Dagur - 19.07.1990, Page 11
Fimmtudagur 19. júlí 1990 - DAGUR - 11
JÚdÓ:
Þrenn verðlaun af
femum til KA-manna
Tækniráð Júdósambands ís-
lands kom nýlega saman þeirra
erinda að velja þá einstaklinga
sem taldir voru skara fram úr
hvað tæknilega getu varðar á
nýliðnu keppnistímabili. Veitt
voru fern verðlaun og komu
þrenn þeirra í hlut júdómanna
úr KA, þeirra Freys Gauta Sig-
mundssonar, Smára Stefáns-
sonar og Fjólu Guðnadóttur.
Fjórðu verðlaunin komu í hlut
Bjarna Friðrikssonar.
Veitt voru verðlaun í fullorð-
insflokki, flokki karla yngri en 21
árs, flokki drengja yngri en 15
ára og í kvennaflokki.
Útnefningin í fullorðinsflokki
Fjóla.
1. deild kvenna
UBK 5 4-0-1 13: 3 12
ÍA 5 4-0-1 8: 4 12
Valur 5 3-1-1 12: 3 10
Þór 6 2-1-3 9:10 7
KR 5 1-1-3 7:12 4
KA 6 0-1-5 2:19 1
3. deild
Úrslit á þriðjudagskvöld
TBA-Þróttur R. 0:2
BÍ-Haukar 0:2
Reynir-Þróttur N. 1:5
Einherji-IK
Þróttur R.
Haukar
ÍK
Þróttur N.
Dalvík
Reynir
Völsungur
Einherji
TBA
BÍ
4:1
9 8-0-1 27: 7 24
9 7-1-1 22: 9 22
9 6-0-3 24:16 18
9 5-2-2 31:17 17
8 3-1-4 13:17 10
9 3-1-5 14:22 10
8 1-4-3 9:13 7
9 1-3-5 13:22 6
9 2-0-7 5:31 6
9 1-2-6 16:24 5
Markahæstir:
Þráinn Haraldsson, Þrótti N. 10
Ólafur Viggósson, Þrótti N. 9
Óskar Óskarsson, Þrótti R. 9
Jóhann Ævarsson, BÍ 8
Garðar Níelsson, Reyni 7
Júltus Þorfmnsson, ÍK 7
kom ekki á óvart en hana hlaut
Bjarni Friðriksson úr Ármanni.
Um það val er fátt að segja.
Bjarni hefur um árabil borið höf-
uð og herðar yfir aðra íslenska
júdómenn og hefur verið einn af
sterkustu júdómönnum heims
undanfarin 10 ár.
Freyr Gauti Sigmundsson hlaut
útnefninguna í flokki karla yngri
en 21 árs. Freyr Gauti hefur vak-
ið mikla athygli á mótum víðs
vegar um Evrópu vegna frábærr-
ar frammistöðu. Þótt hann sé
aðeins 18 ára gamall er hann nú
tvímælalaust orðinn einn af bestu
júdómönnum íslands.
Útnefning í flokki drengja 15
ára og yngri koin í hlut Smára
Stefánssonar. Smári er geysimik-
ið efni, ekki aðeins í júdó heldur
einnig í frjálsum íþróttum. Hann
Smári.
KSI:
Bragi fékk
aðvörun!
- Fram slapp með
ávítur
Á stjórnarfundi KSÍ í fyrra-
kvöld var samþykkt að veita
Braga Bergmann, knatt-
spyrnudómara, stranga aðvör-
un vegna frágangs á skýrslu
hans eftir leik Vals og Fram í
Bikarkeppninni á dögunum.
Bragi varð þá fyrir aðkasti frá
Frömurum, sérstaklega Pétri
Ormslev, fyrirliða. Framarar
sluppu með harðorðar ávítur.
Bragi sendi KSÍ sérstaka
skýrslu urn framkomu Framara
en gat hennar ekki á leikskýrslu
og því vísaði Aganefnd málinu til
stjórnar KSÍ sem felldi fyrr-
greindan úrskurð.
Dagur hafði í gær samband við
nokkra dómara og menn sem
þekkja vel til í knattspyrnuheim-
inum og töldu þeir allir afgreiðslu
þessa máls afar furðulega.
sýndi glæsilega tækni á íslands-
móti drengja og sigraði þar með
yfirburðum.
í kvennaflokki var útnefnd
Fjóla Guðnadóttir. Fjóla er yfir-
burðamanneskja í kvennaflokki
á íslandi og má segja að engin
önnur hafi komið til greina við
þetta val.
Það vekur óneitanlega athygli
að þrenn af fernum verðlaunum
fara til KA en það ætti þó ekki að
koma á óvart þeim sem fylgst
hafa með framgangi júdómála á
Akureyri. Undanfarin fimm ár
hafa verið óslitin sigurganga KA-
manna í júdó og verður frammi-
staða þeirra að teljast frábært
afrek því þeir æfa við mun lakari
aðstæður en Reykvíkingar.
TBA-maðurinn Egill Áskvlsson. Hann og félagar töpuðu fyrir Þrótti R.
Mynd: KL.
3. deild:
Fyrsti sigur Einheqa
Einherji vann sinn fyrsta sigur
í 3. deildinni í sumar þegar lið-
ið lagði ÍK á Vopnafirði í
fyrrakvöld. Á sama tíma vann
Þróttur N. stóran sigur á Reyni
á Árskógsströnd og Þróttur R.
sigraði TBA á Akureyrarvelli.
Einherji lék undan nokkrum
vindi í fyrri hálfleiknum gegn ÍK
og var mun betri aðilinn framan
af. Liðið náði tveggja marka for-
ystu með mörkum Arnars Gests-
sonar og Gísla Davíðssonar áður
en Hörður Magnússon minnkaði
muninn fyrir hlé.
f seinni hálfleik voru ÍK-ingar
meira með boltann en gekk illa
að skapa sér færi. Einherjamenn
beittu skyndisóknum með góðum
árangri og bættu þeir Ólafur
Ármannsson og Helgi Þórðarson
livor sínu markinu við og tryggðu
Einherja 4:1 sigur sem liðið getur
fyrst og fremst þakkað góðri bar-
áttu.
Þróttarar frá Neskaupstað
voru ívið betri aðilinn í fyrri hálf-
leiknum gegn Reyni á Árskógs-
strönd. Þeir náðu að skora tví-
vegis með tíu mínútna millibili,
Reynismenn klóruðu í bakkann
en Þróttarar bættu þriðja mark-
inu við fyrir hlé.
í seinni hálfleiknum réðu
Reynismenn gangi leiksins og
voru mun meira með boltann en
færin létu á sér standa. Svo fór að
það voru Þróttarar sem bættu
tveimur mörkum við og úrslitin
urðu 5:1. Annað markið í síðari
hálfleik var skorað úr vítaspyrnu
og var sá dómur nokkuð vafa-
samur. Reynismenn voru ákaf-
lega óhressir með dómgæsluna í
leiknum en þess má geta að fyrir-
liði þeirra, Kristján Sigurðsson
fékk að líta rauða spjaldið.
Kristján Svavarsson skoraði
tvö mörk fyrir Þrótt og Þráinn
Haraldsson, Árni Freysteinsson
og Ólafur Viggósson skoruðu eitt
mark hver. Garðar Níelsson
skoraði mark Reynis.
Leikur TBA og Þróttar frá
Reykjavík fór fram á Akureyrar-
velli og skiptust liðin á að sækja í
fyrri hálfleik. TBA-menn fengu
þá mun betri færi en gekk illa að
nýta þau og það var Þróttarinn
1. deild kvenna:
Stórsigur UBK á KA
KA beið stóran ósigur þegar
liðið mætti Breiðabliki í 1.
deild kvenna á KA-vellinum í
fyrrakvöld. Eftir að Breiðablik
hafði náð að skora þrívegis í
frekar jöfnum fyrri hálfleik var
allur vindur úr KA-stúlkunum
og þær máttu þola 5:0 ósigur.
