir Fyrsta bikarganga vetrarins á skíöuin var haldin á ísafiröi um helgina. Haukur Eiríksson frá Akureyri sigraði í göngunni en gamla kempan Sigurður Aöal- steinsson geröi sér lítið fyrir og náði öðru sætinu. Sölvi Sölvason frá Siglufirði sigraði í piltaflokki á mótinu en við munum nánar skýra frá þessu móti síðar í vikunni.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.