Dagur - 31.03.1990, Side 18
18 - DAGUR - Laugardagur 31. mars 1990
Skemmtilegir strákar
- Á tónleikum með hljómsveitinni „Við strákarnir"
poppsíðon
Ekki er hægt að segja að tón-
listarlíf standi í sérstaklega mikl-
um blóma hér á Akureyri, a.m.k.
hvað tónleikahald varðar. Það er
nánast undantekning að popp-
tónleikar séu haldnir hér núorðið,
og sé um slíka tónleika að ræða,
þá eru það langoftast sveitir frá
sunnanverðu landinu sem í hlut
eiga. Ekki þar fyrir að engar
hljómsveitir séu starfandi, því
það er öðru nær, heldur virðast
þær langflestar einungis hafa á
stefnuskránni að spila á dans-
leikjum og þar af leiðandi er tón-
listin sem þær spila illbærileg
annarsstaðar en á slíkum uppá-
komum þó stundum sé undan-
tekning á. Að þessu sögðu verð-
ur þó ekki litið framhjá þeirri stað-
reynd að það virðist vera nær
ómögulegt að starfrækja hljóm-
Umsjón:
Magnús Geir
Guðmundsson
sveit með mikinn metnað í huga
án þess að drýgja tekjurnar með
spili á dansleikjum. Er þetta döp-
ur staðreynd en sönn, aftur á
móti eru menn þó alltaf að reyna
og er blússveitin „Við strákarnir"
ágætt dæmi um það. Hefur
hljómsveitin sem skipuð er þeim
Hvers vegna er nágranni
þinn áskrifandi að
Heima er bezt
Vegna þess að það er staðreynd að „Heima er
bezt“ er eitt af vinsælustu tímaritum hérlendis.
Þú ættir að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást
í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott
og þjóðlegt íslenskt tímarit við vægu gjaldi, sem þú fengir
sent heim til þín í hverjum mánuði. Utfylltu þess vegna
strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendu hann
til „Heima er bezt“, pósthólf 558, 602 Akureyri, og þú munt
um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru
því samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt".
Nýir askrifendur fá eldri árgang í kaupbæti.
X
Til „Heima er bezt, pósthólf 558,602 Akureyri.
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu
„Heimaerbezt".
□ Árgjald kr. 2.000,00.
□ Sendið mér blaðið frá 1. janúar 1990.
Naln:
Gunnari Eiríkssyni sem syngur
og blæs í munnhörpu, Húnboga
Valssyni sem leikur á gítar, Haf-
liöa Haukssyni sem ber húðir og
Teiti Guðnasyni sem plokkar
bassann, starfað í um eitt ár og
hefur á þessum stutta líftíma sín-
um verið dugleg við að koma
fram bæöi hér á Akureyri og víð-
ar á Norðurlandi. Tónleikarnir
sem hér um ræðir voru haldnir
þann 23. mars s.l. á Krá Hótel
Stefaníu og voru seinni tónleikar
af tveimur. Var þetta í þriðja sinn
sem umsjónarmaður Poppsíð-
unnar ber sveitina augum og er
óhætt að segja að henni hefur
farið fram í hvert sinn. Reyndar
byrjuðu tónleikarnir svolítið
brösulega og smá taugatitrings
virtist gæta, en eftir 3-4 lög voru
hljómsveitarmeðlimir orðnir vel
samstilltir og var góður stígandi í
spilamennskunni mest alla tón-
leikana í gegn. Eins og áöur
greinir spila „Við strákarnir" blús
„Við strákarnir“ í góðri sveiflu á tónleikunum á Hótel Stefaníu.
og gera þeir það í hinni fjölbreytt-
ustu mynd. Á efnisskránni var allt
frá kolsvörtum blúsum eins og
Hoochie Coochie Man eftir Willie
Dixon og Stormy Monday eftir T.
Bone Walker til hvítra suður-
ríkjablúsa á borð við Tush með
ZZ Top og One Way Out með
Allman Brothers Band. Auk
þessara fjögurra laga sem þeim
félögum tókst mjög vel upp í, þá
er vert að minnast einnig á lög
eins og Hideway, en þar fór Hún-
bogi aldeilis á kostum, og J.J.
