Dagur - 13.07.1990, Side 10
10 - DAGUR - Föstudagur 13. júlí 1990
Rut Sverrisdóttir keppir í átta greinuni á Heimsleikununt. Mynd: KL
Sund:
Rut Sverrisdóttir á
Heimsleika fatlaðra
- í Assen í Hollandi
Rut Sverrisdóttir frá Akureyri
er nú á leiðinni til Hullands,
þar sem hún tekur þátt í
Heimsleikum fatlaðra í sundi.
Mótið er haldið í borginni Ass-
en og hefst það næstkomandi
laugardag og lýkur ekki fyrr en
miðvikudaginn 25. júlí.
Þetta mót er geysilega um-
fangsmikið og eru keppendur um
2.500 talsins, þar af 8 frá íslandi.
Rut hefur æft sund í fjögur ár
og hún hefur sennilega nóg fyrir
stafni í Hollandi því hún sagðist'
ætla að keppa í átta greinum í
mótinu.
Eins og gefur að skilja fylgir
því heilmikill kostnaður að taka
þátt í svona stóru móti en Rut
sagði að fjöldi fyrirtækja og fé-
lagasamtaka, með Stöð 2 og Visa
ísland í broddi fylkingar, hefðu
styrkt íslensku keppendurna til
fararinnar en þeir þyrftu þó að
greiða um 9.000 krónur úr eigin
vasa.
Eins og áður sagöi, þá hefst
mótið á laúgardaginn og stendur
yfir í tólf daga. -vs
Hörpudeildin:
Semni umferð af stað
KA-Víkingur og Stjarnan-Þór
Fyrri umferð Hörpudeildar-
innar í knattspyrnu er nú lokið
íþróttir
Knattspyrna
Föstudagur 1. deild kvenna: KA-KR kl. 20
Laugardagur 1. deild kvenna:
Þór-KR kl. 16
Mánudagur 1. deild karla:
KA-FH kl. 20
Stjarnan-Þór kl. 20
Golf
Laugardagur
Akureyri:
Opna Mitshubishi mótið.
Sunnudagur
Akureyri:
Opna Mitshubishi mótið.
og um helgina hefst sú síðari
með leikjum IA og Vals á
Akranesi á laugardag og Vík-
ings og KR á Víkingsvelli á
sunnudag. Á mánudaginn
verða svo þrír leikir, KA fær
FH í heimsókn, Þórsarar mæta
nýliðum Stjörnunnar í Garða-
bæ og Fram fær Vestmannaey-
inga í heimsókn.
Leikur KA og FH hefst á
Akureyrarvelli kl. 20 á mánu-
dagskvöldið. Staða íslandsmeist-
aranna er ekki glæsileg, þeir sitja
einir í neðsta sæti deildarinnar
eftir fyrri umferðina með 7 stig.
FH-ingar eru um miðja deild
með 12 stig. FH sigraði 1:0 í fyrri
leik liðanna sem fram fór í Hafn-
arfirði og má búast við að KA-
menn hyggi á hefndir.
Þórsarar töpuðu fyrir Stjörn-
unni í vor en mikill stígandi hefur
verið í liðinu síðan. Það er þó
enn í fallsæti en Stjarnan hefur
komið á óvart og er í 7. sæti með
11 stig. Verður fróðlegt að sjá
hvað Þórsarar gera í Garðabæn-
um á mánudagskvöldið.
Meistarmót Ólafsijarðar í golfi:
Matthías fór holu í höggi
- í fyrsta sinn sem Ólafsfirðingur vinnur það afrek
Meistaramót Ólafsfjarðar í
golfi fór fram fyrir nokkru.
Þátttaka í mótinu var dræm,
aðeins 11 keppendur mættu til
leiks, en golfvertíðin hefur far-
ið illa af stað í firðinum þar
sem völlurinn kom seint undan
snjó. Leiknar voru 36 holur.
Einn keppandi fór holu í höggi
á mótinu, Matthías Sigvalda-
son á 8. braut, og er það í
fyrsta sinn sem Ólafsfirðingur
vinnur það afrek.
Keppendur léku í þremur
flokkum en meistaraflokkur er
enginn í Ólafsfirði þar sem eng-
inn hefur nægilega lága forgjöf.
Sigurvegari í 1. flokki varð Matt-
hías Sigvaldason á 156 höggum
en annar varð Sigurbjörn Jakobs-
son á 173 höggum.
í 2. flokki sigraði Gísli Frið-
finnsson á 175 höggum, Þröstur
Sigvaldason varð annar á 183
höggum og Sævar Reynir Sig-
valdason þriðji á 190 höggum.
í þriðja flokki sigraði Gísli
Helgason á 217 höggum en
Trausti Gylfason varð annar á
247 höggum.
Eins og fyrr segir fór Matthías
Sigvaldason holu í höggi á 8.
braut. Sú braut er stutt, aðeins
120 metrar, og notaði Matthías
níujárn við draumahöggið.
