Dagur


Dagur - 19.07.1990, Qupperneq 1

Dagur - 19.07.1990, Qupperneq 1
73. árgangur Akureyri, fímmtudagur 19. júií 1990 136. tölubiað „Bijáluð“ ufsaveiði að undanförnu Forsætisráðherra- hjón frá Iiechten- stein í heimsókn feaffið hressir Biuua við Grímsey Mikil ufsagengd virðist nú vera við Grímsey, og hafa bátarnir verið að fá mjög góðan afla undanfarna dag. Á mánudag og þriðjudag hefur löndun numið allt að 40 tonnum, en ufsinn er smár. M.a. landaði oddvitinn, Þorlákur Sigurðs- son, rúmlega fjórum tonnum á þriðjudag. Eitthvað hefur þó fengist af þorski. Þorsteinn Orri verkstjóri hjá Fiskverkun KEA segir að ufsinn og aðrar tegundir en þorskur fari allar með ferjunni til Hríseyjar þar sem ufsinn fer í frystingu og saltflök. Á þriðjudag tók ferjan um 40 tonn sem fóru til vinnsíu i Frystihúsi KEA í Hrísey. Níu skólabörn hafa vinnu hjá Fisk- verkun KEA, og byrjar vinnu- dagurinn oft klukkan sex á morgnana og lýkur upp úr Siglufjarðarskarð: Umferð fólksbfla byrjuð Samkvæmt upplýsingum frá lögrcglunni á Siglufirði eru fólksbílar byrjaðir að fara yfir Siglufjarðarskarð, og er það miklu fyrr en bjartsýn- ustu menn þorðu að vona. Upphaflega héldu menn að aðeins jeppar gætu farið um skarðið í sumar. Eins og kom fram í blaðinu sl. þriðjudag er mokstri nýlok- ið í skarðinu. Þá var sagt að vegurinn um skarðið yrði fær fyrir jeppaumferð eftir tvær til þrjár vikur en þau orð eru fyr- ir bí, ef marka má upplýsingar lögreglunnaráSiglufirði. -bjb hádegi, en stundum er unnið lengur. Um þrjátíu bátar, allir undir 10 tonn að stærð, eru á veiðum við eyjuna og er um helmingur þeirra heimabátar. Hinir eru flestir af Eyjafjarðarsvæðinu en einn kem- ur úr Reykjavík. Flestir þessara báta eru með DNG-færarúllur, og er almenn ánægja og hrifning með þær. Verð á ufsa er hins vegar mjög lágt nú, og hefur verðið farið nið- ur í tæpar 10 krónur á fiskmörk- uðunum, svo sjómenn hafa verið að vonast eftir þverrandi ufsa- göngu en að sama skapi vaxandi þorskgengd. í sumar hefur verið rekinn greiðasala í Félagsheimilinu Múla þar sem hægt hefur verið að fá kevpta létta rétti, og sér Irma Ingimarsdóttir frá Dalvík um þann rekstur í sumar. Tals- verð aukning hefur verið á ferða- mannastraumnum til Grímseyjar í sumar, aðallega með tilkomu nýju ferjunnar, Sæfara, en ferjan stansar í þrjá tíma meðan farþeg- ar sem ekki hafa næturgistingu skoða sig um. Fjölgun erlendra ferðamanna er áberandi. GG Hugleiðsla á hringtorgi! Mynd: Kl. Forsætisráðherrahjón smárík- isins Liechtenstein, Hans og Bernadette Brunhart, eru stödd hér á landi í opinberri heimsókn og í gær brugðu þau sér norður í S-Þingeyjarsýslu og kynntu sér þingeyska nátt- úrufegurð í dýrðlegu þing- eysku veðri. Með í för voru m.a. íslensku forsætisráð- herrahjónin, Steingrímur Her- mannson og Edda Guðmunds- dóttir. Brunhart-hjónin flugu með flugvél Flugmálastjórnar norður á Aðaldalsflugvöll snemma í gærmorgun. Þaðan var m.a. haldið í Alviðru, Dimmuborgir, Mývatnssveit og Námaskarð. Hádegisverður var snæddur í Hótel Reynihlíð og að því búnu var haldið að Laxárvirkjun, áður en flogið var aftur suður á bóginn. Tveir aðstoðarmenn forsætis- ráðherrahjónanna, Willy Andrea og Roland Marxer, voru í fylgd- arliði þeirra í gær. Af íslenskum gestum í ferðinni má nefna Guðmund Benediktsson, ráðu- neytisstjóra í forsætisráðuneytinu og konu hans Kristínu Claessen og Helgu Jónsdóttur, skrifstofu- stjóra í forsætisráðuneytinu og mann hennar Helga H. Jónsson, fréttamann. óþh Iðnþróunarfélagi Þingeyinga breytt í hlutafélag: Hefur tekíð ujip samstarf við erlent ráðgj afafyrirtæki Til stendur að breyta Iðnþró- unarfélagi Þingeyinga í hluta- félag og af því tilefni hefur Ásgeir Leifsson, iðnráðgjafi Þingeyinga, sent sveitarfélög- fyrirtækjum og einstakl- um, Húsnæðismál á Húsavík: Búseti og bærinn í eina sæng? Húsavíkurbæ var úthlutað á þessu ári 8 íbúðum úr félags- lega íbúðakerfinu og Búseta var úthlutað 5 íbúðum, en framkvæmdir við þessar íbúðir eru ekki hafnar. Búseti hefur óskað eftir raðhúsalóð undir sínar íbúðir en lítið framboð mun vera af nýjum lóðum af því tagi á Húsavík. Bjarni