Dagur - 02.03.1990, Page 3
Föstudagur 2. mars 1990 - DAGUR - 3
fréttir
f
[ sumarbústað! Myndin er tekin í sumarbústaðalandinu á Einarsstöðum,
skammt frá Egilsstöðum. Mynd: ss
Styrkir úr Þróunarsjóði grunnskóla:
Gagnfræðaskóli Akureyrar
kannar sjálfsmynd stúlkna
- átta grunnskólar á Norðurlandi fá styrk
Menntamálaráðherra hefur
staðfest tillögur úthlutunar-
nefndar um styrki úr Þróunar-
sjóði grunnskóla 1990. Ná
styrkirnir til 26 skóla og þar af
eru átta skólar á Norðurlandi
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Sauðárkróks:
Lögð fram til fyrri umræðu
- „stöðugleiki í efnahagsmálum forsenda rekstraraflcomu,“
segir bæjarstjóri
Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs
Sauðárkróks var tekin til fyrri
urnræðu á fundi bæjarstjórnar
sl. þriðjudag. Heildarupphæð
áætlunarinnar er 330,3 millj-
ónir króna. Til framkvæmda er
áætlað að verja 105,6 millj. og
er reiknað með að taka að láni
61,1 millj. af þeirri upphæð
eða tæp 60%.
Auk þess voru á fundinum
lagðar fram fjárhagsáætlanir
Hafnarsjóðs, Vatnsveitu, Hita-
veitu og Rafveitu Sauðárkróks-
bæjar. Augljóst er að ekki lækka
skuldir bæjarsjóðs á þessu ári,
því lántökur aukast og hlutfall
afborgana af eldri skúldum
hækkar. Snorri Björn Sigurðsson
bæjarstjóri sagði að alger for-
senda fyrir rekstrarafkomu
bæjarfélagsins væri að vextir og
verðbólga héldust í því horfi sem
samið var um í kjarasamningun-
um.
Hátt hlutfall lánsfjár af fé til
framkvæmda vekur athygli ef
tekið er mið af slæmri stöðu
bæjarsjóðs og gera verður ráð
fyrir að framkvæmdir verði
skornar niður milli umræðna. kg
sem fá styrk úr sjóðnum.
Gagnfræðaskóli Akureyrar fær
t.a.m. 200 þúsund kr. vegna
tilraunar með sérstaka stúlkna-
bekki í tenglsum við athugun á
sjálfsmynd og sjálfsöryggi
stúlkna í 7. bekk.
Barnaskóli Akureyrar fær 500
þúsund kr. til að gera tilraun með
samskipan náms, kennslu og ann-
arra starfa í skólanum. Lundar-
skóli fær 150 þúsund kr. vegna
mats á samkennslu þar sem tveir
kennarar kenna forskóla og 1.-3!
bekk saman. Starfsdeildin í
Löngumýri á Akureyri fær einnig
150 þúsund kr. til að útbúa náms-
vísi til að auðvelda fötluðum
nemendum aðgang að framhalds-
námi.
Grunnskóli Siglufjarðar fær
styrk að upphæð 200 þúsund kr.
vegna söfnunar náttúrugripa og
heimilda um byggð og mannlíf í
Hvanneyrarhreppi hinum forna.
Grunnskólinn í Grímsey fær 115
þús. kr. til að þjálfa nemendur í
að nota tölvur sem hjálpartæki í
almennu námi og Grunnskólinn á
Dalvík fær 350 þúsund vegna
verkefnis sem felst í að koma á
svonefndri „sjálfsmennskubraut"
sem á að búa nemendur undir
framhaldsnám.
Loks fær Grunnskólinn á
Kópaskcri 500 þúsund króna
styrk úr Þróunarsjóði grunnskóla
vegna tilraunar til að efla sam-
skipti um tölvur milli skóla og
ýmissa aðila í skólakerfinu. SS
Húsavík:
Sjómenn mótmæla fijálsri
verðlagningu á grásleppidmognum
Hörð mótmæli á frjálsa verð-
lagningu grásleppuhrogna kom
Sjónvarpið á laugardag:
Raufarhöfn í sviðsljósinu
Raufarhafnarbúar verða í
sviösljósinu næstkomandi
laugardagskvöld. Þá er á
dagskrá Sjónvarpsins þáttur-
inn Fólkið í landinu og er yfir-
skrift hans Púðurdagur á Rauf-
arhöfn. Örn Ingi ræðir við
Harald Jónsson, útgerðar-
stjóra og formann ungmenna-
félagsins, auk þess sem fjölda
íbúa bregður fyrir í þættinum.
Haraldur er brottfluttur Akur-
eyringur, flutti til Raufarhafnar í
kringum tvítugt. Örn Ingi fylgdist
með honum einn viðburðaríkan
dag og fáum við að sjá afrakstur-
inn í Sjónvarpinu.
„Ég spjalla við Harald um dag-
leg störf hans en síðan er dagur-
inn brotinn upp þegar nýja fé-
lagsheimilið, Byrgið, er opnað.
Það er slegið upp tertuveislu og
ríflega helmingur bæjarbúa kem-
ur í kaffi. Inn í þetta fléttast
óvæntar uppákomur og er þáttur-
inn í léttum anda,“ sagði Örn
Ingi í samtali við Dag.
