Dagur - 19.07.1990, Side 2

Dagur - 19.07.1990, Side 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 19. júlí 1990 Bílarnir eru mikið skemmdir og verða vart á götum bæjarins í bráð. Myndir: kl Tveir árekstrar á tveim dögum á mótum Hrafnagilsstrætis og Þórunnarstrætis: Uppsetning umferðarljósa ekki á dagskrá - segir Gunnar Jóhannesson, verkfræðingur hjá Akureyrarbæ skákmót Sumarhraðskákmót Skákfé- iags Akureyrar verður haldið í skákheimilinu við Þingvalla- stræti föstudagskvöldið 20. júlí og hefst keppni kl. 20.00. Eins og fram hefur komið sigr- aði sveit Skákfélags Akureyrar undir merkjum Ungmennafélags Akureyrar á Landsmóti UMFÍ. Sveitin vann þar með Faxabikar- inn sem keppt hefur verið um síðan 1969. Þessi bikar verður til sýnis í skákheimilinu. Sveit UFA sigraði í skákkeppni landsmótsins með 20 vinninga, fjórum vinningum meira en næsta sveit. Aðrar norðlenskar sveitir stóðu sig einnig vel. Ung- mennasamband Austur-Húnvetn- inga og Ungmennasamband Eyjafjarðar fengu 13,5 vinninga hvor sveit og lentu í 5.-6. sæti. Sveit Héraðssambands Suður- Þingeyinga fékk 9 vinninga. SS Collins skákmótið: Ágætur árangur hjá Örvari Unglingar frá íslandi voru að tefla á dögunum við jafnaldra sína í Bandaríkjunum. Þessi landskenpni er kennd við Collins, þjálfara Fischers, og leiða 12 manna sveitir unglinga saman hesta sína í fjórfaldri umferð. Leikar fóru þannig að sveit Bandaríkjamanna sigraði með 29 vinningum gegn 19. Einn Akur- eyringur var í íslensku sveitinni, Örvar Arngrímsson, og tefldi hann á 6. borði. Örvar náði bestum árangri íslendinganna í landskeppninni og fékk 3Vi vinning af 4 möguleg- um. SS Harður árekstur varð á gatna- mótum Hrafnagilsstrætis og Þórunnarstrætis á Akureyri á tíunda tímanum í gærmorgun. Sendiferðabfll og fólksbíll skullu saman og eru báðir bíl- arnir mikið skemmdir. Öku- menn bílanna og farþegi í fólksbflnum voru fluttir á slysadeild, en ekki fengust upplýsingar um meiðsli þeirra í gær. Svo undarlega vildi til að á þessum gatnamótum varð einnig árekstur í fyrradag. Þetta vekur því spurningar um hvort tíðni árekstra á þessum gatnamótum sé óvenjulega há og hvort ekki sé ástæða til að setja þar upp umferðarljós, ef þau kynnu að fyrirbyggja frekari slys. Ólafur Asgeirsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn, sagði það tilviljun að þarna hefðu orðið tveir árekstrar á tveim dögum, en staðreyndin væri sú að síðustu ár hefði tíðni umferðarslysa þar ekki verið áberandi há. Fyrir nokkrum árum var stöðv- unarskyldu á umræddum gatna- mótum breytt í þá veru að nú ber ökumönnum sem keyra Hrafna- gilsstræti að virða stöðvunar- skyldu. Áður átti Hrafnagils- stræti réttinn. Ólafur segir að þessi breyting á sínum tíma hafi ruglað margan í ríminu og tíðni slysa á gatnamótunum hafi hækk- að tímabundið. Hann sagði að rökin fyrir því að ekki væri sett upp umferðarljós á þessum gatnamótum hefðu verið að umferð væri þar of lítil. „Hins vegar hefur hún aukist, til dæmis vegna tilkomu Verkmenntaskól- ans og þá fara starfsmenn Fjórð- ungssjúkrahússins í auknum mæli þarna um,“ sagði Ólafur. Gunnar Jóhannesson, verk- fræðingur hjá Akureyrarbæ, seg- ir