Dagur - 19.07.1990, Side 4

Dagur - 19.07.1990, Side 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 19. júlí 1990 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÚSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: JÓN HAUKUR BRYNJÓLFSSON (íþróttir), SKÚLI BJÖRN GUNNARSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓLI G. JÓHANNSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: INGVELDUR JÓNSDÓTTIR, HEIMASÍMI 22791 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Slæmar horfur í bygg- ingariðnaði á Akureyri Byggingamenn á Akureyri horfa með kvíða til atvinnuástandsins næsta vetur. Þeir sem hafa kynnt sér verkefnastöðu byggingafyrirtækjanna í bænum vita að ástæða er til að óttast meira atvinnuleysi í byggingargreinum á haust- og vetrarmánuðum en þekkst hefur um langt skeið. Orsakirnar fyrir þeim vanda sem við blasir eru margar. Undanfarin ár hefur þróunin í byggingariðnaði á Akureyri verið mjög í þá veru að auka vægi félags- legra íbúðabygginga af ýmsu tagi á markaðnum. Byggingar fyrir verkamannabústaði vega þyngst. Stór verkefni hafa verið í gangi, t.d. hvað snertir íbúðabyggingar fyrir aldraða við Víðilund, en fram- hald þeirra er óljóst á þessari stundu. Tvö hús hafa verið byggð, en að sögn kunnugra er grundvöllur fyrir eitt í viðbót. Margir undirverktakar sjá fram á verkefnaþurrð með haustinu. Hjá múrurum hafa málin snúist á þann veg að meirihluti þeirra er bundinn við inni- vinnu í sumar, en slík vinna hentar múrarastétt- inni betur yfir veturinn, þegar útilokað er að vinna utanhúss í steypuvinnu vikum og mánuðum saman. Öll stærstu verkefni sem unnið er að í bænum nú munu klárast í haust. Almennt ríkir svartsýni hjá mönnum varðandi húsbyggingar á Akureyri á komandi mánuðum. Það er eins og flestir haldi að sér höndum og bíði. Margir hafa viðrað þá skoðun að ekkert vit sé í að fjárfesta í húsnæði í bænum meðan óvissa ríki um framtíð atvinnumála á svæð- inu. Komi stóriðja á suðvesturhorn landsins muni íbúðaverð hríðfalla hér í kjölfar minnkandi eftir- spurnar og minna fjármagns í umferð. Byggingafyrirtækin á Akureyri hafa lagt mikla áherslu á að byggja íbúðir fyrir verkamannabú- staði. Góð reynsla hefur verið af þessu félagslega íbúðakerfi í bænum, og ekkert nema gott um það að segja. Þó er sú staðreynd borðliggjandi að ekki geta allir byggt fyrir verkamannabústaði, til þess eru verktakarnir of margir miðað við verkefna- framboð á hverju ári. Verktakar verða að byggja jöfnum höndum fyrir félagslega íbúðakerfið, opin- bera aðila og einstaklinga. Það eru einmitt síðast- nefndu hóparnir sem hafa látið mjög undan síga á byggingamarkaðnum, og haldi sú þróun áfram blasir ekkert annað við en að verktökum fækki og atvinnutækifærum þar með. Biðstaðan í álmálinu helst ekki óbreytt mikið lengur. Verði ákveðið að reisa álver í Eyjafirði þurfa hvorki byggingamenn eða aðrir að óttast atvinnuleysi. Komið álverið hins vegar annars staðar er augljóst að iðnaðarmenn og verkamenn munu í stórum stíl yfirgefa Eyjafjarðarsvæðið. EHB Stæður með upplagi fyrsta tölublaðs Tilboðstíðinda í Prentsmiðjunni Odda. Á myndinni eru Ólafur Ragnarsson, framkvæmdastjóri Vöku-Helgafells hf., Kristín Svcinsdóttir, ritstjóri og Þórarinn Friðjónsson, útgáfustjóri. Mynd: J. Long Vaka-Helgafell: Tilboðstíðindi í 88 þúsund eintökum Nýstárlegt rit hefur nú bæst í hóp íslenskra prentmiðla. Það ber heitið Tilboðstíðindi og undirtitillinn Pöntunarhefti heimilanna. Það er útgáfufyr- irtækið Vaka-Helgafell hf. sem stendur að útgáfu ritsins. Upplag fyrsta sumarheftis Til- boðstfðinda er 88.000 eintök og er ritinu dreift endurgjaldslaust inn á hvert heimili landsins. Til- boðstíðindi eru að þessu sinni 48 síður að stærð. Þessi nýi sölumiðill mun koma út tvisvar á þessu ári, auk sumar- heftisins mun hausthefti verða dreift í lok októbermánaðar, en gert er ráð fyrir að ritið komi oft- ar út á næsta