Dagur - 20.11.1990, Page 11
Þriöjudagur 20. nóvember 1990 - DAGUR - 11
hér & þar
Bráðum koma
blessuð jólin
Við höfum allt efni í aðventu-
og jólaskreytingar.
Margar nýjar gerðir og litir.
Útbúið ykkar eigin aðventu-
kransa og skreylingar.
lómabúðin Laufás
Blómleg búð.
Opið laugardaga og sunnudaga i Hafnarstræti
frá kl. 09.00-16.00 og 10.00-14.00
í Sunnuhlíð laugardaga frá kl. 10.00-18.00
Hörpuútgáfan:
Gullkom
dagsins
- fleyg orð og erindi
Hörpuútgáfan hefur gefið út nýja
bók - Gullkorn dagsins - fleyg
orð og erindi eftir íslenska menn
og erlenda, eitt fyrir hvern dag
ársins. Ólafur Hauklur Árnason
valdi efnið. Bókin er mynd-
skreytt af Bjarna Jónssyni list-
málara. í formála segir:
„Á þeim blöðum, sem hér fara
á eftir koma fram með hugrenn-
ingar sínar íslenskir menn og er-
lendir, heimsfrægir garpar og
aðrir sem flestum eru ókunnir.
En ræða þeirra snýst í megin-
dráttum um hið sama: Manninn,
hinn skyni gædda mann, í flók-
inni veröld þar sem flest virðist á
hverfanda hveli og erfitt reynist
tíðum að greina hismi frá
kjarna".
Bókin er 159 bls. unnin að öllu
leyti í prentsmiðjunni Odda hf.
Ný ljóðabók frá AB:
Kvæði 90
Út er komin ljóðabókin Kvæði
90 eftir Kristján Karlsson. Bókin
er kvæðaflokkur sem ber heitið
Engey í þröngum glugga og vísar
það til þess sem á er horft.
Kvæðin mynda sterka heild þar
sem uppistaðan er útsýni frá
Reykjavík og grennd. Efnið er
sett fram í litsterkum myndum og
út frá þeim hrannast minningar
fjölbreyttrar ævi sem einnig stíga
fram í myndum og líkingum.
Bókin er 38 bls. að stærð.
Við bjóðum persónuleg jólakort
með þínum eigin myndum.
☆ Einföld kort eru á sérstöku tilboðsverði.
☆ Tvöföld kort eru með 10-20% afslætti, eftir magni.
☆ Bendum á að það borgar sig að panta tímanlega.
☆ Afslátturinn gildir út nóvembermánuð.
Athugið! Þeir sem eiga myndir hjá
okkur úr ljósmyndakeppninni,
vinsamlegast hafið samband.
cPeáiomyndii^
Hafnarstræti 98, sími 23520.
Hofsbót 4, sími 23324.
SITJIR ÞÚ í BÍL -
SPENNTU ÞÁ BELTIÐ! UX™4"
Hin sex ára dóttir söngstjörnunnar frægu
Mick Jaggers ætlar auðsjáanlega að feta í
fótspor móður sinnar, módelsins fræga
Jerry Hall. Hér er hún að sýna á góðgerð-
arsamkomu og auðvitað eru þarna stoltir
foreldrar mættir á staðinn þau Mick og
Jerry með soninn James sem er fjögurra
ára gamall.
Dóttir stórpopp-
ara á sýningu
Bæjarbúar!
Tökum á móti notuðum, vel með förnum
fötum.
Upplýsingar veita Guðrún í síma 21024 og Hekla í
síma 23370.
Mæðrastyrksnefnd.