Dagur - 24.03.1990, Side 3
Laugardagur 24. mars 1990 - DAGUR - 3
fréttir
í
Fannfergið í Eyjafirði kallar á nýstárleg ráð í mjólkurflutningum:
Mjólkurtankur á skíðum dregúrn í veg fyrir mjólkurbíi
- beltatæki einu farartækin sem komast heim að bænum Villingadal í Saurbæjarhreppi
Snjóalögin í Eyjafirði hafa gert
mjólkurflutningana í vetur erf-
iða og þess eru dæmi að mjólk-
urbílar hafí ekki komist á suma
bæi um nokkurt skeið. Síðustu
vikurnar hefur verið ógjörn-
ingur að komast á mjólkurbíl
heim að bænum Villingadal í
Saurbæjarhreppi og var brugð-
ið á það ráð að smíða skíði
undir mjólkurtank hjá Mjólk-
ursamlagi KEA og draga tank-
inn með mjólkinni í á belta-
traktor í veg fyrir mjólkurbíl-
inn.
Ingibjörg Jónsdóttir, húsfreyja
í Villingadal, segir að síðast hafi
mjólkurbíllinn komist heim að
bænum í byrjun þessa mánaðar.
Síðan þá hafi mjólkin verið flutt í
tanknum fyrrnefnda. Ekki sagði
hún útlit fyrir að á næstunni yrði
breytingar þar á „enda held ég að
við viljum ekkert láta hreyfa við
snjónum á veginum strax. Þetta
gengur vel svona og varla verður
breyting á nema komi hláka,“
bætti hún við.
Eins og gefur að skilja er mikill
snjór í Villingadal enda hefur
veðráttan verið með því móti að
mikinn snjó hefur sett niður á
flatanum en ntinna í fjöllum.
Ingibjörg segir að búast megi við-
að túnum sé hætt þegar vorar en
sem stendur hafi fólk meiri
áhyggjur af því að vatn renni inn
í hús ef mikil hláka kemur. „Sum
hús eru nærri horfin í snjó þannig
að það gæti verið hætta á þessu ef
hlákan verður mikil,“ sagði Ingi-
björg. JÓH
Framboðslisti Alþýðuflokksins á Akureyri:
GísK Bragi efstur hjá krötum
Almennur félagsfundur Al-
þýðuflokksfélaganna á Akur-
eyri samþykkti framboðslista
til bæjarstjórnarkosninga á
fímmtudagskvöld. Tillaga upp-
stillinganefndar var samþykkt
samhljóða með öllum greidd-
um atkvæðum. Gísli Bragi
Hjartarson, múrarameistari,
skipar efsta sæti listans, Hulda
Eggertsdóttir skrifstofumaður
er í öðru sæti og Bjarni Krist-
jánsson framkvæmdastjóri
Svæöisstjórnar málefna fatl-
aðra á NI. eystra skipar þriðja
sætið.
í fjórða sæti er Hanna Björg
Jóhannesdóttir, verkakona,
Sigurður Oddsson tæknifræðing-
ur í fimmta sæti, Edda Bolladótt-
ir forstöðumaður heimilisþjón-
ustu í sjötta sæti og Þorsteinn
Þorsteinsson sundlaugarvörður í
sjöunda sæti.
Hermann Jónsson fasteignasali
er í áttunda sæti, Valur Knútsson
verkfræðingur í níunda, Ásdís
Ólafsdóttir húsmóðir í tíunda,
Jóhann Möller bankastarfsmaður
í ellefta, Unnur Björnsdóttir hús-
móðir í tólfta, Snælaugur Stef-
ánsson vélvirki í þrettánda, Pétur
Bjarnason fiskeldisfræðingur í
fjórtánda, Gunnhildur Wæhle
S'úkrunarfræðingur í fimmtánda,
skar Árnason tæknifræðingur í
sextánda, Margrét Jónsdóttir
skrifstofumaður í sautjánda, Pét-
ur Torfason verkfræðingur í
átjánda, Ingólfur Árnason hjá
RARIK í nítjánda, Þorvaldur
Jónsson fulltrúi í tuttugasta,
Áslaug Einarsdóttir bæjarfulltrúi
í tuttugasta og fyrsta og Freyr
Ófeigsson bæjarfulltrúi í tuttug-
asta og öðru sæti. EHB
íslandsmótið í bridds:
Skemmtileg keppni í Alþýðuhúsinu
Fimmta umfcrð undanúrslita-
keppni íslandsmótsins í bridds
verður spiluð í Alþýðuhúsinu á
Akureyri kl. 13. Sjötta umferð
verður á sama stað í kvöld kl.
19.30 og sjöunda og síðast
umferð kl. Í0 í fyrramálið.
