Dagur - 19.01.1991, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 19. janúar 1991
fréttir
Mývatnssveit:
Ráðsteíha rnn hálendis-
vegi og áhrif þeirra
Ráðstefna um hálendisvegi og
áhrif þeirra verður haldin í
Hótel Reynihlíð við Mývatn í
dag og á morgun. Til ráðstefn-
unnar boða Ferðamálafélag
Mývatnssveitar, Ferðamálafé-
Félagsstofnun
í Þingeyjarsýslu:
Stoð - sam-
tök um sorg
Stoð - samtök um sorg - nefn-
ist félag sem stofnað var á
Húsavík sl. mánudagskvöld og
nær félagssvæðið yfir Þingeyj-
arsýslur. Alls hafa fimm fundir
verið haldnir á vegum samtaka
um sorg og sorgarviðbrögð á
svæðinu síðan í vor, tveir á
Húsavík og þrír í Norður-Þing-
eyjarsýslu. Framvegis verður
stefnt að fundum í félaginu
fyrsta mánudag hvers mánaðar
og verða þrír af hverjum fjór-
um fundum haldnir á Húsavík
en einn af hverjum fjórum í
Norðursýslunni.
Allir eru velkomnir á fundi í
félaginu þegar þeir vilja og geta,
ekki aðeins þeir sem misst hafa
ástvini sína, heldur einnig þeir
sem eiga við andlega vanlíðan að
stríða af öðrum sökum, t.d.
vegna veikinda, skilnaðar eða
vinnumissis. Reynt var að setja
félaginu sem einföldust lög og
þar er ekki færð félagaskrá eða
innheimt árgjöld, en séð verður
til með hvort ekki fæst fyrir
kostnaði við félagshaldið úr kaffi-
sjóði þess.
Tilgangur félagsins er að fólk
finni þar stoð og styrk í sorg
sinni. Stjórn Stoðar skipa: Ásdís
Kristjánsdóttir, Húsavík, for-
maður, Sigríður Sigurjónsdóttir,
Húsavík, Gísli G. Auðunsson,
Húsavík, Páll Árnason, Raufar-
höfn og sr. Eiríkur Jóhannsson,
Skinnastað. IM
lag Húsavíkur og nágrennis,
Iðnþróunarfélag Þingeyinga
og Framfarafélag Fljótsdals-
héraðs.
Ráðstefnan verður sett um kl.
13.00 í dag og stendur langt fram
á kvöld. Á morgun hefjast hring-
borðsumræður kl. 10.00 en ráð-
stefnunni verður slitið kl. 12.00 á
hádegi.
Fjölmargir aðilar flytja erindi á
ráðstefnunni í dag og verður
komið víða við. Að þeim loknum
flytja ráðherrar og alþingismenn
ávörp en síðan verða pallborðs-
umræður. Að loknum kvöldverði
í boði heimaaðila, fer fram hóp-
vinna sem stendur fram á kvöld.
-KK
Norðlendingar sem og aðrir landsmenn eru ntargir hverjir farnir að stunda líkamsrækt af miklum krafti, hvort held-
ur sem er á líkamsræktarstöðvum eða í dansstúdíóum. Hreyfing er holl fyrir alla og ekki síst núna eftir jólahátíðina,
þegar flestum okkar verður á að borða meira en góðu hófi gegnir. Myndin var tekin í Dansstúdíói Alice á Akureyri,
þar scm hópur fólks hamaðist við æfingar. Mynd: Golli
Breytt áætlun Eyjagarðarfeijunnar Sæfara:
Númer eitt að bæta samgöngur eyjabúanna
- segir Steingrímur J. Sigfusson, samgönguráðherra
„Viö höfum verið aö skoða
ýmislegt varðandi rekstur ferj-
unnar. Við verðum með ein-
hverjum hætti að ganga frá
þeim málum. Það er ekki sjálf-
gefið að rekstrarform verði
eins og með Hríseyjarferjuna
Sævar, því þarna er um að
ræða allt aðra stærðargráðu í
rekstri. Ein hugmynd er sú að
stofna einhverskonar hlutafé-
lag um ferjuna. Onnur hug-
mynd er að fela sveitarfélögun-
um reksturínn og stofna um
hann einskonar samstarfs-
nefnd,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, en málefni Eyja-
ijarðarferjunnar Sæfara, bæði
rekstrarform og breytt áætlun,
hafa verið töluvert í umræð-
unni að undanförnu.
