Dagur - 14.06.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 14. júní 1990
fréttir
Samkomulag meiriMutaflokkanna
í bæjarstjóm Akureyrar
Bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæðisflokks hafa
náð samkomulagi um myndun
meirihluta í bæjarstjórn Akur-
eyrar. Samkomulagið byggir á
stefnuskrám flokkanna og mál-
efnasamningi þeim sem hér
fylgir.
Bæjarstjóri verður Halldór
Jónsson. Forseti bæjarstjórnar
verður 1990 af G-lista, 1991 af D-
lista, 1992 af G-lista og 1993 af
D-lista. Formaður bæjarráðs
verður 1990 af D-lista, 1991 af G-
lista, 1992 af D-lista og 1993 af
G-lista.
Atvinnumál
Meginverkefni bæjarstjórnar er
að leita allra tiltækra leiða til að
efla atvinnulíf á Akureyri á kom-
andi árum. í því skyni verður
m.a. unnið að eftirfarandi verk-
efnum.
Teknar verði upp viðræður við
stjómvöld, sameignaraðila og
stjórn Landsvirkjunar um sölu á
eignarhluta Akureyrar í Lands-
virkjun. Peir fjármunir sem
þannig fást skulu nýttir til lækk-
unar á skuldum Hitaveitu Akur-
eyrar og til nýsköpunar í atvinnu-
lífi. Þar skal sérstaklega vinna að
því að auka hlutdeild Akureyrar
í sjávarútvegi og að efla Háskól-
ann á Akureyri.
Hlutverk og verksvið Iðnþró-
unarfélags Eyjafjarðar verður
endurskoðað í samvinnu við aðra
hluthafa og metið hvort ástæða sé
til breytinga á verkefnum þess.
Sérstakur starfsmaður skal
ráðinn til þess að vinna að
atvinnumálum á vegum atvinnu-
málanefndar.
Verði gerðir samningar um
byggingu álvers á íslandi eru
flokkarnir sammála um að hættu-
legt væri, vegna byggðaröskunar,
að slíkt stórfyrirtæki yrði sett nið-
ur við Faxaflóa.
Áfram verði haldið samvinnu
við önnur sveitarfélög í Eyjafirði
um þetta mál og verði umhverfis-
sjónarmiða þar sérstaklega gætt.
Tekjuöflun og
þjónustugjöld
Á kjörtímabilinu skulu tekju-
stofnar bæjarins, aðstöðugjald,
fasteignagjöld og útsvar - nýttir
með sambærilegum hætti og við
gerð fjárhagsáætlunar 1990.
Gjalddögum fasteignagjalda
verði fjölgað í átta.
Þjónustugjöld taki breytingum
í samræmi við verðlagsbreyting-
ar, en haldist að öðru leyti
óbreytt frá því sem nú er.
Flokkarnir eru sammála um að
vinna sérstaklega að eftirtöldum
verkefnum á komandi kjörtíma-
bili:
- íbúða- og þjónustukjarna, hlið-
stæðan þeim sem nú er að rísa
við Víðilund, skal byggja í
samvinnu við Félag aldraðra.
- Heimaþjónusta verður aukin og
fleiri öldruðum gefinn kostur á
dagvistun.
- Átak skal gert í fegrun mið-
bæjarins og Strandgatan end-
urbyggð.
- Sérstök áætlun um lagningu
göngu- og hjólreiðaleiða um
bæinn skal gerð og henni
hrundið í framkvæmd.
- Uppbygging fráveitukerfisins
verður hafin og grófhreinsistöð
tekin í notkun.
- Sorphirða skal tekin til endur-
skoðunar með það í huga að
flokka sorp og endurvinna
það, draga úr mengunarhættu
og koma í veg fyrir náttúru-
spjöll.
- Áfram skal haldið gerð reið-
vega um bæjarlandið og að-
staða í hesthúsahverfum bætt.
- Sundaðstaða verði stórbætt:
Unnið að uppbyggingu sund-
laugarsvæðisins við Þingvallar-
stræti, m.a. með byggingu
barnalaugar og heitum pottum
verið komið fyrir við sundlaug
í Glerárhverfi.
- Endurskipulagningu veitu-
stofnana skal haldið áfram
með það í huga að sameina
verkefni þeirra enn meir.
- Samfelldum skóladegi verði
komið á og gerðar nauðsynleg-
ar ráðstafanir í því skyni.
- Byggður verði skóli í Gilja-
hverfi.
- Ný framkvæmdaáætlun um
byggingar, endurbætur og lóðir
skólanna skal gerð og eftir
henni unnið.
- Uppbyggingu Verkmennta-
skólans og Menntaskólans
verði haldið áfram í samvinnu
við stjórnvöld.
- Háskólinn á Akureyri skal
studdur af alefli til að auka
námsframboð og rannsóknir.
Bærinn kosti kapps um að
stofnanir sjávarútvegsins teng-
ist háskólanum þannig að
Akureyri verði miðstöð sjávar-
útvegs í landinu.
- Fargjöld barna með Strætis-
vögnum Akureyrar skulu mið-
uð við skólaskyldu og tekin
upp sérfargjöld fyrir fram-
haldsskólanema og þá aðra
sem mest nota vagnaná-
- Æskulýðsstarf verði í öllum
skólahverfum bæjarins og
áhersla lögð á góða samvinnu
við skólana um þau mál.
- Dvalartími á dagvistum verði
sveigjanlegri og þær opnaðar
börnum yngri en tveggja ára.
- Komið verði upp skóladag-
heimili utan Glerár og byggðar
dagvistir með það að markmiði
að fullnægja dagvistarþörf.
- Hafist verði handa um við-
byggingu við Amtsbókasafnið
og reynt að fá stjórnvöld til að
leggja fjármuni á móti Akur-
eyrarbæ í slíka menningarmið-
stöð.
- Akureyrarbær styðji þau áform
að gera Grófargil að miðstöð
lista í bænum.
- Eldri húsum í eigu bæjarins
skal komið í viðunandi horf.
- Byggingu félagslegra íbúða
skal haldið áfram og m.a.
byggðar 10 leiguíbúðir á ári og
möguleikar þessa kerfis nýttir í
þágu aldraðra og öryrkja.
- Undirbúningi að byggingu
náttúrufræðistofnunar og
gagnasafns verði fram haldið í
samvinnu við stjórnvöld.
- Stutt verði við byggingu fleiri
stúdentaíbúða og þrýst á að
byggð verði heimavist fyrir
nemendur framhaldsskóla.
Bókun:
Bæjarfulltrúar Alþýðubandalags-
ins ítreka forsendur flokksins fyr-
ir uppbyggingu stóriðju á íslandi:
að tryggja verði þjóðhagslega
hagkvæmni, ótvírætt forræði
íslendinga og að umhverfi sé ekki
stefnt í hættu vegna mengunar.
Háskólinn á Akureyri:
Um 20 stódenta
mun vanta
húsnæði
Háskólinn á Akureyri auglýsti
á dögunum eftir leiguhúsnæði
fyrir stúdenta, í samvinnu við
Húsnæðismiðlun náinsmanna.
Að sögn Ólafs Búa Gunn-
iaugssonar, skrifstofustjóra
HA, bárust 10-15 fyrirspurnir
frá eigendum leiguhúsnæðis á
Akureyri. Nú er nokkuð Ijóst
að þegar búið verður að fylla
stúdentagarðana, sem eru
með 34 pláss, vanti um eða yfir
20 stúdenta húsnæði, miðað
við þær umsóknir sem hafa
borist um skólavist næsta
vetur.
„Umsóknarfrestur um stúd-
entagarðana rennur út 20. júní
og eftir þann tíma getum við far-
ið að leiða saman húseigendur og
tilvonandi leigjendur," sagði
Ólafur Búi.
Hluti af stjórn Félagsstofnunar
stúdenta fundaði í gær um hús-
næðismál stúdenta við Háskól-
ann á Akureyri og fór yfir þær
fyrirspurnir sem bárust. „Það
verður ekkert ákveðið fyrr en eft-
ir 20. júní. Það má fastlega gera
ráð fyrir að út úr þessari húsa-
leigumiðlun komi einhver bunki
af herbergjum og íbúðum sem
Félagsstofnun stúdenta hefur-
milligöngu um leigu á,“ sagði
Ólafur Búi.
Annars veltur þetta einnig á
aðsókn að skólanum. Umsóknar-
frestur um skólavist næsta vetur
rann út 1. júní sl. og er búið að
svara flestum umsóknunum.
Nemendur þurfa að staðfesta
umsóknir sínar fyrir lok mánað-
arins, misjafnt þó eftir brautum,
og sagði Ólafur Búi að þá tækju
húsnæðismálin á sig endanlega
mynd. -bjb
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Hrefna Hjálmarsdóttir,
forstöðumaður Brekkukots,
hefur fengið 42 þúsund króna
styrk úr fræðslusjóði til þess
að kynna sér starfsemi skóla-
dagheimila í Randers í Dan-
mörku dagana 17.7.-7.8. nk.
