Dagur - 20.11.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 20. nóvember 1990 - DAGUR - 3
4
fréttir
Raufarhafnarhreppur:
Auglýst eftir nýjum sveitarstjóra
- bygging íþróttahúss hugsanlega næsta stórverkefni
Staða sveitarstjóra í Raufar-
hafnarhreppi hefur verið aug-
lýst laus til umsóknar og er
umsóknarfrestur til 10. des-
ember. Að sögn Sigurbjargar
Jónsdóttur, núverandi sveitar-
stjóra, var það samkomulag
gert við myndun meirihluta
hreppsnefndar sl. vor að hún
gegndi starfinu áfram út þetta
ár en síðan yrði staðan auglýst
laus til umsóknar.
Ekki mun fastákveðið hvenær
nýr sveitarstjóri tekur til starfa og
verður væntanlega tekið mið af
aðstæðum þess sem ráðinn verð-
ur í stöðuna. Sigurbjörg sagðist
þó reikna með að annaðhvort
yrði miðað við áramót eða mán-
aðamótin janúar/febrúar á næsta
ári.
Nýbúið er að auglýsa stöðuna
þannig að umsóknir eru ekki
farnar að streyma ennþá. En
livaða verkefni bíða nýs sveitar-
stjóra á Raufarhöfn? Sigurbjörg
svaraði því til að arftaki hennar
myndi taka við ýmsum verkefn-
um sem eru í gangi og halda utan
um þau og nefndi hún t.a.rn.
byggingu þjónustuíbúða fyrir
aldraða í hreppnum. Reiknað er
með að því stórverkefni Ijúki á
næsta ári.
„Við erum líka að gæla við þá
hugmynd að geta byggt íþrótta-
Guðný Gerður Gunnarsdóttir:
Laxdalshús verði bæjarsögusafn
- hugmynd um nýtingu hússins á borði menningarmálanefndar
Menningarmálanefnd Akur-
eyrar hefur rætt um nýtingu
Laxdalshúss á grundvelli hug-
mynda Guðnýjar Gerðar
Gunnarsdóttur, forstöðu-
manns Minjasafnsins á Akur-
eyri. Hún leggur til að þetta
elsta hús bæjarins verði angi af
Minjasafninu og hýsi starfsemi
sem tengist sögu Akureyrar.
„Tillaga mín til menningar-
málanefndar gerir ráð fyrir að í
Laxdalshúsi verði sýningarhald í
tengslum við sögu Akureyrar. Á
sumrin væri kannski aðallega ver-
ið að höfða til ferðafólks en fyrir
utan ferðamannatímann mætti
hugsa sér að húsið nýttist sem lif-
andi safn fyrir bæjarbúa og að
þar væri hægt að efna til skóla-
sýninga," sagði Guðný Gerður.
í Laxdalshúsi hefur verið ljós-
Aðalfundur Félags hrossabænda:
Traustsyfirlýsing við
fulltrúa í kynbótanefhd
- langur fundur og strangur
Aðalfundur Félags hrossa-
bænda var haldinn að Löngu-
mýri í Skagafirði sl. föstudag.
Félagið varð flmmtán ára
gamalt í ár og um kvöldið var
kvöldvaka fyrir fundargesti.
Eitt það markverðasta sem
kom fram á fundinum var
traustsyfirlýsing við fulltrúa
félagsins í kynbótanefnd
hrossaræktenda.
Að sögn Einars E. Gíslasonar,
sem var endurkjörinn formaður,
var mikið rætt um þau dómara-
mál sem hafa verið í brennidepl-
inuni í sumar og traustsyfirlýsing-
in kom í kjölfar þeirrar umræðu.
Ársskýrsla var lögð fram og
einnig var rætt um hvort taka ætti
upp spjaldadóma á hross í stað
núverandi kerfis. Þeirri hugmynd
var vísað til kynbótanefndarinn-
ar. Samþykkt var að vinna með
Búnaðarfélagi íslands að hrossa-
rækt. Svokallað „stimpilmál“ bar
einnig á góma og samþykkt að
leitast við að ná samkomulagi við
Búnaðarfélagið um það. Ákveð-
ið var að blóðrannsókn þurfi á
stóðhesta til að þeir komist í
ættbók.
Fundurinn stóð frá klukkan
ellefu um morguninn til hálftíu
um kvöldið og eftir það sáu Skag-
firðingar um kvöldvöku og síðan
var dansað fram eftir nóttu.
Sérstakir gestir á fundinum
voru búnaðarmálastjóri, ráðu-
nautar Búnaðarfélagsins og ráðu-
neytisstjóri landbúnaðarráðu-
neytisins.