Steingrímur sagðist hafa rætt
við Grímseyinga, Hríseyinga og
Dalvíkinga um óánægju ýmissa
með breytta áætlun ferjunnar frá
síðustu áramótum. „Það er verið
að skoða þessa hluti. Mér finnst
aðalatriðið að menn æsi sig ekki
um of í þessu máli, en auðvitað
er sjálfsagt að taka það til
Iktó
20 milljóna króna prveiting ríkisins til Dalvíkurhafnar á þessu ári:
Fer öllíað greiða upp í
skuld ríkisins við höfiiina
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Dalvík, segir að 20
milljón króna fjárveiting ríkis-
ins til Dalvíkurhafnar á þessu
fari öll upp í skuld ríkisins
an
við höfnina vegna fram-
kvæmda undanfarinna ára. Því
leggur ríkið ekki fram krónu til
nýframkvæmda á þessu ári.
Kristján segir að fjárveitingin
Félagsmálaráð Sauðárkróks:
Engar umsóknir um starf í félagsmiðstöð
Treglega gengur að ráða í starf
við félagsmiðstöð í Gagn-
fræðaskóla Sauðárkróks. Stað-
an var auglýst fyrir jól en engar
umsóknir höfðu borist um ára-
mót og var því umsóknarfrest-
Vísitala byggingar-
kostnaðar:
Verðbólga 7,2%
á síðasta árí
Hagstofan hefur reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan janúar
1991. Reyndist hún vera 176,8
stig eða 0,2% hærri en í des-
ember. Þessi vísitala gildir fyr-
ir febrúar 1991.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 7,2%. Síðustu þrjá
mánuði hefur vísitalan hækkað
um 2,1% og samsvarar það 8,6%
árshækkun.
- umsóknarfrestur lengdur um mánuð
ur lengdur til næstu mánaða- félagsmiðstöðvar sem tengdar
móta. Fáar fyrirspurnir bárust em skólum lokaðar um helgar.
og virðist sem lítill áhugi sé fyr- kg
ir málinu.
Að sögn Matthíasar Viktors-
sonar félagsmálastjóra eru rnarg-
ar ástæður fyrir að lítill áhugi
virðist vera fyrir starfinu. „Stað-
an var auglýst í jólaösinni og það
getur haft sitt að segja. Eg er
þeirrar skoðunar að fólk sé hálf
hrætt við starfið. Ekki að krakk-
arnir séu erfiðir heldur að þetta
er nýtt starf og verður óneitan-
lega nokkuð strembið til að byrja
með,“ sagði Matthías Viktorsson
félagsmálastjóri.
Nú mun hafa borist ein um-
sókn um starfið frá stúlku sem er
stödd erlendis en hún mun hafa
komið og litið á aðstæður um
jólin. Meiningin er að starfsemi
fari fram í félagsmiðstöðinni til
vors eða meðan skólar eru opnir.
Starfsemi mun verða um helgar í
félagsmiðstöðinni og er það
óvanalegt því víða eru svipaðar
nægi ekki einu sinni til að greiða
upp skuld ríkisins við Dalvíkur-
höfn.
Á síðasta ári var byggður
grjótvarnargarður norðan núver-
andi austur-vestur garðs og vonir
stóðu til að fjármagn fengist til að
unnt yrði að fylla upp það svæði
sem grjótvarnargarðarnir loka af.