Þór Einarsson, bæjar- stjóri, sagði að undirbúningur framkvæmda á íbúðunum 8 sem fengust í ár væri á lokastigi en tafir hafi orðið í stjórnkerfinu. Ný húsnæðisnefnd er að taka til starfa á Húsavík, eins og víðar annars staðar, og tekur við af stjórn verkamannabústaða, sem lögð er niður. Um síðustu áramót var lokið við byggingu 12 félagslegra íbúða á Húsavík í einni blokk og sagði Bjarni að fyrirhugað væri að hefja byggingu annarar slíkrar blokkar. „Vandamálið er að í blokkinni verða 12 íbúðir en við fengum bara 8 á þessu ári. Annað hvort munum við fá Búseta í samvinnu með okkur, eða þá að ná samningum við Húsnæðis- stofnun um að deila þeim áföng- um sem við gerum á þessu ári niður á 8 íbúðir í staðinn fyrir 12 og bæta við fjórum íbúðum á næsta ári, sem við fáum vonandi úthlutað,“ sagði Bjarni og bætti við að það yrði verkefni nýrrar húsnæðisnefndar að leysa þetta mál á næstu dögum. Mikið er um byggingar einbýl- ishúsa hjá einstaklingum á Húsa- vík í dag og sagði Bjarni að ekki hafi svo mörg hús verið í bygg- ingu í nokkur ár. -bjb ingum í sýslunni og stofnunum beiðni um aðild að hlutafjár- sjóði. Þessir aðilar hafa þessa beiðni nú til umræðu og í sam- tali við blaðið sagðist Ásgeir ekki hafa orðið var við annað en jákvæð viðbrögð. Eftir breytinguna mun félagið heita Atvinnuþróunarfélag Þingey- inga hf. Ásgeir sagði að ástæðan fyrir því að Iðnþróunarfélaginu ætti að breyta í hlutafélag, væri til að það gæti sjálft tekið þátt í þeim verkefnum sem félagið vinnur að. „Hlutafjársjóðurinn er hugs- aður sem nokkurs konar áhættu- sjóður til að lyfta undir alls konar þróunarstarfsemi, nýstofnun fyrirtækja og fleira," sagði Ás- geir. Til að byrja með á hlutafjár- sjóðurinn að standa í 7 milljón- um króna og hefur Húsavíkurbær verið beðinn um tveggja milljón króna hlut. Fram að þessu hefur starfsemi Iðnþróunarfélagsins verið fjármögnuð með samstarfs- samningum við sveitarfélög, fé- lagsgjöldum, ríkisframlagi, styrkjum og fieiru. Eitt stærsta verkefni Iðnþróun- arfélagsins hefur verið auðlinda- og staðháttakönnun í Þingeyjar- sýslum. Könnunin fer m.a. fram á hæfni og getu vinnuafls, vinn- anlegum jarðefnum, orkusvæð- um, beitarlöndum og náttúru héraðsins í sambandi við ferða- mennsku. í tengslum við þetta verkefni hefur félagið tekið upp samband við erlenda ráðgjafa- skrifstofu sem sérhæfir sig í ráð- gjöf í staðsetningum fyrirtækja sem eru flytja sig til, auka starf- semi sína eða komast að ein- hverju nýju. Hugmyndin er sú að láta þessa ráðgjafaskrifstofu fá staðhátta- lýsingu til handa umbjóðendum sínum svo þeir geti metið hvort Þingeyjarsýslur henti til að koma þar upp starfsemi á því sviði sem fyrirtækin eru á. Að sögn Ásgeirs er von á manni frá ráðgjafaskrif- stofunni hingað til lands í næsta máriuði til að skýra málið betur fyrir heimamönnum. Skrifstofan, sem er alþjóðleg, er með mörg stórfyrirtæki á sínum snærum og hefur hún verið með í ráðum um staðsetningar fjölmargra fyrir- tækja, og er starfsemi þeirra met- in á 2100 milljarða króna síðustu 29 ár í Evrópu einni saman. -bjb Skagaflörður: Þrettán km klæddir - byrjað í þessari viku Á næstu vikum verður lögð kiæðning á samtals um 13 km í Skagafirði. Byrjað verður á Hólum í Hjaltadal í þessari viku og síðan farið í Skaga- fjarðarveg fram í Lýtingsstaða- hreppi og endað á nýja Blöndu- hlíðarveginum. Það er Borgar- verk frá Borgarnesi sem vinnur verkið. Lagt verður á um einn km á Hólastað og eru það götur stað- arins sem fá þá klæðningu. Á Skagafjarðarveg verður lögð 1.7 km löng klæðning frá Varmalæk að Svartá. Frá Héraðsdalsvega- mótunum og inn að Mælifellsánni verður síðan sett malarslitlag í næstu viku. Blönduhlíðarklæðn- ingin verður um 10 km löng og vonast er til að'lokið verði við þann kafla fyrir Verslunarmanna- helgi svo að hægt verði að nýta hann í þá miklu umferð sem þá fer um fjörðinn. Útboð á þessum klæðningar- pakka fór fram í vor og átti Borg- arvirki lægsta tilboðið sem hljóð- aði upp á 13,1 milljón króna. Ætlunin er að þeir byrji að klæða áður en þessi vika er liðin. SBG

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.