Dagur - 13.02.1990, Qupperneq 11
hér & þar
Þriðjudagur 13. febrúar 1990 - DAGUR - 11
i
l
Þessa nienn liefur Henry Brown senl í rafniagnsstólinn. „Á mínu svæði verða inoröingjar að mæta hörðustu refs-
ingu,“ segir hann.
Saksóknarinn í N-Louisiana í Bandaríkjunum:
Engiim hefur sent jafn
marga í rafmagnsstólinn
Henry Brown, saksóknari í
Louisiana, hefur sent fleiri menn
í rafmagnsstólinn en nokkur ann-
ar saksóknari í Bandaríkjunum.
Nú hefur hann sent fimm manns í
dauðastólinn og segir að hver sá
sem fremji morð í sínu umdæmi
skuli gera sér grein fyrir því að
búast megi við hinu versta þegar
honum sé að mæta.
„Hér í noröurhluta Louisiana-
fylkis urðu tvö morð í september
og ég krefst dauðarefsingar í báð-
um tilfellum. Ég trúi því að
réttarkerfið eigi að bregðast strax
við og refsa svona fólki með því
að dæma það strax í rafmagns-
stólinn," segir Henry.
Henry segii að í öðru tilfellinu
hafi verið um að ræða mann sem
tók gamla konu sem gísl í ráni og
skyldi hana eftir úti í skógi fjarri
byggðum og þar lét hún lífiö. í
hinu tilfellinu setti 18 ára gömul
stúlka barn sitt í frystikistu til að
láta það hætta að gráta.
„Svona lagað gerir heilbrigt
fólk ekki. Ég var sjálfur í Víetnam
og sá nóg þar. Lífið er verðmæt-
ara en svo að þegar sumir halda
að þeir hafi rétt til að taka líf ein-
hvers þá verður að rcfsa þeim
með hörðustu refsingu."
Þeir fimm menn sem Henry
hefur þegar sent í rafmagnsstól-
inn eru Ernest Knighton, sem
skaut eiganda bensínstöðvar,
Alvin Moore, sem nauðgaöi og
myrti nágranna sinn, Edward
Byrne, sem barði unnustu sí'na til
dauða með hamri, og .liminy
Glass og Jimmy Wingo, sem
myrtu hjón á jóladag.
„Þessir menn guldu allir fyrir
að fremja glæp sinn á svæöi
Henry Brown," segir lögreglu-
stjórinn um hina dæmdu.
„Sumir telja mig of harðan í
svona málum og þeir sem eru á
móti svona refsingum eru auðvit-
að andstæðingar aðferða minna.
En ég vil þó að það sé öllum Ijóst
að þetta er sísti staðurinn til þess
aö fremja morð, ef menn ætla að
komast upp með það án dauða-
refsingar," segir Henry.
Henry Brown og rafmagns-
stóllinn.
Hjónabönd:
Rifrildin treysta
Nýjar rannsóknir benda til þess
að slagsmál milli hjóna bæti
hjónabandið. Þetta geti, þrátt
fyrir fyrri niðurstöður, verið góð
leið til að leysa vandamál og
styrkja bönd hjónabandsins.
„Frelsi gifts fólks til þess að
reiðast virðist leiða til meiri skiln-
ings innan hjónabandsins," segir
sálfræðingurinn Lowell Krokoff.
Þessar nýju niðurstöður segja
að svo lengi sem eiginmaðurinn
geti rifist hressilega við eiginkon-
una án þess að allt fari úr bönd-
um þá verði líftími hjónabands-
ins mun lengri.
Sálfræðingurinn Krokoff bygg-
ir niðurstöður sínar á athugun á
55 hjónurn og í fyrstu virtust þau
pör sem oft rifust sínu óham-
ingjusamari en þau sem aldrei
áttu hressilegt orðaskak. Krokoff
böndin
athugaði síðan þessi pör þremur
árum síðar og þá urðu niðurstöð-
ur heldur á annan veg. Óham-
ingjusamasta fólkið þremur árum
áður bjó þá í vel heppnuöum
hjónaböndum en meira hrikti í
stoðum hjónabandanna sem
mesti friðurinn hafði veriö í.
„Þetta undirstrikar það að fólki
líður best ef þaö lætur óánægju
sína í Ijósi í stað þess að byrgja
hana inni," segir Krokoff.
AKUREYRARB>ER
Afnot af íbúð í
Davíðshúsi, Akureyri
Eins og áöur hefur komiö fram, þá gefst fræði-
mönnum og listamönnum kostur á að sækja um 1-
6 mánaöa dvöl í lítilli íbúð í Davíðshúsi til að
vinna að fræðum sínum eða listum.
íbúðinni hefur ekki enn verið ráðstafað tímabilið
okt.-des. 1990.
Þeir sem hefðu hug á að sækja um afnot af íbúð-
inni það tímabil eru beðnir að senda umsókn fyrir
1. mars nk.
Umsóknir ber að senda til: Akureyrarbær, c/o Ing-
ólfur Ármannsson, menningarfulltrúi, Strandgötu
19b, 600 Akureyri.
Menningarfulltrúi.
® AUGLÝSING
um styrki Evrópuráðsins á sviði
læknisfræði og heilbrigðisþjón-
ustu fyrir árið 1991.
Evrópuráðið mun á árinu 1991 veita starfsfólki í heil-
brigðisþjónustu styrki til námsferða í þeim tilgangi að
styrkþegar kynni sér nýjungar í starfsgreinum sínum
í löndum Evrópuráðsins og Finnlandi.
Styrktímabil hefst 1. janúar 1991 og lýkur 1. des.
1991. Um er að ræða greiðslu ferðakostnaðar og
dagpeninga skv. nánari reglum. Hvorki kemur til
greiðslu dagpeninga né ferðakostnaðar af hálfu
ríkisins. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 55
ára, hafa gott vald á tungumáli þessa lands, sem
sótt er um og ekki vera í launaðri vinnu í því landi.
Umsóknareyðublöð fást í heilbrigðis- og tryqqinqa-
málaráðuneytinu.
Umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 15.
mars nk.
Ákvörðun um styrkveitingar verður tekin í Evrópu-
ráðinu í byrjun desember 1990.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
8. febrúar 1990.
Vinningstölur laugardaginn
10. feb. ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 2 6.485.342.-
4. 4af5^/ 12 104.352.-
3. 4af 5 289 7.474.-
4. 3af 5 10.168 495.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
21.416.054.-
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002