Dagur - 17.08.1990, Blaðsíða 9
Föstudagur 17. ágúst 1990 - DAGUR - 9
I
snemma vanist öllum heimilis-
störfum auk þess að vinna við
búskap, fiskverkun og veiðar-
færi. Finnur og Anton bróðir
hans, sem bjó með honurn í fé-
lagsbúi ásamt Guðrúnu Sigur-
jónsdóttur konu sinni, ráku
útgerð jafnhliða búskapnum.
Var því í nógu að snúast allan
ársins hring fyrir alla er vettlingi
gátu Valdið og Birna fór ekki
varhluta af því puði.
Ekki átti það fyrir Birnu að
liggja að setjast að á æskustöðv-
unum. Ung að árum kynntist hún
mannsefninu sínu Jóni Sigurjóns-
syni, bróður Guðrúnar sem fyrr
er nefnd.
Þáu giftust 21. nóvember 1936
og bjuggu allan sinn búskap á
Akureyri, þar sem Jón stundaði
smíðar og rak síðar trésmíða-
verkstæði.
Birna og Jón byggðu sér hús að
Holtagötu 2 og fluttu í það vorið
1938. Þetta varð hús hamingju,
gestrisni oggóðvildar. Fjölmargir
vinir og vandamenn og einnig
þeir sem kalla má óviðkomandi
nutu greiðasemi þeirra hjóna.
Þótt húsið væri ekki stórt var
þar ætíð nóg rúm fyrir gesti og
gangandi.
Auk vinafólks og ættingja á
Akureyri, sem litu inn til þess að
njóta góðs beina og létta sér geð-
ið með spjalli við þau hjón, lágu
leiðir margra ferðalanga einkum
frá Ólafsfirði inn á heimilið til
lengri eða skemmri dvalar. Þessir
ferðalangar gistu gjarnan milli
ferða póstbátsins Drangs, sem
var helsta samgöngutækið við
útbyggðir Eyjafjarðar hér á árum
áður.
Það kom sér oft vel að hús-
móðirin var vön margmenni í
heimili frá æskustöðvunum, því
að oft var þröng á þingi á Holta-
götunni. Öllum var tekið opnum
örmum rétt eins og þar væri
þeirra annað heimili.
í bernsku þurfti móðir mín eitt
sinn að koma mér í fóstur heilan
vetur. Ég veit að það var erfið
ákvörðun fyrir hana sem ein-
stæða móður að láta einkason
sinn frá sér og fá ekki að sjá hann
um margra mánaða skeið vegna
dvalar í öðrum landshluta. Okk-
ur báðum til gæfu tóku Birna og
Jón mig að sér þennan vetur og
fóstruðu mig sem sinn eigin son.
Alla tíð síðan hef ég verið bund-
inn þeint og heimili þeirra sterk-
um böndum.
Þótt gestagangur setti oft svip
sinn á heimilið á Holtagötu 2 var
það þó öðru fremur samastaður
samhentra, hamingjusamra
hjóna og barnanna þeirra.
Birna og Jón eignuðust þrjú
börn: Helgu sem er gift Grétari
Ólafssyni, Kristínu sem er gift
Rafni Sveinssyni og Sigurjón sem
er kvæntur Þóru Hjaltadóttur.
I Þau eru öll búsett á Akureyri.
Þótt Birna ætti lengst af gæfu-
ríka ævi í samfylgd góðs maka og
barna urðu síðustu æviárin henni
erfið og áreynslumikil. í árslok
1985 dó móðir hennar. í mars
1986 missti hún eiginmann sinn
og tveimur mánuðum síðar féll
faðir hennar frá. Sjálf veiktist
hún af krabbameini og var oft
kvölum kvalin.
Baráttan við þennan illvíga
sjúkdóm varð löng og ströng
áður en yfir lauk.
Með Birnu Finnsdóttur er góð
kona gengin til moldar. Margir
munu minnast hennar og biðja
henni blessunar í hinstu för með
þökk fyrir allt sem hún veitti
þeim á lífsleiðinni.
Hreinn Bernharðsson.
Margs er að minnast,
margt er þér að þakka
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Bricm.)
