Dagur - 02.03.1990, Blaðsíða 6

Dagur - 02.03.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 2. mars 1990 Snjókeðjur á flestar stærðir bifreiða Krókar, þverbönd, langbönd og lásar, tangir og margt fleira. Véladeild Óseyri 2 • Símar 22997 og 30300. Menntamálaráðuneytið Lausar stöður Dósentstaða á sviði aðgerðarannsókna (aðalgrein) og tölfræði í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir svo og námsferil og störf skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölv- hóli, Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 1. apríl 1990. Laus er til umsóknar staða lektors í íslensku við Kenn- araháskóla (slands. Meginverkefni íslenskrar bók- menntir með áherslu á fornbókmenntir og þjóðsögum. Auk viðurkennds háskólaprófs í grein sinni skulu umsækjendur hafa próf í uppeldis- og kennslufræðum ásamt jáekkingu á og reynslu af íslenskukennslu. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. ágúst 1990. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf, sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og upplýsingar um námsferil og störf. Þau verk, er umsækjandi óskar að dómnefnd fjalli um, skulu einnig fylgja. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 24. mars nk. Menntamálaráðuneytið, 22. febrúar 1990. Laugardagskvöld 3. mars Hin frábæra hljómsveit INGIMARS EYDAL leikur fyrir dansi Örfá borð laus fyrir matargesti. Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00. ★ Húsavíkurkirkja: Líf og Mður - á æskulýðsdaginn í Húsavíkurkirkju verður á æskulýðsdaginn, sunnudaginn 4. mars, fluttur dýr(s)legur söngleikur um lífsbjörgina, Líf og friður, bæði kl. 14 og kl. 17. Höfundur texta og tónlistar er Per Harling og hann samdi einnig leikgerðina ásamt Lars Collmar. Sr. Jón Ragnarsson þýddi verkið úr sænsku. Flytjendur verksins eru 27 stelpur á aldrinum 10-13 ára og fara þrjár þeirra með aðalhlut- verk ásamt Hólmfríði S. Bene- diktsdóttur, sópran, sem einnig æfði sönginn með stúlkunum. Leikstjóri er María Sigurðardótt- ir, leikari, en undirleik á píanó annast David Thompson, organ- isti við kirkjuna. Verkið fjallar um þá mengun og eyðileggingu sem maðurinn hefur valdið á umhverfi sínu með hegðun sinni og vígbúnaðar- kapphlaupi, og hvort kirkjan geti reynst sá björgunarbátur sem dugi. Stelpurnar leika dýr sem eru óttaslegin og mörg þeirra eru í útrýmingarhættu, sem stafar af umgengni mannsins um móður jörð og sóun á gæðum hennar. Birgitta Brynjarsdóttir fer með hlutverk uglunnar, Alda Sveins- dóttir leikur naut í kórnum, Jó- hanna Gunnarsdóttir leikur asn- ann og Berta María Hreinsdóttir leikur pardusinn. Dagur ræddi við þessar ungu dömur um hlut- verk sín og verkið. Fyrst var Birgitta spurð um ugluna: „Hún er svona frek og alveg rosalega gáfuð. Fyrst grípur hún frammí og segir að asninn hafi ekki á réttu að standa, en að endingu eru öll dýrin orðin sammála.“ - Alda, hvað gerir nautið? „Það syngur bara í kórnum.“ - Hvernig líkar þér það? „Það er ágætt. Ég var líka með í svona söngleik í skólanum í fyrra, hann hét Patti Pottasleikis- son.“ - Hvernig líkar Jóhönnu að leika asnann? „Það er alveg stórfínt. Asninn lætur sig dreyma um að það sé til gott gras. Dýrin eru í örkinni og uglan trúir ekki asnanum. í endanum á sögunni kemur svo regnbogi.“ Hólmfríður S. Benediktsdóttir sópran ásamt stúlkunum 27 scm syngja í kórnum Leikklúbburinn Saga: Ævintýraferð tíl Sovétríkjanna - félagar í Fenris stefna til Ulan Ude ... og áfram bjóðum við upp á SUNNUDAGSVEISLU Á SÚLNABERGI Sveppasúpa, reykt grísalæri og/eða heilsteikt nautainnralæri. Þú velur sjálfur salatið, sósurnar og meðlætið og endar þetta á glæsilegu deserthlaðborði. VERÐ AÐEINS KR. 890,- Frítt fyrir börn 0-6 ára, Vi gjald fyrir 6-12 ára. Ath. Veislan er bæði í hádegi og um kvöld. Veriö velkomin. Leikhópur í borginni Ulan Ude í Sovétríkjunum hefur boðið félögum úr norræna leikhópnum Fenris í heim- sókn, en sem kunnugt er hefur Leikklúbburinn Saga á Akur- eyri tekið þátt í verkefnum Fenris. Boðið hefur verið þeg- Friðþjófur í. Sigurðsson. ið og munu 14-16 Sögufélagar leggja upp í ævintýraferð í byrjun júlí. Dagur ræddi við Hlyn Hallsson, formann Sögu, og Friðþjóf í. Sigurðsson um þessa ferð og starfsemi leik- klúbbsins. í rnáli þeirra kom fram að borgin Ulan Ude er við Bajkal vatn, austur við landamæri Kína. Hér er því um langt og strangt ferðalag að ræða fyrir norrænu áhugaleikarana. „Við byrjum á því að fara til Danmerkur, sennilega 2. júlí. Daginn eftir verður flogið til Moskvu og þaðan förum við með Síberíulestinni um 5000 km leið til Ulan Ude. Þetta er sjálfsagt um fjögurra daga ferðalag. Ef allt gengur að óskum hittast norrænu leikhóparnir og sá sovéski í Ulan Ude og hefja æfingar. Við verð- um síðan með sýningar í tvær vikur, bæði í Ulan Ude og fleiri borgum,“ sagði Hlynur. Hann sagði að þetta yrði dýr ferð fyrir Sögufélaga. Gestgjaf- arnir munu greiða ferðakostnað frá Moskvu til Ulan Ude og aftur til Moskvu, en norrænu hóparnir þurfa sjálfir að koma sér til og frá Moskvu á eigin kostnað. Saga hefur sótt um styrki til fararinnar en Hlynur bjóst þó við að hver félagi þyrfti að greiða um 30 þús- und krónur úr eigin vasa. Kostnaðarsamt verkefni Vegna kostnaðarins má búast við að einhverjir heltist úr lestinni, en þeir Hlynur og Friðþjófur vonuðust þó til að 14-16 félagar úr Sögu myndu leggja upp í þessa ferð. Ferðin er líka á versta tíma með tilliti til sumarvinnu skóla- fólks. Alls fara um 60 félagar úr Fenris til Sovétríkjanna. Gert er ráð fyrir að sovéski hópurinn frá Ulan Ude komi til Norðurlandanna í september, sennilega Danmerkur eða Nor- egs, og setji upp sýningar í sam- vinnu við félaga úr Fenris. Sögu- félagar telja ólíklegt að þeir geti tekið þátt í því verkefni, dæmið er einfaldlega orðið of dýrt. Víkjum þá að starfsemi Leik- klúbbsins Sögu í vetur. Klúbbur-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.