Dagur - 20.11.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 20. nóvember 1990
íþróttir
Peter Beardsley afgreiddi Coventry
- stórsigur Arsenal gegn Southampton - West Ham sækir á í 2. deild
j Peter Beardsley skoraði sigurmark Liverpool gegn Coventry.
Ekkert var ieikið í deildakeppn-
inni í sl. viku þar sem bresku
landsliðin voru í eldlínunni í
Evrópukeppni landsliða. Þrátt
fyrir það breyttist staðan í 1.
deild er 2 stig voru dæmd af
Arsenal og 1 af Man. Utd.
vegna átaka leikmanna liðanna
á dögunum. Auk stiganna sem
liðin misstu voru þau einnig
dæmd til að greiða 50.000
pund hvort í sekt. En þá eru
það leikir laugardagsins.
Leikur Coventry og Liverpool
var sýndur í sjónvarpinu og fengu
menn að sjá spennandi og
skemmtilegan leik. Terry Butch-
er tók við sem framkvæmdastjóri
hjá Coventry í vikunni, en hann
var leikmaður hjá Rangers í
Skotlandi. Hann var ráðinn er
John Sillett lýsti því yfir að hann
myndi ekki framlengja samning
sinn við Coventry í vor og var þá
snarlega rekinn.
Butcher lék með sínu nýja liði
gegn Liverpool og má vera ánægð-
ur með frammistöðu manna
sinna þrátt fyrir tapið. Kevin
Gallagher átti skot í stöng
Liverpoolmarksins strax á fyrstu
mínútu, en hann ásamt Cyrille
Regis var besti maður Coventry í
leiknum. Regis og Lloyd
McGrath voru einnig nærri að
skora fyrir Coventry en tókst
ekki. Og auðvitað hegndi Liver-
pool þeim grimmilega fyrir, mis-
tökin. Strax eftir hlé skaut Gary
Ablett framhjá opnu marki
Coventry eftir góða sendingu Ian
Rush, en á 73. mín. kom sigur-
mark Liverpool. Ray Houghton
sendi fyrir mark Coventry þar
sem Steve Ogrizovic, truflaður af
Butcher, missti frá sér boltann og
Peter Beardsley þrumaði honum
í netið. Leikmenn Coventry sóttu
stíft í lokin, en tókst ekki að
jafna þrátt fyrir góðar tilraunir og
sanngjarn sigur Liverpool var í
höfn.
Jan Mplby var á bekknum hjá |
Liverpool, en sala hans til Barce-
lona gekk til baka í vikunni.
Q.P.R. setti Jan Stejskal, tékkn-
eska markvörðinn sinn, út úr liði
sínu fyrir leikinn gegn Crystal
Palace, en allt kom fyrir ekki og
O.P.R. tapaði 2:1. Sigur Palace
var sanngjarn, liðið lék betri
knattspyrnu og leikmenn liðsins
voru mun ákveðnari í leik sínum.
Ian Wright skoraði bæði mörk
Palace í leiknum, það fyrra á 23.
mín. er hann fékk of mikið pláss
Úrslit
1. deild
Arsenal-Southampton 4:0
Covcntry-Liverpool 0:1
Leeds Utd.-Derby 3:0
Luton-Manchester City 2:2
Manchester Utd.-Sheffield Utd. 2:0
Norwich-Aston Villa 2:0
Nottingham For.-Sunderland 2:0
Q.P.R.-Crystal Palace 1:2
Wimbledon-Chelsea 2:1
Everton-Tottenham 1:1
2. deild
Bristol City-Hull City 4:1
Charlton-Óxford 3:3
Ipswich-Notts County 0:0
Leicester-Wolves 1:0
Newcastle-Barnsley 0:0
Plymouth-Milwall 3:2
Port Vale-Oldham 1:0
Portsmoulh-Middleshrough 0:3
Sheffield Wed.-Swindon 2:1
Watford-Bristol Rovers 1:1
W.B.A.-Blackburn 2:0
West Ham-Brighton 2:1
hjá varnarmönnum O.P.R. og
það síðara 9 mín. fyrir leikslok
með skalla eftir hornspyrnu.
Leikmenn O-P R- gáfust þó aldrei
upp í leiknum og reyndu hvað
þeir gátu, náðu raunar að jafna
(im miðjan síðari hálfleik með
marki Roy Wegerle, en Wright
sá um að innbyrða sigur Palace
sem nú er í fjórða sæti 1. deildar.
Norwich hefur náð að laga leik
sinn mjög eftir lélega byrjun í
haust og átti ekki í vandræðum
með lið Aston Villa á laugardag.
Derek Mountfield, miðvörður
Villa, var rekinn út af fyrir að
brjóta á Dale Gordon er hann
var kominn einn inn fyrir vörn
Villa og forðaði þannig marki.