Hann sagði að mikill uppgang-
F r ams óknarflokkurinn:
Opin skrifstofa
á Akureyri
Skrifstofa Framsóknarflokks-
ins á Akureyri verður opin
milli kl. 16.00 og 19.00 í mars-
mánuði, og mun Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir, bæjarfull-
Athugasemd
Sveitarstjórnarmaður og fyrrver-
andi sveitarstjóri hafði samband
við Dag vegna fréttar í blaðinu í
gær undir fyrirsögninni „Virðis-
aukaskattur blóðmjólkar sveitar-
félagið.“ Taldi hann að fréttin
væri villandi að því leyti að ekki
kæmi fram að umrædd skatt-
heimta væri ckki nýtilkomin. Af
snjómokstri hefði venð greiddur
söluskattur til ríkissjóðs svo lengi
sem hann myndi eftir og virðis-
aukaskatturinn kæmi í stað sölu-
skattsins áður og raunar með
lægri skattprósentu, 24,5% í stað
25% í söluskattskerfinu.
trúi, verða
tíma.
til viðtals á þcim
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
skipar eins og kunnugt er efsta
sætið á framboðslista Framsókn-
armanna til bæjarstjórnarkosn-
inganna á Akureyri í vor. Fram-
sóknarfólk er hvatt til að líta við
á skrifstofunni að Hafnarstræti 90
og láta skrá sig til starfa vegna
kosninganna.
ur væri á Raufarhöfn. Samfélag-
inu er stjórnað af konum og er sú
staðreynd rauði þráðurinn í
þættinum. SS
fram hjá grásleppuveiðimönn-
um á fundi í Smábátafélaginu
Verði á Húsavík sl. miðviku-
dag. Telur fundurinn að Verð-
lagsráö sjávarútvegsins hafi
staðið sig mjög illa varðandi
ákvörðun um verðlagningu.
Grásleppuveiðimennirnir tclja
það forsendu þess að hægt sé að
hefja veiöarnar, aö vita um verö
hrognanna á komandi vcrtíð.
Tclja þeir þaö cinsdæmi að veiöi-
menn viti ekkert um hvað þeir fái
fyrir vöruna.
Einnig mótmælir fundurinn
styttingu veiðitímans, að frantan-
verðu, þar sem besta útkoman á
hvcrri grásleppuvertíð sé fyrripart
veiöitímans og telur fundurinn að
veiðitíminn takmarkist af sölu-
möguleikum. Einnig telur fund-
urinn að vciðar eigi ekki að hefj-
ast nema að fengnum skritlegum
sölusamningum. IM
Skúli sjónvarpsfrömuður í Ólafsfirði fór upp á Múlakollu:
Aðeins bláendi sjö metra
loftnets upp úr sköflunum
„Það er feikimikill snjór
þarna uppi,“ sagði Skúli
Pálsson, sjónvarpsfrömuður
Olafsfirðinga í samtali við
Dag, en hann fór ásamt fleir-
um um síöustu helgi upp á
Múlakollu til að vitja um sjón-
varpsloftnet sem hann setti þar
upp um árið.
Eins og menn rekur minni til
setti Skúli loftnetið upp til þess
að ná sendingum Stöðvar 2 í
Ólafsfirði. Eins og gefur að skilja
sest ísing á loftnetið og truflar
útsendingar og því fer Skúli
reglulega upp eftir til að brjóta
ísinn af.
Að þessu sinni fór hann upp á
snjótroðara þeirra Ólafsfirðinga
Fréttabréf FVSA:
Leiðrétting
I nýjasta
verslunar-
Akurevri,
Fréttabréfi Félags
og skrifstofufólks á
slæddist meinleg
villa í grein þar sem fjallað er
um launahækkanir á samnings-
tímanum.
um
Þar segir í 1. grein, að
febrúar 1990 hækki laun
2,5% en það er ekki rétt. Eins og
flestum er kunnugt, hækkuðu
laun á þessuin tíma um 1,5% og
leiðréttist þetta hér með.
'og tók ferðin þrjá tíma. Þegar
upp var komið blöstu miklar
fannbreiður við og segist Skúli
vart hafa séð þar jafn mikinn
snjó. Aðeins blátoppur 7 metra
loftnets stóð upp úr sköflunum
og áætlar Skúli því að snjóþykkt-
in við loftnetið sé fimm og hálfur
til sex metrar. „Húsið þarna
uppfrá var komið á bólakaf og
við vorum til kvölds að hreinsa
frá loftnetinu," sagði Skúli. óþh
Jóhann Frímann látinn
Jóhann Guðmundsson Frí-
mann, fyrrverandi skólastjóri,
lést í Kristnesspítala aðfara-
Jóhann Guðmundsson Frímann.
nótt miðvikudagsins 28. febrú-
ar sl.
Jóhann Frímann fæddist 27.
nóvember 1906 að Hvamnti í
Langadal. Hann lauk prófi lrá
Gagnfræðaskóla Akureyrar 1932
og stundaði síðan nám við Lýð-
háskólann í Askov 1925-27.
Hann var kennari við Iðnskólann
á Akureyri 1927-28 og skólastjóri
1928-39 og 1942-55. Jóhann var
skólastjóri Héraðsskólans í Reyk-
holti 1939-41 og skólastjóri Gagn-
fræðaskóla Akureyrar 1955-64.
Jóhann sat í bæjarstjórn Akur-
eyrar fyrir Framsóknarflokkinn
frá 1934-39. Þá var hann ritstjóri
Dags 1942-44, ásamt þeim Ingi-
mar Eydal og Hauki Snorrasyni.
Jóhann Frímann átti við van-
heilsu að stríða hin síðari ár
ævinnar. BB.