Dagur - 24.03.1990, Síða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 24. mars 1990
4
poppsíðan
i
jlUmsjón: Magnús Geir Guömundsson
Bruce Willis - If it don’t kill you, it just makes you stronger:
Blúsinn allsráðandi
Ekki var laust við að þaö gætti
nokkura efasemda hjá mér þegar
ég setti þessa nýju plötu Bruce
Willis á fóninn, ekki vegna þess
að mér þyki hann vera lélegur
söngvari, því sem slíkur er hann
engu síðri en sem leikari að mín-
um dómi, heldur vegna þess að
fyrri platan hans, The return of
Bruno sem kom út 1987 var mér
einfaldlega lítt að skapi. Á henni
var einhverskonar samsuða af
léttu poppi og Jazz/Swing sem
ekki var kræsileg.
En efasemdir mínar voru
ástæðulausar því If it don’t. . . á
lítið skylt við The return of Bruno,
í stað gegnumgangandi popps er
nú blúsinn allsráðandi í rytma og
rokkstíl sem lætur öllu betur í
eyrum en poppið. í þeim tíu lög-
um sem eru á plötunni auk Willis
sem syngur og blæs í munn-
hörpu, er fríður flokkur góðra
tónlistarmanna en þeirra fremst-
ur fer gítarleikarinn Robben
Ford, eitt sinn meðlimur í jazz-
sveitinni Yellow Jackets, en auk
þess að leika á gítar í flestum
laganna þá semur hann eitt
þeirra sjálfur og einnig nokkur
önnur í félagi með Willis og upp-
tökustjóra plötunnar Robert
Kraft. Þá leikur hinn frægi Alhvíti
gítarleikari Johnny Winter á Slide
gítar í laginu Here comes trouble
again auk þess að syngja það
meö Willis.
Öll tíu lög plötunnar eru
áheyrileg og ekkert lag sem sker
sig sérstaklega úr, nema ef vera
skyldi einmitt Here comes
trouble again en þar fer þríeykið
Willis/Ford/Winter á kostum.
Semsagt hinn ágætasti gripur
sem óhætt er að mæla með við
blúsaðdáendur jafnt sem aðra
tónlistaráhugamenn.
Hitt og þetta
The Stranglers
Gömlu „íslandsvinirnir" í Strangl-
ers sem komnir eru á kreik eftir
Gary Moore
Gítarleikarinn snjalli Gary Moore
sem m.a hefur gert þaö gott með
lögum eins og Out in the fields og
Friday on my mind, vinnur nú að
nýrri plötu sem koma á út með
vorinu. Platan mun bera nafnið
Still got the Bluse og eins og
nafnið gefur til kynna verður um
blúsplötu að ræða. Hefur Moore
lagt mikið uppúr að platan verði
sem veglegust og t.d. fengið tvö
af stórmennum blúsins, þá Albert
King og Albert Cokkins til liðs við
sig auk gamla bítiisins George
Harrisons, til að svo megi verða.
Meðal annara góðra laga á plöt-
unni verður gamli „Standardinn"
hans Albert King Oh Pretty Woman
og hefur það nú verið gefið út á
smáskífu.
Síðan til að fylgja útgáfu plöt-
unnar eftir hefur Moore stofnað
sérstaka hljómsveit sem nefnist
því skemmtilega nafni Gary
Moore and the Midnight Blues
Band.
Gary Moore (t.h.) ásamt Blúskónginum Albert King.
Mandela-tónleikar
staðfestir
Ég sagði frá því i síðustu viku að
til stæði að halda stóra og mikla
tónleika á Wembley leikvanginum
í Lundúnum þann 16. apríl n.k., í
tilefni þess að Nelson Mandela
heföi verið látinn laus.
Nú hefur verið staðfest að tón-
leikarnir verða haldnir og að
Mandela sjálfur verður viðstaddur.
ásamt eiginkonu sinni Winnie. Þá
hafa nöfn Bob Dyian, Peter Gabriel,
Niel Young og Robbie Robertsons
bæst við þann hóp tónlistarfólks
sem væntanlega mun koma fram
á tónleikunum, en eins og áður
hefur komið fram eru í þeim hópi
m.a. Prince Simple Minds,
Madonna og Eurythmics.
Við eigum stórafmæli í ár
Allar myndavélar með 10% afslætti
Hver verður sá heppni að vinna
40.000,00 króna ferðavinninginn eða
CHINON HANDY-ZOOM myndavélina?
Takið þátt í léttri getraun hjá okkur
Dregið 11. apríl
Kodak
Express
Bruce Willis.
Orlítil ábending
til plötukaupenda
Flestir þeir sem mikinn áhuga
hafa á tónlist og þar af leiðandi
kaupa mikið af hljómplötum reka
sig stundum á að erfitt getur
reynst að fá þá titla eða þá teg-
und tónlistar sem þeir ásælast
hér á landi. Oft eru því góð ráð
dýr og stundum vefst fyrir mönn-
um hvað gera skal.
Ein auðveldasta lausnin í
þessu efni og um leið oftast sú
árangursríkasta er að panta
plöturnar sjálfur. Hefur umsjónar-
maður Poppsíðunnar sjálfur
ágæta reynslu af slíku og oftar
en ekki náð í plötur sem ekki hef-
ur verið unnt að fá hér á landi.
Því birti ég hér nafn eins fyrirtæk-
is sem sérhæfir sig í slíkri pönt-
unarþjónustu til ábendingar fyrir
þá sem áhuga hafa á að panta
sjálfir, heitir fyrirtækið GEMA
Records og er staðsett í Eng-
landi. Hefur það á boðstólum
fleiri þúsund titla af breiðskífum,
geisladiskum, smáskífum o.fl.
Að lokum skal á það minnst að
þegar skrifað er út og beðið um
pöntunarlista er nauðsynlegt að
bréfinu fylgi alþjóðlegt svarfrí-
merki og er þá listinn sendur um
hæl.
Utanáskriftin er:
GEMA Records,
P.O. Box 54,
Reading
Berkshire
RG53SD
England.
Prince er einn afþeim sem væntan-
lega munu koma fram á Wembley.
nokkurt hlé, urðu fyrir barðinu á
írska lýðveldishernum IRA nú
fyrir skömmu en með óbeinum
hætti þó.
Þannig var að skömmu áður
en tónleikar sem sveitin ætlaði
að halda í Leichester áttu að
hefjast var hringt til tónleikahall-
arinnar sem þeir áttu að fara
fram í og sagt að sprengja leynd-
ist þar innandyra. Var höllin
tæmd í skyndi en engin sprengja
fannst við leitina. Hins vegar varð
ekkert af tónleikunum vegna
þessarar röskunar.
Svo í lokin er rétt að minnast á
nokkrar athyglisverðar plötur
sem út eru komnar og ættu að
vera fáanlegar nú. Söngkonan
írska Sineas 0’Connor sem gert
hefur það gott með laginu Noth-
ing Compares 2 U, sendi frá sér
nýlega sína aðra plötu og nefnist
hún / do not want what I haven’t
got. Þá er vert að minna á plötu
Smithereens 11, sem er þeirra
þriöja og úr þungarokkinu má
nefna þriðju skífu gamla Accept-
söngvarans Udo Dirkschneider og
félaga hans í UD0 sem kallast
Faceless World. Og í framhaldi af
fregninni um Stranglers hér á
undan þá hafa þeir félagar sent
frá sér nýja plötu og heitir hún
einfaldlega 10.