En mörkin sem Norwich skoraði
voru falleg. Á 4. mín. skoraði Ian
Crook með glæsilegu langskoti í
stöng og inn. Síðara markið var
ekki síðra, Ruel Fox hóf sóknina
á miðjunni og eftir góðan samleik
við Gordon sendi hann óverjandi
skot fyrir Nigel Spink í marki
Villa í netið. Lið Villa átti þó
góðan sprett í lok fyrri hálfleiks
og David Platt var hættulegur, en
liðið þarf ekki að kvarta undan
úrslitunum.
Leeds Utd. fór létt með Derby
á Elland Road og hefði getað
unnið mun stærri sigur en 3:0.
Miðjuleikmenn Leeds Utd. léku
mjög vel í leiknum og réðu gangi
hans frá upphafi til enda. Lee
Chapman skoraði fyrsta markið
af stuttu færi á 29. mín. og aðeins
nokkrum sek. síðar lagði hann
upp næsta rnark fyrir Gordon
Strachan með fallegri hælspyrnu.
Strachan, David Batty, Gary
McAllister og Gary Speed sýndu
listir sínar á miðjunni, en það var
þó ekki fyrr en á 70. mín. að
Speed bætti þriðja markinu við
með glæsilegu langskoti. Chris
Fairchlough átti einnig skot í
stöngina á marki Derby.
Sóknarmenn Derby fundu
enga leið framhjá Fairclough og
Chris Whyte í vörn Leeds Utd.
og markvörðurinn, John Lukic,
átti náðugan dag.
Peter Reid var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Man. City í vik-
unni og setti sjálfan sig út úr lið-
inu fyrir leikinn gegn Luton. City
virtist hafa tryggt sér sigurinn í
leikhléi með mörkum David
White og Steve Redmond. En í
síðari hálfleik slakaði liðið á og
Leik Everton og Tottenham
var sjónvarpað á Englandi á
sunnudag. Leikurinn var mjög
mikilvægur fyrir bæði liðin, en
af ólíkum ástæðum þó. Totten-
ham fylgir í humátt á eftir
Liverpool og Arsenal í þriðja
sæti 1. deildar, en Everton er
smám saman að þoka sér upp
úr fallbaráttu deildarinnar.
Evertonliðið hóf leikinn betur
og náði forystu eftir aðeins 15
mín. leik. Stuart McCall skoraði
markið fyrir liðið, en 6 mín. fyrir
lok fyrri hálfleiks náði David
Howells að jafna leikinn fyrir
Tottenham. Þrátt fyrir mikla og
harða baráttu liðanna í síðari
hálfleik tókst þeim ekki að skora
fleiri mörk og urðu því að sættast
á jafntefli 1:1.
Þetta var annar leikur Everton
undir stjórn Howard Kendalls og
hefur þeim báðum lokið með
jafntefli. Svo virðist sem hann sé
á réttri leið með liðið og má
örugglega búast við framförum
ásamt vafasamri dómgæslu
reyndist það liðinu dýrt. Iain
Dowie lagaði stöðuna með marki
fyrir Luton á 75. mín. og mínútu
síðar var skoti hans bjargað á
línu af David Brightwell, bak-
verði City. Leikmenn Luton
fengu aukinn kraft við þetta og
börðust af krafti til loka. Pað bar
árangur þegar Dowie fiskaði víta-
spyrnu, sem John Dreyer jafnaði
úr, á síðustu mínútu leiksins, en
Tony Coton í marki City var ekki
ánægður þar sem hann hafði ekki
náð að stilla sér upp í markinu
áður en spyrnan var tekin. Peter
Reid og leikmenn City helltu sér
yfir dómarann í leikslok, en það
dugar' sjaldnast.
Pað tók Mari. Utd. 65 mín. að
finna leiðina í mark botnliðsins
Sheffield Utd. á Old Trafford í
leik liðanna á laugardag, en mark-
ið var þess virði að bíða eftir því.
Paul Ince sendi út til vinstri á
Neil Webb sem gaf fyrir mark
Sheffield þar sem Steve Bruce
afgreiddi boltann í netið. Það var
síðan 5 mín. fyrir leikslok sem
Utd. gulltryggði sigur sinn með
síðara marki sínu í leiknum.
Mark Hughes skoraði eftir góðan
undirbúning Webb. Leikmenn
Utd. léku vel í leiknum og hefðu
átt að vinna stærri sigur, en
heppnin var ekki með Icikmönn-
um liðsins lengst af.
Leikmenn Arsenal hristu af sér
vonbrigðin út af stigunum tveim
sem af þeim voru tekin í vikunni
og burstuðu lið Southampton 4:0
á heimavelli. Liðið er ákveðið í
að veita Liverpool áfram keppni í
deildinni. Þrjú ágæt mörk í fyrri
hálfleik frá Paúl Merson, Ánders
Limpar og Alan Smith gerðu vonir
Southampton að engu. Arsenal
var ekkert á því að slaka á í síðari
hálfleik og Smith bætti fjórða
markinu við á 8. mín. eftir undir-
búning Limpar. Liðið hefði getað
skorað fleiri mörk, en leikmenn
Southampton áttu aldrei mögu-
leika gegn vörn Arsenal sem talin
cr sú sterkasta í 1. deildinni í
dag.
