Dagur - 24.03.1990, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Laugardagur 24. mars 1990
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI,
SlMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON.
RITSTJ.FULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON. UMSJ.MAÐUR
HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON. BLAÐAMENN:
JÚN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþr ).
KÁRI GUNNARSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSM.: KRISTJÁN LOGASON. PRÓFARKAL.: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSH.: RlKARÐUR B. JÓNASSON. AUGLÝSINGASTJ.:
FRlMANN FRlMANNSSON. DREIFINGARSTJ.: HAFDlS FREYJA
RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Alþjóðadagur fatlaðra
Á morgun er Alþjóðadagur
fatlaðra haldinn í 31. sinn.
Dagurinn er haldinn að til-
stuðlan Alþjóðasambands
fatlaðra, og er tilgangurinn
að berjast fyrir hagsmuna-
málum fatlaðs fólks. Eink-
unnarorð dags fatlaðra í ár
eru: Velferð í Evrópu fram-
tíðarinnar einnig fyrir fatl-
aða.
Starfsemi samtaka fatl-
aðra á íslandi er allmikil,
bæði á vegum Öryrkja-
bandalags íslands, Sjálfs-
bjargar landssambands
fatlaðra og einstakra aðild-
arfélaga þeirra. Þá má ekki
gleyma Landssamtökun-
um þroskahjálp, sem
standa utan Öryrkjabanda-
lagsins.
Innan raða fatlaðra hefur
margt baráttufólk látið að
sér kveða hér á landi, og
mörgu grettistakinu hefur
verið lyft. Margt er breytt
frá því að fyrstu Sjálfs-
bjargarfélögin voru stofn-
uð fyrir þremur áratugum,
og mikið hefur áunnist í
málefnum fatlaðra. Stofn-
anir hafa risið, sambýh ver-
ið sett á fót og þjónusta við
fatiaða er vonandi í fram-
för, þótt hægt fari.
Forsenda framfara í mál-
efnum fatlaðra byggist að-
allega á tvennu; vilja hinna
fötluðu til að koma málefn-
um sínum á framfæri og
undirtektum stjórnvalda
og ráðamanna sveitarfé-
laganna í landinu. Hugar-
farslega hefur bylting átt
sér stað undanfarna ára-
tugi. Fatlað fólk er ekki
lengur í felum í þjóðfélag-
inu, fyrir tilstilli Sjálfsbjarg-
arfélaganna, íþróttafélaga
fatlaðra og annarra félaga-
samtaka þeirra hefur margt
áunnist.
Forystumenn fatlaðra
hafa bent á að barátta
þeirra fyrir bættum hag sé í
raun jafnréttisbarátta.
Fatlaðir eiga að sitja við
sama borð og aðrir þjóðfé-
lagsþegnar hvað snertir
möguleika til menntunar,
atvinnu og félagslegrar
þjónustu. Fötlun má ekki
bitna þannig á neinum að
hún komi í veg fyrir að
-þjóðfélagið leggi sitt af
mörkum til að efla þroska
og hlúa að möguleikum
hvers einstaklings til sjálf-
stæðs lífs.
Tækninni fleygir hraöar
fram á okkar dögum en
nokkru sinni fyrr, en í
tæknilegum framförum
opnast möguleikar fyrir
marga hópa fatlaðra í at-
vinnulegu tilliti.
Stöðugt er unnið í að-
gengismálum, og reglur
hafa verið settar um húsa-
gerð og aðkomu að opin-
berum mannvirkjum þann-
ig að fatlaðir eigi greiða
leið þar um. Betur má þó ef
duga skal, og nægir að
minna á niðurstöður könn-
unar um aðgengi fatlara að
opinberjum þjónustustofn-
unum á Akureyri í því
sambandi. Hér er stórt en
verðugt verkefni fyrir ríki
og sveitarfélög, því margar
eldri byggingar eru þannig
úr garði gerðar að hreyfi-
hamlaðir eiga ekki mögu-
leika á að hagnýta sér þær
hjálparlaust. Þessu verður
að breyta. EHB
til umhugsunar
Ný „Möðmvallahreyfing“
Á sumarmánuðum 1973 kom hópur ungra manna saman í
Möðruvöllum, húsi raungreinadeilda Menntaskólans á
Akureyri og hlaut síðan nafngift af því húsi. Þessir menn áttu
það sameiginlegt að hafa starfað í ungliðahreyfingu Fram-
sóknarflokksins um nokkurn tíma og komið fram með nýjar
áherslur sem ekki höfðu hlotið rnikinn hljómgrunn á meðal
eldri flokksbræðra. Megináherslur Möðruvellinganna beind-
ust fyrst og fremst að því að ná breiðari samstöðu á meðal fé-
lagshyggjufólks en verið hafði. Upphaf þessara hugmynda má
rekja til síðustu ára Viðreisnarstjórnarinnar. Hún hafði setið
að völdum í um áratug og þrátt fyrir ýmis jákvæð verk í fram-
farasögu þjóðarinnar voru komin á hana þreytumerki eftir svo
langa setu. Hún hafði þá einnig orðið að glíma við efnahags-
örðugleika, eins og núverandi ríkisstjórn þarf að gera og dró
það mjög úr vinsældum hennar líkt og gerst hefur á þessu ári.
