Dagur - 20.11.1990, Síða 1
73. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 20. nóvember 1990
223. tölublað
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Þormóður rammi hf.:
Hlutabréf ríkisins
boðin til sölu
Ákveðið hefur verið að kanna
möguleika á að selja hlutabréf
ríkisins í Þormóði ramma hf. á
Siglufirði. Fjármálaráðherra
átti viðræður um málið við
bæjarstjórn Siglufjarðar fyrir
helgina.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra hefur kynnt hug-
myndir sínar um að bjóða ein-
staklingum og fyrirtækjum á
Siglufirði að kaupa hlutabréf
ríkisins í Þorntóði ramma, að
öllu eða nokkru leyti, en auk þess
hafa fyrirspurnir borist ráðuneyt-
inu. „Grundvöllur slíkra viðræðna
unt eignarform fyrirtækisins
væri að tryggja framtíð atvinnu-
lífs á Siglufirði," segir í fréttatil-
kynningu frá fjármálaráðuneyt-
inu. Stjórnarformaður Þormóðs
ramrna er
en
Einar Sveinsson,
hann ntun á næstu vikum ásamt
aðstoðarmanni sjávarútvegsráð-
herra ræða við fyrirtæki og ein-
staklinga um sölu bréfanna.
Ríkið, eða Framkyæmdasjóð-
ur íslands, er langstærsti hluta-
fjáreigandi í Þormóði ramma,
með 98 prósent hlutafjár. Síðast-
liðinn vctur var gerð breyting á
samþykktum félagsins, til að
opna það fyrir sölu bréfa á frjáls-
um markaði. Um leið jók ríkið
hlutafé sitt um hátt á fjórða
hundrað milljónir króna, með
því að yfirtaka stóran hluta af
skuldum og breyta þeim í hluta-
fé. Eign ríkisins í Þormóði
ramma hf. er nú um 400 milljónir
króna, en gamla hlutaféð var
aðeins um 24 milljónir. Einar
Sveinsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður félagsins, segir að
ákvörðunin um að selja hluta-
bréfin eigi ekki að koma neinum
á óvart, því að slíkri sölu hafi
verið stefnt með breytingunum á
samþykktum Þormöðs ramma sl.
vetur.
Svanfríður Jónasdóttir,
aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra, sagði í viðtali við Dag að
vegna ótta manna við að missa
kvótann frá Siglufirði yrði ekki
öðrum en heimaaðilum boðið að
kaupa hlutabréf ríkisins. „Segja
má að eftir skuldbreytingar hjá
Þormóði ramma hafi fyrirtækið
verið gert þokkalega rekstrar- og
söluhæft. Eftir að Ingimundur hf.
keypti Sigló höfum við orðið vör
við að augu athafnamanna hafa
beinst að Siglufirði og þeir velt
fyrir sér hvort vettvangur væri
þar fyrir fleiri ný fyrirtæki. Þá
hafa menn eðlilega horft til
Þormóðs ramma, og ráðuneytið
verið spurt hvort bréf ríkisins
væru föl,“ segir Svanfríður.
EHB
Páll Pétursson, formadur þingflokks Framsóknarflokksins í góðum félagsskap þeirra Jóhönnu Sigurðardóttur,
varaformanns Alþýðuflokksins; Ólafs Ragnars Grímssonar, formanns Alþýðubandalagsins og Júlíusar Sólnes, for-
manns Borgarallokksins en þau þrjú voru sérstakir gestir flokksþings framsóknarmanna á laugardaginn. MymJ: BU
„Framsóknarflokkuriiin verði áfram
kjölfestan í íslenskum stjórnmálum“
- flölmenni og einhugur á 21. flokksþingi Framsóknarflokksins
Tuttugasta og I'yrsta flokksþing
Framsóknarflokksins var hald-
iö í Reykjavík um helgina.
Þingið sótti á sjötta hundrað
fulltrúa úr öllum kjördæmum
landsins og er þetta eitt best
sótta flokksþing framsóknar-
manna frá upphafi. Mikill ein-
hugur ríkti á þinginu um stefnu
Framsóknarflokksins í öllum
helstu málaflokkum, að því
undanskildu að nokkrir þing-
fulltrúar lýstu efasemdum sín-
um um ágæti svonefnds GATT-
tilboðs ríkisstjórnarinnar, er
lýtur að takmörkuðum inn-
flutningi unninna landbúnaðar-
vara.
Rjúpnadeilan á Öxnadalsheiði:
Eyfirðingar héldu
til veiða að venju
- fjögur nöfn tekin niður
Félagar úr Skotveiðifélagi
Eyjafjarðar gengu til rjúpna á
Öxnadalsheiði eins og vana-
lega í góðu veðri um síðustu
helgi. Um tíu félagar fóru til
veiða þeim inegin afréttargirð-
ingar sem Akrahreppur á land
og Skotveiðifélag Akrahrepps
leigði rjúpnaveiðiréttinn á fyrir
nokkru. Menn frá hreppnum
og félaginu voru á heiðinni og
tóku niður nöfn fjögurra veiði-
manna til að kæra.
Árni Bjarnason, hreppstjóri
Akrahrepps, var á heiðinni með
Kára Gunnarssyni, formanni
Skotveiðifélags Akrahrepps.
Hann sagði í samtali við Dag í
gær að allt hefði farið friðsamlega
fram og menn rætt málin í
bróðerni. Ekki hefði verið
vandamál að fá þessi fjögur nöfn
uppgefin og þeir hefðu síðan
ekkert skipt sér frekar af veiði-
mönnum. Árni bjóst við að
hreppurinn og Skotveiðifélagið
myndu reka málið í sameiningu
og þeir myndu kæra mennina í
vikunni.
