Dagur - 19.07.1990, Síða 12
sameinað á
eirni stað
- kennslu hætt
í Skúlagarði
Skólahald í Skúlagarði í Keldu-
neshreppi hefur verið aflagt og
munu nemendur sem þar voru
við nám síðastliðið skólaár
stunda nám sitt í Lundi í Öxar-
firði á komandi vetri. Keldu-
neshreppur og Öxarfjarðar-
hreppur hafa staðið sameigin-
Iega að skólahaldi á þessum
tveimur stöðum fram að þessu.
Nemendur á aldrinum 6-11 ára
úr báðum þessum hreppum hafa
verið í skóla í Skúlagarði og hef-
ur nemendum úr Öxarfjarðar-
hreppi verið ekið á milli. Tólf ára
og eldri hafa hins vegar verið við
nám í Lundi og Keldnesingum
ekið þangað. Milli þessara staða
eru um 15 km. Nú á sem sagt að
sameina skólahald hreppanna á
einn stað, til hagræðingar.
Nemendur í Skúlagarði voru
þrettán á síðasta skólaári og þeim
hluta þeirra sem eru úr Keldu-
neshreppi verður ekið til og frá
Lundi næsta vetur. Einn kennari
starfaði við skólann í Skúlagarði
sl. vetur og hefur honum verið
boðið starf í Lundi.
Skúlagarður hefur einnig verið
félagsheimili Keldhverfinga og
má búast við að hann þjóni því
hlutverki áfram, þrátt fyrir að
skólahald leggist niður. Skóla-
stjórabústaður sá, sem er við
Skúlagarð, er í eigu Keldunes-
hrepps og ríkisins og mun hrepp-
urinn væntanlega geta ráðstafað
honum eins og hann vill. -vs
Gáfu dýraspítalanum 17 þúsimd
Þessar brosmildu stúlkur, sem heita Sif Dorothea Mörk, Guðrún Hallgrímsdóttir og Eva María Hall-
grímsdóttir, sýndu það í verki á dögunum að þær eru miklir dýravinir. Þær tóku sig til og efndu til hluta-
veltu til styrktar dýraspítalanum og söfnuðu hvorki meira né minna en 17.100 krónum. Stúlkurnar eiga
lof fyrir framtakið og það verður væntanlega öðrum til eftirbreytni. Þess má geta að fyrir þá sem vilja
leggja þessu góða málefni lið er söfnunarnúmerið gíró 2119 í Búnaðarbankanum á Akureyri. óþh
„Þetta hefur gengið vel og við-
tökurnar verið prýðilegar,“
sagði Magnús Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Sana á
Akureyri, þegar Dagur grennsl-
aðist fyrir um það hvernig
neytendur hefðu tekið nýjustu
afurð verksmiðjunnar, Helga
magra.
Að sögn Magnúsar virðist það
hafa hitt í mark að bjóða upp á
kaloríuskertan bjór og ekki spillti
fyrir hversu ódýr hann væri.
Verksmiðjan var með allmargar
bjórtegundir fyrir á markaðinum
og segir Magnús að þær verði all-
ar framleiddar áfram.
Aðspurður sagði Magnús að
ekkert ólíklegt væri að frekari
nýjungar myndu líta dagsins ljós
hjá verksmiðjunni. „Það er alltaf
eitthvað í gerjun hjá okkur, f
orðsins fyllstu merkingu. Við,
eins og öll önnur iðnfyrirtæki,
verðum að vera með einhverja
vöruþróun og hún er alltaf í
gangi,“ sagði hann.
Magnús segir að bjórsala hafi
verið ágæt í sumar og virðist vera
sem svo að veðrátta hafi töluverð
áhrif á hana, svo og það hvenær
fólk er í sumarleyfi. -vs
Sturtuaðstöðu óskað við tjaldstæðið á Húsavík:
Menn skríða ekki sandblásnir í svefiipokana
- segir Gunnar Höskuldsson, tjaldvörður
Ferðamálafélag Húsavíkur,
sem sér um rckstur tjaldstæðis-
ins í bænum, óskaði eftir því
við bæjaryfirvöld að staðsetja
þvottavél á tjaldstæðinu fyrir
ferðamenn, til þess að þeir
gætu þvegið af sér flíkurnar,
Veðurblíða í Mývatnssveit:
Gróska í lífríkinu
og ferðaþjómistimni
og einnig sturtuaðstöðu.
Þvottavélin er komin á svæðið,
en hvað með sturtuna?
Bjarni Þór Einarsson, bæjar-
stjóri, sagði að hún yrði sett á
fjárhagsáætlun næsta árs. „Það er
aðstaða til að koma upp sturtu-
klefa við tjaldstæðið. Annars er
sundlaugin þarna við hliðina og
við höfum ætlast til þess að fólk
noti þá aðstöðu til að þvo sér,“
sagði Bjarni.
Gunnar Höskuldsson, tjald-
vörður, sagði í samtali við Dag
að utan opnunartíma sundlaugar-
l innar væri oft mikil þörf hjá ferða-
i fólki að komast í bað. „Eftir að
hafa skoðað Öskju t.d., þá er
ekki kræsilegt að skríða sand-
blásinn ofan í svefnpokana,“
sagði Gunnar. Á meðan sturtan
er ekki komin þá er hliðrað til
með því að opna sundlaugina og
sagðist Gunnar vera með lykla að
henni, auk þess sem starfsfólk
laugarinnar væri hið hjálpsam-
asta fólk.