ekki á dagskrá hjá bænum að setja upp umferðarljós á marg- nefndum gatnamótum. „Menn hafa velt þessu fyrir sér, en hins vegar er umferð þarna talin það lítil að umferðarljós þarna í frumvarpi til laga um leik- skóla, sem menntamálaráð- herra lagði fram á Alþingi sl. vetur, er gert ráð fyrir mikilli aukningu leikskólarýmis í landinu á næstu 10 árum. Er gert ráð fyrir að bæta þurfí við milli 4 og 5 þús. heilsdagsrým- um og verði heilsdagsrými þá rúmlega 10 þúsund. Ein forsenda þess, að mark- miðið náist er stóraukin fjöldi þeirra, sem lýkur fóstrunámi. Nefndin, sem samdi áðurnefnt frumvarp, gerði ráð fyrir 10 ára átaki til að fjölga fullmenntuðum fóstrum. Meðal þeirra úrræða, sem nefndin lagði til, er dreifð og sveigjanleg fóstrumenntun, en þar er átt við menntun sem unnt er að stunda víða á landinu og hefur verið ákveðið að hefja undirbúning slíks náms. Mennta- málaráðuneytið hefur skipað nefnd til að annast undirbúning- inn og gert er ráð fyrir að námið geti hafist á haustönn 1991. Gyðu Jóhannsdóttur, skóla- stjóra Fósturskóla íslands og þremur kennurum skólans hefur verið falinn undirbúningurinn og með þeim mun starfa Berit Johnse, cand.polit., sem ráðin hefur verið í hlutastarf. í frétt frá menntamálaráðu- neytinu segir að gert sé ráð fyrir að dreifð og sveigjanleg fóstru- menntun verði sambærileg að innihaldi við hefðbundið fóstru- nám á hverjum tíma. Námið verði skipulagt í námskeiðum/ myndu vera til skaða frekar en hitt,“ sagði Gunnar. Hann sagði að við uppsetningu umferðar- ljósa væri miðað við ákveðna lág- marksumferð og í þessu tilfelli væri umferðin langt fyrir neðan viðmiðunarmörkin. óþh áföngum. Verði það í formi stað- bundinnar kennslu og fjar- kennslu og einnig sé gert ráð fyrir möguleika á námssamningum: 1. Staðbundin kennsla fari fram í eina eða fleiri vikur í einu utan Reykjavíkur eða í Reykja- vík ef henta þykir. Gert er ráð fyrir að námið fari fram þar sem flestir þátttakendur búa hverju sinni. 2. Fjarkennsla fari fram í formi símasambands, bréfaskipta, tölvutengsla og e.t.v. með hljóð- og myndblöndun. 3. Námssamningur: nemendur geti lokið ákveðnum verkefnum samkvæmt samningi við skólann. Um getur verið að ræða minni eða stærri verkefni sem nemend- ur vinna sjálfstætt eða í sam- vinnu. Gert er ráð fyrir að aðgang að náminu hafi þeir sem starfandi eru á dagvistarstofnun- um og aðrir, sem áhuga hafa á að afla sér fóstrumenntunar. Inn- tökuskilyrði yrðu sveigjanleg og hver einstaklingur metinn í ljósi menntunar sinnar og reynslu. Námslengd verður mismun- andi eftir einstaklingum og fer eftir því hvaða nám þeir hafa stundað áður. Fóstrunám er nú þrjú ár. Nefndin lagði til að starfsmenn dagvistarstofnana, sem taka vilja þátt í náminu fái leyfi á launum a.m.k. á þeim tíma, sem stað- bundna námið fer fram og einnig er talið mikilvægt að dagleg vinnuskylda verði eitthvað styttri en hjá fólki í fullu starfi. UNNUMto VISA frá kl. 9-20 frá mánudagi til föstudags Laugardag kl. 10-20. Sjáumst í Sunnuhlíð! Menntamálaráðuneytið: Fóstrunám um land allt haustið 1991 Skákfélag Akureyrar: Sumarhrað-

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.