Golf:
Húsavíkiinnótið
um helgina
Opna
Opna Húsavíkurmótið í golfí
fer fram á Katlavelli um næstu
helgi. Leiknar verða 36 holur,
með og án forgjafar í fímm
flokkum. Opna Húsavíkur-
mótið er haldið á hverju ári og
hefur þátttaka í því farið stig-
vaxandi síðustu ár.
Mótið hefst kl. 8 á laugardags-
morgun og lýkur á sunnudag.
Forráðamenn mótsins beina
þeim tilmælum til kylfinga að
skrá sig sem fyrst en skráningar-
frestur rennur út á morgun kl. 18.
Rástímar liggja fyrir kl. 21 annað
kvöld. Skráning fer fram í golf-
skálanum en síminn þar er 96-
41000 og verður svarað í hann
eftir hádegi í dag og á morgun.
Það er Landsbanki íslands sem
gefur verðlaun í mótið.
Breiöablik skaust með þessum
sigri á topp deildarinnar en
KA situr í neðsta sætinu.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik og sóttu þau á víxl.
KA-liðinu gekk þó ekki vel að
skapa sér færi en Breiðabliks-
stúlkurnar fengu þrjú færi og
skoruðu úr þeim öllum.
í síðari hálfleik virtist KA-liðið
gefast upp og var um algera ein-
stefnu að ræða. Blikastúlkur
bættu tveimur mörkum við og
tryggðu sér sigur sem var sann-
gjarn en óþarflega stór.
KA-liðið hefur verið óheppið
með meiðsli og svo var einnig í
þessum leik. Linda Hersteins-
dóttir meiddist og þurfti að fara
af leikvelli þegar 20 mínútur voru
til leiksloka. Þá hafði KA-liðið
skipt inná báðum varamönnum
sínum þannig að það lék með 10
leikmenn til leiksloka.
Sigrún Óttarsdóttir skoraði tvö
mörk fyrir Breiðablik og Kristrún
Lilja Daðadóttir, Rósa Dögg
Jónsdóttir og Vanda Sigurgeirs-
dóttir skoruðu eitt mark hver.
Stefán Steinsen sem skoraði eina
mark hálfleiksins með glæsileg-
um skalla í samskeytin.
í síðari hálfleik voru Þróttarar
mun sterkari aðilinn og náði
Haukur Magnússon að skora
annað mark og tryggja Þrótti
sigur. TBA-maðurinn Ólafur
Hilmarsson fékk að líta rauða
spjaldið fyrir að stoppa knöttinn
með höndum.
Aganefnd KSÍ:
f-i* / • ^ 't
Fjonr ur 1.
deild í bann
Fjórir 1. deiidarleikmenn voru
dæmdir í leikbann á fundi
Aganefndar KSÍ í fyrrakvöld.
Sigurður Lárusson, Þór, Krist-
inn R. Jónsson, Fram, og Ingi
Björn Albertsson, þjálfari
Vals, voru dæmdir í eins leiks
bann vegna brottvísana og
Guðmundur Valur Sigurðsson,
FH, var dæmdur í eins leiks
bann vegna fjögurra gulra
spjalda.
Ólafur Hilmarsson, TBA, fékk
leikbann vegna brottvísunar sem
hann hefur þegar tekið út. Þá
fékk Viðar Egilsson, 2. flokki
Völsungs, eins leiks bann vegna
brottvísunar.
íþrótta- og tómstundaráð:
Götuteikni-
keppni við
Dynheima
- á laugardaginn
Á laugardaginn gengst íþrótta-
og tómstundaráð Akureyrar
fyrir götuteiknikeppni. Keppn-
in fer fram fyrir framan Dyn-
heima og hefst hún kl. 14.
Keppnin felst í að teikna bestu
myndina á götuna fyrir framan
Dynheima. Teiknað verður með
krít sem íþrótta- og tómstunda-
ráð leggur til. Keppnin er ætluð
börnum 14 ára og yngri og er
þátttökugjald 200 kr. Skráning
fer fram í Dynheimum frá kl. 10-
11 daglega í síma 22710 en einnig
er hægt að mæta á staðinn án þess
að skrá sig.