Dagur - 12.05.1990, Page 11
Laugardagur 12. maí 1990 - DAGUR - 11
„Pað virðist nauðsynlega eitthvað þurfa
að koma til í þessum bæ, það er svo margt
að falla niður. Þá er maður farinn að hugsa
um blessað álverið. Hvernig sem menn
hugsa veröa þeir að viðurkenna það að
svona tækifæri er ekki hægt að sleppa. Nú
eru hundruðir starfa í hættu, t.d. hjá Slipp-
stööinni og Álafoss, og maöur sér ekkert
sem kemur á móti. Þetta er ládeyða og ég
hef heyrt mjög marga Akureyringa tala um
hvert þeir gætu fariö. Þeir eru að hugsa um
Reykjavík eða Svíþjóð, en eftir að álvers-
umræðan kom upp hafa margir staldrað viö,
þeir ætla að sjá til."
- Þannig að álverið er lausn, eða hvað?
„Þegar menn fóru að ræða þennan mögu-
leika aftur hefur mér virst álverið vera hald-
reipi hjá mörgum. Þeir einblína á það, en ef
álverið kemur ekki held ég að fólk segi að
nú sé þetta búið. Fólk er líka farið aö íhuga
þann möguleika að ef álverið verður stað-
sett fyrir sunnan þá fer fólk frá Akureyri,
framboð á húsnæöi eykst og verðið hlýtur
að lækka. Þetta er eins og verðbréfamark-
aður, ef einn byrjar að selja, tíu selja, þá er
ég htæddur um að allir fari að selja.
Ef álver kemur í Eyjafjörð verða auðvit-
að mikil uppgrip í byggingariðnaðinum og
öðrum iðnaði, þjónustustörfum og víðar.
Eg sé ekkert nema gott við álverið, en eitt
veit ég þó ekki, það er mengunin. Maður
verður að treysta því að mengunarvarnir
verði fullnægjandi."
Fáir á Akureyri
með lánsloforð í höndunum
Haraldur ræddi meira um álverið og sagðist
ekki skilja aö nokkur gæti vet ið á móti'því í
Ijósi atvinnuástandsins á Akureyri. En viö
snerum okkur aftur að húsnæðismálunum
og húsbréfakerfinu nýja. Hann sagöi að
ekkert hefði reynt á það ennþá en miðað við
þann fjölda sem hefur verið með lánsloforö
á Akureyri þá bjóst Haraldur ekki við mikl-
um breytingum.
„Það virðast vera mjög fáir á Akureyri
ineð umsóknir. eða þá að þeir eru mjög
aftarlega í röðinni. Viö vorum seinir til á
Akureyri og fáir með lánsloforð fyrstu árin,
en þetta hefur ekkert aukist, a.m.k. ekki í
sambandi við nýjar íbúöir. Húsbréfakerfiö
breytir varla miklu nema að það séu margir
Akurevringar með umsóknir inni í núver-
andi kcrfi. Ég veit það bara ekki."
- Nú var talað um lóðaskort í bænum á
síðasta ári. en framboðið hefur vissulega
aukist nú, t.d. með Giljahverfinu. Hvernig
finnst þér staðið að lóðaúthlutun?
„Sko. lóðaúthlutanir cru í barnalcgum
ólestri á Akureyri. Lítum bara á dærhin til
að rökstyðja þetta. Akureyrarbær auglýsti
lausar einbýlishúsalóðir úti í þorpi, 6-7 lóðir
í þyrpingu. Við sóttum um þetta og ætluö-
um að prófa að auglýsa lítil, einföld einbýl-
ishús. Ánnað minna fvrirtæki sótti líka um
tvær lóðir og tveir einstaklingar lika. Það
sóttu ekki fleiri um en samt var okkur neit-
að um lóðirnar. Ástæðan var sú að bygg-
inganefnd vildi eiga lausar lóöir handa ein-
staklingum ef þeir myndu biðja um þær. Þá
spurði ég: Fyrir hverja haldið þið að viö
séum að bvggja? Auðvitað fyrir einstaklinga
á Akureyri. Þiö auglvstuð þessat' lóðir laus-
ar. Við fengum engin svör og stuttu seinna
fréttum við að þessum lóöum hafði verið
úthlutað til annarra verktaka."
„Hvers vegna var
þriöja hlutanum ekki úthlutaö?“
Og Hataldur heldur áfrttm:
„Svo kemur úthlutun í Giljahverfi. Þar
var um þrjú hólf að ræða. í hverju hólfi voru
m.a. I blokk og 3-4 raöluis eða parhús. I
einu hólfinu voru tvær blokkir og þrjú
raðhús. Við vissum að margir myndu sækja
um lóðirnar. enda skortur ;i blokkum. í
Vestursíöu hafði verið úthlutað blokkum og
þar t'engu færri en vildu. Viö eigum þar
mjög litla blokk og sóttum því um í Gilja-
hverfinu upp á framtíðina. blokk og raðhús.
