Dagur - 14.06.1990, Síða 1

Dagur - 14.06.1990, Síða 1
73. árgangur____________Akureyri, fimmtudagur 14. juní 1990 111. tölublað þaó hressir UratJrt J;aH«ð íbúar sveitarfélaganna framan Akureyrar í miðri kosningalotu: Þrennar kosn- ingar á einu ári? Svo gæti farið að íbúar í sveit- arfélögunum framan Akureyr- ar þyrftu að ganga þrisvar að kjörborðinu á einu ári. Verði sameining sveitarfélaganna þriggja samþykkt í kosningum, sem væntanlcga fara fram næsta vetur, þarf að kjósa á ný í sveitarstjórn hins sameinaða sveitarfélags. Fram hefur komið að búið er að velja fulltrúa Hrafnagils- hrepps í svokallaða sameiningar- nefnd sem vinna mun að sam- einingarmálinu á næstunni. í skoðanakönnun samhliða nýaf- stöðnum sveitarstjórnarkosning- um kom fram mikill vilji íbúanna til sameiningar Hrafnagilshrepps, Öngulsstaðahrepps og Saur- bæjarhrepps. Sérstök nefnd sem sæti eiga í tveir fulltrúar frá hverju þessara sveitarfélaga mun fara yfir öll atriði sem tengjast sameiningunni og að þeirri vinnu lokinni boða til kosninga um hvort sameina á SVeitarfélögin eða ekki. Fulltrúar hinna sveitar- félaganna tveggja verða væntan- lega valdir á hreppsnefndarfund- um í kvöld og annað kvöld. Húnbogi Þorsteinsson í félags- málaráðuneytinu segir að frum- kvæðið í þessu máli sé hjá heima- mönnunum sjálfum og muni ráðuneytið ekki hafa bein afskipti af málinu en leggja til þá aðstoð sem sameiningarnefndin kunni að óska eftir. „Við komum þó að líkindum meira inn í þetta mál á seinni stigum en heimamenn ráða því hvenær kosið verður um samein- ingu. Á slíkri kosningu eru engin tímamörk en hún er ekki dregin lengi ef mönnum sýnist góð samstaða um málið,“ segir Hún- bogi. Þar sem um er að ræða fjöl- mennt sveitarfélag sem gæti orð- ið til við sameininguna er ekki heimild í lögum til að mynda nýja sveitarstjórn án þess að boða til kosninga. „Ef íbúar þessara sveitarfélaga samþykkja að sam- eining taki gildi um t.d. næstu áramót eða á miðju næsta ári þá sýnist mér óhjákæmilegt að boð- að verði til nýrra kosninga í sveit- arstjórn á næsta vetri,“ Húnbogi. Fyrstu skemmtiferðaskip sumarsins, Maxím Gorkí og Kazakstan, komu til Akureyrar um hádegisbil í gær. Að vonum fylltist miðbær Akureyr- ar af ferðafóki, en þeir sem ekki gerðu sér bæjarrölt að góðu fóru austur í Mývatnssveit í stutta skoð- unarferð. Myndir. ehb ÖxarQarðarheiði og Hólssandur: senn Mokstur er hafinn á Öxar- ijarðarheiði og Ilólssandi og að sögn Guðna Oddgeirs- sonar hjá Vegagerð ríkisins á Þórshöfn er vonast til að vegirnir verði orðnir jcppa- færir urn helgina. Útlitið var ekki gott á þess- um fjallvegum, eins og Dagur greindi nýlega frá, en Guðni sagði að ráðist hefði verið í mokstur bæði á Öxarfjarðar- heiði og Hólssandi og nú væri útlit fyrir að þessir vegir yrðu jeppafærirumnæstuhelgi. SS Lítið bólar á nýjum kjarasamningum sjómanna: Öllu ýtt jafnóðum út af borðinu - sáttasemjari boðar til samningafundar næsta þriðjudag „A síðasta sáttafundi var skip- uð undirnefnd sem skilað hef- ur af sér nægu verki til þess að sáttasemjari hefur boðað til samningafundar næsta þriðju- dag. Þrátt fyrir að nánast ekkert hafi gengið í þessum samningamálum hef ég trú á að eitthvað gerist á þeim fundi,“ segir Konráð Alfreðs- son, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, um stöðuna í samningamálum sjómanna en samningar hafa verið lausir frá síðustu áramótum án þess að nokkuð hafi færst í samkomu- lagsátt. „Útgerðarmenn vilja ekkert við okkur ræða. Þeir setjast að borði með okkur en ýta öllu jafn- óðum út af borðinu strax í byrjun samningafunda. Það fást engir hlutir ræddir,“ segir Konráð. Nánast öll félög innan Sjó- mannasambands íslands hafa, að sögn Konráðs, aflað sér heimild- ar til verkfallsboðunar. Hins veg- ar hafa fjögur af þessum félögum afhent samninganefnd Sjómannasambandsins umboð til verkfallsboðunar. Þeirra á meðal eru Sjómannafélag Eyjafjarðar