Dagur - 17.08.1990, Side 7
Föstudagur 17. ágúst 1990 - DAGUR - 7
Innpakkaðar rúllur bíða flutnings. Myndir: þi
Aukinn kostnaður
Þau tæki sem þarf til að rúlla hey
og pakka því í lofttæmdar
umbúður útheimta tölverðan
stofnkostnað. Verð á rúlluvél er
á bilinu frá sex- til níuhundruð
þúsund krónur eftir tegundum og
stærðum véla. Vél ti! pökkunar
kostar minna en óvarlegt er að
áætla verðið undir hálfri milljón
og margar gerðir öllu dýrari.
Baggagreip á ámoksturstæki
dráttarvélar kostar allt að eitt
hundrað þúsund krónur en slíkt
tæki er nauðsynlegt til að hreyfa
heyrúllurnar úr stað. Ef miðað er
við að bóndi eigi að minnsta kosti
eina 60 til 70 hestafla dráttarvél
með ámoksturstækjum má reik-
ina með að stofnkostnaður við
rúlluaðferðina sé ekki undir einni
og hálfri milljón króna.
Einnig verður að líta á þessa
upphæð sem lágmarksstofnkostn-
að þar sem gera verður ráð fyrir
að dráttarvélakaup verði nauðsyn-
leg, einkum þar sem notast hefur
verið við minni og eldri gerðir
véla. Þá eru breytingar sem hugs-
anlega verður að gera á gripahús-
um og hlöðum og búnaður til
vetrarfóðrunar ekki talinn með
en slíkar breytingar eru misjafnar
og fara eftir þeim byggingum og
aðstöðu sem fyrir hendi er á
hverjum sveitabæ. Með hliðsjón
af því má gera ráð fyrir að heild-
arkostnaður fyrir bónda sem
skiptir yfir í rúlluaðferð og hefur
byggt á jörðinni ineð annarskon-
ar heyverkunaraðferðir í huga
verði ekki undir tveimur og hálfri
til þrem milljónum króna. Hafa
verður í huga að þessar tölur eru
algjörlega áætlaðar og aðstæður
verulega mismunandi milli ein-
stakra bæja. Einnig getur verið
misjafnt hvað einstakir bændur
vilja leggja í mikinn stofnkostnað
til að hagræða vetrarstörfum.
Þrjár aðferðir
á sama bænum
Nokkrir bændur hafa alfarið
skipt um heyverkunaraðferðir.
Þeir eru þó mikið fleiri, sem hafa
fengið sér tæki til rúllunar, en
nota einnig gömlu aðferðirnar
jafnframt nýjunginni. Bændur
sem rætt var við töldu flestir aug-
ljósa kosti við rúiluaðferðina en
kváðust samt ekki tilbúnir að
fórna eldri aðferðum fyrir hana.
Rúlluaðferðin er mjög hagstæð
þegar erfitt er að þurrka á velli
sökum tíðarfars og af samtölum
við inenn má ætla að óþurrkar
undanfarin tvö til þrjú sumur hafi
flýtt því að margir keyptu sér
þessi tæki og hafa notað þau í
meira mæli en þeir höfðu ef til
vill hugsað sér í byrjun. Mörg
eldri heyskapartæki, svo sem
heyhleðsluvagnar, heydreifikerfi,
bindivélar og síðast en ekki síst
súgþurrkunarkerfi eru í fullu
gildi en lítils virði ef hætt er að
nota þau vegna breytinga á
heyskaparaðferðum. Ennfremur
hafa erfiðleikar við geymslu og
vetrarfóðrun dregið úr mörgum
bændum að hagnýta sér rúllu-
heyskapinn til fulls. Þeir bændur
sem rætt var við hafa farið nokk-
uð mismunandi leiðir við að
geyma rúllur og fóðra úr þeim.
Þær aðferðir hafa að mestu mið-
ast við byggingar og aðstæður á
hverjum stað. Það kom fram í
máli manna að ákveðinnar fyrir-
huggju yrði að gæta, menn yrðu
að hugsa dæmið til enda og gera
sér fulla grein fyrir hvernig þeir
ætluðu að nýta rúlluheyið áður
en lagt væri út í miklar fjárfest-
ingar við kaup á tækjum.