Þá vildi svo til að tveimur hólfum var úthlut-
að fyrst og tveir verktakar fengu hvor sitt
hólfið. Ég er ekki að gagnrýna það, enda
voru rökin þau aö það væri hagkvæmt að
einn verktaki fengi öll verkefnin í sama
hólfinu og það má fallast á þau rök. En
hvers vegna var þriðja hlutanum ekki út-
hlutað? Þegar kcmur að úthlutun fáum við
blokkina en þrír aöilar fá þrjú raöhús í sama
hólfinu. Þarna er allt í cinu liægt að úthluta
fjórum aðilum i saina hólfi meðan það var
ekki talið hagkvæmt í hinum tveimur. Rök-
in eru að engu oröin."
Haraldur kvaðst auövitaö ánægður yfir
því að hafa fengið blokkina en hann gagn-
rvnir vinnubrögð bygginganeíndar.
„Maður verður aö geta treyst þessum
nefndum, annars fer þetta allt út í vitley.su."
„Víð Marri vorum álíka
sjúkir í golfið“
- Við ræddum lítillega um íþróttir i upphali
og ættum kannski aö enda á þeiin líka. Þti
ert forfallinn áhugainaður um golf. hvernig
lckkstu þessa bakteríu?
„lig hafði gaman af fótbolta og skíðum í
gamla daga en þetta datt allt út þegar maður
lor að byggja. Fg luetti að sinna áhugamál-
um í mörg ár. allt snerist f kringum fyrirtæk-
ið. Þegar ég var að verða 35 ára gamall dró
mágur minn mig upp ;í golfvöil og strákarnir
mínir komu með. Við vorum fjórir meö
hálft sett og börðum fram og aftur um allan
völl. Það þurfti ekki meira til að kveikja í
okkur. við urðum alveg sjúkir eftir þetta
eina skipti.
Þetta var að hausti til. Ég kannaöist að-
eins við húsvörðinn á Jaðri og vissi að hann
átti golfsett, þannig að við feögarnir laum-
uðumst olt upp eftir og fengum settið lánað
og börðum langt fram á kvöld. Það voru
fleiri aö byrja í þessu, til dæmis Marri Gísla.
Ætli við höfuin ekki verið álíka sjúkir í
golfiö.
Næsta sumar fengum viö okkur lítiö byrj-
endasett og gengum í Golfklúbbinn. Ég get
bara sagt það að þetta er dýrlegt. Félags-
skapurinn er rosalcga góöur og útiveran
stórkostlegt. Fólk hafði oft minnst á náttúr-
una við mig og sagt mér aö fara á fjöll. Ég
skildi þetta aldrei, en eftir að ég fór í golfið
fór ég að taka eftir náttúrunni."
Ákafur í æfingunum
Haraldur segir að það sé einstök upplifun aö
spila golf á kvöldin, finna kyrrð og frið.
Áður skipti hann sér ekkert af því hvort
grasiö væri fariö að grænka eöa ekki, en nú
fylgist hann meö hverju einasta strái.
„Ég livet fólk eindregið til að koma þarna
upp eftir. Það er fullt af fólki sem vill hjálpa
manni af stað og kennarinn. David Barn-
well, er mjög góður."
- Svo fórstu að ná árangri. Varstu ekki
ofarlega í þínum flokki á íslandsmóti í
fyrra?
„Ég náði þriöja sæti, eftir að hafa átt góða
möguleika á öðru sætinu. Jú, ég hef náð fín-
asta árangri miðað viö þann tíma sem ég er
búinn að æfa. En ég æfi og það má kannski
skjóta inn einni sögu í því sambandi. Það
var á góðri stundu að við félagarnir vorum
aö spjalla um golf og ég var eitthvað
drjúgur. Félagi minn spurði: Hvað heldurðu
eiginlega að þú sért? Þá spurði ég á móti:
Hvað gerirðu í hádeginu? Nú, ég fæ ntér að
borða, svaraði hann. Já, en ég æfi, sagði é£.
Svo spurði ég: Hvað gerirðu á kvöldin? Eg
sest niður og horfi á sjónvarpið, svaraði
liann. Já, en þá æfi ég, sagði ég aftur. Burt-
séð frá þessu gríni þá æfi ég vel og strákarnir
líka."
- Að lokunt, er það rétt að þú hafir æft
svo ákaflega að það sé komið gat á teppiö á
stofugólfinu?
Nú kemur kyndugur svipur á Halla og
síðan hlær hann ákaflega.
„Ég veit ekki hvort ég á aö viðurkenna
það, en það er kannski best að segja ekkert
meira en það að maöur hafi stundum verið
full ákafur í æfingunum."
Þar með er best að tefja Harald Júlíusson
ekki frekar, enda næg verkefni sem bíða.
SS