Hver hafði sín vandamál
Þegar Möðruvellingar hófu baráttu sína hafði Alþýðuflokkur-
inn setið í Viðreisnarstjórninni í rúman áratug. Þrátt fyrir að
hún hafi látið af völdum þegar sameiningarmálin komust í
hámæli gerði það eldri alþýðuflokksmönnum örðugt um vik
að taka undir þessar hugmyndir þótt ýmsir ungir jafnaðar-
menn væru til viðtals um sameiningarmálin og tilbúnir til
nokkurra fundarhalda um þau. í Alþýðubandalaginu var trú-
in á sósíalismann ennþá í fullu gildi og margir þar á bæ álitu
að framtíð íslensku þjóðarinnar væri fólgin í sósíalísku fyrir-
hyggjusamfélagi, sem komið yrði á fyrir tilstuðlan eins sterks
flokks er styddist við kenningar Marx og Leníns. Því var lítið
tekið undir þessar hugmyndir á þeim bæ. Nokkru áður hafði
hópur klofnað frá Alþýðubandalaginu vegna skoðanaágrein-
ings og kallaði sig Samtök frjálslyndra og vinstri manna. Sam-
tökin fengu tölverðan þingstyrk í kosningum og hófu þátttöku
í ríkisstjórn.
Sameiningin var hugmynd yngri manna
Á þessum tíma komu sameiningarhugmyndir félagshyggju-
fólks fyrst og fremst frá yngri mönnum er flestir störfuðu inn-
an vébanda ungliðahreyfinganna en höfðu iítil eða engin áhrif
á ákvarðanir innan flokkanna sjálfra. Því kom fljótt í ljós að
þeir komu þessum hugmyndum skammt á veg er þær fengu
lítinn hljómgrunn á meðal þingmanna og þeirra sem raun-
verulega réðu störfum og stefnu. Það var helst innan Samtak-
anna að áhrifamenn tækju þessar hugmyndir upp og það lifði
einnig lengst í glóðum þeirra á þeim bæ. Nokkrir sameining-
armenn frá öðrum flokkum gengu til liðs við Samtökin en
örlög þess flokks urðu eins og svo margra nýflokka, sem
sprottið hafa upp utan fjórflokkakerfisins, að ná ekki til kjós-
enda nema í einum eða tvennum kosningum. Samtökin hurfu
því sem stjórnmálaflokkur og hugmyndir um sameiningu
félagshyggjufólks voru lagðar til hliðar.
Möðruvellingarnir, sem funduðu í kjallara raungreinahúss
Menntaskólanns á Akureyri, snéru til annarra daglegra
starfa, sumir hættu stjórnmálaafskiptum er veru þeirra í ung-
liðahreyfingunni lauk en aðrir hafa skotið upp kollinum síðar
og á nýjum stöðum.
Rykið dustað af sameiningarhugmyndinni
Þótt margir hafi talið örlög sameiningarhugmyndarinnar
samofin endalokum Samtaka frjálslyndra og vinstri manna,
hafa þær spár ekki ræst. Einum og hálfum áratug síðar hafa
'þær skotið upp kollinum að nýju. Að þessu sinni eiga þær upp-
tök sín innan Alþýðuflokksins og ytri skilyrði eru að nokkru
þau sömu og á dögum Möðruvallahreyfingarinnar. Þeir flokk-
ar sem oftast er rætt um varðandi sameiningu félagshyggju-
fólks standa saman að ríkisstjórn en Sjálfstæðisflokkurinn er í
stjórnarandstöðu. Innri skilyrði sameiningarmálsins nýja eru
hins vegar gjörólík. Þeir menn sem nú tala fyrir sameiningu
sitja í forsvari í sínurn flokkum og eiga einnig sæti í ríkis-
stjórn. Aðstaða þeirra til að koma málum fram er því gjörólík
aðstöðu Möðruvellinganna.
