Dagur - 19.01.1991, Síða 20
Hekla gamla vöknuð eftir 10 ára dvala:
Gjóska hefur fallið
víða á Norðurlandi
spáð norðanátt í dag og því ekki
búist við frekara gjóskufalli
Töluvert gjóskufall hefur verið
um norðanvert landið frá gos-
Vatnsútflutningur Akva:
„Útlitíð er gott“
- segir Þórarinn Sveinsson
„í þessum vatnsmálum er
margt að gerast þó ný pöntun
sé ekki komin. Vatn úr send-
ingunni í nóvember er komið í
dreifíngu í New York ríki og
að koma í búðir á Flórída. Þar
með verður þessi vara komin í
búðir á allri austurströnd
Bandaríkjanna þannig að útlit-
ið er gott,“ segir Þórarinn
Sveinsson um vatnsútflutning
Akva hf. á Akureyri.
Þórarinn er nýkominn frá
Bandaríkjunum þar sem hann
fylgdist með viðbrögðum við
stórri sendingu af vatni fyrir-
tækisins sem sent var út fyrir jól.
í sendingunni í nóvember voru
um 470 tonn af vatni.
„Niðurstöður hingað til lofa
góðu, þó vatnið hafi komið í
búðirnar í jólaösinni þegar menn
eru að hugsa um margt annað.
En endanlegar skýrslur eru vænt-
anlegar í næsta mánuði og þá
gætu nýjar pantanir farið að
berast,“ segir Þórarinn. JÓH
inu í Heklu, sem hófst á sjötta
tímanum sl. fimmtudag. Vart
varð við gjóskufallið um norð-
austanvert landið, einkum í
Mývatnssveit og Bárðardal,
strax um kvöldmatarleytið og
síðar um kvöldið í Öxarfirði, á
Tjörnesi og Langanesi.
Heimilisfólk í Hafrafellstungu
í Öxarfirði setti út hvítan disk á
fimmtudagskvöldið og gat þannig
metið öskufallið. Á ellefta tíman-
um var diskurinn orðinn svartur
af fínkornaðri gjósku. Diskurinn
var síðan settur aftur út, en í
gærmorgun hafði lítil aska sest á
hann. Það bendir til þess að
gjóskufallið hafi verið töluvert
mikið fyrstu klukkustundirnar
eftir gosið, en síðan hafi dregið
úr því.
Ekki varð vart við gjóskufall á
Húsavík og sömu sögu er að
segja frá Akureyri. Hins vegar
eru fregnir um gjóskufall í
Eyjafjarðardölum og einnig féll
gjóska í fyrrinótt innarlega í
Skagafjarðardölum.
Sigurður Sigurðsson, dýra-
læknir á Keldum, hafði strax
samband við dýralækna á þeim
svæðum á Norðurlandi, þar sem
varð vart við gjóskufall, og bað
um að þau skilaboð yrðu látin út
ganga að búpeningi kynni að vera
hætta búin. Reynslan sýnir að
búpeningi getur stafað hætta af
flúor í Heklugjósku og því þótti
ástæða til að vara bændur við.
Margir bændur munu hafa tekið
hesta sína á hús, en gera má ráð
fyrir að hægt verði að setja þá aft-
ur út fljótlega, því ef marka má
fyrri Heklugos er gjóskufallið
alltaf mest fyrstu klukkustundirn-
ar eftir að gos hefst.
Samkvæmt upplýsingum Veð-
urstofunnar á vindur að snúast til
norðvestlægrar áttar í dag og því
ætti ekki vera mikil hætta á frek-
ara gjóskufalli í dag. óþh
Útibú Hafrannsóknastofnunar á Akureyri:
Steingrímur Jónsson
ráðinn forstöðumaður
Steingrímur Jónsson, hafeðl-
isfræðingur, hefur verið ráðinn
forstöðumaður nýs útibús
Hafrannsóknastofnunar á
Akureyri, sem hleypt verður af
stokkunum í vor. Þá hefur
Öivind Kaasa, líffræðingur,
verið ráðinn starfsmaður við
útibúið. Frá þessu var gengið í
gærmorgun.
Steingrímur Jónsson er Akur-
eyringur að ætt og uppruna,
fæddur árið 1957. Hann lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri árið 1977 og lagði
síðan stund á nám í Bandaríkjun-
um í eðlis- og stærðfræði um eins
árs skeið. Næstu átta árin stund-
aði hann nám í sömu fögum í
Danmörku og síðan í haffræði í
Bergen í Noregi, en þaðan lauk
hann doktorsprófi í hafeðlisfræði
sl. vor. Síðasta hálfa árið hefur
hann unnið á Hafrannsókna-
stofnun að rannsóknum á tengsl-
um veðurfars og ástandi sjávar.
Öivind Kaasa, er Norðmaður.
Hann hefur cand scient próf í líf-
fræði frá Noregi og hefur að
undanförnu kennt við Háskólann
á Akureyri.
Að sögn Jakobs Jakobssonar,
forstjóra Hafrannsóknastofnun-
ar, eru Steingrímur og Öivind
ráðnir frá og með 1. mars nk.
