Dagur - 02.03.1990, Blaðsíða 2
fréttir
2 - DAGUR - Föstudagur 2. mars 1990
Verðhrun
á kuldaskóm
30% afsláttur
Skótískan
Skipagötu 5.
Sími 26545.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
i
Áhugamannahópur um byggðamál á Héraði
skorar á landsbyggðarþingmenn:
„Álmálið er prófsteinn á
byggðastefnu í landinu"
Áhugamannahópur Héraðs-
búa um virkjanamál og stór-
iðju hefur skorað á þingmenn
að beita sér fyrir samvinnu
landsbyggðarinnar um að
næsta stóriðja verði staðsett
utan suðvesturhorns landsins.
I áskoruninni segir að sam-
staða landsbyggðarmanna um
mál þetta sé prófsteinn á hvort
byggðastefna eigi sér viðreisn-
ar von á íslandi.
„Fjórðungssamband Norð-
lendinga fékk málið sent til með-
ferðar, og verður fjallað um það
á næstunni. Leitað verðu.r sam-
starfs um það á breiðum grund-
velli við Vestfirðinga og Aust-
firðinga,“ segir Áskell Einarsson,
framkvæmdastjóri Fjórðungs-
sambandsins.
Á fundi sem Héraðsbúar og
íbúar á Egilsstöðum héldu um
þessi málefni fyrir nokkru var
mikið rætt um stóriðjumál, eins
og kunnugt er, en fundarmenn
töldu að eini raunhæfi staðurinn
fyrir álver væri Eyjafjörður.
Fljótsdalsvirkjun væri eðlilegasti
virkjunarkostur í tengslum við
álverið.
Áhugatnannahópur um þessi
mál fundaði í kjölfarið og sam-
þykkti fundur þeirra m.a. að ef
ný stóriðja risi á suðvesturhorni
landsins yrði byggðaröskun sú,
sem nú stendur yfir, færð á nýtt og
enn geigvænlegra stig, og þá yrði
ekki aftur snúið í borgríkis-
þróuninni á Reykjavíkursvæð-
inu.
Leitað er til allra þingmanna
landsbyggðarinnar, óháð
flokkum, og skorað á þá að beita
sér fyrir samstöðu allrar lands-
byggðarinnar gegn nýrri stóriðju
sunnanlands. „Líta verður á það
hvernig til tekst sem getu lands-
manna til að byggja landið í
frjálsu þjóðríki,“ segir orðrétt í
ályktun áhugamannahópsins.
Undir bréf þetta rita Þórarinn
Lárusson, tilraunastjóri á
Skriðuklaustri, og Aðalsteinn
Jónsson. Auk þeirra starfa þeir
Orri Hrafnkelsson, Björn Ingv-
arsson og Skarphéðinn Fórisson í
áhugamannahópnum.
í bréfinu er minnt á að almenn-
ur sveitarfundur í Fljótsdal hafði
áður samþykkt í byrjun desem-
ber á sl. ári að virkja bæri í
Fljótsdal og reisa álver í Eyja-
firði, en áhugamannahópurinn
tekur ekki beina afstöðu til stað-
setningar að öðru leyti en því að
álverið rísi utan suðvesturhorns-
ins.
Þórarinn Lárusson er í stjórn
Útvarðar. Hann segir að skoðun
sín og áhugamannahópsins sé sú
að langsótt sé að ræða um raun-
verulega byggðastefnu í landinu,
nái landsbyggðin ekki að standa
saman í þessum máluni.
„Landsbyggðarmenn verða að
standa saman. Það þarf ekki að
hlusta á marga sem þekkja til
þessara mála til að skilja að
straumur fólks liggur alltaf suður.
