Dagur - 17.08.1990, Síða 1
73. árgangur Akureyri, föstudagur 17. ágúst 1990 156. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Mvnd: Golli
Sigurður Aðalsteinsson tekur við leyfínu í hendi Ólafs Ragnars Grímssonar
Tollfrjáls varningur á Akureyrarflugvelli:
Afgreiðslumátmn sá sami
og á Keimedy-flugvelli
Frá og með gærdeginum er
Flugfélagi Norðurlands heim-
ilt að selja farþegum í milli-
landaflugi til og frá Akureyr-
arflugvelli tollfrjálsan
varning. Ekki er um að ræða
fríhöfn með sama sniði og
menn þekkja úr Keflavík
heldur forðageymslu sem
starfsmenn félagsins afgreiða
úr samkvæmt pöntunum
farþega.
Ölafur Ragnar Grímsson
fjármálaráðherra afhenti í gær
Sigurði Aðalsteinssyni fram-
kvæmdastjóra Flugfélags
Norðurlands bréf þar sem félag-
inu er veitt leyfi til reksturs toll-
frjálsrar forðageymslu. Enn-
fremur er félaginu heimilað
fyrst um sinn, eða þangað til
tollfrjáls verslun á vegum ríkis-
ins hefur verið sett á fót á Akur-
eyri, að afhenda farþegum sem
koma erlendis frá áfengi og
tóbak úr þessari geymslu. Salan
fer fram með þeim hætti að
farþegar útfylla pöntunarseðla í
vélunum þar sem þeir merkja
við þann varning sem þeir vilja
kaupa. Þegar vélin lendir er það
svo starfsmaður félagsins sem
undir eftirliti tollvarðar afgreið-
ir pantanirnar.
„Þetta er aðferð sem meðal
annars er notuð á Kennedy-
flugvelli sem er með stærstu
alþjóðlegu flugvöllum í heimi,“
sagði Ólafur Ragnar þegar hann
afhenti Sigurði leyfið.
Ólafur sagðist vona að þessi
nýja þjónusta myndi skila sér í
aukningu á millilandaflugi til og
frá Akureyri. Hann sagði enn-
fremur að hér væri um að ræða
mikinn trúnað sem félaginu
væri sýndur. Sigurður Aðal-
steinsson sagði að FN myndi
gera sitt til þess að væntingar
ráðherra mættu rætast. ET
Sveitarfélögin framan Akureyrar:
Kosning um sameiningu verður í október
- sameining gæti átt sér stað um áramót
Iðnþróunarfélag
Þingeyinga:
FuUtrúi alþjóðlegs
ráðgjafarfyrirtækis
til viðræðna
Ásgeir Leifsson, iðnráðgjafi
hjá Iðnþróunarfélagi Þingey-
inga hefur að undanförnu ver-
ið í sambandi við alþjóðlegt
ráðgjafafyrirtæki, Plant Locat-
ion International. Fulltrúi
fyrirtækisins, W.P. Vossen, er
væntanlegur á fund sem hald-
inn verður á Hótel Húsavík
nk. þriðjudag 21. ágúst og
hefst kl. 10 árdegis.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að
veita fyrirtækjum sem eru að
breyta til, stækka við sig, setja af
stað nýja starfsemi eða flytja,
ráðgjöf um hvar þau eigi að
koma sér fyrir. Fyrirtækið býður
upp á verkefni í fjórum þáttum,
m.a. veitir það beina markaðs-
aðstoð við að finna fyrirtæki sem
myndu vilja fjárfesta í rekstri á
ísíandi.
Þetta er dýrt og umfangsmikið
verkefni og m.a. hafa verið boðn-
ir til fundarins á þriðjudag ýmsir
sveitarsjtórnarmenn í Þingeyjar-
sýslum, iðnráðgjafar sem munu
flestir mætar fulltrúar frá Iðnað-
arráðuneyti, Umhverfismála-
ráðuneyti, Byggðastofnun, Iðn-
tæknistofnun, Félagi íslenskra
iðnrekenda og alþingismenn.
Að sögn Ásgeirs verður
umræðuefni fundarins að gera sér
grein fyrir hvort verkefni af þessu
tagi gangi upp, það er að segja
hvort kostnaður og líklegur
árangur sé í samræmi og hvort
þjónusta fyrirtækisins henti
aðstæðum, einkanlega í Þing-
eyjarsýslum en svo á öðrum stöð-
um á landinu. Eftir fundinn á
Ásgeir von á tilboði frá fyrirtæk-
inu og verður verkefnið sett upp,
hvað varðar kostnað og tímasetn-
ingu, og borið undir hagsmuna-
aðila. IM
íbúar í sveitarfélögunum fram-
an Akureyrar ganga væntan-
lega að kjörborði í október-
mánuði næstkomandi þar sem
kosið verður um það hvort
sameina eigi Saurbæjarhrepp,
Önguisstaðahrepp og Hrafna-
gilshrepp í einn hrepp um
næstkomandi áramót. Fari svo
að samþykkt verði að sameina
Umsóknarfrestur um stöðu
sveitarstjóra á Þórshöfn rann
út sl. miðvikudag og bárust alls
fjórar umsóknir. Eins og fram
hefur komið í blaðinu lætur
Daníel Árnason af starfi sveit-
arstjóra á Þórshöfn eftir 4ra
sveitarféíögin þrjú er líklegt að
núverandi sveitarstjórnir komi
sér saman um einn framboðs-
lista til nýrra sveitarstjórnar-
kosninga sem þá þyrftu að fara
fram fyrir áramót, þ.e. ef mót-
framboð bærist.