Verktakastarfsemi
í heyskap
Fyrir tuttugu og átta árum ferð-
aðist Gunnar Bjarnason, ráðu-
nautur, um landið og hélt fyrir-
lestra um það sem hann nefndi
nýja stefnu í landbúnaði. Hann
talaði meðal annars um að skyn-
væða þyrfti íslenska bændur. Þar
átti hann við ýmiskonar hagræð-
ingu er hann taldi að gagni myndi
koma og meðal annars ræddi
hann um samnýtingu ýmiskonar
vélakosts. Bændur tóku boðskap
Gunnars misjafnlega, margir
töldu hann illa henta þjóðarsál-
inni til sveita og á fjölmennasta
fundi sem Bændaklúbbur Eyja-
fjarðar hefur staðið fyrir og hald-
inn var í Sjallanum veturinn 1964
kepptust bændur við að andmæla
honum til klukkan að ganga fjög-
ur um nótt. Samnýting véla var
ekki á dagskrá og eiginleg verk-
takastarfsemi þekktist ekki til
sveita utan umferðavinnuvéla
búnaðarfélaga og ræktunarsam-
banda. Með tilkomu rúllu-
heyskaparinns hefur slík starf-
semi tekið að þróast. Bændur
hafa fengið nágranna sína eða
sveitunga, sem eiga rúlluvélar, til
að rúlla eitthvert magn af heyi
fyrir sig. Á þann hátt hefur
mönnum gefist kostur að prufa
sig áfram með fóðrunina og finna
út á hvern hátt hentugast sé fyrir
þá að hagnýta sér þessa tækni
áður en þeir leggja sjálfir út í
kaup á dýrum tækjum. Fullyrða
má að verktakastarfsemi af því
tagi eigi ekki aðeins fullan rétt á
sér, heldur sé hún beinlínis nauð-
synleg, ekki síst fyrir þá sem
aðeins vilja rúlla mjög takmark-
að magn af sínum heyskap.
Kýrin hefur
nokkuð að segja
Þótt mikill áhugi sé fyrir rúllu-
heyskap er engin bylting á ferð-
inni. Það sést best á því hvað
bændur hafa verið hikandi að
hætta öðrum heyskaparaðferð-
um. Húsakynni og geymslu-
aðstaða er þess valdandi að rúllu-
aðferðin á erfiðara uppdráttar en
ætla mætti. Bændur eru einnig
hikandi að leggja í miklar fjár-
festingar meðan annar búnaður
er í fullu gildi. Þó er ljóst að þessi
heyskaparaðferð mun koma til
með að aukast á næstu árum. Það
hefur reynsla tveggja síðustu
sumra sýnt. Fóðurfræðingar telja
að fóðurgildi rúllaðs heys sé svip-
að eða ívið meira en þess sem
verkað er með eldri aðferðum.
Það fer þó að sjálfsögðu eftir
gæðum þess hráefnis sem notað
er. Á erfiðum sumrum geta gæð-
in því orðið mun meiri en ef
hrakið hey er flutt í hlöðu. Bænd-
ur sem rætt var við töldu þó að
„sælkerinn" kýrin sé allt eins hrif-
in af gömlu súgþurrkuðu töð-
unni, ef hún er vel verkuð, og
hinu rúllaða fóðri. Og það má
vera að á því strandi algjör inn-
reiö rúlluheyskaparinns í íslensk-
an landbúnað. Kýrin hefur nefni-
lega þó nokkuð að segja ef hún
myndar sér skoðun á annað borð.
Og hún er vanaföst. Það fer þó
ekki hjá því að rúlluheyskapur-
inn á sinn þátt í hvað heyönnum
líkur snemma á þessu sumri þótt
góða veðrið hafi einnig hjálpað
mikið til. ÞI.
Hentug geymsluaðferð þar sem heyhlöður vantar.
Vegna mikillar sölu
vantar bíla
á staðinn.
MMC Lancer station 4x4, árg.
’88, ek. 40.000.
MMC Space Wagon 4x4, 7
manna, árg. ’88, ek. 40.000.
MMC Pajero Turbo, disel,
iangur, árg. ’87, ek. 76.000.
lange Rover,
72.000.
árg. ’82. ek.
C.H. Monza 1,8 SLE, árg. ’87.
ríiASALINN
Möldursf.
BÍIASAIA
við Hvannavelli.
Símar 24119 og 24170.
Pajero, stuttur, turbo,
disel, árg. ’84.
Uno 60s, árg. ’86, ek.
38.000.
MMC Colt 1500 GLX, 5 dyra,
árg. ’86. Góð kjör.
Bílasala • Bílaskipti