Keppnin hefur til þessa þótt
skemmtileg og spennandi og fjöl-
margir áhorfendur lagt leið sína í
Alþýðuhúsið.
Úrslit umferðanna í gær lágu
ekki fyrir þegar blaðið fór í
prentun en eftir fyrstu tvær
umferðirnar á fimmtudag var
staðan í riðlunum sem hér segir:
í A-riðli leiddi sveit Samvinnu-
ferða-Landsýnar Reykjavík með
Markaðurinn Portið á Akureyri:
Aldrei verið fleiri
aðilar á staðnum
Markaðurinn Portið á Akur-
eyri verður opinn í dag laugar-
dag eins og venjulega frá kl.
Simnanátt
á sunnudag
Spáð er þokkalegu veðri um
mestallt Norðurland síðari
hluta dagsins í dag, laugar-
dags, og á sunudag verður
bjart veður með suðlægri átt
víðast.
Samkvæmt veðurspá Veður-
stofu íslands átti að vera blind-
bylur úr norðri í nótt, aðfaranótt
laugardags. Vindátt á að snúast
til suðurs síðari hluta dagsins, og
styttir þá upp.
Á sunnudag er spáð sunnan-
eða suðvestanátt og björtu veðri.
Hiti mun þó ekki fara yfir
frostmark. Á mánudag verður
hvass úr suðvestri og gengur á
með éljum, a.m.k. á útnesjum,
en minni úrkomu inn til landsins.
EHB
10.00-16.00. Portið er kjörinn
vettvangur fyrir þá sem vilja
koma vörum sínum á framfæri
en á staðnum er mjög góð
aðstaða fyrir vörur og alls kyns
kynningar.
Aldrei hafa jafn margir aðilar
tekið bás á leigu í Portinu og ein-
mitt í dag og verður fjölmargt á
boðstólum og alls kyns tilboð í
gangi. Vífilfell hf. verður með
kynningu á sínum vörum,
söluaðilar á tölvubúnaði verða
með kynningu á sinni vöru og þá
verður kynning á alls kyns mat-
vælum.
Auk þess verður flutt lifandi
tónlist á vegum Uppans, þar sem
Magnús Þór Sigmundsson mun
spila af fingrum fram fyrir gesti
og gangandi frá kl. 13.00-15.00.
Ástæða er til þess að hvetja
bæjarbúa til að líta við í Portinu
og skoða hvað þar er í boði. Eins
og áður hefur komið fram í blað-
inu, er Portið til húsa í verk-
smiðjuhverfinu við Glerá. -KK
49 stig. í öðru sæti var B.M.
Vallá Reykjavík með 45 stig og
fast á hæla hennar með 44 stig
kom sveit Pálma Kristmannsson-
ar Austurlandi.
í B-riðli var Modern Ieeland
efst með 45 stig, í öðru sæti Örn
Einarsson N-eystra með 41 stig
og í þriðja sæti Harðar bakarí
Vesturlandi með 40 stig.
í C-riðli var jöfn og spennandi
keppni. Efstar og jafnar með 47
stig voru sveitir Tryggingamið-
stöðvarinnar og Ólafs Lárussonar
Reykjavík og í þriðja sæti sveit
Ólafs Steinarssonar Suðurlandi
með 37 stig.
í D-riðli leiddu Siglfirðingarnir
í sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar
með 47 stig. í öðru sæti Símon
Símonarson Reykjavík með 45
stig og sveit Júlíusar Snorrasonar
Reykjavík með 44 stig. óþh
Af geftiu tíleftii
Vegna fréttar í Degi í gær um
farþegaáætlun nýju Hríseyjar-
Grímseyjarferjunar er rétt að
taka fram að ekki hafa verið
undirritaðir samningar mi'lli
útgerðaraðila ferjunnar og
Ferðaskrifstofunnar Nonna hf. á
Akureyri um að hún sjái um sölu
ferða með ferjunni.
Gífurlegt fannfergi í Eyjafirði hefur kallað á nýstárlegar aðferðir við mjúlk-
urflutninga.
Kartöflubændur
Eigum til afgreiðslu strax, nýja 25
kg kartöflupoka með fyrirbandi.
Mjög gott verð!
Pantið strax, takmarkaðar birgðir.
Samval hf., Hamraborg 7,200 Kópavogur, sími 91-42257.
Trésmíðavinna
liýsmíði — Wiðhald
Tilboð — TTmavinna
Fagvinna
Baldvin, sími 21977.
Jöhannes, sími 24-851.
Vorum að fá sendingu
af Skiny nærfötum,
stærðir 36-44.
Margir gerðir
og enn fleiri litir.
iceök a
Tilvalið fyrir
fermingarbörnin
Tískuv
AMOR
Un Hafnarstræti 88, sími 26728