Dagur - 17.08.1990, Side 12
Akureyri, föstudagur 17. ágúst 1990
Fjölbreytt
kaffihlaöborð
alla sunnudaga frá kl. 15-17.
Hægt að sitja úti ef veður leyfir.
Árskógsströnd:
Þýskir sægarpar stöðvaðir
Bóndinn á Litlu-Hámundar-
stöðum á Arskógsströnd kom í
gær í veg fyrir glæfralega sigl-
ingu um fimmtán Vestur-Þjóð-
verja á gúmmíbát tii Hríseyjar.
Þjóðverjarnir eru komnir hing-
að til Iands með eigin rútu þar
sem allt er til alls, þar á meðal
stór og mikill gúmmíbátur, ekki
ólíkur velþekktum bátum af
svokallaðri Zodiac-gerð.
Um hádegisbil í gær hugðust
fimmtán úr hópnum leggja upp
frá Hámundarstaðahálsinum og
var ferðinni heitið til Hríseyjar.
Fólkið ætlaði að róa þessum
fyrirferðarmikla bát til eyjarinnar
með aðeins tveimur árum og var
ekkert þeirra búið björgunarvest-
Bónda tókst að fá fólkið ofan
af fyrirætlunum sínum enda væri
hér um mikla glæfrasiglingu að
ræða með slíkum búnaði. Um er
að ræða 4-5 kílómetra leið þar
sem straumar eru erfiðir og mikið
um hættuleg sker. ET
Útgerðarfélag Akureyringa:
Bíður eftir svari við
tilboði í Aðalvík KE-95
Útgerðarfélag Akureyringa
h.f. hefur gert tilboö í frysti-
togarann Aðalvík KE-95 sem
er 451 tonn að stærð, en svar
frá eigendum skipsins, Hrað-
frystihúsi Keflavíkur hf. er
ekki að vænta fyrr en eftir
helgi þar sem beðið er eftir
bókhaldsuppgjöri og svo hafa
forráðamenn félagsins verið að
semja við lánadrottna, og voru
m.a. a Akureyri á miðvikudag
til viðræðna við forsvarsmenn
Slippstöðvarinnar, en Slipp-
stöðin mun eiga um 40 milljón
króna kröfu á Hraðfrystihús
Keflavíkur vegna Aðalvikur.
Þingmenn Reykjaneskjördæm-
Blönduós:
„Húnaver ’89“
á uppboði
óskilamunum komið út
Fjölmenni var á lögreglu-
stöðinni á Blönduósi seinni-
part sl. miðvikudags. Þar
fór fram uppboð á óskila-
munum frá því í Húnver 89
og einnig var á staðnum
nauðungaruppboð á dráttar-
vél, bíl og fleiru.
Meðal þeirra óskilamuna,
sem boðnir voru upp, voru
tjöld, svefnpokar og eitthvað
af fötum. Að sögn inanna var
ekki mikill slagur um neitt af
þessu, en boðið grimmt og
svefnpoki og tjald fór saman á
500 til 3000 krónur. Allt voru
þetta heillegir hlutir, en öllu
sem ónýtt var hafði lögreglan
hent. Agóðinn af uppboðinu
rennur til Félags lögreglu-
manna, en það er vaninn um
land allt.
Á nauðungaruppboðinu var
það dráttarvél af Belarusgerð
sem mesta athygli vakti og fór
hún á hlutfallslega hæsta verö-
inu á uppboðinu. Einnig var
boðinn upp bíl, sjónvarp og
hljómflutningstæki.
Að sögn Kristjáns Þor-
björnssonar, aðalvarðstjóra,
er svona uppboð yfirleitt einu
sinni á ári á Blönduósi og allt-
af mætir á þau fjöldi fólks,
aðallega til aö fylgjast með.
SBG
is hafa fundað með eigendum um
leiðir til að halda skipinu í hér-
aði, en ekki eru líkur á að það
verði. Skipið hefur sóknarmarks-
kvóta, um 1800 þorskígildi, en
líklegt er að skipinu verði haldið
á ísfiskveiðum ef að kaupum
verður.
Pétur Bjarnason stjórnarfor-
maður Ú.A. segist vera sæmilega
bjartsýnn á að samningar takist
ef Hraðfrystihúsinu takist að
ganga frá samningum við sína
lándadrottna, en félagið er í
greiðslustöðvun út þennan
mánuð.
Söluverð Aðalvíkur gæti verið
nærri 500 milljónir króna ef mið-
að er við gangverð og kvóta svip-
aðra skipa. GG
Á suðupunkti.
Mynd: Golli
Krossanesverksmiðj an:
Jóhann Pétur Andersen
ráðinn framkvæmdastjóri
Stjórn Krossanesverksmiðj-
unnar ákvað á fundi sínum sl.
miðvikudag að ráða Jóhann
Pétur Andersen sem fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunn-
ar. Jóhann Pétur hefur að
undanförnu starfað sem fram-
Sláturhús Fjallalambs hf. á Kópaskeri:
„Gefur okkur vonir um
að botninum sé náð“
- segir Haraldur Sigurðsson
„Stóra spurningin er hvernig
tekst til með reksturinn á þessu
húsi. Ef vel tekst til mun slát-
urhúsið skipta gríðarlegu máli
fyrir byggðarlagið,“ segir Har-
aldur Sigurðsson, hrepps-
nefndarmaður á Núpskötlu 2 í
Presthólahreppi, um slátrun í
sláturhúsi Fjallalambs hf. á
Kópaskeri.