Vestfirðingar hafa t.d. margir
ágæt laun og góða afkomu,
skólamál hjá þeim hafa batnað,
samgöngur aukist o.s.frv. Samt
flytur fólkið burt, og ég tel að
tvær ástæður séu fyrir því. Margir
landsbyggðarmenn geta ekki bor-
ið höfuðið hátt og ná ekki þeirri
sjálfsvirðingu sem felst í að ráða
sjálfir yfir þeim tekjum sem þeir
afla í heimabyggðinni og stjórna
þeim. í tengslum við þetta er svo
samstöðuleysið milli landshluta
sem gerir þetta að vítahring,"
segir Þórarinn Lárusson. EHB
Kvenfélag Húsavíkur:
Memiingarferð á 95 ára afmælinu
Kvöldvcrður í Veitingahöllinni. Fremstar frá hægri eru Dalrós Jónasdóttir,
Sólveig Þórðardóttir og Hulda Skarphéðinsdóttir. Mynd: im
Kvenfélag Húsavíkur varð 95
ára þann 16. feb. sl. Höfuð-
markmið kvenfélaganna er að
gera eitthvað fyrir aðra, og
kvenfélagskonur er vanar að
styðja og styrkja ýmis líknar-
inál og vinna að því að skemmta
öðrum. I tilefni af afmælinu
ákváðu kvenfélagskonur að
gera loksins eitthvað fyrir sig
sjálfar og bregða sér í menn-
ingarferð til höfuðborgarinnar.
Helgina eftir afmælið héldu
því 29 kvenfélagskonur í
tveggja daga Reykjavíkurferð.
Konurnar heimsóttu Listasafn
fslands. Eftir veislumáltíð í Veit-
ingahöllinni héldu þær í Borgar-
leikhúsið, og sáu Höll sumar-
landsins. Farið var í tveggja og
hálfs tíma skoðunarferð um
Reykjavík og síðan þegið kaffi-
boð á heimili frú Ástu Jónsdótt-
ur, fyrrverandi formanns félags-
ins sem nú er flutt suður.
Að sögn Svölu Hermannsdótt-
ur, formanns ferðanefndar, áttu
konurnar afskaplega ánægjulega
helgi saman. Sagði Svala að
greinilega tengdu slíkar ferðir
félagskonurnar traustari böndum
og hresstu mjög upp á félagslífið.
IM
bridds
Sveitahraðkeppni BA og Sjóvá-Almennra:
Sveit Amar fagnaði sigri
„Ég er ekki tapsár, enda væri
ég löngu hættur að spila bridds
ef ég væri það,“ sagði Frímann
Frímannsson, einn spilara í
sveit Grettis Frímannssonar í
sveitahraðkeppni Bridgfélags
Akureyrar og Sjóvá-Almenn-
ra, sem nú er lokið. Spilað var
þrjú kvöld og eftir að sveit
Grettis hafði leitt eftir tvö
fyrstu kvöldin, varð hún að
gera sér annað sætið að góðu í
mótslok. Sveit Arnar Einars-
sonar sem var í öðru sæti fyrir
síðasta spilakvöldið, náði að
tryggja sér sigur á lokasprettin-
um.
í sveit Arnar voru auk foringj-
ans, þeir Hörður Steinbergsson,
Árni Bjarnason, Tryggvi Gunn-
arsson og Reynir Helgason. Alls
tóku 11 sveitir þátt í keppninni
sem fram fór Félagsborg. Sem
fyrr sagði var spilað þrjú kvöld og
nteðalskor 810 stig. Lokaúrslit
urðu þessi:
1. Örn Einarsson 908
2. Grettir Frímannsson 874
3. Zarioh Hamadi 841
4. Stefán Vilhjálmsson 831
5. Hermann Tómasson 828
6. Sveinbjörn Sigurðsson 808
7. Sigfús Hreiðarsson 797
8. Dagur 789
Næsta mót á vegum BA, eru
Halldórsmótið, sveitakeppni og
er minningarmót um Halldór
Helgason, sem var einn fremsti
spilari Akureyringa. Spilað verð-
ur 3-4 kvöld. -KK