Dagur - 20.11.1990, Page 9
Þriðjudagur 20. nóvember 1990 - DAGUR - 9
Handknattleikur, 1. deild:
Enn ósigur hjá KA
KA-menn máttu þola sinn 4.
ósigur á heimavelli þegar liðið
tapaði 24:27 fyrir íslandsmeist-
urum FH á föstudagskvöldið.
Meistararnir höfðu undirtökin
nær allan tímann þrátt fyrir að
í lið þeirra hafi vantað þrjá lykil-
menn og sigur þeirra var
öruggur. Staðan í leikhléi var
13:10, FH í vil.
Leikurinn fór rólega af stað og
þegar tæpar 7 mínútur voru liðn-
ar skoruðu KA-menn fyrsta mark
sitt og jöfnuðu 1:1. FH-ingar
höfðu síðan frumkvæðið í frarn-
haldinu en munurinn var ekki
nema 1-2 mörk framanaf. I seinni
hálfleik jókst munurinn og náði
FH mest 5 marka mun.
KA-menn náðu sér ekki á strik
frekar en í síðustu leikjum og svo
virðist sem einhver þreyta eða
leiði sé í mannskapnum. Sóknar-
leikurinn var þungur og voru það
helst Pétur Bjarnason og Sigur-
páll Árni sem gerðu góða hluti
þar. Vörnin náði sér ekki á strik
og markvarslan var lítil.
Hjá FH-ingum voru Guðjón
Árnason og Stefán Kristjánsson
allt í öllu og Bergsveinn Berg-
sveinsson varði þokkalega. Ann-
ars var lítill meistarabragur á leik
liðsins.
Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
7/1. Pétur Bjarnason ö. Erlingur Kristjáns-
son 5. Hans Guðmundsson 4, Andrés
Magnússon 1.
Mörk FH: Guðjón Árnason S. Stcfán
Kristjánsson 8/3. Knútur Sigurðsson 4.
Pétur Pctcrsen 3. Hálfdán Þórðarson 2.
Þorgils Óttar Mathiescn 2.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hák-
on Sigurbjörnsson. Gcrðu sín mistök
cins og aðrir.
Stefán Magnússon, Sigurður Arnar Ólafsson og félagar þeirra í KA lögðu HK í tveggja tíma leik á laugardaginn.
Blak, 1. deild karla:
Æsispennandi hjá KA og HK
KA-menn unnu HK 3:2 í 1.
deild karla í blaki á laugardag-
inn. Leikurinn fór fram í
íþróttahúsi Glerárskóla og var
jafn og mjög spennandi. Þurftu
liðin 115 mínútur til að gera út
um viðureignina en það er
óvenjulegt að blakleikir séu
þetta langir.
HK-ingar eru tæknilega sterkir
og mjög baráttuglaðir. Þeir spila
hratt og verjast vel á vellinum
þannig að er erfitt að eiga við þá.
Þeir byrjuðu með 15:9 sigri en
KA-menn unnu næstu hrinu
16:14 og þá þriðju 15:13. Þájöfn-
uðu HK-ingar 15:6 og komust
síðan í 11:5. KA-menn söxuðu á
forskotið og jöfnuðu 13:13 en
HK-ingar skoruðu 14. stigið.
KA-menn gáfust hins vegar ekki
upp og náðu að skora þrjú síð-
ustu stigin og tryggja sér sigur-
inn.
Blak, 1. deild kvenna:
Völsungar í toppbaráttu
Völsungur nældi sér í fjögur
stig í 1. deild kvenna í blaki um
helgina. Liðið lék þá tvo
heimaleiki og vann báða, HK
3:0 og Þrótt N. 3:1.
Völsungur hafði allmikla yfir-
burði í fyrri leiknum enda mót-
staðan ekki mikil. Leikurinn náði
aldrei að verða spennandi eða
skemmtilegur en úrslitin í hrin-
unum urðu 15:9, 15:4 og 15:6.
Leikurinn gegn Þrótti var
sveiflukenndur hjá Völsungi, lið-
ið lék ágætlega á köflum en datt
niður þess á milli. Fyrsta hrinan
var jöfn en Völsungur hafði þó
sigur, 15:13. Þróttarar unnu
næstu hrinu með sama fnun en
eftir það tóku Völsungar öll völd
og sigruðu tvívegis 15:8.
Völsungsliðið er í þriðja sæti
með 10 stig eftir sjö leiki. Liðið
virðist hafa alla burði til að
blanda sér í toppbaráttuna og
verður fróðlegt að fylgjast með
framhaldinu hjá því.
m helgina, unglingamót og úrtökumót fyrir bæjakeppni. Greint verður frá
Handknattleikslið Völsungs
lék tvo útileiki um helgina. A
föstudagskvöldið mætti liðið
ÍS í Reykjavík og sigraði 20:16
en tapaði síðan 24:23 fyrir
Afturcldingu daginn eftir.
Leikurinn á föstudagskvöldið
var slakur hjá báðum liðum en
sigur Völsunga var þó öruggur.
Liðið náði fljótlega 3-4 marka
forystu og hélt henni síðan út
leikinn. Ásmundur Arnarsson
varð markahæstur Völsunga með
7 mörk en Haraldur Haraldsson
skoraði 6.
Óhætt er að segja að Völsung-
ar hafi kastað frá sér sigrinum í
köflóttum leik gegn Aftureld-
ingu. Liðið byrjaði á að ná 5
Ásmundur Arnarsson var marka-
hæstur í báðum leikjunum.
marka forystu í fyrri hálfleik en
heimamenn söxuðu á forskotið
og náðu að jafna í byrjun seinni
hálfleiks. Völsungar náðu aftur
forystunni og þegar skammt var
til leiksloka var staðan 21:17
þeim í vil. Þá kom afleitur kafli
hjá Húsvíkingunum og Aftureld-
ing skoraði 6 mörk í röð og
tryggði sér sigurinn.
Þessi leikur var ágætur að
mörgu leyti en Völsungar naga
sig sennilega í handarbökin yfir
úrslitunum. Ásmundur varð aftur
markahæstur með 7 mörk en
Haraldur og Helgi Helgason
skoruðu 5 hvor. Helgi fékk að
líta rauða spjaldið í leikslok fyrir
mótmæli við dómarana.
KA-menn áttu tvímælalaust
sinn besta leik á þessu keppnis-
tímabili, baráttan var mikil og
leikur liðsins er að smella saman.
HK-liðið barðist einnig mjög vel
en reynsluleysi virtist segja til sín
þegar leikmenn þess létu skapið
hlaupa með sig í gönur í lokin.
KA-menn eiga erfitt verkefni
fyrir höndum því um næstu helgi
fer liðið til Reykjavíkur og leikur
þar gegn ÍS og Þrótti.
Pétur Bjarnason og félagar hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu. Þeir
eiga útilcik gegn Selfyfsyngum í kvöld. Mymi: Guiií.
Handknattleikur, 1. deild:
Völsungar misstu niður
gjörunninn leik
- gegn Aftureldingu - sigruðu ÍS 20:16