Lið Nottingham For. var hepp-
ið að sleppa inn í leikhléið 1:0
yfir gegn Sunderland sem hafði
átt fyrri hálfleikinn. Tveim
mínútum fyrir hlé náði Steye
Chettle forystunni fyrir Forest
með skoti utan teigs og var það
hjá Everton á næstunni. Totten-
ham hins vegar er á góðum degi
eitt besta liðið í 1. deildinni, en
vantar enn þann stöðugleika í
leik sinn sem er nauðsynlegur því
liði sem ætlar sér í alvöru að sigra
í hinni hörðu keppni 1. deildar.
Þ.L.A.
Rauðhærði Skotinn, Stuart McCall
náði forystunni fyrir Everton gegn
Tottenham.
annað skot þeirra í leiknum. For-
est lék þó betur í síðari hálfleikn-
um og tryggði sigurinn með
marki Nigel Clough.
Wimbledon heldur áfram að
koma á óvart og um helgina lagði
liðið nágranna sína Chelsea að
velli 2:1. Strax á fyrstu mínútu
leiksins varð Peter Nicholas,
leikmaður Chelsea, fyrir því aö
skora sjálfsmark er hann ætlaði
að skalla aukaspyrnu Paul
McGee frá, en skalli hans hafn-
aði í eigin marki. Terry Gibson
bætti öðru marki Wimbledon við
í síðari hálfleik, en hann lék nú
að nýju eftir langvarandi meiðsli.
Gordon Durie náði að laga að-
eins stöðuna fyrir Chelsea með
marki undir lok leiksins.
2. deild
• Oldham er enn efst í 2. deild
þrátt fyrir óvænt tap gegn Port
Vale þar sem Darren Beckford
skoraði eina mark leiksins.
• West Ham er nú aðeins stigi á
eftir Oldham. Stuart Slater og
Colin Foster skoruðu mörk liðs-
ins eftir að Brighton hafði komist
yfir.
• Paul Williams og Nigel Pear-
son skoruðu mörk Sheff. Wed.,
sem er í þriðja sæti, gegn
Swindon.
• David Kelly skoraði mark
Leicester gegn Wolves.
• Bernie Slaven, Ian Baird og
sjálfsmark Gary Stevens sáu um
mörkin fyrir Middlesbrough gegn
Portsmouth. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Liverpool 13 12-1-0 30: 7 37
Arsenal 13 9-4-0 24: 5 29
Tottenham 13 7-5-1 23:10 26
Crystal Palace 13 6-6-1 19:12 24
Leeds Utd. 13 6-4-3 22:14 22
Manchester Utd. 13 6-3-4 17:1420
Manchester City 13 4-7-220:1819
Nottingham For. 13 4-5-417:1717
Norwich 13 5-2-6 17:20 17
W'imbledon 13 3-6-4 16:19 15
Southampton 13 4-3-6 17:23 15
Luton 13 4-3-6 14:23 15
Aston Villa 13 3-5-5 14:14 14
Chelsea 13 3-5-5 16:21 14
Everton 13 2-6-5 17:18 12
Coventry 13 3-3-7 11:16 12
Q.P.R. 13 3-3-7 18:24 12
Sundcrland 13 2-5-6 13:19 11
Derby 13 2-4-7 8:20 10
Sheffield Utd. 13 0-4-9 6:24 4
2. deild
Oldham 17 11-5- 1 32:15 38
West Ham 17 10-7- 0 28:11 37
Sheffield Wed. 16 9-5- 233:1632
Middlesbrough 17 9-3- 528:1630
Wolves 17 7-6- 4 26:17 27
Millwall 17 7-5- 5 29:21 26
Notts County 17 7-4- 6 25:22 25,
Barnsley 17 6-6- 5 27:20 24
Hrighton 16 7-3- 6 28:31 24
Bristol City 15 7-2- 6 25:26 23
Ipswich 17 6-5- 6 21:26 23
Plymouth 17 5-7- 5 21:22 22
Bristol Rovers 16 6-3- 7 22:22 21
W.B.A. 17 5-6- 6 22:22 21
Port Vale 17 6-3- 8 24:28 21
Blackburn 17 6-2- 9 21:25 20
Swindon 17 5-4- 8 23:28 19
Portsmouth 17 5-4- 8 21:29 19
Newcastle 16 4-6- 6 15:17 18
Oxford 17 4-6- 7 26:31 18
Leicestcr 17 5-3- 9 22:36 18
Hull Citv 17 3-6- 8 24:41 15
Charlton 17 3-5- 9 21:27 14
Watford 16 24-10 13:26 10
Jafiit hjá Everton og Tottenham