Dagur - 24.03.1990, Side 20
Vetraríþróttahátíðin:
í mörg hom að
líta um helgina
Vetraríþróttahátíð íþrótta-
sambands íslands 1990 var setl
á Akureyri í gær. Dagskrá há-
tíðarinnar er afar fjöibreytt og
verður í mörg horn að líta um
helgina og reyndar alla næstu
viku fram til 1. apríl. Keppnis-
íþróttir, trimm, sýningar,
námskeið og margt fleira er í
boði.
í dag verða m.a. skíðaíþróttir
fyrir unglinga í Hlíðarfjalli svo og
vélsleðakeppni. Hestaíþróttir,
t.d. skíðatogreið, verða við
Drottningarbraut eftir hádegi og
íþróttir fyrir alia í Hlíðarfjalli og
Kjarna. í kvöld er boðið upp á
listdans á skautum á Skautasvell-
inu og leik í íshokký.
Á morgun, sunnudag, keppa
unglingar aftur á skíðum í Hlíð-
arfjalli. Vetrarþríþrautin hefst í
Kjarna upp úr hádegi, skíða-
brettasýning verður í Fjallinu,
hestaíþróttir neðan við Sam-
komuhúsið og skautaíþróttir á
svellinu, m.a. listdans.
Af dagskrárliðum mánudags-
ins má nefna skíðastökk í Hlíðar-
fjalli og skíðagöngunámskeið fyr-
ir almenning í Hlíðarfjalli og
Kjarna. Verðlaunaafhending fer
fram kl. 17 í göngugötunni þessa
þrjá umræddu daga. SS
Tvennt var flutt á sjúkrahús er eldur kom upp í Lundargötu 17 á Akureyri í gærmorgun
Eldur laus 1 Lundargötu 17 á Akureyri
Eldur varð laus í íbúðarhúsinu
Lundargötu 17 í gærmorgun.
Eldsupptök munu hafa verið í
herbergi á efri hæð hússins, og
var verið að kanna þau nánar í
gær.
Lundargata 17 er steinhús, en
gólf milli hæða eru úr timbri. í
húsinu eru tvær íbúðir og var fólk
í þeim báðum þegar eldurinn
kom upp. Slökkvilið Akureyrar
var kvatt út klukkan 10.34, og
var talsverður reykur á bruna-
staðnum og eldur laus í herbergi
undir risi.
Greiðlega gekk að slökkva
eldinn, en skemmdir urðu af
völdum vatns og reyks í íbúðinni
sem eldurinn kom upp í, aðallega
á efri hæðinni. Einnig urðu all-
nokkrar skemmdir af völdum
vatns á neðri hæðinni í hinni
íbúðinni.
Kona sem býr í húsinu var flutt
á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri vegna gruns um reykeitrun,
sömuleiðis drengur á þriðja ári.
Petta er annar eldsvoðinn í
Lundargötu á rúmum mánuði, en
19. febrúar brann húsið Gunnars-
hólmi til kaldra kola. EHB
Prestar standa frammi fyrir gjaldþroti vegna bágra launakjara:
Prestar að verða bónbjargarmenn?
Mikil umræða á sér nú stað
meðal presta um bág launakjör
þeirra. Háværar raddir eru um
að ef ekki verður spyrnt við
fótum muni enginn guðfræði-
lærður maður fást lengur til að
gegna prestþjónustu í landinu.
Málið er á borði Prestafélags
íslands og Ólafur Skúlason,
biskup, staðfesti í samtali við
Dag í gær að nokkrir prestar á
Norðurlandi hefðu komið að
máli við sig á Akureyri á
dögunum þar sem þeir hafi lýst
því að ef launakjör þeirra
myndu ekki batna verulega á
næstu misserum gætu þeir ekki
haldið áfram í starfi sínu.
í síðasta tölublaði af Kirkjurit-
inu er mjög harðorð grein eftir
séra Flóka Kristinsson í Stóra-
Núpsprestakalli um safnaðarupp-
byggingu og kjör presta. Þar seg-
ir hann að sé með ólíkindum að
litið sé á það sem sjálfsagðan hlut
að prestar grípi „hverja auka-
sporslu ef þeir vilja ekki vera
bónbjargarmenn." Séra Flóki
segir að fæstir presta á íslandi
geti sinnt störfum sínum vegna
þess að þeir séu „að ræna söfnuð-
ina um þjónustu til þess að geta
brauðfætt sig og fjölskyldur
Nýr markaður fyrir mjólkurafurðir?:
Bandaríkjamenn vilja öðlast
heilsu með því að borða skyr
- hugsanlega 1000 tonn af skyri út á ári
Nú er unnið að því að gera
skyr, þennan gamalgróna ís-
lenska spónamat, að eftirsóttu
heilsufæði í Bandaríkjunum.
Nokkrir fjársterkir aðilar þar
vestra höfðu einhverjar spurn-
ir af hinum hvíta, próteinríka
og hitaeiningasnauða þjóðar-
rétti íslendinga og settu sig í
samband við aðila hér heima
og málið kom m.a. á borð til
Osta- og smjörsölunnar.
Þórarinn E. Sveinsson, mjólk-
ursamlagsstjóri KEA og stjórn-
arformaður Osta- og smjörsöl-
unnar, sagði í samtali við Dag að
skyrútflutningurinn væri enn á
umræðustigi. Þetta væri hins veg-
ar hugmynd sem sjálfsagt væri að
skoða, menn skyldu ekki kasta
henni frá sér. Vinnuhópur er að
skoða málið og á Þórarinn sæti í
honum.