ári. Tilboðstíðindi birta lesendum fjölbreytileg tilboð íslenskra fyrirtækja, samtaka og stofnana um kaup á vöru eða þjónustu og fylgja tilboðunum yfirleitt pönt- unarseðlar sem auðvelt er að rífa eða klippa út úr heftinu og má setja marga þeirra ófrímerkta í póst. Að öðrum kosti eru gefin upp símanúmer þar sem pöntun- um er veitt móttaka. Sambærilegir sölumiðlar hafa verið gefnir út á Norðurlöndun- um í nokkur ár og njóta sívax- andi vinsælda enda hefur póst- verslun erlendis margfaldast á undanförnum árum. Við undirbúning að útgáfu Til- boðstíðinda hefur Vaka-Helga- fell átt samstarf við útgefendur hliðstæðra pöntunarhefta á Norðurlöndum. Kannanir í Dan- mörku og Svíþjóð hafa sýnt að þarlend tilboðstíðindi eru skoðuð og lesin mörgum sinnum á hverju heimili og svörun við tilboðun- um er meiri en í öðrum auglýs- ingamiðlum. Tilboðstíðindi eru gefin út í stærra upplagi en nokkurt annað blað eða tímarit sem selur aug- lýsingar hér á landi, í 88 þúsund eintökum. Ritstjóri Tilboðstíð- inda er Kristín Sveinsdóttir. Ferðamálaráð íslands: Tjaldsvæði eru ekki skemmtistaðir - tjaldgestir eiga rétt á næturró íslendingar ferðast sífellt meira um eigið land, og er ástæða til að fagna því. Það er mikils vert að sjá sig um í heiminum, en engu síður minna um vert að þekkja sitt eigið land og njóta þess. Margir ferðalangar kjósa að gista á tjaldsvæðum, enda fer slíkum svæðum fjölgandi og aðbúnaður þar batnandi. í nýjum bæklingi Félags eigenda sumar- dvalarsvæða eru haldgóðar upp- lýsingar um 96 tjaldsvæði, þar sem sum hver hafa að vísu ekki upp á önnur þægindi að bjóða en rennandi vatn og salerni, en býsna mörg eru búin flestum eða öllum þeim þægindum, sem hægt er að vænta á slíkum stöðum. Tjaldgisting er oft eini kosturinn í óbyggðum, en annars staðar góður kostur fyrir þá, sem vilja spara og um leið njóta tengsla við náttúruna. Eitt vandamál er þó verulegt áhyggjuefni, og það er sá regin- misskilningur sumra íslendinga, að tjaldsvæði séu skemmtistaðir, en ekki hvíldarstaðir. Slíkir menn ræna aðra nætursvefni með drykkjulátum og háreisti og eru öllum til ama, því tjalddúkur lok- ar engan hávaða úti. Oft er um að ræða stóra hópa, sem efna til Bakkusarblóta á tjaldsvæðum undir yfirskini náttúruskoðunar og sýna öðrum algjört tillitsleysi með hátterni sínu. Erlendir ferðamenn eiga erfitt með að skilja þessa tegund „náttúrudýrk- unar“ og fá ekki beinlínis ánægjulega mynd af landanum við þá reynslu að eyða nótt á tjaldsvæði við þessar aðstæður. Hávaðamengun er engu minna vandamál en mengun úrgangs og að því leyti verri, að hún raskar þeirri næturró, sem tjaldgestir eiga rétt á. Ferðamálaráð skorar á umsjónarmenn tjaldsvæða að fylgja fast eftir reglum um kyrrð að næturlagi og gera gestum sín- um það ljóst, að tjaldsvæði eru ekki skemmtistaðir, heldur hvíld- ar- og griðastaðir. (Tilkynning frá Ferðamálaráði.) lesendahornið Akureyri: Ungur ökumaður til fvrirmyndar Kona frá Dalvík hringdi: „Ég vil vekja athygli á einu máli sem tengist unglingum í dag og þeirri neikvæðu umfjöllun sem þeir gjarnan fá. Ég vil hins vegar benda á að þeir hegða sér betur en fullorðnir á flestan hátt. Þann- ig var sl. föstudagskvöld að bakk- að var aftan á kyrrstæðan bílinn minn á bílastæðinu við íslands- banka á Akureyri, þar sem sonur minn hafði lagt bílnum. Sá sem bakkaði á bílinn var 17 ára strák- ur og það urðu engin vitni að þessu. I stað þess að aka burtu af staðnum, eins og fullorðnir gera gjarnan að mínu mati, þá lét strákurinn gera leit að syni mín- um og tilkynna honum óhappið. Þetta tel ég til fyrirmyndar og sannar að unglingarnir eru ekki verstir í umferðinni, heldur eru það við, fullorðna fólkið. Ég vildi bara benda á þetta, því hefði full- orðin manneskja bakkað aftan á bílinn, þá hefði hún örugglega keyrt í burtu, þar sem ekkert vitni var af þessari aftanákeyrslu."

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.