Dagur - 13.07.1990, Blaðsíða 12
DACKTR
Akureyri, föstudagur 13. júlí 1990
Fjölbreytt
kaffihlaðborð
alla sunnudaga frá kl. 15-17.
Hægt aö sitja úti ef veöur leyfir.
Fiskimjölsverksmiðja H.Ó. hf.:
Framleiðir tuttugu
tonn á sólarhring
Laxá í Aðaldal:
Risalaxar
Arni Steinsson frá Akureyri
hafði ærna ástæðu til að kætast
yfir veiði sinni í Laxá í Aðaldal
síðastliðinn þriðjudag.
Á myndinni hér að ofan heldur
hann á 20 og 17 punda hængum
sem hann fékk í Hagastraumi,
sem er neðst á veiðisvæði númer
5. Annar laxanna tók fluguna
Heary-Mary grey en minni laxinn
tók maðk.
Veiðimenn kættust margir
hverjir yfir batnandi veiði í gær
þó að mörgum þætti sólin heldur
sterk. Nánari fréttir af veiði-
mönnum er að finna í Veiði-
klónni á bls. 11. JÓH/Mynd:HBI
- keyptu 5 úr sér gengna bfla og hífðu um borð
Rússneskt skemmtiferðaskip
með tékkneska ferðamenn
lagði úr höfn frá Akureyri í
gær eftir nokkra viðdvöl. Aður
en skipið lagði af stað voru
lestaðir 5 bílar um borð sem
rússnesk áhöfn skipsins keypti
hér og þar í bænum. Þetta
voru gamlir Lödu-bílar og einn
Saab sem rússarnir keyptu og
var kaupverðið á bilinu 15-60
þúsund krónur.
í samtali við Dag sagði einn
áhafnarmeðlimur, Vladimir að
nafni, að þetta væru kostakaup
sem þeir gerðu. Löng bið er eftir
nýjum Lödum í Rússlandi og eru
þær full dýrar fyrir rússneskan
verkamenn. Vladimir var mjög
ánægður með bílinn scm hann
keypti, Lödu-sport, sem þurfti
aðeins smá lagfæringar til að telj-
ast ökufær.
Skemmtiferðaskipið Estonia
var með 140 Tékka um borð og
að sögn Gísla Jónssonar, hjá
Ferðaskrifstofu Akureyrar, sem
tók á móti skipinu, voru þeir að
feta í fótspor forseta sína í
Tékkóslóvakíu, Vaclavs Havels.
Estonia kom fyrst til Reykjavík-
ur, sigldi þaðan til ísafjarðar og
síðan til Akureyrar. Tékkarnir
fóru í skoðunarferðir um ná-
grenniö, m.a. fóru 40 manns til
Grímseyjar með flugi. Frá Akur-
eyri var siglt áleiðis til Seyðis-
fjarðar í gær og þaðan heim.
Þannig að meðan Tékkarnir
voru í skoðunarferðum í gær og
fyrradag, fóru nokkrir Kaupa-
Héðnar úr áhöfn skipins á stúf-
ana á Akureyri í leit að rússnesk-
um „eðalvögnum“ og óstaðfestar
heimildir blaðsins herma að þeir
hafi gengið svo langt að taka
rúðublöð ófrjálsri hendi af
nokkrum Lödu-bílum. Einnig
var eitthvað um það að Akureyr-
ingar reyndu að fá rússnesk
eðalvín frá borði fyrir lítið, en
með misjöfnum árangri þó. -bjb
Ljósmyndavörur hf. fengu lóðina Kaupvangsstræti 1:
„Þarf ekki allt að vera í Reykjavík“
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum sl. þriöju-
dag aö úthluta lóðinni Kaup-
vangsstræti 1 til handa Ljós-
myndavörum hf. í Reykjavík.
Ljósmyndavörur eru m.a. með
Fuji-umboðið á íslandi, en
hafa rekið dreifingar- og fram-
köllunarþjónustu á Akureyri
um nokkurt skeið.
Svæðisskipulag fyrir EyjaQörð í vinnslu:
Samstarfsnefnd samþykk tfllögum
Samstarfsnefnd um svæðis-
skipulag Eyjafjarðar samþykkti
á dögunum skipulagstillögur
þær sem búið var að leggja
fram, en ekki til staöfestingar
samgönguráðherra heldur sem
nokkurs konar viðmiðunar-
plagg. Næsta skref er að
endurskoða svæðisskipulagið
og skal þeirri vinnu vera lokið
innan 5 ára.
Frestur til að gera athugasemd-
ir við svæðisskipulagið rann
nýlega út fyrir stjórnir sveitarfé-
laganna og að sögn Benedikts
Björnssonar, starfsmanns Skipu-
Bjart yfir atvinnulífi á Blönduósi:
Hér er mikið að gerast
„Atvinnuástand gæti varla ver-
ið betra, veður gott og fram-
kvæmdir í fullum gangi. Allir
orðnir brúnir og krakkarnir í
óða önn við að vökva gras-
blettina sem eru að skrælna í
þurrkinum,“ segir Ofeigur
Gestsson, bæjarstjóri á
Blönduósi, um bæjarlífið.
Verið er að ljúka áfanga í
íþróttamiðstöðinni vegna Grunn-
skólans og er það kennsluaðstaða
sem þar er verið að byggja.
Kostnaður er um 20 milljónir.
Gatnaframkvæmdir eru töluverð-
ar, gangstéttargerð að verða lok-
ið og lagfæringar á bryggjunni
standa yfir. Þetta og margt fleira
sagði Öfeigur að væri um að
vera.