Ágúst Ásgrímsson, félagi í
Skotveiðifélagi Eyjafjarðar, var
einn þeirra fjögurra sem gáfu upp
nöfn sín. Hann sagði að ekki hefði
verið neinn hiti í mönnunt á heið-
inni, en óvenjufáir verið við veið-
ar miðað við gott veður. Enn-
fremur sagðist hann búast við að
ganga til rjúpna á Öxnadalsheiði
eins og vanalega þrátt fyrir þessa
uppákomu. Ágúst sagði það hafa
verið auðfengið mál að fá upp-
gefið nafn sitt og annarra, en síð-
an hefðu þeir rölt um brekkurnar
og náði hann sjálfur 18 rjúpum
þarna á laugardaginn. SBG
í stjórnmálaályktun þingsins
kemur m.a. fram að Framsókn-
arflokkurinn hafnar aðild íslands
að Evrópubandalaginu. „Þingið
telur að hugmyndir um inngöngu
og aðild að Evrópubandalaginu
séu háskalegar og lýsi uppgjöf við
stjórn eigin mála," segir orðrétt í
ályktuninni.
Byggðamál voru mikið til
umræðu á þinginu. I stjórnmála-
ályktuninni er þess krafist að á
yfirstandandi Alþingi verði geng-
ið frá ákvörðun um að smásölu-
verð raforku til húshitunar og
almennra nota verði hið sama um
allt land. Einnig er þess krafist að
fjölgun starfa í opinberri stjórn-
sýslu verði nær öll utan suðvest-
urhorns landsins á næstu árum.
„Flokksþing Framsóknarflokks-
ins fagnar þeim mikila árangri
sem ríkisstjórnin hefur náð í
efnahags- og atvinnumálum og
telur mikilvægt að Framsóknar-
flokkurinn verði áfram kjölfestan
í íslenskum stjórnmálum," segir
ennfremur í ályktuninni.
Steingrímur Herntannsson,
forsætisráðherra, var nær ein-
róma endurkjörinn formaður
Framsóknarflokksins. Hann
hlaut 323 atkvæði af 338, eða
95,6% atkvæða. Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra, var
endurkjörinn varaformaður.
Hann hlaut 330 atkvæði af 350
eða 94,3 af hundraði. Guðmund-
ur Bjarnason, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, var
endurkjörinn ritari; hlaut 311
atkvæði af 351 eða 88,6%. Finn-
ur Ingólfsson var endurkjörinn
gjaldkeri flokksins; hlaut 226
atkvæði af 356 greiddum, eða
63,5%.
Aðeins ein breyting var gerð á
stjórn Framsóknarflökksins á
flokksþinginu um hclgina. Val-
gerður Sverrisdóttir, alþingis-
maður, var kjörin vararitari
flokksins í stað Ragnheiðar
Sveinbjörnsdóttir, sem gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Þá var
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull-
trúi, endurkjörin varagjaldkeri
flokksins. BB.
Sjá nánar af flokksþinginu á
bls. 6.
Sléttbakur EA:
Til heimahaftiar eftír
36 sólarhringa veiðiferð
„Við erum á Deildargrunninu,
en togararnir eru dreifðir um
allan sjó. Allir eru að leita.
Haustið er búið að vera heldur
lélegt, en þessi túr hefur geng-
ið að vonum. Já, 36 sólarhring-
ar í hafi er langur tími og reyn-
ir á mannskapinn,“ sagði
Kristján Halldórsson, skip-
stjóri á Sléttbaki EA-304 frá
Akureyri.
Að sögn Kristjáns er þetta
lengsta veiðiferð sem Sléttbakur
hefur farið. Yfirvofandi vcrkfalli
er um að kenna.
„Aflinn síðastliðna nótt var að
mestu ufsi, en þorskur í gær.
Okkur hefur gengið nokkuð vel
miðað við árstíma. Haustin eru
alltaf erfið. 36 sólarhringar í hafi
er langur tími og því þurftum við
að skreppa inn til Hafnarfjarðar
fyrir tíu dögum til að ná í olíu og
kost. Strákarnir taka þessu nokk-
uð vel, en þeir yngstu eru að
verða órólegir. Við verðunt
heima í kvöld,“ sagði Kristján
skipstjóri. ój
Lögreglan á Akureyri:
Mikið um ölvun og skakkaföll
Olvun var töluverð á Akureyri
um helgina og annasamt hjá
lögreglu af þeim sökum. Víða
kom til minniháttar ryskinga
og varð starfsmaður Billiard-
stofunnar fyrir því óláni að
missa fimm tennur eftir að
unglingur hafði skallað hann í
andlitið.
Að sögn varðstjóra hjá lögregl-
unni var erilsamt vegna ýmissa
mála sem má rekja til ölvunar en
ekki voru nein stórátök á ferð-
inni.
Klukkan 13.37 á laugardaginn
var ekið á sex ára gamalt barn á
Dalsbraut og hlaut það einhver
meiðsl á fæti. Lögreglan segir
ökumanninn grunaðan um ölvun
við akstur.
Fjórir ökumenn voru teknir
fyrir of hraðan akstur um helg-
ina. Einn ók á 100 km hraða
innanbæjar og var hann sviptur
ökuréttindum. Annar ók á 132
km hraða fyrir utan bæinn og var
hann boðaður til fulltrúa hjá
fógeta í gær.
Síðdegis í gær höfðu fjórir
árekstrar verið tilkynntir til lög-
reglunnar en mjög hált var á göt-
um bæjarins og skilyrði til aksturs
því slæm. Reikna má með að
fleiri óhöpp hafi orðið í umferð-
inni án þess að þau hafi komið til
kasta lögreglunnar. SS