„Menn eru enn að ræða tækni-
legar hliðar málsins. Hugmyndin
er sú að selja eitthvað hreint, kalt
Skyldu Bandaríkjamenn hafa
smakkað bestu skyruppskriftirnar
úr samkeppni Mjólkursamlags
KEA?
og tært sem heilsu- og megrunar-
fæði. Heilsuræktarmarkaðurinn
er stór í Bandaríkjunum og
útflutningur á skyri miðast við
þann hóp sem sækir heilsuræktar-
stöðvarnar,“ sagði Þórarinn.
Aðspurður um hugsanlegt
magn sagðist hann geta nefnt
1000 tonn af skyri á ári, til að
nefna einhverja tölu, sem þýðir 5
milljónir lítra af undanrennu.
Þessar tölur miðast við að allt
gangi eftir sem um er rætt, en
Þórarinn sagði að enn væri langur
vegur að því markmiði.
Hann sagði að líklega yrði
byrjað á því að kanna jarðveginn
með því að senda einn gám af
skyri á viku til austurstrandarinn-
ar og síðan yrði að koma í ljós
hvort einhver árangur yrði af
þessum tilraunasendingum. SS
sínar.“ Síðan segir séra Flóki
orðrétt í greininni: „Þjóð sem
horfir í gegnum fingur sér við
ráðamenn sína, alþingismenn,
ráðherra og dómara sem vaða í
sameiginlega sjóði hennar eins og
ræningjar en getur ekki haldið
uppi 100 prestum til að gegna for-
ystustörfum í söfnuðum landsins
er einkennileg þjóð.“
Prestar sem Dagur hefur rætt
við segja það staðreynd að vegna
stöðu sinnar hafi mörgum ekki
þótt við hæfi að prestar berðust
fyrir bættum kjörum.
En hver eru þá laun presta?
Því er til að svara að þau eru mis-
munandi og fara eftir stærð safn-
aðanna. Dagur hefur fyrir því
heimildir að prestur í söfnuði
sem telur milli eitt og tvö þúsund
manns hafi fengið að jafnaði 60
þúsund krónur útborgaðar á
mánuði á síðasta ári. Utan við
þessa tölu eru tekjur af auka-
verkum s.s. giftingum, ferming-
um og skírnum sem námu í fyrra
rúmlega 150 þúsund krónum.
Biskup íslands, Ólafur Skúla-
son, segir að hér sé um stóralvar-
legt mál að ræða. Hann segir að
Prestafélag íslands hafi fyrst og
fremst með kjaramál presta að
gera en auðvitað beri embætti
biskups að styðja presta í launa-
baráttu þeirra.
„Það var einu sinni ákveðin
rómantík yfir þessu, sælt að vera
fátækur, og að prestar ættu að
vera svo miklir hugsjónamenn að
þeir létu launin liggja milli hluta.
Prestur getur fórnað sjálfum sér
en maður hefur ekki leyfi til að
láta fjölskyldu sína líða vegna
þessa,“ segir Ólafur Skúlason.
óþh
Helgamagrastræti 53:
SJS verktakar
semja við
Valsmíði hf.
SJS verktakar hal'a ákveðið
að ganga til samninga við
Valsiníði hf. á Akureyri uin
smíði og uppsetningu á tutt-
ugu og tveimur eídhúsinn-
réttingum og fataskápuin í
íbúðirnar við Helgamagra-
stræti 53.
Að sögn Sigurðar Björgvins
Björnssonar hjá SJS verktök-
um skiluðu nokkrir aðilar til-
boðum í smíði þessara innrétt-
inga, en Valsmíði var með
hagstæðasta tilboðið. Aðrir
sem buðu voru Trésmiðjan
Þór hf., leigutakar þrotabús
Vinkils hf., Fit hf. Hafnar-
firði, Tré-X í Keflavík og
Brúnás hf. á Egilsstöðum.
Eftir er að semja við undir-
verktaka um srníði á eitt
hundrað og fimmtíu hurðum
og meðfylgjandi dyraumbún-
aði. Gengið verður frá því
máli á næstunni. EHB
Fóðurverksmiðja
ístess hf.:
Sér nú þrotabúi
íslandslax
fyrir öllu fóðri
ístess hf. hefur gert sanming
til eins árs um sölu á öllu
fóðri til þrotabús íslandslax
hf. ístess hf. hefur selt tölu-
vert magn af votfóðri til ís-
landslax hf. cn nú hafa tek-
ist samningar um að verk-
smiðjan sjái fyrirtækinu fyr-
ir öllu fóðri auk fóðrunar-
búnaðar.
Pétur Bjarnason, markaðs-
stjóri ístess hf., segir þennan
samning ánægjulegan, enda sé
um að ræða fjórföldun á
fóðurfrantleiðslu iyrir íslands-
lax.
Ætla má að íslandslax, sem
er ein af þremur stærstu mat-
fiskstöðvum landsins, þurfi á
bilinu 750-900 tonn af fóðri á
ári. óþh
Akureyrarflugvöllur:
Átta Fokker
vélar í gær
Mikið var að gera á Akur-
eyrarflugvelli í gær. Flug-
leiðir áttu von á alls átta
Fokker vélum og voru flest-
ar þeirra fullbókaðar. Jafn-
an eru farnar sex ferðir til
Akureyrar á föstudögum
þannig að hér var um tvær
aukafcrðir að ræða.
Alls var von á 300-350
manns frá Reykjavík til bæjar-
ins í ferðunum átta í gær og á
Vetraríþróttahátíð ÍSl stóran
þátt í þessum straumi til Akur-
eyrar.
í dag verður ekki eins mikið
unt að vera, en fjórar Fokker
vélar eru væntanlegar. SS