Dagur - 24.03.1990, Page 17
Laugardagur 24. mars 1990 - DAGUR - 17
efst í huga
Blessaður snjórínn
Mér er efst í huga aö finna eitthvað já-
kvætt til aö segja um allan þennan snjó
sem kyngt hefur niður yfir okkur undan-
farnar vikur. Þaö er langt síðan ágætur
heimspekingur á Húsavík sagði, að nú
yrði bráðlega að batna, svo hann gæti
safnað almennilega í sig veðrinu fyrir
páskahretið. Hvort sem eitthvað
almennilega skín upp fyrir páskahretið
eða ekki, þá hlýtur vorið að koma á
endanum. Fuglarnir sögðu mér það í
góða veðrinu á sunnudagsmorguninn,
þeir voru farnir að breyta verulega um
hátterni, skipta um lit og sungu veröld-
inni lof. Fuglarnir vita nokk hvað þeir
syngja, þeir flögruðu um á þriðjudag og
spáðu mikilli ofankomu sem þeir bjuggu
sig undir eftir mætti. Öll él birtir upp um
síðir og svo kemur vorið og þá missum
við allan þennan yndislega snjó. En von-
andi hafa menn búið sig vel undir vor-
leysingarnar svo þær skoli sem fæstum
verðmætum með sér.
Nú er þetta bara sþurning um nokkrar
vikur eða mánuði, sem snjórinn á eftir að
dvelja hjá okkur, svo hvernig væri að
hætta að bölva honum en njóta þess að
hafa gestinn.
Vetrarsportiðkendum, skíða- og vél-
sleðafólki, finnst snjórinn að sjálfsögðu
nauðsynlegur. Jeppamenn komast oft
býsna langt og geta notið þess að fólks-
bílaeigendur horfi með öfundaraugum á
eftir þeim, og svo geta þeir líka notið
þess að vera góðir og hjálpað náungan-
um með því að kippa í bílinn hans. Já,
náungakærleikurinn ætti að blómstra um
þessar mundir; þá daga sem umferðin
gengur út á það að víkja og bíða meðan
hinir komast í gegn um snjógöngin,
draga hvort annað og ýta hvort öðru,
hugga og róa þá sem eru að fá taugabil-
un, moka frá bílunum sem eru fastir svo
við komumst ekki lengra, og bjóða þeim
far sem gefast upp og skilja drusluna eft-
ir í einhverjum skaflinum. Er ekki gaman
að vera góður?
Fólk sem ekki hefur ánægju af að vera
gott og hjálpsamt, getur þá bara notið
þess að leyfa lýðnum að sjá hvað það er
sterkt, stórt og duglegt og færara um að
bjarga sér og öðrum en skaflaskjögrar-
arnir. Og ófærðin hlýtur að vera heilt
himnaríki fyrir kalla sem eru á þeirri
skoðun að allt kvenfólk eigi bara að
standa yfir pottunum dag og nótt, þeir
geta aldeilis bölvað þessum kellingar-
ösnum sem allstaðar eru fyrir með fasta
bíla þessa dagana. Já, blessaður snjór-
inn getur fært öllum einhvers konar
ánægju, ef vel er að gáð.
Ingibjörg Magnúsdóttir.
Reykjavíkurskákmótið:
Rúnar sigrar Burger
Fjórtánda alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið,
Búnaðarbankamótið, stendur nú yfir. Kepp-
endur eru fleiri og sterkari en nokkru sinni
fyrr. Meðal keppenda eru sex félagar úr Skák-
félagi Akureyrar og einn úr Taflfélagi Sauðár-
króks. Hinn kunni skákmaður Gylfi Þórhalls-
son hefur fylgst grannt með gengi félaga sinna
og færir okkur tíðindi jafnóðum.
Rúnar Sigurpálsson, 17 ára
gamall skákmeistari Akureyrar,
kom á óvart í 2. umferð jregar
hann vann Karl Burger, alþjóð-
legan skákmeistara frá Banda-
ríkjunum. Gylfi ætlar að sýna
okkur þessa skák í dag.
Rúnar hafði svart og fékk
þrönga stöðu út úr byrjuninni, en
á réttu augnabliki í miðtaflinu
náði hann miklum uppskiptum
sér í hag og tók þar með frum-
a b c d e f g h
'kvæðið í sínar hendur.
Lítum á stöðuniynd. Síðasti
leikur hvíts var 36. b4.
36. - Dd8!
37. g4 - g5
38. De3 - Dxf6
39. gxh5 - Dh6!
40. Db6 - Dxh5
41. Dxb7 - Dh4!
42. Db8+ - Kg7
43. Hfl
(Hrókurinn á engan góðan
reit, ef Hcl eða bl þá er hann
skákaður af Dd4+ og síðan
Dd3+. Eða 43. He4-Hdl + ,44.
Bfl - Dh3!, 45. De5+ - f6! og
vinnur. Eða 43. He2 - Hdl + , 44.
Bfl - Dd4+, 45. Hf2 - Bh3! og
vinnur. Ef 43. Kfl er Hb5 þá á
hvítur ekki svar við Bc4 og svart-
ur vinnur liö.)
43. - Dd4+
44. Kh2 - Hd8
Hvítur gaf í þessari stöðu enda
á hann ekkert svar við Hh8+.
Fagmannlega teflt hjá drengnum.
SS
HVÍTUR STAFUR
er aðal hjálpartæki
blindra og
sjónskertra
i umferðinni
BLINDRAFÉLAGIÐ ||^fER0AR
Skíðaskólinn
Hlíðarfjalli
Skíðagöngunamskeið
hefjast í næstu viku
Innritun og upplýsingar að Skíðastöðum í símum 22280 og 23379.
Aðalfundur
Akureyrardeild KEA
heldur aðalfund á Hótel KEA, fimmtudaginn
29. mars kl. 20.00.
Mætum vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Foreldrar
fermingarbama
takíð eftír!
Nú styttist óðum í ferminguna.
★
Bjóðum upp á fjölbreytt úrval
rétta á veisluborðið.
★
Höfum einnig hentuga sali fyrir
fermingarveisluna.
Leitið upplýsinga í síma 27100.
SKIPAGÖTU 14, ® 27100
Hvers vegna er nágranni
þinn áskrifandi að
Heima er bezt
Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er
bezt“ er eitt af vinsælustu tímaritum hérlendis.
Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást
í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott
og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir
sent heim til þín í hverjum mánuði. Útfylltu þess vegna
strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendu hann
til „Heima er bezt“, pósthólf 558, 602 Akureyri, og þú munt
um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru
því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt".
Nýir áskrifendur fá eldri árgang í kaupbæti.
x------------------------------------------
Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyrí.
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu
„Heima er bezt“.
□ Árgjald kr. 2.000,00.
D Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990.
Nafn: _____________________
Heimili: