Dagur - 13.02.1990, Síða 13
Þriðjudagur 13. febrúar 1990 - DAGUR - 13
Vel heppnað þorrablót Fnjóskdælinga
Fnjóskdælingar héldu þorra-
blót sitt í byrjun mánaðarins.
Þorrablótiö var haldið í Stóru-
tjarnaskóla og var þar saman
kominn fjöldi manns og
skemmti sér hið besta.
Ingimar Eydal sá um að
stjórna almennum söng á meðan
á borðhaldinu stóð og skaut hann
inn ýmsum léttum og góðum
sögum. Einnig voru heimatilbúin
skemmtiatriði flutt og gert grín
að ýmsum í sveitinni. Stefán
Karlsson handritafræðingur flutti
erindi um skemmtanir innan
sveitar fyrr á öldinni og var það
bæði skemmtilegt og fræðandi.
Hljómsveit Ingimars Eydal lék
svo fyrir dansi til kl. 04 og fór þá
mannskapurinn að týnast heim af
vel heppnuðu þorrablóti. I Hálsi, var að sjálfsögðu mættur á
Fréttaritari Dags í Fnjóskadal, þorrablótið og tók þá þessar
Magnús Gunnarsson, prestur á myndir. -MG
Lýðræðisrannsóknastyrkir Atlantshafsbandalagsins 1990-91:
Ákveðið að veita nokkra nvja styrki til
rannsókna í aðildarríkjum bandalagsins
Atlantshafsbandalagið hefur
ákveðið að veita nokkra nýja
styrki til rannsókna í aðildarríkj-
um bandalagsins á háskólaárinu
1990-91. Tilgangur styrkjanna,
sem ætlaðir eru ríkisborgurum í
ríkjum Atlantshafsbandalagsins
og Varsjárbandalagsins, er að
stuðla að rannsóknum og aukinni
þekkingu á lýðræðislegu stjórn-
arfari og stofnunum í ríkjum
Atlantshafsbandalagsins og er
stefnt að útgáfu á niðurstöðum
rannsóknanna.
Styrkirnir nema um 308 þús-
und íslenskum krónum (180 þús-
und belgískum frönkum) og er
ætlast til að unnið verði að rann-
sóknunum á tímabilinu frá maí
1990 til ársloka 1991. Einnig er
greiddur nauðsynlegur ferða-
kostnaður, en gert er ráð fyrir að
rannsóknir geti farið fram í fleiru
en einu ríki Atlantshafsbanda-
lagsins.
Styrkirnir verða að jafnaði
veittir háskólamenntuðu fólki.
Styrkþegum ber að skila loka-
skýrslu um rannsóknir sínar á
ensku eða frönsku til alþjóða-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins
fyrir árslok 1991. Umsóknir um
fræðimannastyrki Atlantshafs-
bandalagsins skulu berast utan-
ríkisráðuneytinu eigi síðaren 13.
mars nk.
Alþjóðaskrifstofa utanríkis-
ráðuncytisins, Hverfisgötu 115,
Reykjavík, veitir upplýsingar um
styrkina og lætur í té umsóknar-
eyðublöð.
Landssamband fram-
sóknarkvenna auglýsir
Ulfhildur Rögnvaldsdóttir, bæjarfulltrúi
verður til viðtals á skrifstofu flokksins, Hafnarstræti
90, Akureyri, miðvikudaginn 14. febrúarfrá kl. 17.00-
19.00.
I.O.O.F. Rb. nr. 2 = 1392148 =
HyÍTASUtlhUmKJAtl V/5KARD5HLÍÐ
Þriðjudagur 13. feb. kl. 20.00
æskulýðsfundur fyrir 10 til 14 ára.
Allt æskufólk velkomið.
Arnad heilla
85 ára er í dag 13. febrúar,
Vilborg Guðjónsdóttir,
Munkaþverárstræti 14.
Hún verður heima og er með heitt á
könnunni.
----------------------------------------------------------------------------------s
AKUREYRARB/tR
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 15. febrúar 1990 kl. 20-22 verða
bæjarfulltrúarnir Sigurður J. Sigurðsson og Heim-
ir Ingimarsson til viðtals á skrifstofu bæjarstjórn-
ar, Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Ræstingar
Securitas hf. hefur í 10 ár tekið að sér daglegar
ræstingar fyrir fyrirtæki og stofnanir. [ viðskiptum við
okkur eru mörg af virtustu fyrirtækjum á íslandi.
Þjónusta okkar nær yfir alla þætti ræstinga og má
þar nefna:
- Skrifstofuræstingar - Hótelræstingar
- Skólaræstingar - Teppahreinsun
- Hreingerningar - Verslunarræstingar
- Gluggaþvott - Ræst. eftir iðnaðarmenn
Securitas hf. hefur yfir að ráða mikilli reynslu á sviði
ræstingarmála.
Gerum verðtilboð án skuldbindinga.
SECURITAS HF
Akureyri, sími 96-26261,
Reykjavík, sími 91-687600.
Ráðgjafar- og greiningardeild.
Staða við leikfangasafn
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns leik-
fangasafns við Ráðgjafar- og greiningardeild
Svæðisstjórnar.
/ starfinu felst m.a. eftirfarandi:
★ Vinna með sérþarfabörn á aldrinum 0-6 ára.
★ Að veita ráðgjöf til foreldra og annarra sem sjá
um uppeldi og þjálfun barna.
★ Samstarf við ýmsa fagaðila og stofnanir.
Umsækjendur skulu hafa menntun á uppeldissviði
og reynslu á ofangreindum sviðum.
Skriflegar umsóknir er greina frá menntun og starfs-
reynslu sendist til Skrifstofu Svæðisstjórnar, Stór-
holti 1, 600 Akureyri, fyrir 20. febrúar nk.
Nánari upplýsingar um stöðuna eru veittar á skrifstof-
unni og í síma 96-26960 alla virka daga kl. 09.00-
16.00.
Forstöðumaður Ráðgjafar- og greiningardeildar.
Vantar blaðbera
í Melasíðu, Múlasíðu og Bugðusíðu frá 1. mars nk.
rm
SECURITAS
Eiginmaöur minn,
JÓN FORBERG JÓNSSON,
er látinn.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helga Stefánsdóttir
og fjölskylda.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JONÍNA VILBORG JÓNSDÓTTIR,
Langholti 17, Akureyri,
er andaðist 5. febrúar, verður jarðsungin frá Glerárkirkju
fimmtudaginn 15. febrúar kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á byggingarsjóð
Glerárkirkju til kaupa á kirkjuklukkum.
Runólfur Jónsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug, við and-
lát og útför,
KARITASAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Bjarmastíg 2.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Dvalarheimilinu Hlíð fyrir
elskusemi og góða ummönun.
Guð blessi ykkur öll.
Fjölskyldan.