í dag verður til moldar borin frá
Akureyrarkirkju Birna Kristín
Finnsdóttir. Hún var fædd í
Ólafsfirði 18. ágúst 1917. Birna
var elst 20 barna sem þau foreldr-
ar hennar Mundína Freydís Þor-
láksdóttir og Finnur Björnsson
frá ytri-Á í Ólafsfirði eignuðust
og komust 16 þeirra til fullorðins
ára. Er nú Birna þeirra fyrst til að
kveðja þennan stóra en óvenju
samstillta systkinahóp.
Birna giftist 21. nóvember
1936 Jóni Sigurjónssyni trésmið
en hann lést 22. mars 1986. Þau
bjuggu lengst af í Holtagötu 2 á
Akureyri. Þau eignuðust 3 börn
Helgu, Krístínu og Sigurjón
Hilmar sem öll eru búsett á
Akureyri.
Mér er það minnisstætt þegar
ég fór að venja komur mínar á
þeirra heimili fyrir hart nær 30
árum sem tilvonandi tengdasonur
hve Birna tók mér strax af ein-
skærri hlýju og það var ábcrandi
hvað hún bar mikla umhyggju
fyrir allri fjölskyldunni og fram-
tíð barna sinna og síðar barna-
barnanna. Á þessu heimili var
sérstakur siður í heiðri hafður en
það var morgunkaffið á sunnu-
dagsmorgna. Þar sameinaðist öll
fjölskyldan og ræddi dægurmálin
og alltaf var nóg pláss þó svo að
fjölskyldan væri alltaf að stækka
og þarna komu líka nokkrir ná-
grannar og vinir. Hélst þessi sið-
ur þar til nú fyrir 3 mánuðum að
Birna varð að fara á sjúkrahús
sökum sjúkdóms síns.
Birna var sterk og ákveðin og
lífssýn hennar varð ekki breytt.
Það varð mér til mikillar gæfu að
fá hana fyrir tengdamóður því
fáar konur munu henni líkar.
Æðruleysi og óbilandi trú á hið
góða var sterkur þáttur í lífi
hennar, hún var mjög minnug og
var oft gaman að heyra hana rifja
upp bernskuár sín frá Ólafsfirði.
Hún hafði jafnan á takteinum öll
örnefni þaðan því að Ólafsfjörð-
ur var fjörðurinn hennar, þá var
viðbrugðið ættfræðifróðleik
hennar svo maður undraðist oft
hvernig hægt var að muna allt
þetta.
Hún hélt fagurt og einkar hlý-
legt heimili þar sem snyrti-
mennska var í fyrirrúmi. Þetta
heimili var jafnan öllum opið og
var þar oft mikill gestagangur og
eru þeir ófáir sem þar hafa gist
um lengri eða skemmri tíma.
Það hlýtur að vera hverjum
manni hvatning að sjá hvernig
hægt er að taka erfiðum sjúk-
dómi með svo mikili rósemi og
yfirvegun eins og Birna gerði.
Aldrei örlaði á uppgjöf eða
sjálfsvorkunn og það var allt svo
sjálfsagt og rétt sem læknarnir
lögðu fyrir hana að ég efast um
að til hafi verið samvinnuþýðari
sjúklingur. Að lokum vil ég
þakka þessari góðu konu fyrir
alla tryggðina og elskuna í minn
garð og fjölskyldu minnar. Ég
veit að algóður Guð bíður eftir
henni og veitir henni skjól og
vernd við hlið manns síns er þau
nú sameinast að nýju í skauti
hans því nú er hún komin þangað
þar sem henni líður vel.
Rafn Sveinsson.
Kveðja frá Kvennadeild
S.V.F.Í. á Akureyri
Birna Finnsdóttir er látin. Hún
var ein af fyrstu konunum sem
gengu í deildina eftir stofnun
hennar og var hún alla tíð virkur
félagi.
Birna var ein af þeim konum
sem gott var að leita til þegar á
hjálp þurfti að halda við ýmis
verkefni, sem unnið var að. Hún
virtist alltaf vera tilbúin til starfa
og það korn sér oft vel. En hún
gerði meira, hún fékk manninn
sinn í lið með sér til að vinna fyrir
deildina. A
Jón Sigurjónsson, maður
Birnu, vann við smíði björgunar-
skýlisins við Þorgeirsfjörð og
einnig við smíði Sesseljubúðar á
Öxnadalsheiði og lagði með því
deildinni mikið lið. Allt þctta
vann hann endurgjaldslaust.
Þau Birna og Jón sáu um rekst-
ur og viðhald Sesseljubúðar í
mörg ár og þökkum við það heils-
hugar.
Birna var í mörg ár í stjórn
deildarinnar og vann að málefn-
um hennar meðan kraftar leyfðu.
Það er mikils virði fyrir félag
eins og S.V.F.Í. að eignast með-
limi sem hafa hugsjónina að leið-
arljósi og vinna að henni af heil-
um hug.
Við þökkunt Birnu öll hennar
góðu störf og vottum börnum
hennar og öllum aðstandendum
samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Þessir tveir ungu athafnanienn, Sigurður Þór Sveinsson og Hjálmar Guð-
mundsson, héldu hlutaveltu og söfnuðu kr. 2125,00 til styrktar barnadeild
FSA.
i
dagskró fjölmiðla
Sjónvarpið
Föstudagur 17. ágúst
17.50 Fjörkálfar (18).
(Alvin and the Chipmunks.)
18.20 Unglingarnir í hverfinu (15).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Poppkorn.
19.20 Leyniskjöl Piglets (1).
Breskur gamanmyndaflokkur þar sem
gert er grín að starfsemi bresku leyni-
þjónustunnar.
19.50 Tommi og Jenni.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Eddie Skoller (2).
Gestur hans í þetta skiptid er söngvar-
inn Cliff Richard.
21.35 Víg í köldu striði.
(The Cold War Killers.)
Bresk spennumynd byggð á skáldsögu
eftir Antony Price. Fyrrum prófessor í
Oxford og sérfræðingur i málefnum Aust-
urlanda nær fer að rannsaka dularfullt
flugslys sem varð árið 1956.
Aðalhlutverk Terence Stamp og Carmen
Du Sautoy.
23.00 Gíslinn.
(Hostage)
Bandarísk bíómynd frá árinu 1987.
Ung kona, sem er fangelsuð vegna morðs
þótt saklaus sé, flýr eftir að faðir hennar
ógnar lífi hennar og tekur fimmtuga konu
sem gisl.
Aðalhlutverk Carol Burnett og Carrie
Hamilton.
00.05 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
Föstudagur 17. ágúst
16.45 Nágrannar.
(Neighbours.)
17.30 Emelía.
17.35 Jakari.
17.40 Zorro.
18.05 Hendersonkrakkarnir.
18.30 Bylmingur.
19.19 19.19
20.30 Ferðast um tímann.
(Quantum Leap.)
21.20 Á ströndinni.#
(Back to the Beach.)
í upphafi sjöunda áratugarins nutu dans-
og söngvamyndir Annette Funicello og
Frankie Avalon mikilla vinsælda hérlendis
sem annars staðar. Myndin sem við sýn-
um nú tekur upp þráðinn 20 árum síðar.
Þau skötuhjú eru ekki lengur áhyggju-
lausir táningar heldur miðaldra hjón með
börn á táningsaldri.
Aðalhlutverk: Annette Funicello, Frankie
Avalon og Lori Loughlin.
22.50 í ljósaskiptunum.
(Twilight Zone.)
23.15 Sjálfstæði.#
(Independence.)
Bandarísk sjónvarpsmynd sem greinir frá
lögreglustjóra í Villta vestrinu svokallaða.
Hann hefur einsett sér að hefna fjöl-
skyldu sinnar sem var myrt og að halda
uppi lögum og reglu í smábæ einum,
útverði siðmenningarinnar. Hann átti ein-
mitt mestan þátt í því að koma aga á
bæjarlifið.
Bönnuð börnum.
00.50 Furðusögur VII.
(Amazing Stories VH)
Fjórar smásögur sem allar hafa það sam-
eiginlegt að teygja skemmtilega á imynd-
unaraflinu.
