Dagur - 31.03.1990, Side 20
SALTFISKVEISLA
Á BAUTANUM
Ristaðir saltfiskbitar „Portúgal".
Pönnusteikt saltfiskflök
með hrísgrjónum og
karrýsósu „ofnbakað".
Hvítlaukskryddaðir, ristaðir
saltfiskstrimlar með piparrót
Rjómasoðinn saltfiskur
í hvítlaukstómatsósu.
í gær var opnuð myndlistarsýning í Landsbankanum á Akureyri. Á sýningunni eru myndverk í eigu bankans og
verða þau til sýnis í afgreiðslusal bankans að Strandgötu 1 til 17. apríl. Sýningin er opin á afgrciðslutíma Landsbank-
ans* Mynd: KL
Mikið tap varð á rekstri Kaupfélags Eyfirðinga á árinu 1989:
„Taprekstur annað árið í röð
er alvarlegur hlutur“
Verulegt tap varð á rekstri
Kaupfélags Eyfirðinga á árinu
1989. Magnús Gauti Gauta-
son, kaupfélagsstjóri, upplýsti
þetta á fundi Akureyrardeildar
KEA sl. fiinmtudagskvöld.
Magnús Gauti sagði að upp-
gjöri væri ekki lokið og því
lægi endanleg rekstrarniður-
stöðutala ekki fyrir. Hins veg-
ar væri Ijóst að tapið væri
eitthvað minna en árið 1988,
en þá nam tap á rekstri KEA
204 milljónum króna.
„Taprekstur hjá félaginu ann-
að árið í röð er mjög alvarlegur
Húsavík:
Slökkviliðs-
stjóraskipti
í kvöld
Á miðnætti í nótt taka þrír nýir
slökkviliðsstjórar við embætt-
um sínum hjá Slökkviliði
Húsavíkur. Það eru Jón
Ásberg Salómonsson, Bene-
dikt Jónasson og Sveinbjörn
Lund. Þeir sem láta af störfum
eru Olafur Jónsson, Gísli Saló-
monsson og Hreinn Einarsson.
Að undanförnu hefur tækja-
búnaður slökkviliðsins verið
prufaður og yfirfarinn af slökkvi-
íiðsstjórunum sem eru að skila af
sér, og m.a. var brunaboðinn í
bænum gangsettur af þeim sök-
um á fimmtudagskvöld.
Aðspurður um orsök þess að
slökkviliðsstjórarnir væru allir að
hætta sagði Ólafur að þeim þætti
starfið bindandi sem aukavinna,
og einnig að orðið væri tímabært
að ráða einn mann í fullt starf, ef
sinna ætti því af einhverju viti,
t.d. eldvarnaeftirlitinu. IM
hlutur og verður að leita allra
ráða til að snúa þessu við. Við
taprekstur versnar efnahagsstaða
félagsins, en sem betur fer er
efnahagur fyrirtækisins sterkur,“
sagði Magnús Gauti. Hann sagði
að gripið hefði veriö til ýmissa
ráðstafana til þess að draga úr
kostnaði og því yrði haldið áfram
á þessu ári. Meðal annars yrði
lögð áhersla á að lækka verulega
allt of háan birgðakostnað.
Dagur greindi í gær frá upp-
sögnum og skipulagsbreytingum
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga.
Kaupfélagsstjóri skýrði þessar
aðgerðir út fyrir fundarmönnum
á fimmtudagskvöldið og sagði að
líta mætti á þá sem fengu upp-
sagnarbréf í hendur sem fórnar-
lömb erfiðra aðstæðna í þjóð-
félaginu.
Kaupfélagsstjóri greindi frá
frekari fækkun starfsfólks hjá
KEA á Akureyri á árinu. Frá
áramótum hefði sjö manns verið
sagt upp í sláturhúsi og hjá skipa-
afgreiðslu yrði fækkað um átta
manns á þessu ári.