Nú keppast kylfingar við
að fara holu í höggi
- tryggir aðgang að Smirnoff-klúbbi
Heublein Europe Ltd. í Lund-
únum, framleiðandi þess
þekkta Smirnoff vodka, hefur
ákveðið að bjóða öllum
íslenskum golfleikurum, sem
verða svo lánsamir að slá holu
í höggi, að gerast félagar í
SMIRNOFF Hole-in-One-
klúbbnum.
Inngönguskilyrði eru þau að
slá hölu í höggi á heilum hring á
viðurkenndum íslenskum golf-
velli og tilkynna það til Smirnoff-
umboðsins á íslandi. Staðfesting
þarf að fylgja frá meðleikara og
vallarstjóra eða framkvæmda-
stjóra viðkomandi golfklúbbs
ásamt upplýsingum um kylfu-
stærð.
I frétt frá Smirnoff-umboðinu
segir að frásögn af hverju afreki
verði birt á „Hole-in-One“-síðu
skoska golfblaðsins Golf World.
Auk þess fái viðkomandi kylfing-
ur skrautskrifað staðfestingar-
skjal frá klúbbnum og persónu-
legt klúbbnumer.
1 hverjum mánuði verða öll ný
nöfn á „Hole-in-One“-síðunni
sett í pott og dregið út nafn eins
keppanda sem fær senda heim
Sovétmaðurinn sem ætlaði að
leika með körfuknattleiksliði
Tindastóls á næsta keppnis-
tímabili er nú hættur við það
og segja sögurnar að hann ætli
til Spánar.
Að sögn Margeirs Friðriksson-
ar, hjá körfuknattleiksdeild
Tindastóls, kom þetta algjörlega
tlatt upp á menn. Þegar Lazlo
Nemeth landsliðsþj álfari, sem
verið hefur milligöngumaður í
málinu, var kominn út til Kiev til
að láta leikmanninn skrifa undir
neitaði hann að undirrita samn-
þriggja lítra flösku af Smirnoff-
vodka. Sé sigurvegarinn yngri en
20 ára fær hann önnur verðlaun,
jafngild. óþh
mginn.
Nemeth hefur bent á annan
Rússa sem nú er að fara í prufu
hjá frönsku liði og ef að Frakk-
arnir vilja hann ekki getur hann
komið til Tindastóls. Margeir
sagði sarnt að ekki væri hægt
að treysta á það, svo að nú sé
verið að hafa samband við hinn
tékkneska þjálfara Tindastóls og
láta hann athuga hvort hann geti
ekki komið með traustan Tékka
með sér í ágústbyrjun. „Ef allt
annað bregst verður stefnan
tekin á Bandaríkjamarkað,“ segir
Margeir Friðriksson. SBG
Körfuknattleikslið Tindastóls:
Rússínn klíkkaði
- neitaði að undirrita
Golf:
Mitshubishi Open um helgina
- kylfmgum gefst nú kostur á gistingu að Jaðri
Gisting á golfvellinum
Reikna má með mikilli þátt-
töku í Opna Mitshubishi mót-
inu sem fram fer hjá Golf-
klúbbi Akureyrar á Jaðarsvelli
um næstu helgi, 14. og 15. júlí.
Keppt verður í karla-, kvenna-
og unglingaflokki og leiknar 36
holur bæði með og án forgjaf-
ar.
Þetta er síðasta mótið á Jaðars-
velli fyrir Landsmót sem hefst 26.
júlí og heyrst hefur um mikla
þátttöku kylfinga víðsvegar af
landinu sem vilja nota tækifærið
og leika völlinn fyrir sjálft Lands-
mótið.
Það er Höldur sf. sem gefur öll
verðlaun til mótsins að venju og
eru þau ekki af lakara taginu.
Sama má segja um aukaverð-
launin en þar ber að sjálfsögðu
hæst bifreið af gerðinni Mitshu-
bishi Galant 1600 GL, árgerð
1990 sem hlotnast þeim er tekst
að fara holu í höggi. Ekki eru
nema þrjár vikur síðan það afrek
var unnið á 6. braut vallarins, í
Arctic Open mótinu, og þá hlaut
sá heppni bifreið í verðlaun.
Vegna fyrirsjáanlegrar mikillar
þátttöku er kylfingum bent á að
skrá sig í tíma og í síðasta lagi
fyrir kl. 18 nk. föstudag. Rástím-
ar munu liggja fyrir kl. 21 þá um
kvöldið.
Kylfingum gefst nú kostur á gist-
ingu á golfvellinum að Jaðri. Þar
hafa verið sett niður lítil hús með
tveggja manna herbergjum og er
leiga fyrir hvert herbergi 2500 kr.
á sólarhring. í húsunum eru
sturtur, snyrting, setustofa og
geymslur. Þessi hús verða stað-
sett á golfvellinum uns golfvertíð
lýkur í haust og er hægt að fá
nánari upplýsingar hjá Golf-
klúbbi Akureyrar í síma 96-
22974.
Skúli Ágústsson hjá Höldi sf. viö bifreiðina góðu sem menn geta eignast með
því að fara holu í höggi.