Dagur - 24.03.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 24. mars 1990
fréttir
Loðnuveiðarnar:
,Þetta er búið ef ekkert
glæðist í næstu viku“
- segir Bjarni Bjarnason á Súlunni EA
„Þetta er búið ef ekkert fer að
veiðast í næstu viku. En það
veiðist auðvitað ekkert nema
veður batni og hægt verði að
leita að loðnunni,“ sagði
Bjarni Bjarnason, skipstjóri á
Súlunni EA, þegar Dagur hafði
samband við hann á loðnu-
miðunum í gær. Skemmst er
frá því að segja að nær engin
veiði var síðasta sólarhring
og með hverjum deginum
minnka líkurnar á því að
loðnukvótinn náist á vertíð-
inni.
„Þetta er alltof rólegt. Veið-
ískappreiðar Léttfeta á Sauðárkróki:
Fjöldi góðra reiðhrossa
Iskappreiðar fóru fram á fé-
lagssvæði Léttfeta á Sauðár-
króki á laugardag. Veður var
sæmilegt en brautin var frekar
þung. Fjöldi áhrfenda mætti til
að horfa á kappreiðarnar.
Keppt var í þermur greinum;
200 metra brokki, 150 metra
skeiði og 150 metra tölti.
Úrslit voru sem hér segir;
150 metra tölt:
Smári, rauður fjögura vetra frá
Borgarhóli, knapi Gestur Stef-
ánsson.
Þokki, brúnn ellefu vetra frá
Hólum, knapi Magnús Þórir Lár-
usson.
Boði, rauðblesóttur sex vetra frá
Skörðugili, knapi Elvar Einars-
son.
Dímó, rauður sex vetra, eigandi
Birgir Þorleifsson, knapi Kalolía
Linder.
Gýgjar, rauður átta vetra, eig-
andi Jónas Aðalbjörnsson, knapi
Jóhann Magnússon.
200 metra brokk:
Gulltoppur, rauðblesóttur, 29,9
sek., knapi Björn Einarsson
Skuggi, brúnn, 34,8 sek., knapi
Jón Geirmundsson.
Öðlingur, brúnn, 34,8 sek.,
knapi Hilmar Símonarson.
150 metra skeið:
Ögri, rauðblesóttur frá Keldudal,
16,9 sek., knapi Þórarinn Leifs-
son.
Smári, rauður frá Borgarhóli,
17,3 sek., knapi Gestur Stefáns-
son.
Ófeig, rauðblesótt frá Keldudal,
17,6 sek., knapi Elvar Einarsson.
Dómarar voru Víkingur Gunn-
arsson ráðunautur, Ólafur Guð-
mundsson Hólum og Eiríkur Guð-
ntundsson Gunnarsholti. Kynnir
var Gísli Geirsson Brekkukoti.
kg
arnar hafa lítið gengið síðasta
hálfan mánuðinn og manni finnst
eins og loðnan hafi horfið á öllu
svæðinu í einu. Eina vonin sem
menn hanga í núna er að einhver
loðna komi syndandi að vestan.
Togarar fyrir vestan hafa orðið
varir við loðnu en það er ekki þar
með sagt að hún skili sér upp á
grunn. Þann 27. mars er stór-
streymt og það er næsti vonar-
dagurinn,“ sagði Bjarni.
Súlan var ásamt mörgum öðr-
um skipum við Ingólfshöfða í
gær. Aðeins eitt skip fékk afla í
fyrrakvöld en önnur skip ekkert.
Bjarni segir að í venjulegu
árferði komi ganga að vestan
undir lok vertíðar og úr henni sé
hægt að veiða í um 10 daga.
„En gallinn er bara sá að þetta
virðist allt öfugsnúið í ár, þetta er
ekkert venjulegt árferði. Vertíð-
in virðist ekki ætla að verða nema
tveir mánuðir að þessu sinni og
það er of stutt,“ sagði Bjarni.