Ólafur Vagnsson, oddviti
Hrafnagilshrepps, segir að stefnt
sé að því að sameining, verði hún
ára setu í því embætti.
Ekki fengust upplýsingar um
nöfn umsækjenda þar sem
hreppsnefnd Þórshafnarhrepps
kemur ekki saman fyrr en á
mánudag til að fjalla unt umsókn-
irnar. -bjb
samþykkt, eigi sér stað um ára-
mót. Félagsmálaráðuneytið hefur
lagt nokkra áherslu á að menn
komi sér saman um lista fólks úr
öllum hreppunum þannig að það
sé tryggt að allir gömlu hrepparn-
ir eigi fulltrúa í nýrri sveitarstjórn
á fyrsta kjörtímabili.
I skoðanakönnun samhliða
sveitarstjórnarkosningunum í vor
kom í ljós að um 80% fólks í
þessum hreppum töldu að stefna
bæri að sameiningu hreppanna
þriggja. Því má telja miklar líkur
á að af þessari sameiningu verði.
Auk heldur þarf meirihluti íbúa
sveitarfélaganna að greiða
atkvæði gegn sameiningu í kosn-
ingum til þess að hún falli. Með
hjásetu í þessum kosningum er
því fólk í raun að greiða atkvæði
með sameiningu.
Ólafur segir að gert sé ráð fyrir
að íbúum sveitarfélaganna verði
kynntar hugmyndir núverandi
sveitarstjórna um fyrirkomulag
ýmissa hluta við sameiningu
sveitarfélaganna þriggja. „Áð
vísu er það svo að við getum ekki
bundið hendur þeirrar sveitar-
stjórnar sem tæki við hinu nýja
sveitarfélagi. Því er það hinnar
nýju sveitarstjórnar að taka
ákvarðanir um marga hluti,"
sagði Ólafur.
Að líkindum verða nokkur
nöfn á hinn nýja hrepp lögð í
dóm íbúanna samhliða kosning-
unni um sameiningu og þeim þá
jafnframt gert mögulegt að setja
fram aðrar tillögur.
Ólafur segir að gert sé ráð fyrir
að ráðinn verði sveitarstjóri í
fullt starf, verði sameining
samþykkt. Engar reglur eru fyrir
því hvort hann er utanaðkom-
andi eða ráðinn úr hópi þeirra
sem skipa sveitarstjórnina. JÓH
Húsavík:
Skálabergið
selttil
Saltfangs hf.
á Neskaupstað
Fækkun varð í bátaflota Hús-
víkinga sl. fímmtudagskvöld cr
Skálaberg ÞH-244 sigldi úr
höfn, selt Saltfangi hf. á Nes-
kaupstað. Á iínuvertíðinni á
haustin hafa samtals 16-18
manns haft atvinnu sína sem
skipverjar á bátnum og við
úrvinnslu afla hans hjá Fiska-
bergi.
Skálaberg er 63 tonna fram-
byggður eikarbátur, smíðaður í
Danmörku 1957 en endurbyggð-
ur frá grunni 1985 hjá Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur. Báturinn
er á sóknarmarki með 270 tonna
þorskkvóta og 90 tonn af rækju,
og á talsvert eftir af þessa árs
kvóta. Hann hefur undanfarin ár
veitt um 200 tonn á línuvertíðinni
á haustin.
Eigendur Skálabergs voru
bræðurnir Egill og Aðalgeir Ol-
geirssynir. Aðalgeir rekur fisk-
verkunina Fiskaberg sem á næstu
dögum mun skipa út miklu af
skreið. Aðspurður um hvort
verkefnaskortur yrði hjá starfs-
mönnum fyrirtækisins eftir að
skreiðinni hefði verið skipað út
eða hvort þeir bræður ætluðu að
kaupa annan hát, sagði Aðalgeir
að það yrði hans verkefni að
leysa þennan vanda á næstu
vikum. Auðvitað vantaði bát en
markaður væri þungur og hann
teldi núverandi aðstæður ekki
vera þannig að þær ykju bjart-
sýni. IM
Vopnafjörður:
Vilmiindur
Gíslason
ráðinn
sveitarstjóri
Fyrir skömmu var gengið frá
ráðningu nýs svcitarstjóra á
Vopnafirði. Vilmundur
Gíslason, fjármálastjóri
Tanga hf., var ráðinn en
hann var ekki á meðal um-
sækjenda uin stöðuna.
Níu untsóknir bárust en
hreppsnefnd Vopnafjarðar-
hrepps kom sér ekki saman
unt að ráða neinn úr þeim hópi
og var því leitað til Vilmund-
ar. Mánuöur cr liðinn frá því
umsóknarfrestur rann út en
eins og áður sagði komst
hreppsnefndin ekki að sam-
komulagi um hvern ætti að
ráða, þrátt fyrir þennan
umþóttunartíma.
Vilmundur er úr Rcykjavík
en hefur starfað sem fjármála-
stjóri hjá Tanga hf. á annað
ár. Hann tekur forntlega við
stöðunni þann 1. oktöber nk.
Fráfarandi sveitarstjóri er
Sveinn Guðmundsson. -vs
Staða sveitarstjóra á Þórshöfn:
Fjórar umsóknir bárust