Gert er ráð fyrir að þeir muni
bæði vinna verkefni fyrir Haf-
rannsóknastofnun og kenna við
sjávarútvegsfræðideild Háskól-
ans á Akureyri. óþh
Starfsmenn Akureyrarbæjar við malbikunaraðgerðir á Strandgötu. Mynd: Golh
Akureyri:
„Unnið við þijú stórverkefni“
- segir Hilmar Gíslason, bæjarverkstjóri
„Við höfum verið að vinna að
holufyllingum gatna þegar
færi gefst. Að slíku er unnið
allan ársins hring, enda fjölgar
bifreiðum alltaf og þar með
eykst viðhaldið stórum,“ sagði
Hilmar Gíslason, bæjarverk-
stjóri.
Að sögn Hilmars, þá er hann
með um 40 menn í vinnu í vetur
enda næg verkefni fyrirliggjandi.
„Við erum með þrjú stórverk-
efni, fyrir utan allt þetta smærra
sem fellur til. f Giljahverfinu er
unnið að holræsalögn. Við
Brunná er verið að leggja veg að
Heilsuhælinu og við Glerá eru
stórframkvæmdir. Aðal holræsis-
lögn bæjarins mun liggja í fram-
tíðinni niður með Glerá í sjó út
og að henni er unnið. Við þurft-
um að breyta farvegi árinnar þess
vegna og nú er unnið hörðum
höndum að þessari framkvæmd,"
sagði Hilmar Gíslason. ój
Fasteignagjöld hjá Akureyrarbæ:
Nú má punga út með plastkortum
Akureyringar þurfa ekki leng-
ur að greiða fasteignagjöldin
með beinhörðum peningum. í
gær undirrituðu fulltrúar
Akureyrarbæjar samning við
greiðslukortafyrirtækin Visa
Island greiðslumiðlun hf. og
Kreditkort hf. þess efnis að
bæjarbúar gætu greitt fast-
eignagjöldin með svokölluðum
boðgreiðslum, en það er nýr
valmöguleiki til greiðslu þess-
ara gjalda.
Að sögn Dans Brynjarssonar,
hagsýslustjóra, vill Akureyrar-
bær færa innheimtu fasteigna-
gjalda í nútímalegra horf og gefa
gjaldendum kost á að nota
greiðslukort, sér til hægðarauka.
Þeir sem nota greiðslukort losna
þá við umstangið sem fylgir því
að greiða gíróseðil mánaðarlega.
Á miðnætti rann út frestur til
að skila inn framboðum vegna
sveitarstjórnarkosninganna í
hinum nýja Öxarfjarðar-
hreppi, sem til verður við sam-
einingu Öxarfjarðarhrepps og
Presthólahrepps.
Þegar blaðið fór í prentun í
gær hafði ekkert framboð borist
og því stefndi í óhlutbundna
kosningu.
Sveitarstjórnarmenn í hrepp-
unum báðum ætluðu ekki að hafa
Gjalddögum fasteignagjalda
hefur verið fjölgað og eru þeir nú
átta, frá 1. febrúar til 1. septem-
ber og eindagi er mánuði eftir
gjalddaga. Febrúargreiðsla verð-
ur færð inn á greiðslukort kort-
hafa í marsbyrjun og svo fram-
vegis.
Sem kunnugt er hækkaði fast-
Útafkeyrsla var á Sauðár-
króksbraut við bæinn Vík í
Staðarhrepp. Jeppi fór útaf
frumkvæði að því að koma með
listaframboð, en ef hins vegar
kæmi fram framboð annarra
aðila fyrir miðnætti, sagði Ingunn
St. Svavarsdóttir, oddviti Prest-
hólahrepps, að sveitarstjórnirnar
hefðu lögum samkvæmt tvo daga
til að koma sér saman um mót-
framboð.
Kosning sveitarstjórnar nýja
sameinaða sveitarfélagsins verð-
ur laugardaginn 2. febrúar nk.
óþh
eignamatið um 12% og sagði
Dan að hækkun fasteignagjalda
væri svipuð. Aðspurður kvaðst
hann ekki telja að samningurinn
við greiðslukortafyrirtækin hefði
aukinn kostnað í för með sér fyrir
Akureyrarbæ, en menn hefðu
talið nauðsynlegt að bjóða upp á
þennan valkost. SS
veginum með þeim afleiðing-
um að hann valt og ökumaður
hans kastaðist út og slasaöist
verulega. Gríðarleg hálka var
á Sauðárkróksbraut þar sem
óhappið átti sér stað.
Jeppinn sem valt er ónýtur að
segja má. Hann hafnaði það
langt frá vegi að ökumaður hélt
að bílar hefðu ekið framhjá án
þess að verða hans varir. Hálka
er mikil á öllum vegum og vegfar-
endur eru hvattir til að sýna var-
færni.
Að sögn Björns Mikaelssonar
yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki
er mikið um smá óhöpp af völd-
um hálkunnar. Lágt hitastig og
úrkoma hafa skapað mikla hálku
og eru allar leiðir innanbæjar
flughálar.
Vegagerðin fór upp á Vatns-
skarð í gær til að bera salt á
verstu brekkurnar þar. Segja má
að áður en saltað var hafi verið
ófært öðrum en vel búnum bíl-
um. kg
Presthólahreppur/Öxarfjarðarhreppur:
Framboðsfrestur
er runmnn út
Sauðárkróksbraut:
Jeppi valt í gær
- ökumaður slasaðist