JÓH
,Istanbúlstemmning“ í miðbœ Akureyrar.
Mynd: KL
Reykjadalur:
Sveitasinfónía í kvöld
- vel þess virði að skreppa
Sveitasinfónían eftir Ragnar
Arnalds, í leikstjórn Maríu Sig-
urðardóttur, var frumsýnd sl.
sunnudag að Breiðumýri í
Reykjadal af Umf. Eflingu.
Leikendum, leikstjóra höfundi
og starfsfólki við sýninguna var
vel fagnað í sýningarlok með
blómum og lófataki.
Það er vel þess virði aö bregða
sér í sveitina til að sjá Sveitasin-
fóníuna. Við uppsetningu verks-
ins er aðaláherslan lögð á aðal-
atriðin, skýran framburð textans
sem kemst fyrir bragðið vel til
skila. Verr hefði farið á að
leikendur væru Iátnir sýna meiri
leikræn tilþrif en þeir réðu við
ásamt textaflutningnum. Þó er
ekki svo að leikræn tilþrif skorti
alveg í sýninguna og á köflum
fara leikendur á kostum, enda
fara bæði reyndir leikarar og
nýliðar með hlutverk og margir
þeirra vel og skemmtilega.
Veður og færð hafa ekki leikið
við Umf. Eflingu þessa vikuna,
og þurft hefur að fella niður sýn-
ingu, en um takmarkaðan sýning-
arfjölda er að ræða. Næstu sýn-
ingar eru fyrirhugaðar á laugar-
dags- og sunnudagskvöld, á
þriðjudagskvöld og fimmtudags-
kvöld. IM
Kópasker:
Fiskverkun hafin á ný hjá Útveri
- ekkert róið í janúar og febrúar
Ekkert var róiö frá Kópaskeri í
janúar og febrúar og því eng-
inn afli verkaður hjá Útnesi.
Auðun Benediktsson, útgerð-
armaður, sagði í samtali við
Dag að tíminn hefði verið not-
aður til viðhalds á húsum og
vélum hjá Útnesi og hefði uppi-
haldið að því leyti komið sér
vel. Nú má fiskurinn hins veg-
ar fara að koma.
„Gæftir hafa verið hrikalegar
og ekkert hægt að komast á sjó.
Ég hef ekki gert út á þessum tíma
því það er stórtap á því, bæði
vegna gæftaleysis og lítils afla.
En þó maður geti ekki róið á litl-
um bátum á þessum tíma er samt
nauðsynlegt að fá hráefni svo
ekki þurfi að stoppa vinnsluna,
hvernig sem það verður leyst,“
sagði Auðun.
Auðun sagðist hafa byrjað að
róa upp úr 8. mars og hefur Þing-
ey lagt upp ein 15 tonn af neta-
fiski hjá Útnesi eftir nokkra
róðra. Aflinn er verkaður í
saltfisk. Ekkert er verkað í skreið
Alþjóðadagur fatlaðra
Alþjóðadagur fatlaðra er á
morgun, sunnudaginn 25.
mars, og er hann haldinn í 31
sinn.
Alþjóðasamband fatlaðra
(FIMITIC) hefur allt frá árinu
1960 valið þriðja sunnudag í
mars til að kynna og berjast
fyrir ýmsum hagsmunamálum
fatlaðs fólks og hefur eitt
málefni verið tekið til með-
ferðar hverju sinni.
Alþjóðasamband fatlaðra hef-
ur ákveðið að einkunnarorð
dagsins skulu vera Velferð í Evr-
ópu framtíðarinnar einnig fyrir
fatlaða.
í fréttatilkynningu frá
Sjálfsbjörg, landssambandi fatl-
aðra segir m.a.:
„Brýnt er að velferð á öllum
sviðum komi fötluðum til góða.