og Sjómannafélagið Jötunn í Vestmannaeyjum. „Önnur félög voru ekki tilbúin til að fara í verkfall," segir Kon- ráð og tekur undir að skilja megi sem svo að á svæðum þessara félaga sé mesta krafan um nýja Fræðsluskrifstofa Norðurlands vestra: Fáir sækja í kennarastarfið - þrjár skólastjórastöður í boði Um fjórðungur af kennara- stöðum í Norðurlandsumdæmi vestra hefur verið auglýstur laus til umsóknar nú í vor, en nokkuð erfitt er að gera sér grein fyrir því um hversu marg- ar stöður er að ræða því kennsluhlutföll eru mjög mis- munandi. Um 200 kennara- stöður eru í fræðslu- umdæminu. Guðmundur Ingi Leifsson fræðslustjóri Norðurlandsum- dæmis vestra segir að umsóknar- frestur um kennarastöður se útrunninn, en eftirspurn nú sé sýnu minni en fyrir ári og til sumra skólanna hefur varla borist fyrirspurn eða umsókn. Skólarnir á landsbyggðinni eru í síharðn- andi samkeppni við skólana á höfuðborgarsvæðinu, og algengt er að kennarar sæki fyrst um stöðu í Reykjavík áður en atvinnumöguleikar á landsbyggð- inni eru skoðaðir, og þá oft eftir afsvar á höfuðborgarsvæðinu. Slíkar umsóknir berist því oft ekki fyrr en upp úr miðjum ágústmánuði. Guðmundur segir að hugsan- lega séu umsóknir fleiri, en frá- farandi skólanefndir gangi marg- ar hverjar ekki frá umsóknum, heldur ætli nýjum skólanefndum það starf. Þrjár skólastjórastöður eru nú auglýstar lausar til umsóknar í fræðsluumdæminu; þ.e. á Hofs- ósi, Hólum og í Varmahlíð, en skólastjórastaðan í Varmahlíð verður aðeins veitt til eins árs, þar eð Páll Dagbjartsson skóla- stjóri er í ársleyfi. GG samninga fyrir sjómenn og mest- ur hugur í sjómönnum til aðgerða. „Fiskverðið er það lægsta í landinu hér og það skap- ar auðvitað óánægju sem tengist samningunum. Vestmanneying- arnir hafa á hinn bóginn betri tekjur en vilja einfaldlega Ijúka þessari óvissu. Óvissan er mjög slæm og betra væri að gengið væri hreint til verks og þessu yrði slitið núna heldur en halda áfram á sömu nótum og verið hefur undanfarið. Menn þola ekki svona vinnubrögð," sagði Konráð. JOH Málefnasamningur bæjarstjórnar Blönduóss: Ahersla á fjár- og atviimumál Nýkjörin bæjarstjórn Blöndu- óss kom saman til fyrsta fundar sl. þriðjudag. Kynntur var málefnasamningur meirihlut- ans og kosið í embætti forseta og bæjarráð. Kosið verður í nefndir og önnur embætti á næsta bæjarstjórnarfundi. Ófeigur Gestsson verður áfram bæjarstjóri á Blönduósi. Pétur A. Pétursson var kjörinn forseti bæjarstjórnar, Páll Elíasson 1. varaforseti og Unnur Kristjánsdóttir 2. varaforseti. í bæjarráð voru kjörnir aðalmenn Óskar Húnfjörð af D-lista, Vil- hjálmur Pálmason af H-lista og Guðmundur K. Theodórsson af K-lista. Varamenn bæjarráðs verða Páll Elíasson, Sigrún Zophaníasdóttir og Unnur Krist- jánsdóttir. Bæjarráð kemur sam- an til fyrsta fundar í dag og skipt- ir með sér verkum og nánast öruggt er að Óskar Húnfjörð verði formaður bæjarráðs. Að sögn Ófeigs Gestssonar, bæjarstjóra, verða hefðbundin m 1 sett í forgangsverkefni fyrir þt ta kjörtímabil. Fyrir það fyrsta verða það fjármál og síðan koma atvinnumál, hafnarmál, íþrótta- og skólamál og umhverf- ismál. Lögð verður áhersla á að koma upp brynvarnargarði í höfninni og tryggja áfram stöðugt atvinnulíf að lokinni Blöndu- virkjun. Ófeigur sagði að að loknum virkjunarframkvæmdum muni vanta atvinnutækifæri fyrir 50-60 manns. Lagt verður kapp á að klára innréttingu íþróttamiðstöðvar- innar á Blönduósi, efla ferða- málaþáttinn í bæjarfélaginu og huga áfram að umhverfismálum í tengslum við endurskoðun aðal- skipulags bæjarins. Eitt af markmiðum meirihlut- ans í bæjarstjórn er að tryggja lausafjárstöðu bæjarsjóðs þannig að reksturinn skili fjármunum til framkvæmda. Þá stefnir meiri- hlutinn að því að gera stjórnun í ýmsum deildum bæjarins mark- vissari og forstöðumenn þeirra ábyrgari en verið hefur. -bjb

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.