Magnús Gauti gerði á fundin-
um grein fyrir afkomu einstakra
deilda KEA og kom fram hjá
honuni að bati hefði orðið í ýms-
um greinum frá fyrra ári en hall-
að hefði undan fæti í öðrum.
Rekstur Mjólkursamlagsins
gekk mun betur á sl. ári en árið
1988 og verður afkoma þess
nálægt núllinu. Þá nefndi hann
m.a. að rekstur bifreiðadeildar
hafi á liðnu ári gengið mjög vel.
Hins vegar lýsti kaupfélagsstjóri
áhyggjum vegna erfiðleika í
rekstri deilda eins og bygginga-
vörudeildar. Þá sagði hann mik-
inn samdrátt hafa orðið hjá Kjöt-
iðnaðarstöð KEA og afkoma
hennar hafi sjaldan eða aldrei
verið erfiðari en á síðasta ári.
Vegna plássleysis í blaðinu í
dag verður nánari umfjöllun um
fund Akureyrardeildar KEA að
bíða til þriðjudags. óþh
Sláturhúsið á Dalvík:
Stórgripaslátrun ekki leyfö
Nú er Ijóst að ekkert verður
af hlutaúreldingu sláturhúss-
ins á Dalvík. Samþykkt var
um síðustu áramót að hætta
allri slátrun í húsinu en að ósk
heimamanna var málið aftur
tekið upp og þess óskað að
úrelding næði aðeins til sauð-
fjárslátrunar en stórgripa-
slátrun verði áfram leyfð.
Þessu hefur úreldingarnefnd
iandbúnaðarráðuneytisins
hafnað.
Níels Árni Lund, formaður
nefndarinnar, sagði í samtali
við blaðið að í Ijósi þessa vilja
hcimamanna hafi nefndin óskáð
eftir við stjórn KEA að hún
legði mat á hvort stórgripaslátr-
un væri nauðsynleg fyrir hérað-
ið.
„Að hennar mati var ckki tal-
ið nauðsynlegt að lialda úti stór-
gripaslátrun á Dalvík og á þeim
forsendum höfnum við úreld-
ingu að hluta á húsinu. Mark-
mið þessarar nefndar cr að
koma á aukinni hagræðingu í
slátrun, þessi hagræðing er
greidd af verðmiðlunarsjóöi
kindakjöts og því ekki verjandi
aö greiða kostnað við nautgripa-
slátrun með þcssu fé,“ sagði
Níels Árni. JOH
Akureyrarbær:
Samningar við
íþróttafélög fyrir
bæjarstjórn
Á fundi bæjarráðs Akureyrar-
bæjar í fyrradag var fjallað um
drög að samningum bæjarins
við Skautafélag Akureyrar,
Golfklúbb Akureyrar og
íþróttafélagsið Þór. Samning-
ar þessir eru byggðir á fyrir-
liggjandi rammasamningi
bæjarins við ÍBA sem fjallar
um kostnaðarþáttöku bæjarins
í framkvæmdum hjá íþrótta-
félögunum í bænum.
Að sögn Sigurðar J. Sigurðs-
sonar, forseta bæjarstjórnar, tek-
ur samningurinn við Skautafélag
Akureyrar til framkvæmda sem
eftir er að ráðast í. Hvað samn-
inginn við Þór varðar þá tekur
hann til áframhaldandi byggingu
íþróttaaðstöðunnar en Golf-
klúbbur Akureyrar hefur lokið
á þriðjudag
við sínar framkvæmdir og snýst
sá samningur því einvörðungu um
kostnað við þá uppbyggingu sem
þegar hefur átt sér stað.
Þessir þrír samningar taka til
allt að fjögurra ára. Á fjárhags-
áætlun Ákureyrarbæjar fyrir yfir-
standandi ár var samþykkt að
veita 15,5 milljónum króna til
þessara samninga. Sigurður segir
að upphæðin skiptist milli félag-
anna í samræmi við verksamn-
inga en ekki jafna hluta.