Cale slagarann Cocaine, þar
sem sveitin náöi sérstaklega vel
saman. í heildina voru þessir
tónleikar hin ágætasta skemmt-
un og vonandi verður framhald á
hjá þeim félögum í „Viö strákarn-
ir“. Að vísu voru nokkrir smá-
hnökrar á spilamennskunni en
með meiri æfingu og reynslu
munu þeir vafalaust hverfa.
Heimili:
Minningartónleikar
um John Lennon
Ég hef að undanförnu greint frá
tónleikum sem halda á til heiðurs
Nelson Mandela í London þann 16.
apríl n.k. Nú berast fregnir af
frekari uppákomum í Bretaveldi
því 5. maí verða í Liverpool
haldnir heljarmiklir tónleikar í
minningu John Lennons, en tíu ár
eru liðin frá því aö hann var
myrtur. Eins og á Mandelatón-
leikum mun fríður hópur tónlist-
armanna koma fram í Liverpool,
en meðal þeirra má nefna Deac-
lon Blue, Lou fíeed, Terence Trent
DArby og síðast en ekki síst
Blúsgoðið B.B King. Verður tón-
leikunum sjónvarpað til um 100
milljóna manna og ágóðanum af
þeim varið til uppgræðslu víðs-
vegar um heiminn.
Bob Dylan:
Gamla brýniö Bob Dylan sannaði
það í fyrra að hann er ekki dauð-
ur úr öllum æðum. Platan hans
Oh Merchy þykir vera hans besta í
mörg ár og jafnframt þótti hún
vera ein af bestu plötum síðasta
Hitt og þetta
lYIinningartónleikar um John Lenn-
on verða haldnir í niaí.
árs. Er kappinn nú mættur á nv í
studio að taka upp nýja plötu
ásamt ekki ómerkari mönnum en
gítarbræðrunum Jimmy og Steve
Ray Vaughan. Ekki er búið að
ákveða nafn á plötuna né hve-
nær hún eigi að koma út, en nú
þegar hafa verið hljóðrituð þrjú
lög sem til greina koma á hana.
Fleetwood Mac:
Hin aldna sveit Fleetwood Mac er
nú að senda frá sér enn eina
Raðhús við Hlíðarlund
Einu íbúðirnar sem eru í byggingu
á Brekkunni á Akureyri árið 1990
Bæði 3ja og 4ra herbergja íbúðir.
Upplýsingar á skrifstofu SS-Byggis hf. við Viðjulund.
byggir m.
ixojgsna (t
iiiiniiiiiB
11.» i'i
m inl'ir
r .ö he.
ÍL
plötuna, nefnist hún Behind the
Mask og er áætlað að hún komi
út í byrjun mars. Lindsay Bucking-
ham sem um árabil var meðlimur
í Fleetwood Mac kemur fram sem
gestur á plötunni og syngur titil-
lagið Behind the Mask.
Guns’n’ Roses:
Enn og aftur berast váleg tíðindi
úr herbúðum Guns ‘n‘ Roses, nú á
þá leið að trommuleikari sveitar-
innar, Steven Adlerheíur verið lát-
inn hætta. Hefur Adler eins og
reyndar aðrir meðlimir G ‘n‘ Rátt í
miklum erfiðleikum vegna of-
neyslu eiturlyfja sem honum
gengur illa að yfirstíga. Því hefur
hann verið látinn hætta, en ekki
er loku fyrir það skotið að málið
verði endurskoðaö ef kappinn
braggast fljótlega. Nýr maður í
stað Adlers hefur ekki verið fund-
inn ennþá en líklegur arftaki
hans er talinn vera fyrrum
trommuleikari Pretenders, Martin
Chambers.
Raflagnir.
Viðgerðir
á raflögnum.
Raftækjaviðgerðir.
Dyrasímaviðgerðir.
Dyrasímar.
Efnissala.
:
RAFQRKA
Kotárgerði 22
Sími 23257