Tæknin eykur fjölbreytni í
atvinnuháttum og gerið fötluðu
fólki kleift að vinna ýmis störf til
jafns við ófatlaða. Því er nauð-
synlegt að nýta sér tæknina eins
og unnt er til að hún komi fötluð-
um til góða. Þetta er liður í að
auðvelda fötluðum að lifa
mannsæmandi og sem eðlilegustu
lífi.
Aðgengi fatlaðra þarf að koma
í betra horf. Vinnustaðir eiga að
vera aðgengilegir öllum, einnig
opinberar byggingar, skólar,
samkomustaðir o.s.frv., svo að
fatlaðir geti lifað eins sjálfstæðu
lífi og unnt er. Húsnæði þarf að
vera aðgengilegt svo að fatlaðir
geti haft fleiri valmöguleika á
atvinnu og búsetu. Flestum mann-
virkjum er næsta auðvelt að breyta
ef vilji er fyrir hendi. Einnig þarf
að hafa betra eftirlit með ný-
byggingum, að reglum um
aðgengi sé framfylgt. I því vel-
ferðarþjóðfélagi sem við byggj-
um ætti vart að þurfa að taka
þetta fram, en engu að síður er
ótrúlega víða pottur brotinn í
þessum efnum.
Nauðsynlegast af öllu er að
rjúfa þá einangrun sem meirihluti
fatlaðs fólks býr við.
Félagslegt öryggi, húsnæðis-
mál, nauðsynleg hjálpartæki og
tækifæri til menntunar eru því
atriði sem einnig þarf að leggja
síaukna áherslu á.“
núna enda eru enn til óseldar
birgðir frá fyrra ári.
„Þetta er rétt að fara af stað
hjá mér. Ef tíðin batnar þá lítur
maður björtum augum á framtíð-
ina með hækkandi sól. En nú
vantar okkur bara meiri fisk,“
sagði Auðun. SS
Reykjavíkurskákmótið:
Þrír Norðlendingar
unnu í 5. umferð
Finimta umferð á alþjóðlega
Reykjavíkurskákinótinu var
tefld sl. fímmtudagskvöld.
Gengi norðlensku keppend-
anna var bærilegt, þrír þeirra
unnu, þrír töpuðu en skák
eins þeirra fór í bið.
Bragi Halldórsson vann Árna
Á. Árnason, Áskell Örn Kára-
son vann Hassapis (2300) frá
Englandi og Rúnar Sigurpáls-
son vann Jes Winter (2200) frá
Danmörku.
Bogi Pálsson tapaði fyrir
Brendel (2360) frá V-Þýska-
landi, Arnar Þorsteinsson tap-
aði fyrir Finegold (2445),
alþjóðlegum meistara frá
Bandaríkjunum, og Ólafur
Kristjánsson tapaöi fyrir Gausel
(2440), alþjóðlegum meistara
frá Noregi.
Skák Jóns Garðars Viðars-
sonar við Nijboer (2485), AM
frá Hollandi, fór í bið. SS
y Reykjavíkurskákmótið:
Olafur mátar Brendel
Eins og við hÖfum greint frá
mátaði Ólafur Kristjánsson
(2215) Vestur-Þjóðverjann
Brendel (2360) í 4. umferð
alþjóðlega Reykjavíkurskák-
mótsins. Gylfí Þórhallsson lét
okkur fá síðustu leikina í
þcssari sérstöku skák.
Þessi staða kom upp eftir 48.
leik svarts He6 til a6 (betra er
Dh4). Ólafur er með hvítt og á
leik.
Stöðumynd:
49. Re4! - Dh4
50. Dxe5+ - Kh7
51. Rg5+ - Kh6
52. Rxf7+ - Kh7
53. Dh8+ og mát
Þaö er ekki á hverjum degi
sem menn eru mátaðir á svo
sterku móti en Ólafi fórst það
vel úr hendi. SS
118 18 H§ k H
m m m ti
. m m m m
■ ■ mm ■
1 & fl fl it;
abcdefgh