Bæjarráð gerði nokkrar minni-
háttar breytingar á þeim samn-
ingsdrögum sem íþróttaráð lagði
fyrir bæjarráð. Samningarnir
verða til umfjöllunar hjá bæjar-
stjórn næstkomandi þriðjudag.
Eftir þann fund ættu þeir að
verða tilbúnir til undirritunar.
JÓH
Krossanesverksmiðjan:
75 millj. frá áramótum
Krossanesverksiniðjan hefur
þurft að greiða um 75 millj-
ónir króna frá áramótum, að
því er heimildir Dags segja.
Hér er aðallcga um afborgan-
ir lána að ræða, og kostnað
við að hreinsa til og vinna við
tæki verksmiðjunnar eftir
brunann.
Sú upphæð sem hér er nefnd
er tckin af tryggingafénu.
Krossanes var með rekstrar-
stöðvunartryggingu, og nemur
hún sömu upphæð, 75 milljón-
um. Samkvæmt heimildum
Dags hefur komiö fram að
kostnaður við hreinsun tækja-
búnaðar í verksmiðjunni og þá
vinnu sem þar hefur farið fram
cftir brunann erá bilinu 14 til 15
milljónir króna. Um 60 milljón-
ir hafa farið til að greiða afborg-
anir lána.
Verktakafyrirtækið Vör hf.
hefur haft nokkra starfsmenn í
vinnu í Krossanesi frá áramót-
um við að brjóta niður veggi og
hreinsa til eftir brunann. Þeirri
vinnu lýkur í næstu vikur, og
segir Hallgrímur Skaptason,
framkvæmdastjóri Varar hf., að
framundan sé næsta erfiður tími
hjá fyrirtækinu, komi fleiri
verkefni ekki til sögunnar.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um framtíð Krossanes-
verksmiðjunnar. EHB
Skipulagsbreytingarnar hjá KEA:
Bjöm o g Kristján
láta af störfum
Eins og Dagur greindi frá í gær
er uppsögn 27 starfsmanna í
stjórnun og á skrifstofu liður í
skipulagsbreytingum Kaupfé-
lags Eyfírðinga. Starfsmenn á
skrifstofu KEA á Akureyri,
Dalvík og víðar á félagssvæð-
inu hafa fengið uppsagnarbréf
í hendur. Stöður fulltrúa kaup-
félagsstjóra eru lagðar niður.
Tveir þeirra, Björn Baldurs-
son, fulltrúi á verslunarsviði,
og Kristján Olafsson, sjávar-
útvegsfulltrúi, láta af störfum
hjá fyrirtækinu frá og með 1.
aprfl.
Björn Baldursson hefur starf-
að hjá Kaupfélagi Eyfirðinga í
rúm 37 ár. Hann sagði í samtali
við Dag að uppsögn hafi komið
sér í opna skjöldu og honum
hefði ekki gefist ráðrúm til að
hugsa hvað hann tæki sér fyrir
hendur.
Kristján Ólafsson lætur nú af
störfum hjá KEA eftir 35 ára
starf. Hann er búsettur á Dalvík
og gegndi stöðu útibússtjóra þar
áður en hann hóf störf sem sjáv-
arútvegsfulltrúi. Kristján sagði
að uppsögn hefði komið flatt upp
á sig, en kaupfélagsstjóri og
stjórn hefði metið það svo að
þessi skipan mála væri kaupfélag-
inu til heilla. Hann sagði að eftir
þessa niðurstöðu byggist hann
fastlega við að flytja burt af svæð-
inu. „Ég vil láta jáað koma fram
að ég vona að þessar skipulags-
breytingar hjá kaupfélaginu verði
því og eigendum þess, félagsfólk-
inu, til hagsbóta," sagði Kristján
Ólafsson. óþh