„Þetta gefur okkur vonir um
það að botninum sé náð og við
förum að snúa hlutunum við í
Presthólahreppi og nærliggjandi
sveitarfélögum. Fleira er í far-
vatninu. Fram hefur komið að
við erum að skoða sameiningu
sveitarfélaganna og hér var nýlega
ráðinn atvinnumálafulltrúi. Það
er öruggt mál að við erum ekkert
að gefast upp. Við ætlum okkur
að snúa vörn í sókn. Sláturhúsið
er bara fyrsta skrefið af vonandi
mörgurn," sagði Haraldur. óþh
kvæmdastjóri hjá Fiskimjöli
og lýsi hf. í Grindavík og ekki
er ákveðið nákvæmlega hve-
nær hann mun hefja störf í
Krossanesi.
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
stjórnarformaður Krossaness,
sagði í samtali við Dag að miklar
vonir væru bundnar við störf
Jóhanns. Jóhann Pétur ætti ekki
að vera Akureyringum ókunnug-
ur því hann starfaði á árum áður
sem fjármálastjóri Slippstöðvar-
innar og skömmu áður en hann
yfirgaf Akureyri starfaði hann
hjá Krossanesverksmiðjunni þeg-
ar Pétur Antonsson var fram-
kvæmdastjóri. Jóhann Pétur
starfar einmitt nú við hlið Péturs
í Grindavík.
Hólmsteinn sagði að Jóhann
myndi klára sinn uppsagnarfrest í
Grindavík og þessa dagana er
verið að ganga frá því hvenær
hann byrjar í Krossanesi. Eins og
komið hefur fram hafa viðræður
verið í gangi milli Krossaness og
ístess um fyrirhugað samstarf af
einhverju tagi, og Hólmsteinn
sagði að með ráðningu Jóhanns
væri verið að taka ákveðna stefnu
í því máli.
„Við ætlum að vera með okkar
framkvæmdastjóra og ræða við
ístess um önnur hagræðingarmál,
eins og t.d. gæðaeftirlit og lager.
Við ætlum að ná eins góðri sam-
vinnu við ístess og við getum,
þannig að það verði til hag-
ræðingar fyrir báða aðila,“ sagði
Hólmsteinn og bætti við að auk
hefðbundinna framkvæmdastjóra-
starfa myndi Jóhann Pétur sjá um
bókhald og sölumál verksmiðj-
unnar. -bjb
Húsavík:
Húsnæðisnefiid býður út blokk
Húsnæðisnefnd Húsavíkur-
bæjar hefur boðið út byggingu
12 íbúða fjölbýlishúss að
Grundargarði 6 og verða til-
boð opnuð þriðjudaginn 21.
ágúst.
Húsnæðisnefndin hefur lieim-
ild til að hefja byggingu átta
íbúða á þessu ári og samþykki
hefur fengist til að hefja byggingu
Fulltrúar í menntamálanefnd sænska þingsins á Akureyri: ¥7 / / 1 i 1/1
Miuia ser s isornun o? reKsrnr SKoia
tj Það hefur lengi verið sagt að íslenska skólakerfið sé að mestu leyti eftirmynd þess sænska. Nú virðast Svíar telja sig geta lært eitthvað af Islend- ingum því í gær voru staddir á Akureyri 18 fulltrúar í mennta- málanefnd sænska þingsins í þeim tilgangi að kynna sér ýmis atriði varðandi rekstur og stjórnun skóla á íslandi. Á Akureyri heimsótti nefndin Menntaskólann og Verkmennta- skólann, Háskólann og auk þess Útgerðarfélag Akureyringa. Til Akureyrar komu Svíarnir frá Hólum þar sem þeir kynntu sér rekstur bændaskólans en áður höfðu þeir kynnt sér bæði grunn- skóla og framhaldsskóla í Reykjavík. Meðal þeirra atriða sem hinir sænsku gestir vilja fræðast um er verkaskipting ríkis og sveitar- félaga í rekstri skóla, kennslu- starf í dreifbýli, kennsla fatlaðra, reynsla af bekkjarkerfum annars vegar og áfangakerfum hins veg- ar í framhaldsskólum svo nokkuð sé nefnt. Þá vilja þeir fræðast um íslenska námslánakerfið. ET
blokkarinnar. Ekki er ákveðið að
Búseti gangi til samstarfs við
húsnæðisnefndina um byggingu
blokkarinnar en Búseti hefur
heimild til að hefja byggingu
fimm íbúða á árinu, auk bygging-
ar raðhúss sem framkvæmdir eru
hafnar við. Bjarni Þór Einarsson,
bæjarstjóri sagði að Búseti væri
velkominn til samstarfsins ef þeir
aðilar teldu það henta sér. Búseti
hefur auglýst eftir eldri íbúðum
til kaups og mun vera að kanna
hvaða valkostir eru fyrir hendi.
Ef Búseti gengur ekki til sam-
starfsins reiknar Húsnæðisnefnd
með að nýta hluta af heimild
næsta árs til byggingar þeirra
fjögurra íbúða se óráðstafað er.
Fjölbýlishúsið verður byggt
eftir sömu teikningu og húsið að
Grundargarði 4, sem tekið var í
notkun í janúar sl. IM