■ Á síðasta fundi íþróttaráðs
lagði Halldór Jóhannsson,
landslagsarkitekt, fram hug-
myndir að áfangaskiptingu við
nýframkvæmdir við Sundlaug
Akureyrar. íþróttaráð fói
Halldóri að vinna áíram að
nánari útfærslu og kostnaðar-
áætlun raiðað við framlagðar
hugmyndir að áfangaskipt-
ingu. , :
■ Hcilbrigðisfulltrúi Akur-
eyrarbæjar mun loka Iðavöll-
um verði ekki gerðar endur-
bætur á húsnæði dagvistarinn-
ar fyrir næsta vetur. Á fundi
félagsmálaráðs 14. maí sl. var
dagvistarfulltrúa falið að láta
gera kostnaðarúttekt á hús-
næði dagvistarinnar hið bráð-
asta.
■ Félagsmálaráð gerir að til-
lögu sinni að ný dagvíst í Þver-
holti, sem tekur til starfa í
ágúst nk., beri heitið Holta-
kot.
■ Á fundi félagsmálaráðs 5.
júní sl. var kynntur undir-
skriftalisti frá íbúum á Oddeyri
vegna fyrirhugaðrar byggingar
leiguíbúðar að Ægisgötu 30.
Fram kemur í bókun félags-
málaráðs að Guðrúnu Sigurð-
ardóttur hafi verið falið að
ræða við íbúana um þessi mál,
verði þess óskað, en hins veg-
ar standi fyrri ákvörðun fé-
iagsmálaráðs um úthlutun
íbúðarinnar óbreytt.
■ Erla Hrönn Jónsdóttir hef-
ur tekið til starfa sem félags-
ráðgjafi við Félagsmálastofn-
un Akureyrarbæjar.
■ Fólagsmálaráð hefur sam-
þykkt að ráða Kari Mette
Johansen í 50% starf yfir-
fóstru á Lundarseli. Þá sam-
þykkti félagsmálaráð uppsögn
Sigríðar Gísladóttur, for-
stöðumanns, og Sigrúnar
Jónsdóttur, yfirfóstru, er
störfuðu á Iðavöllum. Upp-
sögn þeirra tók gildi 1. júní sl.
■ Atvinnumálanefnd ítrekar
áhyggjur sínar vegna flutnings
hiuta æðstu stjórnunarstarfa
Álafoss hf. frá Ákureyri suður
í Mosfellsbæ. Formaður
atvinnumálanefndar upplýsti á
fundi nefnarinnar nýverið að í
heimsókn til höfuðstöðva Ála-
foss hf. hafi komið fram að
stjórn fyrirtækisms hafi þegar
samþykkt flutning hluta
stjórnunarstarfa.
■ Atvinnumálanefnd hefur
samþykkt 50 þúsund króna
styrk vegna fundar um stór-
iðjumál í Sjallanum.
Akureyri:
Skipulagsdeildin
á hrakhólum?
vegna húsnæðisvanda Tónlistarskólans
Stjórn Tónlistarskólans a
Akureyri hefur farið fram á
afnot af hluta neðstu hæðar-
innar í Hafnarstræti 81b, en
sem kunnugt er hefur skipu-
lagsdeild Akureyrarbæjar
verið þar til húsa. Tónlistar-
skólinn á í miklum húsnæðis-
erfíðleikum og fer fram á
lausn mála fyrir haustið.
Að sögn Stefáns Stefánsson-
ar, bæjarverkfræðings, liggur
lausn málsins ekki fyrir og ekki
verið tekin ákvörðun um hvort
skipulagsdeildin verður að víkja
og þá hvert. Hafnarstræti 81 b er
í eigu Akureyrarbæjar þannig
að það verður verkefni nýrrar
bæjarstjórnar að útvega skipu-
lagsdeildinni húsnæði ef hún
verður að víkja fyrir Tönlistar-
skólanum.
Kjörbúð KEA, Sunnuhlíð 12
Ódýrt
Úr kjötborðinu
beint á grillið:
Svínakjöt,
lambakjöt,
folaldakjöt,
nautakjöt.
RC cola IV2 99
Sinalco IV2 99
Egils að sjálfsögðu
Sanitas
pilsner
6 í pakka 250
Beirxt úr ofninum:
Grillaðir kjúklingar
Opið
frá kl. 9-20
frá mánudagi til föstudags.
Laugardag
kl. 10-20.
,597 kr. stk.
íslensk grillkol 188 kr.