Dagur - 28.03.1991, Page 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 28. mars 1991
Samúel Jóhannsson sýnir um
páskana í sal Myndlistarskólans á
Akureyri. Sýningin var opnuð í
gær, og verður opin til 2.
páskadags, milli kl. 14.00 og
18.00 daglega.
Samúel sýnir að þessu sinni
málverk sem snúast um ákveðið
þema, mannlegar tilfinningar og
öldurót þeirra, ást og umhyggju.
Samúel er enginn nýgræðingur í
myndlist, hann hefur tekið þátt í
mörgum samsýningum og haldið
einkasýningar. Hann er innfædd-
ur Akureyringur, fæddur 1946.
Eðli málsins samkvæmt eru
ritmál og myndlist tveir ólíkir
tjáningarmátar. Þegar á að nota
eitt tjáningarformið til að túlka
eða útskýra hitt er því alltaf
hætta á ferðum, e.t.v. fyrst og
fremst sú að útskýringar á mynd-
verkum geri næstum minna en
ekkert gagn. Verkið útskýrir sig
sjálft, það talar sínu eigin máli til
áhorfandans. Þeir straumar sem
Sterkur og persónulegur stíll
og kenndir. Þetta er mjög for-
vitnilegt viðfangsefni, og Samúel
hefur tekist vel að koma þessu til
skila í verkum sínum.
Myndirnar eru margar ein-
kennilega grípandi og áhrifamikl-
ar, á sinn sérstæða hátt. „Þetta er
allt saman minn heimur, ég get
ekki skýrt það á annan hátt,“ seg-
ir Samúel.
Hugarheimur listamannsins
endurspeglast í verkunum, og
áhorfandi upplifir þau frá sínu
sjónarhorni. En þrátt fyrir að öll
séum við ólík, þá er eitthvað í
þessum verkum sem höfðar til
sameiginlegrar reynslu allra
manna.
Sýning Samúels í sal Myndlist-
arskólans er níunda einkasýning
hans á tólf árum. Fyrsta samsýn-
ingin sem hann tók þátt í var á
Húsavík árið 1980.
Ef draga á einkenni þessara
verka saman í örfáum orðum
hlýtur sterkur og persónulegur
stíll myndverka Samúels
Jóhannssonar að koma fyrst í
hugann. Myndirnar eru þannig
að þeim mun lengur sem horft er
á þær, því sterkari tökum grípa
þær áhorfandann. EHB
- Samúel Jóhannsson sýnir á Akureyri um páskana
fara þarna á milli verða ekki tjáð-
ir með orðum, þeir eru eigin upp-
lifun þess sem skoðar verkið.
Auðvitað eru verkefni mynd-
listarmanna ólík. Samúel er fí-
gúratívur málari, verkin má
kenna við expressionisma. En
þótt hægt sé að flokka verk mál-
ara í einhverja listfræðiflokka
eða eftir stefnum, er næsta lítið
sagt, enda segist Samúel hugsa
lítið um slíkt. Verk sín segir hann
vera túlkun á hughrifum og
hugarflugi, málverkið tekur völd-
in í eigin heimi.
í spjalli við Samúel kom fram
að greina megi ákveðna þróun í
myndlist hans í þá veru að
myndfletir verði hreinni og skýr-
ari, litirnir bjartari. Þetta er
greinilegt þegar verk hans undan-
farin ár eru borin saman.
Eitt er það sem einkennir öll
verkin, og það eru sterkar tilfinn-
ingar. Myndirnar eru líka mjög
persónuleg verk, eins og góð
myndlist hlýtur raunar alltaf að
vera, því listamaðurinn skapar
verkin auðvitað á persónulegan
hátt. í verkum Samúels er oft
einhver magnþrungin spenna og
dulúð.
í þeim verkum sem sýndar eru
að þessu sinni snýst mótífið tals-
vert um grímur. Höfuð eru hulin
grímum, þannig að persónur
myndanna sýna ekki sitt rétta
andlit. Út af þessu má leggja á
marga vegu, t.d. tregðu fólks á
að sýna sitt sanna eðli, og að
koma til dyranna eins og það er
klætt. Einnig má líta á þetta sem
grímuna sem hylur hið sanna
mannseðli, eða innstu hugsanir