Kristján segir ekki ljóst hvort og
þá hversu mikið verði unnið við
höfnina í ár, það ráðist af fram-
lögum bæjarins til hennar, en
vinna við fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir yfirstandandi ár stendur yfir
og ekki ljóst með framlög til ein-
stakra verkefna. óþh
Aflabrögð í desember:
Gnótt af þeim gula
Þorskveiðar gengu mjög vel á
Norðurlandi í desembermán-
uði síðastliðnum miðað við
sama mánuð árið á undan.
Þorskaflinn var 5.687 tonn í
desember 1990 en 2.369 tonn í
sama mánuði 1989. Hvergi
varð eins mikil aukning á þorsk-
afla eins og á Norðurlandi.
Heildaraflinn á Norðurlandi,
sem og á landinu öllu að Vest-
fjörðum undanskildum, var þó
mun minni í desember sl. en í
desember 1989, eða 9.823 tonn á
móti 12.237 tonnum. Skýringin
er fólgin í loðnubresti en loðnan
féll úr 6.598 tonnum í 1.682.
Mikill samdráttur varð einnig
milli þessara mánaða í veiðum á
ufsa og grálúðu en þorskur, ýsa,
rækja og hörpudiskur sóttu í sig
veðrið og er samdráttur heildar-
afla því ekki eins mikill og búast
hefði mátt við í kjölfar ótíðinda
af loðnunni.
Aukningarinnar í þorskafla
gætir víðast hvar á Norðurlandi
en þyngst vegur aukningin á
Akureyri (1.784 á móti 762),
Skagaströnd (864 á móti 102),
Sauðárkróki (591 á móti 77) og í
Ólafsfirði (795 á móti 266). SS
umræðu og skoðunar. Markmið-
ið með þessum ferjurekstri er
númer eitt að bæta samgöngur
eyjabúanna. Þar á eftir koma
almennir samgönguhagsmunir
þar fyrir utan á svæðinu. Þá er
mikilvægt að þessi rekstur sé sem
hagkvæmastur og geti að ein-
hverju marki nýtt sér aðra tekju-
möguleika, ferðaþjónustu og
önnur verkefni,“ sagði Stein-
grímur. „Mín afstaða er sú að
áætlun ferjunnar sé sem hlutlaus-
ust gagnvart samkeppnishags-
munum á svæðinu. Það er ekki
ætlunin með þessari áætlun að
beina viðskiptum á einn stað
frekar en annan,“ bætti ráðherra
við.
Hann vildi minna á í þessu
sambandi að ef ekki hefði komið
til dugnaður og áhugi heima-
manna í Hrísey, hefði Eyjafjarð-
arferjan, sem þjóni bæði Gríms-
ey og Hrísey, trúlega ekki verið
keypt. óþh
Kvennalistinn:
Máhníríður
efst á
Norðurlandi
eystra
Málmfríður Sigurðardóttir,
alþingismaður, skipar efsta
sæti Kvennalistans í Norður-
landskjördæmi eystra fyrir
alþingiskosningarnar í vor.
Málmfríður fékk yfirgnæfandi
stuðning í fyrsta sætið í forvali,
þar sem þrem konum var rað-
að í þrjú efstu sætin. Niður-
staða forvalsins er bindandi.
Mjótt var á munum milli Sigur-
borgar Daðadóttur, dýralæknis á
Akureyri, og Elínar Stephensen,
kennara á Akureyri. Sigurborg
fékk þó ívið meiri stuðning og
hlaut bindandi kosningu í annað
sætið. Elín skipar þriðja sæti
listans.
Jófríður Traustadóttir, sem
sæti á í uppstillingarnefnd
Kvennalistans í kjördæminu, seg-
ir að nefndin komi saman á Ak-
ureyri í dag og þar verði væntan-
lega gengið endanlega frá fram-
boðslistanum. óþh