Dagur - 19.07.1990, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 19. júlí 1990 - DAGUR - 7
Elsta flugvclin sem lét sjá sig á Varma var þessi vél, af gerðinni Piper Ercoupe, sem Sigurður Frostason flaug. Engin
ellimörk að sjá á henni þrátt fyrir 44 ára aldur. Mynd: -bjb
Flugáhugamenn af Norðurlandi:
Komu saman á Varma
við Varmahlíð
- færri vélar komu en vildu
Nokkrir flugáhugamenn af
Norðurlandi komu saman sl.
laugardag á bökkum Húseyjar-
kvísiar fyrir neðan Varmahlíð í
Skagafírði á flugvelli sem þar
hefur verið komið upp. Flug-
völlurinn gengur undir nafninu
Varmi á meðal flugmaúna og
gegndi hann m.a. stóru hlut-
verki á nýafstöðnu Landsmóti
hestamanna á Vindheimamel-
um. Alls mættu 6 vélar af
Norðurlandi á Varma og til
stóð að flugvélar frá Reykjavík
kæmu en ófært var vegna roks
í Reykjavík.
Þegar flugáhugamenn koma
saman eins og á Varma er gjarn-
an talað um flugkomudag. Auk
þess að sýna sínar vélar og sjá
aðrar, bera flugmenn saman
bækur sínar og það er ekki fyrir
ókunnuga að vera viðstaddir þær
samræður. Flugmenn frá Sauðár-
króki voru fjölmennastir á
Varma sl. laugardag, en einnig
komu vélar frá Akureyri og
Blönduósi.
Sá sem hefur gengið fremst í
flokki að koma upp góðri lend-
ingaraðstöðu á Varma er Bryn-
leifur Tobíasson í Varmahlíð.
Brynleifur er landsþekktur flug-
áhugamaður og hefur m.a. smíð-
að svokallaðan „gírókopta“ og
sýnt hann á flugsýningum hér-
lendis. Brynleifur tók að sér
túnblett fyrir neðan Varmahlíð
og í fyrrasumar gátu litlar flug-
vélar farið að lenda þar í meira
mæli eftir að rafmagnslínur, sem
höfðu legið þvert yfir völlinn,
voru settar í jörð undir vellinum.
Brynleifur naut góðrar aðstoðar
Sigurðar Frostasonar frá Sauðár-
króki við að byggja Varma upp,
en þess má til gamans geta að
Sigurður á heiðurinn af uppbygg-
ingu flugvallar við Ingólfsskála
Ferðafélags Skagafjarðar, rétt
norðan Hofsjökuls, og er sá völl-
ur kallaður Frosti á meðal flug-
manna. Því þótti mönnum við
hæfi að völlurinn við Varmahlíð
yrði kallaður Varmi, sem nokk-
urs konar mótvægi!
Varmi var mikið notaður á
meðan Landsmót hestamanna
stóð yfir nýlega og kom völlurinn
í góðar þarfir, því stutt var á Mel-
ana, og fjölmargir mótsgestir
fóru í útsýnisflug yfir svæðið. Það
má búast við því að Varmi verði
mikið notaður í framtíðinni af
flugmönnum lítilla véla og hentar
völlurinn vel til samkomu flug-
manna á borð við þá sl. laugar-
dag. -bjb
Einn af forvígismönnum þess að koma Varma upp, Brynleifur Tobíasson, á
„gírókoptanum“ sem hann smíðaði sjálfur. Mynd: kga
Ljósmyndasamkeppni
I tilefni af 25 ára afmæli Pedromynda á Akureyri efnir fyrirtækið til
Ijósmyndasamkeppni í samvinnu við Dagblaðið Dag.
Takið þátt í Ijósmyndasamkeppninni!
eru einfaldar
Öllum er heimil þátttaka.
Myndefni er þátttakendum í sjálfsvald sett.
Æskileg stærö mynda er 10x15 cm.
Keppnin stendur yfir til 15. september nk.
Tekið er á móti myndum í verslunum Pedromynda
í Hafnarstræti 98 og Hofsbót 4 á Akureyri.
Veitt veröa tvenn verðlaun: Annars vegar fyrir „lifandi
myndefni" (menn og dýr) og hins vegar fyrir landslag eöa form.
Dagur áskilur sér rétt til aö birta þær myndir
sem til álita koma, sér aö kostnaðarlausu.
Úrslit verða tilkynnt um miðjan október.
Verðlaunin fyrir bestu mynd í hvorum flokki er myndavél af gerðinni
CHINON GENESIS, með aukahlutum, að verðmæti 30 þúsund krónur.
^Peáíomyndir DMMsi
Hafnarstræti 98, sími 23520 ■ Hofsbót 4, simi 23324 Strandgötu 31, sími 24222