A-flokkarnir í fararbroddi
Það vekur athygli að sameiningarhugmyndirnar koma frá
Alþýðuflokknum og teygja sig með meiri og meiri þunga inn
í Alþýðubandalagið. Innan Alþýðuflokksins ríkir ótti við
slæma útreið í kosningum. Innan Álþýðubandalagsins er upp-
gjörið við fortíðina eitt helsta viðfangsefnið nú þegar sósíal-
isminn er fallinn og ekkert er lengur að sækja í smiðju Marx
og Leníns. Þá má einnig minnast þess að helsti foringi Möðru-
vellinganna, Ólafur Ragnar Grímsson, er nú formaður Alþýðu-
bandalagsins og hörðustu talsmenn hugmynda Möðruvell-
inga er nú að finna innan Birtingar, sem er helsti stuðnings-
hópur Ólafs innan Alþýðubandalagsins í glímunni við að
hreinsa hendur flokksins af tengslum við kommúnista Aust-
ursins. Það myndi auðvelda Alþýðubandalaginu þrautagöngu
sína frá sósíalisma til þeirrar jafnaðarstefnu sem nú er aug-
Ijóst að það verður að taka upp, ef sameining tækist við aðra
jafnaðarmenn í landinu. Aðstæður og rök fyrir sameiningar-
málinu eru því allt önnur í dag en voru fyrir fimmtán árum.
Ekki tveggja flokka kerfl
Það vekur nokkra athygli að í þeim sameiningarhugmyndum
sem nu eru á dagskrá virðist ekki vera gert ráð fyrir þátttöku
eftir Þórð Ingimarsson.
Framsóknarflokksins. Það þýðir að þær hugmyndir sem verið
er að ræða stefna ekki að tveggja flokka kerfi. Þótt framboðs-
fíkn sé orðin vandamál í þjóðfélaginu og flokkager til vand-
ræða við störf Alþingis er ekki þar með sagt að eina lausnin
felist í myndun tveggja flokka kerfis að breskri eða banda-
rískri fvrirmynd. Tveggja flokka kerfi er í raun skerðing á lýð-
ræði. Ómögulegt er að segja til um hvaða áhrif slíkt hefði hér
á landi. Ef litið er á atkvæðatölur frá stofnun lýðveldisins sést
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei haft möguleika á hrein-
um meirihluta í Alþingiskosningum. Tveggja flokka kerfið
myndi eflaust auka styrk hans og það er spurning, sem ekki er
unnt að svara fyrirfram, hvort tveir flokkar, markaðshyggju
og félagshyggju, myndu geta skipst á um að stjórna íslandi í
framtíðinni eftir þingstyrk á hverjum tíma.
Nýjar aðstæður
Augljóst er að full nauðsyn er orðin á að félagshyggjufólk fari
að vinna saman á nýjum grundvelli. En það þýðir ekki að
sömu nauðsyn beri til að koma hér á kerfi tveggja stjórnmála-
flokka. Það er æskilegt að eiga kost á meiri breytileika við
myndun ríkisstjórna. Þótt samsteypustjórnir geti verið svo
lausar í reipum vegna þátttöku margra flokka, sem er einn
helsti vandi núverandi stjórnar, er einnig æskilegt að fleiri en
eitt sjónarmið komi fram við stjórn landsins. Flokkar veita
hver öðrum aðhald í ríkisstjórn. Með sameiningu
félagshyggjufólks og til dæmis þriggja flokka kerfi ættu í
fyrsta lagi að skapast betri möguleikar til myndunar ríkis-
stjórna. Það bægir einnig þeirri hættu frá að einn flokkur fái
öll völd í landinu, sem ekki getur verið æskilegt ef það verður
til lengri tíma. Það myndi einnig minnka hættu á stjórnar-
kreppuni, ef aðeins tveir flokkar þurfa að ræða saman og sam-
ræma sjónarmið en fjórir og jafnvel fimm eins og vel getur
orðið ef núverandi ástand verður óbreytt. 1 samtölum við
menn sem tengjast sameiningarviðræðum í dag hefur komið
fram að þeir búast ekki við neinum grundvallarbreytingum á
næstunni. Til þess séu of flókin og viðkvæm mál á ferðinni.
En aðstæður hinnar nýju „Möðruvallahreyfingar" til að ná
árangri eru aðrar en strákanna úr Framsókn, sem hittust á
kvöldfundum fyrir rúmum einum og hálfum áratug og fengu
nafn af akureyrsku húsi. Það er því til umhugsunar hvort fast-
mótaðra kerfi stjórnmálaflokka sé í uppsiglingu á íslandi á
næstu árum eða hvort við stefnum að svipuðum flokkaglund-
roða og kunnugur er frá ýmsum löndum með tilheyrandi
vandamálum.