í útvarpinu heyrast nú oft aug-
lýsingar um Blönduósbæ og taldi
Ófeigur að umferð og áning hefði
eitthvað aukist um staðinn fyrir
vikið. Endurbætur hafa verið
gerðar á tjaldstæðinu og er þar
nú nær alltaf fjöldi tjalda. Einnig
virðist vera nokkuð um það að
menn stoppi og slái nokkur högg
á golfvelli bæjarins.
„Hér hafa allir nóg að gera sem
hafa heilsu og þrek til að vinna.
Ferðamenn eru fjölmennir og
mikið spurt um veiðileyfi í silung
í vötnunum hér í kring og sótt í
sundlaugina. Það má því segja að
hér sé mikið að gerast,“ voru orð
Ófeigs Gestssonar, bæjarstjóra,
þegar blaðið hafði tal af honum í
gær. SBG
lags ríkisins á Akureyri, voru
athugasemdir að berast fram á
síðustu stundu.
í samstarfsnefndinni eru m.a.
fulltrúar allra sveitarfélaga við
Eyjafjörð, nema Ólafsfjarðar,
Hríseyjar og Glæsibæjarhrepps.
Á umræddum fundi, þar sem
tillögurnar voru samþykktar, er
ekki um endanlega afgreiðslu
skipulagsins að ræða, heldur
nokkurs konar vinnuplagg fyrir
skipulagsstjóra ríkisins. Svæðis-
skipulagið verður endanlega
afgreitt þegar öll sveitarfélög
hafa lagt tillögurnar fram 'til sýnis,
þannig að nokkuð er í land þar til
skipulagið nær lokapunkti sínum.
Á svæðisskipulaginu, sem nær
yfir svæðið beggja megin Eyja-
fjarðar, yfir Vaðlaheiði og í
Fnjóskadal, er ekki gert ráð fyrir
nýjum byggðarkjömum á kom-
andi áratugum heldur reiknað
með stækkun flestra núverandi
þéttbýlisstaða. í skipulagstil-
lögunum má sjá nokkur ný
suinarbústaðalönd, útivistar-
svæði og úrbætur í samgöngumál-
um. -bjb
í samtali við blaðið sagði Gísli
Gestsson, forstjóri, að fyrirtækið
ætlaði að auka hlut sinn á lands-
byggðinni og hugmyndin væri að
koma upp miðstöð á Akureyri
fyrir Norður- og Austurland og í
Reykjavík yrði miðstöð fyrir
Suður- og Vesturland. „Við erum
með 22 framköllunarvélar út um
allt land og það er engin nauðsyn
að sinna þessu öllu frá Reykja-
vík. Það er ekki til það lögmál að
allt þurfi að vera í Reykjavík,"
sagði Gísli.
Samkvæmt skipulagi á að koma
all stórt hús á lóðinni Kaupvangs-
stræti 1. Það á að koma í nokkurs
konar stöllum, fyrst ein hæð aust-
an við Smiðjuna og síðan hækk-
andi eftir þar sem austar dregur,
eða þar til kemur á horn Kaup-
vangsstrætis og Drottningar-
brautar að húsið endar í 5 hæðum
nyrst, en lækkar til suðurs. Engar
teikningar hafa verið samþykktar
á þessari lóð, þannig að hér er
eingöngu um hugmynd að ræða.
En hvernig ætla Ljósmyndavörur
að nýta þessa lóð? Því svarar
Gísli Gestsson:
„Við höfum áhuga á að fá fleiri
aðila til samstarfs og að þarna
verði miðbæjarverslunarkjarni.
Þetta er það góður staður að það
er kjörið að hafa þarna fjölþætta
þjónustu sem sinnti jafnt ferða-
mönnuin sem bæjarbúum. Það
fylgdi því fullur hugur að sækja
um þessa lóð. Við viljum standa
vel að þessu þannig að það verði
staðnum til sóma.“ -bjb
Fiskimjölsverksmiðja Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar hf. hef-
ur á undanförnum vikum tekið
við allt að 500 tonnum af bein-
um og fiskhausum til bræslu.
Aíkastageta verksmiðjunnar
er um 100 tonn á sólarhring, og
er unnið allan sólarhringinn 5
daga vikunnar.
Beinin og hausarnir koma frá
Dalvík, Hrísey, Árskógsströnd,
Akureyri, Grenivík og Siglufirði,
en einnig hafa verksmiðjunni
borist bein frá Húsavík. Það eru
aðallega þrír aðilar sem sjá um
flutningana, Símon J. Ellertsson
og Ríkharður Sigurðsson frá
Dalvík, Ríkharður Sigurðsson
frá Árskógssandi og Hauganesi,
Símon J. Ellertsson frá Hrísey og
Sveinn Jónsson í Kálfsskinni frá
Akureyri.
Skemmtiferðaskip í Akureyrarhöfn:
Rússneskir Kaupa-Héðnar í bflabraski
Beinunum frá Akureyri,
Grenivík og Húsavík er safnað
saman í þró Krossanesverksmiðj-
unnar og ekið þaðan til Ólafs-
fjarðar eftir því sem þróarrými
leyfir.
Heimamenn sjá um akstur á
beinum frá Siglufirði, en þau fara
einnig til Sauðárkróks þar sem
aðstaða er til að taka við feit-
fisk, en mögru beinin fara aðal-
lega í verksmiðju S.R. á Skaga-
strönd.
Úr hverjum 100 tonnum af
beinum eru framleidd um 20 tonn
af mjöli sem aðallega fer á innan-
landsmarkað. GG
Ladan er eftirsótt eins og sést berlega í umferðinni á Fróni, enda gæðabíil á góðu vcrði. Það fínnst Sovétmönnum
a.m.k. og keyptu þeir nokkra bíla sem Akureyringar voru hættir að nota. Hér er verið að hífa farminn upp í
skemmtiferðaskip. Mynd: kl