Gunnar sagði að miðað við
blíðviðrið síðustu daga þá hafi
aðsókn verið lítil að tjaldstæð-
inu. „Það er eins og allir vilji vera
við Mývatn. Hér á Húsavík er
fjölmargt að skoða og margt í
boði fyrir ferðamenn,“ sagði
Gunnar. Hjá honum er hægt að
fá veiðileyfi og stangir til að veiða
í Botnsvatni, rétt fyrir ofan
bæinn. „Þar má veiða með öllu
nema dínamíti," sagði Gunnar.
Þvottavélin er komin í skúr við
tjaldstæðið og sagði Gunnar að
þar væri við margt að dunda.
Bókasafn með yfir 90 bókum er í
skúrnum, en Gunnar kvartaði
yfir nokkrum vanskilum á bókun-
um, sem eru flestar enskar papp-
írskiljur. -bjb
Keldunes- og
Öxarfjarðarhreppur:
Skólahald
Helgi magri fær
góðar viðtökur
- mikið um rykmý og ungar dafna vel
Fimmtíu flytja burt frá Skagaströnd:
Er ástæðan draumurinn um
borgina við sundin blá?
Aö undanförnu hefur verið
mikiö af ferðamönnum í Mý-
vatnssveit enda veðurblíða
upp á hvern dag og hitinn
sjaldan undir 20 gráðum.
Ferðamannastraumurinn
virðist stjórnast mjög af
veðurfari og hefur það komið
hagsmunaaðilum á Norður-
landi til góða síðustu vikur
eftir kuldakastiö alræmda
sem fældi fólk frá þessum
landshluta.
„Þetta búið að vera mjög h'f-
legt undanfarið í veðurblíð-
unni. Það er greinilegt að veðr-
ið hefur mikil áhrif í ferðaþjón-
ustunni og stjórnar ekki bara
innlendum ferðamönnum held-
ur líka erlendum ferðamönnum
sem ekki eru í skipulögðum
hópferðum. Ég hef tekið eftir
því að straumurinn skiptist
meira milli landshluta eftir
veðri en fyrir nokkrum árum,
ekki síst hjá þeim sem eru með
tímamiða í rúturnar,“ sagði Jón
Illugason, framkvæmdastjóri
ferðaþjónustunnar Eldár hf. í
Reykjahlíð.
Jón gat þess einnig að það
væri ánægjulegt að sjá hve líf-
ríkið hefði tekið vel við sér í
Mývatnssveit og hann sagði að
þar væri geysilega mikil gróska.
Mikið er um rykmý og fjöl-
margir ungar á vatninu sem
dafna vel. Þetta er veruleg
breyting til batnaðar.
„Það er mjög langt síðan það
hefur verið svona mikið rykmý
hérna. Þetta er búið að vera
viðvarandi síðan í maí og menn
tala um að þeir hafi ekki séð
annað eins í nokkra áratugi,“
sagði Jón og því óhætt að segja
að sveitin blómstri þetta sumar-
ið.
Að lokum má geta þess að
biskup íslands, hr. Ólafur
Skúlason, var væntanlegur til
Mývatnssveitar í gærkvöld í því
skyni að vísitera Reykjahlíðar-
kirkju. SS
LJmtalsveröar mannabreyting-
ar eru á Skagaströnd á þessu
ári. Allt að 50 manns munu
flytja burt og væntanlega ein-
hverjir skila sér í staðinn.
Sveitarstjóraskipti hafa átt sér
stað og útgerðarstjórinn hjá
Skagstrendingi hf. hverfur suð-
ur svo eitthvað sé nefnt. Ann-
ars gengur allt sinn vanagang
að sögn Magnúsar Jónssonar,
hins nýja sveitarstjóra.
Af Skagstrendingi hf. er það
að frétta að Arnar HU 1 hélt aft-
ur til veiða sl. föstudag eftir að
hafa verið stopp vegna bilunar í
tíu daga umfram sumarfríið.
Vinna hefur því verið minni fyrir
vikið og sumarfríið lengra þó að
Örvar HU 21 hafi haldið sig við
veiðarnar. Skagstrending vantar
nú útgerðarstjóra, netagerðar-
meistara og bókara. Að sögn
Sveins Ingólfssonar, fram-
kvæmdastjóra, er samt allt gott
að frétta af fyrirtækinu og veiðin
að glæðast svo að atvinnuskortur
ætti ekki að verða hjá því á næst-
unni.
Nú stendur yfir bygging nýrrar
kirkju á Skagaströnd og er gólf-
efnið fengið alla leið frá Kína.
Vonir standa til að hægt verði að
vígja nýju kirkjuna um mitt
næsta ár, en að sögn Magnúsar
sveitarstjóra vantar prest í kirkj-
una, því að sr. Ægir Fr. Sigur-
geirsson er nú tekinn við Kárs-
nesprestakalli í Kópavogi. Stað-
inn vantar einnig hjúkrunarfræð-
ing og kennara, en vonandi að úr
því rætist innan tíðar. „Þetta var
harður vetur og fór illa með fólk
og ég vil meina að það sé partur
af skýringunni á þessum fólks-
flutningum, fyrir utan náttúrlega
drauminn um borgina miklu við
sundin blá,“ sagði Magnús þegar
Dagur ynnti hann eftir einhverri
skýringu á þessum brottflutningi
fólks frá Skagaströnd.
Gamall draumur þeirra Skag-
strendinga er nú að rætast með
lagningu gangstétta á staðnum.
Að sögn Magnúsar hefur það
hingað til alltaf þurft að víkja fyr-
ir brýnni framkvæmdum, en nú
fer fólk loksins að geta látið
,skósólana smella á steyptum
stéttum þegar gengið er um bæ-
inn. SBG