Meðal annars er greint frá því þegar jóla-
sveinninn er handtekinn á jólanótt, fyrir
innbrot, strákhnokki og afi hans skiptast
á líkömum eina dagstund svo að sá gamli
geti notið útivistar einu sinni enn, rithöf-
undur fær óvenjulegan aðstoðarmann,
eða öllu heldur aðstoðarhlut, og fleira.
Aðalhlutverk: Robert Townsend, M.
Emmet Walsh og Charles Durning.
02.20 Daqskrárlok.
Rás 1
Föstudagur 17. ágúst
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið.
Fréttayfiriit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Fréttir á ensku
að loknu fréttayfirliti kl. 7.30.
Sumarljóð kl. 7.15, hreppstjóraspjall rétt
fyrir kl. 8.00, menningarpistill kl. 8.22 og
ferðabrot kl. 8.45.
Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30
og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Á Saltkráku"
eftir Astrid Lindgren.
Silja Aðalsteinsdóttir les þýðingu sína
(10).
9.20 Morgunleikfimi - Trimm og teygjur.
9.30 Innlit.
10.00 Fróttir.
10.03 Þjónustu- og neytendahornið.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Á ferð.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fróttayfirlit.
Úr fuglabókinni.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Vedurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - Hárkollur.
13.30 Miðdegissagan: „Vakningin“ eftir
Kate Chopin.
Sunna Borg les þýðingu Jóns Karls Helga-
sonar (17).
14.00 Fréttir.
14.03 Ljúflingslög.
15.00 Fróttir.
15.03 í fréttum var þetta helst.
Þriðji þáttur: Skilaboð að handan.
16.00 Fréttir.
16.03 Að utan.
16.10 Dagbókin.
16.15 Vedurfregnir.
16.20 Barnaútvarpid - Létt grín og gaman.
17.00 Fréttir.
17.03 Spænsk tónlist á síödegi.
18.00 Fróttir.
18.03 Sumaraftann.
18.30 Tónlist Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Vedurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Hljómplöturabb.
20.40 í Múlaþingi.
Umsjón: Guðmundur Steingrímsson.
21.30 Sumarsagan: „Ást á Rauöu ljósi" eft-
ir Jóhönnu Kristjónsdóttur.
Guðrún S. Gísladóttir les (8).
22.00 Fróttir.
22.07 Að utan.
22.15 Veðurfregnir ■ Orð kvöldsins.
22.25 Úr fuglabókinni.
22.30 Danslög.
23.00 Kvöldgestir.
24.00 Fróttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Föstudagur 17. ágúst
7.03 Morgunútvarpið - Vaknið til lífsins.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
11.03 Sólarsumar
með Jóhönnu Harðardóttur.
Molar og mannlífsskot í bland við góða
tónlist.
- Þarfaþing kl. 11.30.
12.00 Fréttayfirlit.
12.20 Hádegisfréttir.
- Sólarsumar heldur áfram.
14.10 Brot úr degi.
16.03 Dagskrá.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur i beinni
útsendingu, sími 91-686090.
19.00 Kvöldfróttir.
19.32 Söðlad um.
Magnús R. Einarsson kynnir bandariska
sveitatónlist.
20.30 Gullskífan - „Rickie Lee Jones" frá
1979.
21.00 Á djasstónleikum.
22.07 Nætursól.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpið
1.00 Nóttin er ung.
2.00 Fréttir.
2.05 Gramm á fóninn.
3.00 Áfram ísland.
4.00 Fróttir.
4.05 Undir værðarvoð.
4.30 Veöurfregnir.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
5.01 Á djasstónleikum.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
6.01 Úr smiðjunni - Little Richard.
7.00 Áfram ísland.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Föstudagur 17. ágúst
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.35-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Föstudagur 17. ágúst
07.00 Eiríkur Jónsson.
09.00 Fréttir.
09.10 Páll Þorsteinsson.
11.00 Valdís Gunnarsdóttir.
14.00 Heigi Rúnar Óskarsson.
17.00 Siðdegisiréttir.
17.15 Reykjavík siðdegis.
18.30 Kvöldstenunning i Reykjavik.
22.00 Á næturvaktinni.
03.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Hljóðbylgjan
Föstudagur 17. ágúst
17.00-19.00 Axel Axelsson.