Einar E. Gíslason var endur-
kjörinn formaður og Halldór
Gunnarsson sömuleiðis sem
varaformaður. SBG
Sjálfstæðisflokkurinn í
Norðurlandskjördæmi eystra:
Halldór, Tómas og Svan-
hildur í efstu sætunum
Gengiö var frá framboöslista
Sjálfstæðisllokksins í Norður-
landskjördæmi eystra á fundi
kjördæmisráðs flokksins á
Akureyri um helgina. Halldór
Blöndal, alþingismaður, skipar
áfram efsta sæti listans og
Tómas Ingi Olrich, mennta-
skólakennari á Akureyri, skipar
annað sætið. í þriðja sæti er
Svanhildur Árnadóttir, bæjar-
fulltrúi á Dalvík. í síðustu
alþingiskosningum fékk Sjálf-
stæðisflokkurinn einn mann
kjörinn í kjördæminu.
Skipan í önnur sæti listans
verður sem hér segir: í fjórða
sæti verður Sigurður Björnsson
Ólafsfirði, Jón Helgi Björnsson
Laxamýri í S.-Þingeyjarsýslu í
fimmta sæti, Kristín Trampe
Ólafsfirði í því sjötta, Guðmund-
ur Hólmgeirsson á Húsavík í sjö-
unda, Árni Ólason Hrísey í átt-
unda sæti, Valdimar Kjartansson
Hauganesi í því níúnda, Anna
Blöndal Akureyri í tíunda sæti,
Björgvin Þóroddsson Garði Þistil-
firði í ellefta sæti, Valgerður
Hrólfsdóttir Akureyri í tólfta,
Margrét Kristinsdóttir Akureyri í
þrettánda sæti og Björn Dagbjarts-
son Reykjavík í því fjórtánda.
óþh
myndasýning yfir sumarmánuð-
ina og tengist sú sýning sögu
Akureyrar. Hér er um að ræða
nánari útfærslu á þeirri hugmynd
og grunnhugmyndin byggir á að
húsið verði bæjarsögusafn, enda
vel til þess fallið sem elsta húsið
og staðsett í elsta bæjarhlutan-
úm.
Guðný Gerður sagðist vel sjá
fyrir sér að skólar gætu nýtt sér
slíkt safn og einnig væri hægt að
bjóða upp á fyrirlestra fyrir hópa
og gönguferðir í sögulegum til-
gangi út frá Laxdalshúsi. Hún
gerir ráð fyrir að hér yrði um
sameiginlegt verkefni Minja-
safnsins og menningarmála-
nefndar að ræða og hefur nefndin
verið að skoða málið nánar. SS
hús við sundlaugina og hugsan-
lega yrði það næsta stórfram-
kvæmd á staðnum. Það er ekkert
íþróttahús til í sýslunni og eðli-
legast væri að það risi á Raufar-
höfn sem er miðsvæðis, ef það
verður byggt á annað borð,"
sagði Sigurbjörg.
Aðspurð sagði hún að ekki
hefði verið farið út í formlegar
viðræður við önnur sveitarfélög í
Norður-Þingeyjarsýslu um hugs-
anlegt samstarf við byggingu
íþróttahúss en hún taldi að þetta
ætti að geta orðið sameiginlegt
verkefni sveitarfélaganna. SS
SiguröarGiihnnuidssomrhf.
HAFNARSTRÆTI96 SÍMI96-24423 AKUREYRI
Nýkomið
Kjólar, blússur, pils, dömupeysur,
angórahúfur, koddaver, svæfilver,
dúkar í mörgum stæröum og
margt fleira á hagstæðu verði.
gureyrar
höfundur
Jón Hjaltason
er komin út í takmörkuðu upplagi.
Bókin er seld í öllum bókaverslunum á Akureyri, bókabúðum Máls og
menningar Reykjavík og versluninni Sogni Dalvík.
Er einnig seld í áskrift.
Nánari upplýsingar í síma 96-27245.
--------------------------------------------------------
Saga Akureyrar
Pósthólf 334 . 602 Akureyri
Vinsamlegast sendið mér, án nokkurs aukakostnaðar, Sögu Akureyrar, 1. b.
Eg óska að borga bókina út í hönd við afhendingu Q eða með
VISA[j] EUROQ] GIROQ íeinu[[] tvennu[] lagi.
Verð bókarinnar er kr. 5.350,00.
Ef staðgreidd kr. 5.000,00.
Nánari uppl. í síma 27245.
Kortnr. Gildir til:
Nafn: Undirskrift: Kennitala:
Heimilisfang: Sími: