Dagur - 12.05.1990, Blaðsíða 20

Dagur - 12.05.1990, Blaðsíða 20
Akureyri, laugardagur 12. maí 1990 Sauðárkrókur Húsavík 96-41585 Áfengisútsala á Húsavík: Kosið utan kjörfundar á bæjarskrifstofunum Þeim sem greiða þurfa atkvæði utankjörstaðar á Húsavík fyrir Lágheiði: Verður ekki opnuð strax Tæplega er útlit fyrir að Lág- heiði verði opnuð alveg á næst- unni, en þar eru enn mikil snjóalög. Starfsmenn Vegagerðar ríkis- ins á Sauðárkróki fengu lánaðan snjóblásara frá Akureyri á mið- vikudaginn. Byrjað var að opna veginn stystu leið frá Skeiðsfoss- virkjun fram í Stíflu. Fyrsta dag- inn komust vegagerðarmenn fram að Stífluhólum. Á fimmtu- dagskvöld voru þeir komnir að Melbreið, en í gær fóru þeir alveg fram að Deplum. Eftir er að fara með snjóblásarann frá Reykjar- hóli í Austurfljótum að vegamót- um Sléttuvegar. Gísli Felixson, umdæmis- tæknifræðingur, segir að snjó- þykkt hafi verið allt að 1,8 metrar á köflum, og því gengið hægt að opna veginn. Klakahella er á öll- um veginum, og þegar hún bráðnar verður torfært vegna aurbleytu, enda vegurinn mjög leirkenndur. Um leið og þornar verður heflað. „Ég hef ekki trú á að Lágheið- in verði opnuð núna, því miður. Mjög mikill snjór er í Þvergili, norður á heiðinni," segir Gísli Felixson. EHB komandi bæjarstjórnarkosn- ingar, veröur einnig gefið tæki- færi til aö greiða atkvæði um opnun áfengisútsölu, eins og þeim er kjósa á kjördag. Kjörnefnd tók þessa ákvörðun sl. fimmtudag, eftir að eindregnar óskir höfðu borist frá mörgum kjósendum og bæjarráð hafði ályktað um málið. Pegar kosið hefur verið um opnun áfengisút- sölu á Húsavík, hefur yfirleitt ekki verið hægt að greiða atkvæði um það utan kjörfundar. Eysteinn Sigurjónsson, for- maður kjörstjórnar, sagði að eftir helgina yrði auglýst hvenær utan- kjörfundaratkvæðagreiðslan um áfengisverslunina færi fram, en hún verður á bæjarskrifstofunum og óháð utankjörstaðaatkvæða- greiðslunni um bæjarstjórn, sem fram fer á sýsluskrifstofunni kl. 15:30 til 17 virka daga og kl. 13 til 14:30 um helgar. IM Slippstöðin: Raðsmíðaskipið sjósett í gær Raðsmíðaskip Slippstöðvarinnar á Akureyri, sem í daglegu tali starfsmanna stöðvarinnar gengur undir nafninu B-70, var sjósett í gær. Ekki vildi þó skipið fara á flot í einni atrennu því það stoppaði neðst í sjósetningarrennunni og þurfti aðstoð til að ná því á flot. Kaupandi hefur ekki enn fengist að þessu glæsiskipi eftir að síðustu samningar við Meleyri hf. á Hvammstanga gengu til baka. JÓH/Mynd: KL Húnvetningar vilja fyrirbyggja atvinnuhrun vegna verkloka við Blönduvirkjun: Óttast þrengmgar hjá þjónustuaðilum „Okkur þykir tímabært að fara að ræða þessi mál í fullri alvöru, enda ekki nema um tvö ár þangað til framkvæmdum við Blönduvirkjun lýkur,“ sagði Ófeigur Gestsson, bæjar- stjóri á Blönduósi, í samtali við Dag. Gert er ráð fyrir að innan bíða fundar með forsætisráðherra um málið tíðar verði komið á fundi for- vinnu við Byggðastofnun á Akur- sætisráðherra með samstarfs- nefnd heimaaðila um fram- gang samþykktar ríkisstjórnar frá 1982 um að treysta atvinnu- líf á Norðurlandi vestra til að koma í veg fyrir samdrátt á vinnumarkaði þegar virkjun- arframkvæmdum lýkur. Akureyri: Ákveðinn skógarþröstur I Á fimmtudaginn greindi Dag- ur frá því að skógarþröstur hefði gert hreiður í vörubifreið Braga Steinssonar, bifreiða- stjóra á Stefni. Ekki var ann- að hægt en að fjarlægja hreiðrið, en þrösturinn gafst ekki upp. Nóttina eftir að hreiðrið vai fjarlægt hóf þrösturinn að gera nýtt hreiður, helmingi vandaðra og fínna en það fyrra, að sögn Braga. „Ég tók hreiðríð og setti það á pall, sem stendur hérna rétt hjá. En ég varð ekki var við að þrösturinn hefði komið nálægt því á nýja staðnum. Ég geymi bflinn á Stefnisplaninu núna, til að þetta endurtaki sig ekki,“ sagði Bragi í gær. EHB S-Þingeyjarsýsla: Innbrot upplýst Lögreglan á Húsavík hefur upplýst nokkur innbrot í S- Þingeyjarsýslu í vetur. Tveir ungir piltar hafa játað á sig innbrotin. Lögreglan fékk vísbendingu í vikunni sem leiddi síðan til þess að innbrotin upplýstust. Um er að ræða innbrot í Ljósvetninga- búð, þar sem stolið var „mixer" og peningastuld í verslun á Fosshóli, Kjarna á Laugum, þar sem til húsa er bókabúð, Spari- sjóður Reykdælahrepps og Póstur og sími. óþh Dalvík: Bfll eyðilagðist í eldi I gærmorgun kviknaði í bif- reiðið á Dalvík. Að sögn lögreglunnar á Dalvík eyðilagðist bifreið af Citroen gerð, þegar eldur braust út í henni. Bifreiðin var af árgerð 1988 og ekki er vitað um hvers vegna eldur losnaði í henni. ój í samstarfsnefndinni eiga sæti fulltrúar héraðsnefndar Vestur- Húnvetninga, héraðsnefndar Austur-Húnvetninga, héraðs- nefndar Skagfirðinga, Siglufjarð- arkaupstaðar og Iðnþróunarfé- lags N-vestra. Ætlunin er að nefndin vinni að málinu sam- eyri. í bréfi til forsætisráðherra setti samstarfsnefndin fram hugmynd- ir um framgang málsins. Lögð er í fyrsta lagi áhersla á mikilvægi þess að Áburðarverksmiðjan verði byggð upp á N-vestra, komi til þess að hún verði flutt frá Gufunesi. Þá er hugmyndinni um stofnun sjóðs til þess að styðja við starfandi fyrirtæki í héraðinu velt upp. Unnur Kristjánsdóttir, iðnráð- gjafi Iðnþróunarfélags N-vestra, segir að ljóst sé að mikið fjár- magn sé í veltu í Húnavatnssýsl- um, einkum Blönduósi, vegna virkjunarinnar. „Það er ljóst að það verður samdráttur í atvinnu- tækifærum. En hræddust er ég við hrun hjá Kaupfélagi Húnvetn- inga, sem hefur kannski 10-15% af veltu vegna virkjunarinnar, og fleiri þjónustuaðilum," sagði Unnur. Hún sagði að mikilvægt væri að t.d. kaupfélagið ætti þess kost að kaupa einhverskonar fram- leiðslu, sem kæmi í stað þeirrar veltu sem það tapaði við lok framkvæmdanna við Blöndu. „Mér dettur líka í hug að rækju- vinnslan fengi aðgang að fjár- magni til þess að fara út í frekari fullvinnslu,“ sagði Unnur. óþh Hugmynd að sumarbústaðalandi í Svarfaðardal: 16 sumarbústaðir í landi Laugahlíðar ,Þetta er á tillögustigi og ekki frágengið enn. Hreppsnefnd leggur hins vegar til við þá aðila sem um þetta þurfa að fjalla að þarna verði sumar- bústaðaland,“ segir Björn Þór- leifsson, oddviti Svarfaðardals- hrepps um tillögu að sumar- bústaðasvæði í Laugahlíð í Svarfaðardal sem unnin hefur verið að undanförnu. Samkvæmt tillögunni verða 16 sumarbústaðir á þessu svæði. Björn segist vonast til að umsókn fari til Skipulags ríkisins snemma á sumrinu og ef afgreiðsla máls- ins gangi hratt fyrir sig væri ekk- ert því til fyrirstöðu að einhverjar framkvæmdir gætu hafist á svæð- inu í sumar. Björn segir að ekki sé gert ráð fyrir að hreppurinn byggi bústað- ina heldur sjái um vegagerð og gangstíga en lóðir verði leigðar út til þeirra sem vilji byggja bústaði. „Þessi hugmynd er raun þannig að því meiri umsvif og hræringar sem eru í sveitarfélag- inu því meira líf,“ segir Björn. Björn segir að þegar hafi borið á áhuga nokkurra aðila á þessari sumarhúsabyggð, bæði einstakl- inga og félagasamtaka. „Ég held því að vandamálið verði ekki að leigja út lóðir. Málið ætti að geta gengið hratt fyrir sig enda er þetta inni á svæðisskipulagi Eyjafjarðar,“ segir Björn. JÓH Fiskiðja Raufarhafnar: „Bijálað að gera 66 Rauðinúpur, togari Jökuls hf. á Raufarhöfn, er nú á veiðum en hann landaði síðast á fisk- markaðinum í Hafnarfirði. Atlanúpur hefur verið á rækju- veiðum síðan í mars en þó er nóg að gera hjá Fiskiðju Rauf- arhafnar því bátarnir hafa veitt vel að undanförnu. Sérstak- lega er mikið að gera í saltfiski. „Það er búið að vera brjálað að gera og unnið í Fiskiðjunni alla laugardaga og oft á kvöldin. Að vísu ekki í frystihúsinu heldur í saltfisknum. Við höfum líka ver- ið að ganga frá uppsöfnuðum saltfiskbirgðum,“ sagði Haraldur Jónsson, útgerðarstjóri Jökuls. Mikill kraftur hefur hlaupið í fiskvinnsluna á Raufarhöfn með auknum bátaafla og þá er Rauði- núpur væntanlegur inn til löndunar á næstunni. Það var því gott hljóð í Haraldi enda hefur verið mikið að gera og ekki fallið úr dagur í vinnslunni. SS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.